Dagur - 08.02.2000, Blaðsíða 5
J
ÞRIÐJUDAGUR 8. FERRÚAR 2000 - 21
LÍFID í LANDJXU
Iistinað
smakkavín
Af sérstöku tilefni
Ekki ósjaldan fær fólk gefins ár-
gangsvín þegar sérstök tilefni
standa til, svo sem eins og á
stórafmælum. Þetta geta verið
margra ára og margra þúsunda
króna vín, sem viðkomandi hugs-
ar sér að geyma og opna við eitt-
hvert hátíðlegt tækifæri seinna
meir. Það geta Iiðið mörg ár
þangað til, en hvar er flaskan á
mcðan? Jú, mjög algengt er að
fólk sem ekki þekkir til setji
flöskuna inn í skáp í stofunni
heima, gjarnan standandi upp á
endann. Algengur stofuhiti er
um 20°C, en geymsluhiti óopn-
aðrar vínflösku á að vera 12 til
14°C, einnig skal flaskan liggja á
hliðinni því korkurinn þarf að
vera í snertingu við vínið, annars
þornar hann, skreppur saman og
hleypir súrefni í gegn sem
skemmir vínið. Það yrðu því ekki
ánægjulegar stundir þegar Ioks-
ins fína, dýra flaskan yrði opnuð
og upp kæmist að vínið er ónýtt.
Úrslit í vínþjónakeppni
Vínþjónar eru að verða meira og
meira áberandi á veitingahúsum
á Islandi. Þróun vínmenningar á
Islandi hefur farið vaxandi síð-
ustu árin og eru vínþjónar því
kærkomin þjónusta við við-
skiptavininn, sem gjarnan vill
vera viss um að velja rétt vín með
matnum.
Þátttakendur í vínþjónakeppn-
inni stóðu í ströngu og var sam-
keppnin hörð. Keppendur þurftu
að sýna getu sína við að opna,
umhella og skenkja víni. Einnig
þurftu þeir að þekkja mun á
þeim fjóru tegundum vínþrúgna
sem notaðar eru til víngerðar og
sýna hæfni sýna í blindsmökkun.
Þrír efnilegir vínþjónar komust í
úrslit, þeir: Stefán Guðjónsson,
Brasserí Borg, Bvík, Þorleifur
Sigurhjörnsson, Sommelier nýj-
um veitingastað við Hverfisgöt-
una í Rvík og Sigmar Orn Ing-
ólfsson, Hótel Holti, Rvík. Sigur-
vegari keppninnar varð Stefán
Guðjónsson. — W
Þrír komust í úrslit vínþjónakeppninnar: Þorleifur Sigurbjörnsson vínþjónn á Sommelier nýjum veitingastað við Hverf-
isgötuna í Rvík., Sigmar Örn Ingólfsson á Hótel Hoiti, Rvík og sigurvegarinn Stefán Guðjónsson Brasserí Borg, Rvik.
a miðiu
—T7—TZW-
íslenskra
stjórnmála
Fjölskylda
Opnirfundir
þingmanna
Fmmsóknarftokksins
Miðvikudagur 9. febrúar Mónudagur 14. febrúar
Framsóknarhúsinu,
Digranesvegi 12, Kópavogi
ki 20.00
• Siv Friðleifsdóttir
• Valgerður Sverrisdóttir
• Isólfur Gylfi Pólmason
• Olafur Orn Haraldsson
Fundarstjóri: Omar Stefónsson
Fimmtudagur 10. febrúar
Félagsheimilinu, Bolungarvík
kt. 20.30
• Halldór Asgrímsson
• Kristinn H. Gunnarsson
• Hjólmar Arnason
• Jónína Bjartmarz
Fundarstjóri: Ketill Elíasson
Egilsbúð, Neskaupstað
ki. 20.30
• Ingibjörg Pólmadóttir
• Siv Friðleifsdóttir
• Valgerður Sverrisdóttir
Fundarstjóri: Jón Kristjónsson
Þriðjudagur 15. febrúar
Miðgarði, Varmahlíð
kl. 20.30 ,
• Halldór Asgrímsson
• Póll Pétursson
• Kristinn H. Gunnarsson
• Jón Kristjdnsson
Fundarstjóri: Herdís Sæmundard.
Þriðjudagur 15. febrúar
Grand Hótel v/Sigtún, Reykjavík
kl, 20.00
• Olafur Örn Haraldsson
• Ingibjörg Pdlmadóttir
• Valgerður Sverrisdóttir
• Jónína Bjartmarz
Fundarstjóri: Vigdís Hauksdóttir
Miðvikudagur 16. febrúar
Kaffimenningu, Dalvík
kl. 20.30
• Valgerður Sverrisdóttir
• Kristinn H. Gunnarsson
• Guðni Agústsson
• Jón Kristjónsson
Fundarstjóri: Hilmar Daníelsson
Fimmtudagur 17. febrúar
Hótel Selfossi, Selfossi
kl. 20.30 ,
• Halldór Asgrímsson
• Guðni Agústsson
• Isólfur Gyjfi Pdlmason
• Hjdlmar Arnason
Fundarstjóri: Kristjón Einarsson
FRAMSOKNARFLOKKURINN
Afeð fólk í fyrirrúmi
Vínsmökkun erlist
sem krefst æfingar.
Hversem ergeturorðið
góður vínsmakkari.
Vínmenning íslend-
inga að þróast.
Það var margt um manninn á
vínnámskeiði sem haldið var fyr-
ir almenning í sölum Fosshótels
KEA síðastliðinn sunnudag. Það
var Vínklúbbur Akureyrar sem
stóð lýrir námskeiðinu, en sam-
hliða námskeiðinu var haldin
vínþjónakeppni í samstarfi fyrr-
nefndra við Vínþjónasamtök ís-
lands, en það er keppni fag-
manna í vínfræðum og smökkun.
Allt að sextíu manns sátu nám-
skeiðið og fjórtán vínþjónar tóku
þátt í vínþjónakeppninni.
Ekki vínber ineö víiii
Þátttakendur á námskeiðinu
fengu að kynnast því hvernig vín
er húið til - þær mismundandi
aðferðir og tegundir vfnþrúgna
sem notaðar eru við gerð og
framleiðslu; hvftvíns, rauðvíns
og rósavíns. Ekki er sama hvem-
ig vínflaska er opnuð og hitastig
þarf að vera rétt - en það er við-
tekin venja eins og kom fram hjá
fyrirlesaranuni Hirti Þorleifs-
syni, vfnþjóni að í Skandinavíu
sé rauðvín framreitt of heitt og
hvítvfn og rósavín of köld. Einnig
var fróðlegt að vita að vínflaska
sem hefur verið opnuð, geymist
ekki lengur en 2 til 3 daga og má
alls ekki setja tappann í hana aft-
ur nema að skera hann í sundur
fyrst. Og ólíkt því sem margur
hefur haldið, að þegar hann/hún
vill hafa kósí kvöld með kerta-
ljósum, rauðvíni, ostum og vín-
berjum, þá eru vínberin blátt
áfram bönnuð - eyðileggja bragð-
ið af víninu, þessu fengu náms-
skeiðsþátttakendur að kynnast
ásamt því að sömu sögu má segja
um sítrónur, hversu algengt er
ekki þegar farið er út að borða að
á diskinum sé sítróna til skrauts
bæði með fiski og kjöti. Vínþjón-
ar segja að kokkarnir séu ekki
alltaf með þessa hluti á hreinu
Vínsmökkun er listin að meta vín með þremur af fimm skiiningarvitum okk-
ar: sjón, iykt og bragði.
og viðskiptavinurinn kreisti hara
sítrónuna út á matinn einfald-
lega vegna þess að hún er þarna.
Vínið missir sem sagt sitt upp-
runalega bragð þegar vínber og
sítrónur er borðaðar með því.
!