Dagur - 01.03.2000, Page 1
VQja rannsnkn
á örlögmn KÞ
Á framhaldsaðalfimdi
Kaupfélags Þingeyinga
11. mars n.k. verður
væntanlega lögð fram
tillaga um rannsókn á
aðdraganda greiðslu-
erfiðleika félagsins.
Að undanfömu hafa verið haldnir
þrír deildarfundir deilda úr hinum
ýmsu sveitarfélögum á félagssvæði
Kaupfélags Þingeyinga. Þar hafa
meðal annars verið kynntar nýjar
samþykktir KÞ þar sem til dæmis
er gert ráð fyrir að stjórn félagsins
verði skipuð þremur mönnum og
gert ráð fyrir að stjórn ráði fram-
kvæmdastjóra þess og skuli hann
m.a. annast bókhald félagsins.
En fundartíminn hefur ekki síst
verið notaður til þess að ræða um
örlög kaupfélagsins og hvers vegna
svo fór sem fór. Á fundinum á
Húsavík í fyrri viku var nokkuð
þungt í mönnum og einstakir
stjórnarmenn viðurkenndu að þeir
hefðu sofnað á verðinum og ekki
tekið í taumana nógu snemma til
að afstýra því sem sfðar varð.
Vanhæfi?
A fundinum var kynnt eftirfarandi
tillaga og boðað að hún yrði Iögð
fram á framhaldsaðalfundi KÞ fyr-
ir árið 1999. Að þessari tillögu
J EÍLAG'ÞIN GEYTFTgA17
SLAT-RÍ N FRYSTING
■ ■ ....
Kaupfélagið á Húsavík. Hví varð hún Snorrabúð stekkur?
standa fulltrúar úr nánast öllum
deildum Kaupfélagsins:
„Framhaldsaðalfundur K.Þ. fyr-
ir árið 1999, haldinn á Húsavík
11. mars 2000 samþykkir að nýta
ákvæði í 55. gr. laga um samvinnu-
félög nr. 22/1991 um sérstaka
rannsókn.
I fyrmefndri grein stendur m.a.:
„Félagsaðili getur á aðalfundi eða
á öðrum félagsfundi, þar sem mál-
ið er á dagskrá, komið fram með
tillögu um að fram fari rannsókn á
stofnun félags, tilgreindum atrið-
um varðandi starfsemi þess eða
ákveðnum þáttum bókhalds eða
ársreiknings. Hljóti tillagan at-
kvæði minnst 25% atkvæðisbærra
félagsmanna eða fulltrúa deilda
getur félagsmaður í síðasta lagi
einum mánuði frá lokum fundar-
ins farið þess á leit við ráðherra að
hann tilnefni rannsóknarmenn..“.
Rannsókn þessi skal beinast að
aðdraganda að greiðsluerfiðleikum
Kaupfélags Þingeyinga og þeim
úrræðum sem gripið var til við
lausn þeirra. Sérstaldega skal
skoða þátt einstakra aðila, (ein-
staldinga, fyrirtækja og stofhana)
sem á einhvem hátt tengjast mál-
inu.
Einnig skal athuga hugsanlegt
vanhæfi einstaklinga sem unnið
hafa að nauðarsamningum og
uppgjöri KÞ“.
Hvers vegna?
Nokkrar umræður urðu um þessa
tillögu á fundinum og meðal ann-
ars lýsti fyrrverandi stjórnarmaður
KÞ, Ingveldur Arnadóttir, yfir
stuðningi við tillöguna. Einnig
kom fram það sjónarmið að tillag-
an miðaði að því að finna söku-
dólga í málinu og jafnvel þjóf-
kenna einhverja málsaðila.
Þessu neita talsmenn tillögunn-
ar alfarið. Tilgangurinn sé fyrst og
fremst sá að fá svör við spurning-
um á borð við: Hvað gerðist?
Hvers vegna? Voru í raun aðeins
tveir kostir í stöðunni, gjaldþrot
eða nauðarsmningar? Og hefði
verið hægt að koma í veg fyrir þá
niðurstöðu sem menn standa nú
frammi fyrir?
Talsmenn tillögunnar benda á
að á kreiki séu ýmsar gróusögur og
margt sagt sem ekki er satt og á
meðan öll spil eru ekki lögð á
borðið, verði sögusagnir eini sann-
leikurinn í málinu. Rannsóknin
miði því alls ekki að því að sakfella
einn eða neinn heldur vilji menn
að allar upplýsingar málsins komi
fram, til þess ekki síst að eyða
gróusögunum. Það hljóti að vera
öllum til góðs.
Og þeir benda einnig á að í lög-
um um samvinnufélag sé að finna
afgerandi ákvæði um ábyrgð ráða-
manna samvinnufélags, sem ekki
sé horft til í þessari tillögu, sem
væntanlega hefði verið gert ef til-
gangurinn væri sá að ákæra menn,
en það hljóðar svo: „Stofnendur,
stjórnarmenn, framkvæmdastjór-
ar, (kaupfélagsstjóri), skoðunar-
menn og endurskoðendur sam-
vinnufélags eru skyldir að bæta fé-
laginu það tjón sem þeir hafa vald-
ið því í störfum sínum, hvort sem
er af ásetningi eða gáleysi". — JS
, ■ ,V.
Þeir hafa kennt og skemmt Þingeyingum um langan aldur og eru enn að, kennararnir, leikararnir og tóniistarmennirnir Ingimundur Jónsson
og Sigurður Hallmarsson.
Garðyrkju-
maður út
árið
Á fundi Fram-
kvæmda-
nefndar
Húsavíkur í
fyrri viku var
fjallað um
ráðningu í
starf garð-
yrkjumanns
Húsavíkur-
kaupstaðar.
Þrír sóttu um Kristján Asgeirs-
starfið og son-
hafði tækni-
fræðingur bæjarins ráðið Jan
Klitgárd á grundvelli mestrar
starfsreynslu og menntunar. Jan
Klitgárd hefur búið á Húsavík í
nokkra mánuði og annar um-
sækjandi var heimamáðurinn
Hilmar Dúi Björgvinsson.
Á fundinum lagði Kristján Ás-
geirsson til að aðeins yrði ráðið í
starfið til næstu áramóta og vís-
aði í því sambandi til hugmynda
og umræðna um að bjóða þessa
starfsemi bæjarins út. Tillaga
Kristjáns var samþykkt 3-2. — JS
12 mffljónir
í Hólasand
Vinna við uppgræðslu Hóla-
sands gekk vel á síðasta ári.
Birki lifði vel eftir veturinn og
virðist ætla að dafna í nábýli við
lúpínuna og melgrassáningar
litu vel út. Árangur á Hólasandi
er talinn góður af þeim sem að
verkefninu standa en hann er
mjög háður árferði og veðráttu.
Á árinu 1999 var lúpínu sáð í
22 hektara lands og lúpínusán-
ing spannar nú 400-500 hektara
lands á Hólasandi. Samtals var
plantað 25 þúsund lúpínuplönt-
um á árinu. 30 þúsund birki-
plöntur voru gróðursettar, en
þetta birki er ræktað upp af fræi
úr Strandarholti í Mývatnssveit.
Gras og melsáningur var svo
borinn á um 50 hektara.
Kostnaður við uppgræðslu
Hólasands og aðrar fram-
kvæmdir þar á síðasta ári nam
um 12,3 milljónum og er verkið
styrkt af Umhverfissjóði versl-
unarinnar. — JS
Menningar-
hús2002
Jón Ásbergs Salómonsson, bæj-
arfulltrúi Húsavíkurlistans hef-
ur lagt fram tillögu í Fræðslu-
nefnd þess efnis að hafist verði
handa við bvggingu menningar-
húss (leikhúss með meiru) árið
2002 og að ijárveiting til verks-
ins á því ári verði tvær milljónir.
Fjórum milljónum verði síðan
varið til framkvæmda árið 2003.
Fræðslunefnd samþykkti til-
löguna samhljóða og að vísa
henni til bæjarráðs til umfjöll-
unar. — JS