Dagur - 01.03.2000, Qupperneq 2
2 - MIDVIKVDAGUR 1. MARS 2000
V ÍKU RBLADIÐ
Oddvittnn faiin
skriffærin!
Barist fyrir vel-
ferð Ilúsavíkiir
KIUSTJÁX
ASGEIRS-
Á undanförmiin víkuni og <löj*uin
iiafa málcfní Í:í$kí6jui>amlngs
Húsuvíkur h.f. <Hi h.f.) vcriík i
unmcdunni hcr í ha*. VII <*g í
Jh*ssu grdnarknrni gera grcín fyr-
ir iifstcíúu núniii <% skoAunum á
Jwssum iniihnn.
l’Cgar tannhvknar licr ú staAn-
um fcíru mcí mejrihlutd í hæjar-
stjdm híirdu Jicir í gegn aú bær-
ínn sem átli meirihlula í Hl h.f.
seldi hann frá scr. Um lcift fúr
inift óskerla vakl s<*rn hívrinn
íiiiffti yíir vcíAihcimilduntnn. iin
fulli dskoraft vald yflr veiöiheím-
iidum <*r nauftsynlegt Jivf á J>eim
hygjyum vlft rckstur l'H h.f.
Síftan tóku vift hver nústðkin af
óftrum. Skipin VOTU seld. kvóti
„Þad bar helst til tiðinda fyrir einhverjum vikum, að oddviti H-listans iét frá sér fara ritað mát, “ skrifar Sigurjón
m.a. í grein sinni og er þá væntanlega að visa til skrifa Kristjáns Ásgeirssonar hér í Víkurblaðinu í byrjun febrúar.
Það bar helst til tíðinda fyrir ein-
hverjum vikum, að oddviti H-
listans lét frá sér fara ritað mál.
Slíkt hefur ekki gerst síðan
greinin um þá félaga Brúttó og
Nettó birtist fyrir nokkrum
árum.
Nó liggur líka mikið við. Sam-
runaferlinu klóðrað, meirihluta-
brestur, ráðleysi og það sem virð-
ist vera erfiðast: Ljósvíkingar eru
ekkert ánægðir með „sína“ menn
í bæjarstjórn!
Neyðarkall úr Neðri-vör!
Ekki virðist oddviti H-Iistans una
sér vel, þó hann hafi náð 6. sæti
í prófkjöri og síðan eðlilega orð-
ið oddviti Iistans við kosningar.
Ekki virðist honum líða vel, þó
hann hafi unnið þessar kosning-
ar með glæsibrag og, samkvæmt
venju, því myndað meirihluta
um stjórn bæjarins. Gamli meiri-
hlutinn og nýi minnihlutinn eiga
huga hans allan. Ekki virðist
oddvitinn enn bóinn að átta sig á
því, að hann er í meirihluta og
engir aðrir Ijótir meirihlutamenn
eru til, en hans eigin meirihluti.
MmmMutí meiriMutans
Nú hefur reyndar komið í Ijós að
meirihlutinn er ekki meirihluti,
heldur minnihluti meirihlutans.
Fer það eftir því hverjir „fá“ að
mæta á bæjarstjórnarfundi. Mik-
ilvæg mál, þar sem bæjarstjóri
oddvitans „leggur allt undir“
komast þrátt fyrir það, ekki í
gegnum bæjarstjórn. Fimm bæj-
arfulltróar af níu voru samrun-
anum andvígir. Og það er sama
hversu oft er talið, fimm eru
fleiri en fjórir.
Oddvitinn getur því tekið gleði
sfna!
Hann er kominn í minnihluta
enn einu sinni. Til hamingju!
Hvað er hverjum að kenna?
Nó er oddvitinn önnum kafinn
við að sleikja sárin efrir sam-
runaklúðrið. Engu máli skiptir
þó hann sé oddviti einhvers
meirihluta og beri því ábyrgð á
málefnum bæjarfélagsins. Odd-
vitinn kærir sig kollóttan um
slíkt. Oddvitinn kemst stundum
í minnihluta og þá líður honum
skár.
Ef hann vill kenna einhverjum
minnihluta um allar sínar ófarir,
þá er betra að hann skilgreini
hvaða minnihluta hann á við. Er
það minnihlutinn hans, eða ein-
hver annar minnihluti?
Oddvitinn stóð íyrir samruna-
klóðrinu og ber á því ábyrgð.
Oddvitinn hafnaði því, að mat
yrði lagt á samrunann við Ljósa-
vík, og ber á því ábyrgð. Oddvit-
inn stóð fýrir því að aðaleigend-
ur Ljósavíkur og fulltrúi þeirra,
gegna nó lykiltrúnaðarstöðum í
stjórn Fiskiðjusamlagsins, og ber
á því ábyrgð. Oddvitinn stóð fyr-
ir ráðningu bæjarstjóra, og ber á
því ábyrgð. Oddvitinn leyndi
bæjarstjórn mikilvægum gögn-
um og svarar ekki bréfum, og ber
á því ábyrgð. Oddvitinn stendur
fyrir því, að sveitarstjórnarlög
séu brotin, og ber á því ábyrgð.
En veit oddvitinn að hann
her alla áhyrgð?
Nei, þvf hann heldur að ein-
hverjir tannlæknar úti í bæ og
einhver minnihluti eða allt ann-
ar meirihluti stjórni hér enn.
Fyrrverandi meirihluti og svo
fyrrverandi fyrrverandi meiri-
hluti og allir hinir hlutarnir eru
að þvælast fyrir oddvitanum,
sem rekur nú bæjarsjóð á 600
milljóna króna yfirdrætti í banka
allra Iandsmanna. Svona er að
festast í minnihlutahugsuninni.
Ekkert skrítið. Það er samdóma
álit manna að oddvitinn hafi ein-
mitt verið alveg þokkalegur bæj-
arfulltrúi. í minnihluta!
Sýslumaöurinn á Húsavík
Útgaröl 1, 641 Húsavík,
S: 464 1300
UPPBOÐ
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins aö Útgaröi 1, Húsavfk
mánudaginn 6. mars 2000 kl. 10:00
á eftirfarandi eignum:
Aöalbraut 24, 020101, Raufarhöfn,
þingl. eig. Vesturá ehf, geröar-
beiðandi Ibúöaiánasjóður.
Aðalbraut 24, 020201, Raufarhöfn,
þingl. eig. Vesturá ehf, gerðar-
beiöandi Ibúöalánasjóöur.
Aöalbraut 24, 020301, Raufarhöfn,
þingl. eig. Vesturá ehf, gerðar-
beiöandi Ibúðalánasjóöur.
Aðalbraut 31, Raufarhöfn, þingl.
eig. Karítas Skarphéðinsdóttir Neff,
gerðarbeiöendur (búöalánasjóöur
og Lífeyrissjóðir Bankastræti 7.
Ásgarðsvegur 7, Húsavík, 50%
hluti, þingl. eig. Lára Sigþrúður
Siguröardóttir, gerðarbeiðandi
Kaupfélag Þingeyinga.
Ásgarður, Þórshöfn, þingl. eig.
Borghildur Björg Þóroddsdóttir og
Magnús Sigurðsson, geröar-
beiöendur Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar, íbúðalána-
sjóöur og Kaupfélag Þingeyinga.
Birkihraun 12, Skútustaöahreppi,
þingl. eig. Sigvaldi 0
Aöalsteinsson, geröarbeiöandi
íbúðalánasjóður.
Brúnagerði 1, efri hæö, Húsavík.,
þingl. eig. Halldóra Gunnarsdóttir,
geröarbeiöandi íbúðalánasjóður.
Brúnageröi 1, neðri hæö, Húsavík.,
þingl. eig. Meindýravarnir íslands
ehf, gerðarbeiðandi Fjártestingar-
banki atvinnul hf.
Garðarsbraut 31, Húsavík, þingl.
eig. Ingibjörg Lára Haröardóttir,
gerðarbeiöandi Kaupfélag Þing-
eyinga.
Garðarsbraut 69, 0303, Húsavik,
þingl. eig. Albert Gunnar Arnarson,
geröarbeiðandi íbúöalánasjóöur.
Haukamýri 1, Húsavík, þingl. eig.
Timburtak ehf, gerðarbeiðendur
Fjármögnun ehf og Veitingahúsið
Setberg ehf.
Höföabrekka 20, Húsavík, þingl.
eig. Sigurður Helgi lllugason og
Guörún Sigríöur Gunnarsdóttir,
gerðarbeiðandi íbúöalánasjóöur.
Langholt 1B, Þórshöfn, þingl. eig.
Þ.H.verktakar ehf, gerðarbeiðendur
Byggðastofnun, Eignarhaldsfélagiö
Normi og Sparisjóöur Kópavogs.
Sandhólar, Tjörneshreppi, þingl.
eig. Sveinn Egilsson, gerðarbeiö-
andi íbúðalánasjóður.
Sólvellir 1, Húsavík, þingl. eig.
Þorvaldur D Halldórsson, geröar-
beiðendur Búnaðarbanki íslands hf,
Húsasmiðjan hf og íbúðalána-
sjóður.
Vesturvegur 10a, Þórshöfn, þingl.
eig. Víöir Óskarsson, gerðar-
beiðandi íbúöalánasjóöur.
Sýslumaðurinn á Húsavfk,
29. febrúar 2000.
Hrefna Gísladóttir, fulltrúi.
HúsvísMr músíkniemi
Það var húsfyllir og ríflega það í
Safnahúsinu s.l. fimmtudagskvöld
þegar þar fóru fram tónleikar þar
sem fram komu húsvískir lista-
menn úr ýmsum geirum tónlistar-
innar. Og viðstaddir skemmtu sé
hið besta yfír Ijölbreyttri tónlistar-
dagskrá.
Aðalsteinn Isfjörð þandi nikk-
una eins og honum einum er lagið
og flutti meðal annars frumsamin
verk. Sigurður Illugason og Oddur
Bjarni Þorkelsson fluttu sömuleið-
is finmsamið efni og var sviðsferð
þeirra og framganga öll glúrin og á
köflum einkar heillandi. Gítarleik-
arinn Þorvaldur Guðmundsson og
píanóleikarinn Aðalheiður Þor-
steinsdóttir héldu sig við fágaða
ldassík. Lára Sóley Jóhannsdóttir
heillaði viðstadda enn einu sinni
upp úr skónum með fiðlunni sinni.
Sá góði tenór Baldur Baldvinsson
hélt sig við við þjóðlega klassík, ný-
fimmtugur og hress og ungverski
tónlistarkennarinn Aladár Bácz
sýndi snilli sína á píanóið.
Rúsínan í pylsuenda þessa kvöld
voru svo kempurnar Ingi og Diddi,
Ingimundur Jónsson og Sigurður
Hallmarsson sem kórónuðu
skemmtilega kvöldstund eins og
þeim einum er lagið. - JS
Sigurður lllugason og Oddur Bjarni.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Þorvaldur Guðmundsson.