Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 3
TWmi-
MIDVIKUDAGUR 1. MARS 2000 - 3
k VÍKUR BLAÐIÐ
Snjómokstur
WkÆ?
É É3 fe íi m M k %i m
Úr uppfærslu Ungmennafélagsins Eflingar á Síldinni eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur.
Leikhús-
dáLkurtnn
Það er ætlimin að leyfa lesendmn að fylgjast
ögn með gangi mála hjá Leikfélagi Húsavíkur
á meðan á æfingum á leikritinu „Uppspuni frá
rótum“ stendur. Lesendur eru heðnir að hafa
þaö í huga að þessir ör-pislar, verða í anda
leikritsins og her ekki að taka jiá af alvöru eða
nota þá sem heimildir til að sanna mál sitt á
einhvem hátt.
• Heyrst hefur á æfingum: Eg hlýt að vera af rangri stærð, þess vegna
er ég með höfuðverk...
• Reiðilega, nánast öskrað „Komdu þér út úr mínum dyrum!!!!!!“.
Yxna ræksni eða yxna ræskni????? hvort er rétt?? er þetta ekki
finnska?
• Frést hefur af höfundi (31) gangandi á sokkaleistunum í snakkskál-
um, hvers vegna veit enginn, það kemur ekki fram í Ieikritinu.
• Hjálmar Bogi (19) er í megrun, þess vegna borðar hann...
• Húsráð dagsins: Ef mikið er af flötum bjór í glösunum daginn eft-
irpartý, safnið honum saman og setjið í Soda stream tækið.
- LH
Er einhver
snjór hjá þér?
Tek að mér snjómokstur af heimkeyrslum
og plönum með öflugri hjólaskóflu.
Skjót og vönduð vinnubrögð.
Dóri s 862 4476 / 462 4779
Hafnarverk ehf.
SKRIFAR
Föstudaginn 25. febrúar frum-
sýndi Leiklistarhópur Ugmenna-
félagsins Eflingar í Reykjadal
leikritið Síldin kemur og síldin
fer eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur í Félagsheimili
Reykdæla á Breiðumýri. Leik-
stjóri uppsetningarinnar er Arn-
ór Benónýsson, en tónlistarstjóri
Jan Alavere.
í anda ttmans
I Síldin kemur og síldin fer
bregða höfundar upp myndum
frá síldarárunum löngu gengnu,
þegar lítil sjávarpláss fylltust af
fólki í leit að fé og ekki síður ið-
andi mannlífi, sem tfðum var
ekki ýkja prúðlegt. I hugum
þeirra, sem þekktu, er minning-
in þó gjarnan rósrauð og sett sér-
stæðum persónum, mikilli
vinnu, kappsemi, róstusömum
landlegum og æsilegum stund-
um.
Þeim Iðunni og Kristínu
Steinsdætrum tekst vel að ná
anda tímans. Til þess nýta þær
meðal annars dægurlög hins
liðna tíma. Reyndar eru textar
samdir að efni verksins, en úr
verða mörg söngatriði, sem
miklu flest eru Iífleg og vel unn-
in í uppsetningunni á Breiðu-
mýri. I þessu ber í raun einungis
einn umtalsverðan skugga á, en
það er söngatriði fyrst eftir hlé. I
þvf náðist ekki viðhlýtandi ná-
kvæmni.
I tónlistarflutningi hafa flytj-
endur notið góðrar forystu tón-
listarstjórans, Jans Alavere, en
hann stýrir einnig sex manna
hljómsveit, sem leikur undir í
söngatriðum og geri vel. Styrkur
hennar er ætíð í góðu samræmi
við hvort heldur í einsöng eða
hópsöng. Hljómsveitin leikur
einnig í aðdraganda sýningar-
innar og þá með söngkonunni
Jóhönnu M. Stefánsdóttur. Hún
hefði vissulega sómt sér prýði-
lega á dansleikjum síldaráranna.
Lífleg sviðsferð
Leikstjórinn Arnór Benónýsson
fer ótroðnar slóðir í sviðsetningu
verksins. Hann nýtir svið í báð-
urn endum salarins og tengir
þau með upphækkuðum gang-
vegi, sem liggur eftir miðju hans.
Með þessu fæst, að sem næst
enginn tími fer í sviðsskiptingar,
heldur er leikið samfellt og iðu-
lega í mikiili námd við leikhús-
gesti, sem verða fyrir vikið ná-
lega í hringiðu atburðanna.
Arnóri Benónýssyni hefur í
heild tekist vel að ná Iíflegri
sviðsferð. Sérlega eru hópatriði,
svo sem dans, vel unnin og einn-
ig atriði á síldarplaninu, sem yf-
irleitt eru lifleg og sannferðug.
Hið sama er að miklu mestu í at-
riðum síldardansleiksins. Einna
helst er deyfð í atriðum í meyja-
skemmunni, líkt og slakni um of
á spennunni. Einnig hefur leik-
stjórinn í flestum tilfellum gætt
vel að framsögn. Hún er tíðast
góð, þó reyndar útaf bregði.
Helsti galli í þessu efni er sá, að
sérkennilegur talsmáti, flámæli,
sem á að vera einkenni heima-
manna, heldur ekki svo samfellt
sem skyldi.
Aragrúi flytjenda
I stuttu máli má segja, að leikar-
ar standi vel fyrir sínu: Snorri
Kristjánsson í hlutverki Berg-
mundar nær tíðast vel að túlka
síldarspekúlantinn; Ingólfur Ing-
ólfsson, sem Sprengur og Karl
Ingólfsson, sem hinn sífulli Lilli,
fara iðulega á kostum; Friðrika
Illugadóttir og Þorgerður Sigur-
steinsdóttir í hlutverkum Sig-
þóru og Jöklu, ná almennt góð-
um tökum á persónunum; Linda
Björk Guðmundsdóttir og
Nanna María Elvarsdóttirí hlut-
^IÍÍP/ 5J4)jk msmc
verkum gellanna Hullu og Villu
eru vel fjörlegar, en fara á stund-
um nokkuð yfir strikið í fasi;
Hanna Þorsteinsdóttir og Guð-
mundur Arnarson í hlutverkum
ungmennanna Lóu og Ola eiga
prýðilega spretti í túlkun sinni;
Hjörtur Hólm Hermannsson,
sem aflaskipstjórinn Ponni, og
Ásgrimur Guðnason, sem sjóara-
jakinn Konni, ná báðir góðum
tökum á hlutverkum sínum;
bræðurnir Arnór, Hörður Þór og
Jón Friðrik Benónýssynir í pers-
ónum yfirvaldsins, Ófeigs og
málarans, skila þeim með ágæt-
um, þó að persóna Ófeigs mætti
halda sérekennum talsmáta síns
betur verkið á enda; Aðalbjörg
Pálsdóttir og Kristjana E. Sig-
urðardóttir í hlutverkum Mál-
fríðar og Guðríðar, gera báðar í
heild tekið vel, en hefðu þurft að
fá nokkuð meiri slípun til dæmis
í sérkennum framsagnar sinnar.
Mikill fjöldi annarra leikara
kemur fram í uppsetningunni á
Síldin kemur og síldin fer jafnt í
smærri hlutverkum sem í hóp-
atriðum og söng. Allt það fólk
fellur vel inn í heildarmyndina,
sem upp er dregin, og á sinn
stóra hlut í því að gera samveru-
stund með Leikhópi Ungmenna-
félagsins Eflingar vel kvölddval-
ar virði.
Freyvangsleikhúsið Eyjafjarðarsveit
10 mín. akstur frá Akureyri
Fló á skinni
gamanleikurinn víðfrægi eftir Georges Feydeau.
Leikstjóri Oddur Bjarni Þorkelsson.
föstudag 3. mars kl 20.30
laugardag 4. mars kl 20.30
STJÁNASÝNING
Öll innkoma af þessari sýningu rennur í minningarsjóð
Kristjáns Jónassonar
Barnaafsláttur, hópafsláttur og enn betra verð fyrir
eldriborgara.
Miðapantanir í síma 463-1195
frá kl 16.00 sýningardagana.
www visir is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Síld í Reykjadal