Dagur - 04.03.2000, Side 4

Dagur - 04.03.2000, Side 4
é-LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 FRÉTTIR Vaxandi árekstra- hætta í háloftum Leyniplagg í Brussel. Flugumferö sífellt að aukast. Öryggiö á oddinu. Stefnir í miklar seiukauir á flugi í sumar. Svo virðist sem hætta á árekstrum flug- véla á flugi í Evrópu sé sífellt að verða meiri samfara aukinni umferð. Þá hef- ur vaxandi umferð flugvéla haft í för með sér meiri seinkanir í flugi en vcrið hefur. I leyniplaggi franskra flugmála- yfirvalda sem hirt var á fundi evrópskra samgönguyfirvalda í Brussel fyrir skömmu kom fram að skráð tilfelli þar sem lá við árekstri flugvéla hefðu auk- ist um 50% í fyrra. Þessi þróun hefur valdið flugmálayfirvöldum miklum áhyggjum og viðbúið að þau verði á tánum þegar umferðin eykst til muna yfir sumarleyfistímann þegar Evrópu- búar og meðal annars íslendingar fljúga í stórum straumum í sumarfríið. Öryggið á oddinn Þorgeir Pálsson flugmálastjóri segir að flugmálayfirvöld séu að fást við aukna flugumferð og þau vandamál sem því séu samfara. Hann áréttar þó að það sé ásetningur flugmálayfirvalda hér sem annars staðar í Evrópu að viðhalda öll- um kröfum og stöðlum til hins ítrasta að tryggja sem mest flugöryggi. Hins vegar má reikna með því að áreksta- hættan sé meiri á þeim svæðum þar sem flugumferðin sé einna mest. Hann leggur þó áherslu á að þessi tilvik séu mismunandi alvarleg og af mismun- andi toga. Þá hafa menn hérlendis ver- ið blessunarlega lausir við slík tilvik, þótt aldrei sé hægt að fullyrða neitt um framtíðina í þeim efnum. Flugmála- stjóri segist þó ekki kannast við að hafa séð né heyrt af skýrslu franskra flug- málayfirvaída um að árekstrahættan á þeirra svæði hefði aukist um allt að helming í fyrra frá fyrra ári. Aftur á móti undrast hann það ekki þótt að fjöldi þessara tilvika aukist eftir því sem verið sé að reyna að nýta afkastagetu flugstjórnarkerfisins til hins ítrasta. Stefnir í erfítt sumar Hann segir að flugmálayfirvöld hafi einna mestar áhyggjur af öllum þeim töfum sem aukinn flugumferð hefur á allt flug, bæði í Evrópu og í Bandaríkj- unum. I þeim efnum óttast menn eink- um að miklar tafir geti orðið á flugi í sumar einfaldlega vegna þess að þá verði umferðin svo mikil að það verður ekki pláss til að koma öllum flugvélum í loftið á réttum tíma. Hann segir að hluta til stafi þetta af því hversu flug- stjórnarsvæðin í Evrópu séu mörg og þvf gengur stjórnunin ekki eins greið- lega fyrir sig. I heild munu flugstjórn- arsvæðin verða um 50 talsins. Hinsveg- ar sé unnið að því að fækka þeim í Suð- vestur-Evrópu og jafnvel á Norðurlönd- um. — GRH FRÉT TA VIÐTALIÐ þeir sáu Dag. Ástæðan er sú að þar var lítil frétt um að Davíð Oddson væri að sækja um ein- býlishúsalóð í Skerjafirðinum. Sem kunnugt er er stutt milli Skerjafjarðar og Reykajvíkur- flugvallar og telja andstæðingar vallarins sig vera að fá þama traustan og áhrifamikinn banda- mann, þvl þó Davíð búi nú nálægt flugvellinum á Lynghaganum þá sé truflunin frá honum ekki nema brot af þvl sem verði ef Davíð flytur í Skerjafjörðinn... Eim ræða pottverjar þreytuna í stjórnarsamstarfinu og ágreins- ingmálm sem aftur og aftur virð- ast gjósa upp. Nú er það framsal á greiðslumarki í sauöíjárrækt. í pottinum er fullyrt að nokkuð þungt sé í Guðna Ágústssyni og mörgum framsóknarmönnum vegna málsins og fullyrt að ýms- ir telji þetta tilraun sjálfstæðismanna til að ráðskast full inikiö með málaflokk sem búið var að fela framsókn að fara með. Einn framsóknar- maður orðaði það svo að „þetta væri enn einn dropinn og dropinn holar steininn". Var liami þar að vlsa til stjómarsamstarfsins... Og talandi um framsóknarmeim. Valgerður Sverrisdóttir hefur átt sterka imikomu að dómi flokks- maima sirnia og hermt er að fjöl- mörgum gamalgrónum flokks- mönnum á landsbyggðinni, sem vom svona í meðallagi hrifnir af einkavæðingarvilja Finns Ing- ólfssonar, hafi lilýnað um lijarta- rætumar þegar Valgerður lýsti því yfir á dögun- um að ef menn sæju fram á að fákeppni eða ein- okun blasti við, þá væri skömminni skárra að það væri ríkiseinokun en einokun ehikaaðilal... 1/algerdur Sverrisdóttir. Guðni Ágústsson. Runólfur Ólafsson framkvœmdastjóri FÍB Enn telja tryggingafélögin þötfá iðgjáldahækkun bíla- trygginga vegna stóifjölgunar umferðarslysa ogbækkunar á bótum. Umferðin hættulegii en eiturlyfm - Fellst FÍB d það að iðgjöldin séu allt of; jafnvel 50% ofldg? „Það er ekki nýr kór sem þarna heyrist í. Það er skemmst að minnast þess að árið 1996, þegar tryggingafélögin sáu ástæðu til að lækka tryggingaiðgjöldin um 25% vegna samkeppni, að þá kom svipuð nóta um hækkunarþörf frá aðalfundi Sambands fsl. tryggingafélaga. Að vísu verður þó ekkert Iitið fram hjá því, að ástandið í umferðinni er hérna fyrir neð- an allar hellur og mikið áhyggjuefni. Eg vil ekki draga úr því að það verður að gera eitt- hvað í þessu ástandi í samfélaginu. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að við séum með þennan mikla fórnarkostnað í umferð- inni, það gengur bara ekki upp. Það er ekki þar með sagt að ástæða sé til þeirra verð- hækkana sem þeir eru þarna að boða.“ - Sjdið þið einhver róð? „Auðvitað eru ýmis ráð. En við höfum horft upp á að eftirlit og löggæsla hafa dreg- ist saman ef eitthvað er. Fé til framkvæmda er skorið niður þar sem þörfin er mest, þ.e. hér á höfuðborgarsvæðinu. Margt af því sem helst er til úrbóta stendur því upp á yf- irvöld. Síðan eru grunnþættir eins og kennsla og raunar jrað veganesti sem börn- in fá út í lífið og umferðina frá heimilunum, því miður ekki nógu jákvætt. Það er óþol- andi að það skuli viðurkennd staðreynd að 25% ungmenna sem hefja akstur séu að lenda í ákomum og slysum fyrstu 2 árin. Hér eru þó engar markvissar aðgerðir í gangi af hálfu yfirvalda. Fyrir síðustu kosn- ingar var lofað háum upphæðum til að takast á við eiturlyfjavandann og þá hættu sem ungu fólki stafar af fíkniefnum. En umferðin er miklu hættulegri vettvangur unga fólksins en nokkru sinni eiturlyfin. Og þar eru ekki boðaðar neinar sérstakar að- gerðir og ekld Iofað neinum fjármunum, Iíkt og t.d. Blair-stjórni boðar í Bretiandi. En Jrað er eins og þetta sé ekki einu sinni áhugamál íslenskra stjórnmálamanna - á sama tíma og við erum að horfa upp á milli 20-30% aukningu slysa- og eignatjóna í um- ferðinni á síðasta ári. Og stærsti hlutinn er hér á höfuðborgarsvæðinu." - Hvemig ganga FBÍ-tryggingarnar? „Það verður að segjast eins og er, að sam- keppnisaðilum sem vinna saman undir handarjaðri SIT hefur tekist að halda sam- keppninni verulega niðri. Einhver 5% markaðshlutdeild er of lítið til að halda markaðinum almennilega á tánum. I Ijósi reynslunnar frá 1996 spyr maður sig engu að síður; hvað væri að gerast hérna á mark- aðnum væri þó ekki Jæssi vísir að sam- keppni.“ - Hvað geta hensínhækkanir gengið langt? „Það er varla hægt að ganga lengra, lítrinn af 95 oktan, sem flestir nota, er kominn í tæpar 90 krónur. Frá ársbyrjun 1999 hefur bensín á heimsmarkaði hækkað um 200%. Við erum auðvitað að súpa seyðið af þessari gífurlegu hækkun. Breytt skattheimta er smá ljós í myrkrinu. Sami bensínlítri væri nú kominn í tæpar 96 krónur hefði vörugjaldinu ekki verið hreytt á haustmánuðum, úr prósentu í fasta krónu- tölu. Þessi breyting J>ýðir um 200 milljónir síðan í október. Ef við hugsuðum okkur þetta til eins árs, miðað við núverandi verð, þá samsvarar það 1 milljarði í Iægri skatt- heimtu. Skattar af bílum og umferð hafa verið að vaxa um 3-5 milljarða á ári undan- farin 2-3 ár og þeir voru orðnir um eða yfir 30 milljarða í fyrra.“ — HEI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.