Dagur - 04.03.2000, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 - 5
Xk^ur'
FRÉTTIR
Stefnir í verkfall um
allt land 30. mars
Pétri Sigurðssyni, forseta AV, var mikið niðri fyrir þegar niðurstaða for-
mannafundar VMSÍ og U var kynnt í gær. - mynd: teitur
Verkamaimasamband
íslands og Laudssam-
band iðnverkafólks eru
byrjuð undirbúning
verkfalls. Leitað til er-
lendra sambanda ef
verkfallssjóði þrýtur.
Formannafundi Verkamannasam-
bands Islands og Landssambands
iðjufélaga lauk um miðjan dag í
gær og þá var boðað til frétta-
mannafundar. Þar skýrðu þeir
Björn Grétar Sveinsson, formaður
sambandsins, og Sigurður Ingvars-
son, formaður Alþýðusambands
Austurlands, frá því að VMSI og Li
stefni á allsherjarverkfall félaga í
sambandinu, nema félaganna
þriggja í Flóabandalaginu, BO.
mars nk. ef ekki verður samið fyrir
þann tíma. Aðgerðanefnd VMSI
lagði til á fundinum í gær að aðild-
arfélögin setji í atkvæðagreiðslu
tillögu um boðun verkfalls. Taln-
ing atkvæða fari fram samtímis í
öllum félögunum 21. mars og síð-
an hefjist verkfall ef til kemur
þann 30. mars. I aðildarfélögum
VMSÍ og Li eru milli 18 og 19 þús-
und félagar og félögin eru 39.
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur VMSl, sagði að launakrafa
þessara sambanda væri að taxtar
hækkuðu um 15 þúsund krónur á
mánuði, klippt og skorið. Hann
sagði að í þeim stuttu og gagnslitlu
viðræðum sem samböndin áttu við
atvinnurekendur, áður en upp úr
slitnaði, hafi það komið sér á óvart
hve lítið atvinnurekendur buðu.
Það hefði verið á milli 2 og 3 þús-
und króna hækkun á mánuði.
Björn sagði að það sldpti engu
máli í þessu sambandi hvað gerðist
hjá Flóabandalaginu. VMSI og Li
yrðu að halda sinni stefnu.
Komið að verkafólM
Þeir Björn Grétar og Sigurður
Ingvarsson sögðu að síðan þjóðar-
sáttin var gerð 1990 hafi það kom-
ið í hlut verkafólks að viðhalda
henni með því að samþykkja að
launum væri haldið niðri á meðan
verið væri að byggja atvinnugrein-
arnar upp. Nú væri sú uppbygging
búin og tími til kominn að verka-
fólk fengi umbun fyrir sinn þátt í
þessu öllu saman. I ljósi frétta af
launum manna f þjóðfélaginu, sem
hefðu fengið til sín sjóði ríkisins
sem vinnandi fólk hafi skapað,
væru kröfur þeirra ekki háar.
Þama áttu þeir við FBA ævintýrið
allt saman.
Þeir voru þá spurðir hvort það
hefðu ekki verið mistök hjá þeim
að fara ekki fram á meiri hækkun
en 15 þúsund krónur og sagði Sig-
urður Ingvarson að það gæti vel
verið að um mistök hefði verið að
ræða.
Það sem fyrst og fremst myndi
stöðvast ef til verkfalls kæmi væri
öll landvinnsla á fiski umhverfis
landið, mjólkurvinnsla hvers kon-
ar, þjónustustarfsemi og iðnaðar-
framleiðsla. Þeir félagar sögðu
verkfallssjóði félaganna veika.
„En ef með þarf getum við leitað
til systrasambanda okkar á Norð-
urlöndum og víðar eftir styrk,“
sagði Björn Grétar Sveinsson.
- S.DÓR
Steingrímur J. Sigfússon.
Virkjunm
aftur áþing
Fundir Alþingis hafa legið niðri
alla þessa viku vegna þess að
nefndarvika hefur verið hjá Al-
þingismönnum. Þingfundir hefj-
ast á mánudag og má búast við
íjöri á þingi í næstu viku. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
VG, sagði að strax á þriðjudaginn
væru Vinstri-grænir búnir að biðja
um utandagskrárumræðu um
Þjóðminjasafnið og uppákomurn-
ar þar.
Þá sagði hann að VG væri að
leita leiða til að taka Fljótsdals-
virkjunarmálið upp aftur því nú
væri ljóst að framkvæmdir við ál-
ver í Reyðarfirði muni teljast um
heilt ár og því tími til að láta
Fljótsdalsvirkjun í lögformlegt
umhverfismat. Sömuleiðis sé al-
veg óvíst hvort Norsk Hydro hafi
nokkurn áhuga lengur íyrir álver-
inu eftir það sem gerst hefur síð-
ustu dag.
Sjálfsagt verða fleiri mál sem
tekin verða fyrir utan dagskrár í
næstu viku ef að líkum lætur.
- S.DÓR
Séra Giinnar suður
Á grundvelli úrskurðar áfrýjunar-
nefndar þjóðkirkjunnar hefur bisk-
up Islands, herra Karl Sigurbjörns-
son, ákveðið að sr. Gunnar Bjöms-
son, sóknarprestur í Holtspresta-
kalli í Isaljarðarprófastdæmi, fær-
ist til í starfi frá og með 1. apríl nk.
Mun sr. Gunnar starfa á vegum
biskups við margvfsleg sérverkefni.
Starfsstöð hans verður á höfuð-
borgarsvæðinu og því er hann ekki
á leið að Bergþórshvoli, eins og
rætt var um í sambandi við sáttar-
tilboð áfrýjunamefndar í byrjun
þessa árs, sem málsheljendur í
Onundarfirði höfnuðu þar sem í
því tilboði fólst að fallið yrði frá
ásökunum á hendur sr. Gunnari.
Biskup og Gunnar áttu sáttafund í
Sr. Gunnar Björnsson.
málinu í gær, samkvæmt því sem
blaðið kemst næst.
Frarn að 1. apríl mun sr. Gunn-
ar áfram gegna sama starfi og und-
anfarna þijá mánuði, þ.e. sinna
sérverkefni við þýðingar á kirkju-
legu efni úr norsku. Þá hefur sr.
Gunnari verið gefinn kostur á að
tjá sig um tilmæli áfrýjunarnefnd-
ar um að honum verði veitt áminn-
ing. Embætti sóknarprests í Holti í
Onundarfirði verður auglýst fljót-
lega.
Holt í kvennahöndum
Prestsþjónustan í Holtsprestakalli
hefur verið falin prófasti ísafjarð-
arprófastdæmis, sr. Agnesi Krist-
jánsdóttur, og sóknarpresti Þing-
eyrarprestakalls, sr. Guðrúnu
Eddu Gunnarsdóttur, eins og und-
anfarna þrjá mánuði, og gildir það
þar til nýr sóknarprestur hefur ver-
ið skipaður. - GG
Keikó fær aukið frelsi.
Keiko hleypt úr
kvínni
Háhyrningnum Keikó var
sleppt úr kvínni í Klettsvík í
gærmorgun og út í afgirt
svæði, 20 sinnum stærra en
kvíin. Svæðið er á við 20
knattspyrnuvelli. Keikó fór þó
varlega í ferðir úr heimkynn-
um sínum til nærri tveggja
ára. Stefnt er að þvf að sleppa
Keikó alfarið út í náttúruna í
sumar.
Sólveig kallar á
þjóðarvákningu
Dómsmálaxáðherra viU
efla umferðardeild
RíMslögreglustj óra.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra segir að slys í umferðinni að
undanförnu veki upp áleitnar
spurningar um hvert stefni í þess-
um málum, þau séu mikið
áhyggjuefni, sem krefst bæði skoð-
unar og aðgerða.
„Eg legg áherslu á að við tökum
á þessum málum og er nú unnið í
ráðuneytinu að átaki til bættrar
umferðarmenningar. Eg hef lagt
áherslu á að auka fjárframlög á
fjárlögum til löggæslunnar og það
gekk eftir í síðustu Ijárlögum, sem
hefur m.a. í för með sér Ijölgun
lögreglumanna. Tillögur ráðuneyt-
isins miða einnig að því að efla
starf Iögregl-
unnar og
auka vegaeft-
irlit. Ég tel
m.a. að efla
þurfi um-
ferðardeild
Ríkislög-
reglustjóra-
embættis-
ins,“ segir
Sólveig.
Hún segir
að með Ijölgun í lögregluliðum
verði lögreglustjórum gert kleift að
auka enn umferðareftirlit. „Fyrst
og fremst tel ég þó að ákveðin
þjóðarvakning verði að eiga sér
stað. Islensk umferðarmenning
einkennist af flestu öðru en tillit-
semi og varkámi. Við þurfum að
stuðla að hugarfarsbreytingu, m.a.
með áróðri og lifandi umræðu. En
hafa verður í huga að mikilvægar
breytingar hafa átt sér stað á síð-
ustu árum sem stuðla að öruggri
og agaðri umferð. Punktakerfið
felur í sér mun meira aðhald og
einnig hefur sektarinnheimta lög-
reglunnar verið bætt til muna og er
nú mun skilvirkari en áður.“
En hafa fjárframlög til vegaeftir-
lits ekki verið dregin saman? „Þau
hafa ekki verið dregin saman,
þvert á móti hafa framlög til lög-
gæslunnar verið aukin. Töluverðar
skipulagsbreytingar hafa hins veg-
ar átt sér stað, t.d. í kjölfar stofn-
unar embættis Ríkislögreglustjóra.
Þar starfar sérstök umferðarmála-
deild, sem býr t.d. yfir ágætum
búnaði til hraðamælinga og ölvun-
armælinga," segir dómsmálaráð-
herra. — FÞG
25 milljónir í atvinnuleikhús
Menntamálaráðherra hefur að fengnum tillögum Leiklistarráðs út-
hlutað 25 milljónum króna til níu atvinnuleikhópa. Alls bárust um-
sóknir frá 37 aðilum til 48 vérkefna. Hæsta styrkinn, 10 milljónir,
fær Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör, og Leikfélag Is-
lands í Iðnó fær 4 milljónir. Bæði þessi leikhús eru á sérstökum
starfssamningi. Aðrir hópar eru Möguleikhúsið með 2,5 milljónir, Á
mörkunum, sem einnig fær 2,5 milljónir til Ieiklistarhátíðar sjálf-
stæðu leikhúsanna, Kaffileikhúsið fær 1,5 milljónir til einleikjaárs,
Bandamenn fá 1,5 milljónir til uppsetningar á „Eddu 2000“,
Draumasmiðjan fær 1,5 milljónir og leikhópurinn Norðanljós fær 1
milljón til uppsetningar á leikritinu „Skækjurnar ganga fyrstar inn
í guðsríki". Loks fær Sögusvuntan 500 þúsund krónur til uppsetn-
ingar á „Loðinbarði heitir hann“.
Kaup gangi til haka
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-
herra sagði í fréttum RUV að mögulegt
væri að kaup starfsmanna fjármálafyrir-
tækja, Búnaðarbankans t.d., á óskráð-
um hlutabréfum gengju til baka, ekki
síst í þeim tilfellum þegar kaupin fóru
fram í óþökk yfirmanna. Valgerður hef-
ur fengið svarbréf frá bankaráði Búnað-
arbankans vegna athugasemda Fjár-
málaeftirlitsins við brot starfsmanna
bankans á verklagsreglum, m.a. vegna
kaupa á óskráðum bréfum. Fram kem-
ur í bréfinu að slík viðskipti starfs-
rnanna hafi verið stöðvuð en ekki er til-
greint hvort fyrri kaup gangi til baka.