Dagur - 10.03.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 10.03.2000, Blaðsíða 8
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri BÍLASALA - Sími 461 2960 SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON Sítrónu getur veríð erfitt að kreista. „Þessir asnaspark- arar eru allt sam- an saurþjöppur fram í fingurgóma og ættu að fara í lögformlegt um- hverfismat.“- Sverrir Stormsker í Heimsmynd um knattspyrnumenn. Krókur á móti bragði Sagan segir af ungum manni sem fór út að borða. Hann settist við eins manns borð en fljótlega eftir að hann kom sá hann að ung kona gaf honum hýrt auga. Að lokum sigr- aðist hann á feimninni, gekk til hennar og spurði hvort hann mætti sitja þarna. Þá æpti konan, þannig að allir heyrðu: „Nei, ég vil ekki sofa hjá þér!“ Augu allra beindust nú að unga manninum, sem gekk skömmustulegur að borðinu sínu. Skömmu síðar gekk unga konan hljóðlega að mann- inum, og hvíslaði: „Fyrirgefðu, ég er að vinna rannsókn fyrir Háskólann, um það hvernig fólk bregst við svona atvikum." Þá sagði ungi maðurinn hátt og skýrt: „Tíu þúsund! Það er allt of mikið!“ Skattmaim og sítrónan Hér kemur ein saga í tilefni þess að margir eru í skattaskýrslugerð. Onefndur barþjónn varð þess heiðurs aðnjótandi að fá sterkasta mann heims á barinn sinn. Hann fékk kraftakallinn til að kreista eina sítrónu svo vel að allur safinn fór úr henni. Barþjónn- inn lét það síðan út ganga á barnum, að hver sá sem gæti kreist svo mikið sem einn dropa úr þessari sítrónu, skyldi fá 10 þús- und krónur og eina bjórkollu að auki. Mörg ofurmennin reyndu við þessa þraut, en eng- um tókst að láta koma dropa meira úr sítrónunni. Að lokum kom ósköp væskils- legur maður, mjóróma, er virtist vera hið mesta möppudýr, og vildi spreyta sig á þrautinni. Mjög var hlegið að honum, en þegar hann kreisti sítrónuna kom ekki bara einn dropi heldur einir tíu! Barþjónninn horfði undrandi á, og þegar sigurvegarinn var að drekka bjórkolluna, spurði barþjón- inn hvað hann gerði dags daglega. „Eg?“, sagði maðurinn, „ég vinn hjá skattinum.11 „Þetta eru leikir sem fóik leikur gagn- vart hvert öðru efþví tekst ekki að vera einlægt heldur er í einhverjum hlutverkum, “ segir Bjarni Bjarnason, höfundur nýs hádegisleikrits i Iðnó TaLkossinn og tveir aðrir þættir „Þetta eru leikir sem fólk Ieikur gagnvart hvert öðru ef því tekst ekki að vera einlægt heldur er í einhverjum hlutverkum. Þarna eru sýndir þrír stuttir einþáttung- ar, sem taka í heild 30-40 mínút- ur og eiga allir sameiginlegt að vera um mann og konu að tala saman. Sá fyrsti er um strák og stelpu sem kynnast á kaffihúsi. Strák- urinn byrjar að reyna við stelpuna, prófar fyrst eitt hlut- verk og þegar það gengur ekki bregður hann sér í annað. Hún leikur sínar rullur á móti. Hvort þau fara að verða saman eða ekki...????? Annar einþáttungurinn heitir Talkossinn og er um samband sem hefur þróast á platónskum grunni - lengi - án þess að hjúin hafi komið sér að verki og gert eitthvað sem þau hafa kannski bæði hug á. Karlpersónan spyr: „Hvenær kemur að því, hjá svona málglöðu fólki eins og okkur, að það fari að kyssast.“ Svo fara þau að ræða það atriði á akademísk- um nótum og sökkva sér niður f Leikirheitirnýtt leikritsem frumsýnt verðurum hádegis- bilið í dag,föstudag. Staðurinn erlðnó. Þaðfjallarum leik- ina sem verða til í samskiptum karla og kvenna en hvaða leikireru það?Höf- undurinn, Bjami Bjamason svarar því. SPJALL miklar pælingar. Hversu Iangt nið- ur......? I síðasta þættinum er par sem búið er að vera lengi saman, að undirbúa einsöngstónleika með pfanóundirleik. Maðurinn hefur samið verkið og konan á að syngja. Það er að líða að því að tjaldið verði dregið frá og konan skoðar sig í speglinum áður. I speglinum tekur hún eftir því að maðurinn er að fylgjast með henni. Hún hefur orð á því við hann en hann þykist vera saklaus og læst hafa verið að skoða nóturnar. Þeirra samræður stigmagnast og enda með.....????“ Þess má geta að höfundurinn Bjarni er sá hinn sami og skrifaði skáldsögurnar Endurkomu Maríu, Bókin bak við orðin og Nætur- vörður kyrrðarinnar. Endurkoma Maríu var tilnefnd til bókmennta- verðlauna og Bókin bak við orðin hlaut Tómasarverðlaunin. Leikverkið Leikir er eitt þriggja verka sem verðlaun fengu íhádeg- isleikritasamkeppni Iðnós og verð- ur sýnt þar í hádeginu næstu ■ FRÁ DEGI TIL DAGS FÖSTUDAGURINN 10. MABS 70. dagur ársins, 296 dagar eftir. Sólris kl. 8.03, sólarlag kl. 19.15 Þau fæddust 10. mars • 1772 fæddist þýski rithöfundurinn Friedrich von Schlegel. • 1845 fæddist Alexander III. Rússakeis- ari (1881-1894). •1881 fæddist Gísli J. Johnsen stórkaup- maður. • 1892 fæddist franska tónskáldið Arthur Honegger. • 1903 fæddist bandaríski djassleikarinn Bix Beiderbecke. •1915 fæddist Jón Dan rithöfundur og ríkisféhirðir. • 1928 fæddist James Earl Ray, sem hlaut dóm fyrir morðið á Martin Luther King. • 1940 fæddist bandaríski kvikmyndaleik- arinn Chuck Norris. • 1947 fæddist Rúnar Gunnarsson tón- listarmaður. Þetta gerðist 10. mars • 1876 átti sér stað fyrsta símtal heims þegar Alexander Graham Bell spjallaði við mann í næsta herbergi með aðstoð símatækninnar, sem hann var þá að finna upp. • 1906 létust rúmlega 1000 manns þegar sprenging varð í kolanámu í Courrieres í Frakklandi. • 1947 varð Ronald Reagan forseti félags kvikmyndaleikara í Bandaríkjunum. • 1952 gerði Fulgencio Batista hershöfð- ingi stjórnarbyltingu á Kúbu. • 1967 brunnu til grunna þrjú timburhús á horni Lækjargötu og Vonarstrætis í Reykjavík. • 1991 fóru hundruð þúsunda manna út á götur í Moskvu til þess að kreíj'ast af- sangar Mikhaíls Gorbatsjovs. •1991 var Davíð Oddsson kosinn for- maður Sjálfstæðisflokksins. Vísa dagsins Ung þó bjóoist yngismær, engin löngun vakir. Ég er ekki ferðafær fyrir elli sakir. Hálfdán Kristjánsson Afmælisbam dagsins Bandaríska kvikmyndaleikkonan Shar- on Stone fæddist í bænum Madville í Pennsylvaníufylki þann 10. mars árið 1958. Hún er bókaormur og var aðeins 15 ára þegar hún hóf nám í Edinboro- háskólanum til þess að nema listfræði og skapandi skrif. Tveimur árum seinna var hún kosinn ungfrú Pennsyl- vanía. Fyrsta kvikmyndahlutverk henn- ar var í myndinni Stardust Memories eftir WoodyAllen, síðan hefur hún eft- irminnilega vakið á sér athygli. Að gera ekkert er stundum góð Iækning. Hippocrates Heilabrot Samkvæmt öllum helstu lögmálum stærð- fræðinnar er einn plús einn jafnt og tveir. Þessi reikniregla gildir þó ekki í öllum til- vikum. Hægt er að finna dæmi þess að einn plús einn sé jafnt og einn. Hvenær geta slík ósköp gerst? Svar við síðustu gátu: Skór Veffang dagsins Efnismikill og öflugur tónlistarvefur er á www.musik.is Þar er að finna vísanir í flestallt - ef ekki allt - fslenskt efni sem til er bæði á Netinu og á prenti um tónlist, og þá er átt við allar tegundir af tónlist. Sömu- leiðis eru krækjur f erlendar tónlistarsíður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.