Dagur - 15.03.2000, Síða 1
Skáldlegur gluggi á vegg
Katrín Siguröardóttir eytt síðustu þremur vikum viö vinnuborð sitt á Kjarvaisstöðum og búið til líkön af umhverfinu norðan Vegfgjjar. Á morgun tekur Ráð-
hiidur við og á föstudag verða módel Katrínar tekin niður, svo nú eru síðustu forvöð að sjá þau. mynd : teitur.
Katrín Sigurðardóttir er
þriðji listamaðurinn af
sex sem Kjarvalsstaðir
hafafengið til að vinna
verk í tenglsum við
verkefnið Veg(g)irí mið-
rýmiKjarvalsstaða. Við
hittumKatrínu niður-
sokkna við vinnu sína á
Kjarvalsstöðum í viku-
hyrjun. Á morgun
klukkan sex afhendir
hún Ráðhildi Ingadótt-
urVeg(g)inn.
Á vegginn hafa verið skorin þrjú
op þannig að plöturnar, sem sag-
aðar voru útúr veggnum, opnast
eins og á skattholi. Á þessi borð
hefur Katrín Sigurðardóttir byggt
smágerð líkön, sem gestir safnsins
hafa séð hana nostra við síðustu
þrjár vikur. Eitt módelið er af
bókasafninu hinumegin við vegg-
inn, annað af nágrenni safnsins til
norðurs og það þriðja af enn
stærra svæði norður af safninu,
alveg niður að sjó.
Borgin inn í safnið
„Eg var að hugsa um veggi sem
þrívíð form - hvernig þeir loka af
og hleypa í gegn, því sem er fyrir
framan þá og aftan,“ segir Katrín.
„Þetta á sérstaklega vel við í þessu
húsi, sem hefur mjög svipmikla
steypta veggi annarsvegar og gler-
veggi hinsvegar. Þykkir stein-
veggirnir minna á varnargarða og
loka rýminu af. I samhengi við
safnið eru þeir táknrænir fyrir
hlutverk þess að verðveita listaverk
í afgirtu, tímalausu rými.
Glerveggirnir gera hins vegar
skilin á milli þess em er úti og inni
ósýnileg. Og af því Kjarvalsstaðir
eru opinbert safn, sem leggur
áherslu á Iist samtfmans, hlýtur
hlutverk þess líka að vera að
hleypa borginni inn. Mig langaði
til að gera safnið enn gagnsærra og
spegla það sem er handan veggs-
ins inn í sýningarrýmið.
Eg hef fellt saman mismunandi
skala inn í sýnirými verka minna.
Með þessu er ég að reyna að skapa
tvíþætta rýmistilfinningu. Annars-
vegar rými sjónarinnar, hugans og
ímyndunarinnar, hins vegar rými
líkams og efnisins. Þess vegna eru
módelin unnin beint á bakið á
veggnum en ekki á spjald sem síð-
an er komið fyrir á hlerunum sem
skornir eru út úr veggnum."
Speglaður veruleiM
Módelin eru öll öfug eða spegluð,
þannig að gestir þurfa að horfa í
spegilinn á veggnum til að sjá þau
rétt. Þannig er hægt að ímynda sér
spegilinn eins og skáldlegan
glugga á veggnum. „Hugmyndin
um samhverf rými er ekki ómeð-
vituö,“ segir Katrín.
„Eg nota aðferðir, sem í dag líkj-
ast aðferðum arkitekta öðru frem-
ur. Hins vegar er ég frekar að
vinna á forsendum smámyndar-
innar (míníatúranna) en arkitekta-
módelsins. Allar svona smáverald-
ir eru skapaðar til að hýsa ímynd-
un áhorfandans en þó er mínítúr-
an skáldleg og vísar oft til ákveðins
tímaskeiðs á meðan arkitektamód-
elið er stærðfræðilegt.
Það kom arkitekt hingað um
daginn að kíkja á sýninguna.
„Hann horfði í smá stund á mód-
elin og sagði svo : „Þú ert ekki
arkitekt!" Mér finnst það engin
móðgun. Ég vinn þetta eins og
naívisti í augum arkitekts, vegna
þess að módelin eru ekki nákvæm
og miklu meiri skáldskapur í þeim
en arkitekt getur yfirleitt leyft sér.
Þessi skáldskapur er ekki úthugs-
aður, hann er útkoma tilraunar.
Hann er líka hluti af því kikki sem
ég fæ út úr því að gera þetta."
Endurtekning og eirðarleysi
Katrín jánkar því að þetta sé mikið
dútl sem vissulega kosti þolin-
mæði. „Einhver spurði mig hvort
ég gæti látið einhvern annan búa
þetta til, en það er eitthvað við
ferlið og endurtekninga, sem gerir
það að verkum að vinnan hefur
ákveðin þerapísk áhrif. Hún er líka
til vitnis um það hvað ég er
frámunalega smámunasöm í bók-
staflegri merkingu."
Markmið Kjarvalsstaða með
verkefninu Veg(g)ir er að gefa
gestum safnsins tækifæri til að
fylgjast með vinnu listamannanna.
Hlynur Hallsson, sem reið á vaðið,
er vanur því að eiga samskipti við
áhorfendur, en hið sama á ekki við
um Katrínu.
„Oft þegar maður vinnur einn,
sérstaklega við \dnnu sem er ekk-
ert nema endurtekningar, verður
maður svolítið eirðarlaus og vill
uppbrot í ferlið. Af því fæ ég nóg
hér,“ segir hún. „Þetta er búið að
vera mjög skemmtilegt, en nú þeg-
ar ég hef prófað að vera alltaf með
fólk í kringum mig kann ég betur
að meta einvcruna."
-MEÓ.
Sex smnu
...fljúfíu frekar
Bókaðu í síma 570 3030 0$ 460 7000
Fax 570 3001 * websalesó>airiceland.is • www.flu?fela?.is
FLUGFELAG ISLANDS