Dagur - 15.03.2000, Side 8
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN JÓHANN
BJÖRNSSON
„Það má flokka
norðurpólsferðir
sem nokkurskonar
grín ef vel gengur
en þær breyta
engu um að norð-
urpóllinn verður
áfram á sfnum
stað með ísþekj-
um yfir og ekkert
hefur gerst nema
tveir menn hafa
pissað á pólinn.“
Indriði G. Þor-
steinsson, fyrrum
ritstjóri, í viðtali
við DV.
Fastan nálgast
Presturinn og húmoristinn Karl V. Matthías-
son sat á þingi á dögunum í íjarveru Sighvats
Björgvinssonar. 1 Austurlandi er sagt frá því að
séra Karl hafí ekki verið búinn að sitja lengi á
þingi þegar hann sendi félögum sínum í þing-
flokki Samfylkingarinnar tölvupóst. lnnihaldið
var stutt og laggott: „Fastan náígast. Sýnið yðr-
un.“ Séra Karl er félagi í Alþýðubandalaginu.
Sagt er að í hvert sinn sem hann hélt ræðu á
fundum Alþýðubandalagsins hafí hann haft
fyrir sið að gera krossmark þegar hann nefndi
Alþýðuflokkinn. Síðan á hann að hafa endað
hverja ræðu á orðunum: „Guð blessi Alþýðu-
bandalagið."
Flokksformerniinir
Snörp umræða varð á Alþingi sl. mánudag þeg-
ar þegar flokksformennirnir Sighvatur Björg-
vinsson, Steingrímur J. Sigfússon og Margrét
Frímannsdóttir ráku ofan í Davíð Oddsson þau
orð hans að þau hafi ekki séð ástæðu til að vera
viðstödd umræðuna um ijármála stjómmála-
flokka. A eftir hófst svo atkvæðagreiðsla um
nokkur mál. Halldór Ásgrímsson formaður
Framsóknarflokksins hefur verið Ijarverandi á
Alþingi um skeið vegna opinberra erinda er-
lendis. Hann tók þarna sæti sitt að nýju og þeg-
ar hann ætlaði að greiða atkvæði með því að
ýta á þar til gerðan hnapp á borði sínu virkaði
hann ekki og leið smá stund þar til hann komst
í lag. Á meðan beðið var heyrðist Halldór segja:
„Kannski flokksformennirnir eigi bara að vera
Ijarverandi.“
Hjarta lír gulli
Þeir Gísli S. Einarsson og Guðni Ágústsson
deildu á þingi á dögunum um útflutning
hrossa vegna hins slæma exems sem íslensk
hross fá í útlöndum. Eftir nokkuð snarpa
rimmu sagði Guðni að Gísli S. væri einhver
besti krati sem hann þekkti og hefði hjarta úr
gulli þegar Iandbúnaðarmál bæri á góma.
Vegna þessa sendi Sigurlín Hermannsdóttir,
starfsmaður Alþingis Gísla þessar vísur:
Það er engin þörf að kvarta
á þingi er slikt metið.
Gísli er með gullið hjarta,
Guðni lét þess getið.
Um hestamálin margt er sagt
og meiningamar hljóma.
Gullin hjörtu tifa í takt
er trippin her á góma.
„Svo eru einstaka fyrirtæki sem
svara engu og viija ekkert fyrir
neytandarm gera en ef viö teljum
aö ótvirætt sé brotid á rétti hans
skrifum viö um það i Neytenda-
blaðið, öðrum til varnaðar, “ segir
Telma Halldórsdóttir, lögfræðingur
Neytendasamtakanna.
mynd: teitur
Mest kvartað
rnidan tölvum
„Við fengum tæplega Ijögur þús-
und fyrirspurnir inn á borð til okk-
ar á síðasta ári og höfðum milli-
göngu í nokkur hundruð kvörtun-
armálum sem voru af margvísleg-
um toga. Við erum ekki dómstóll
en reynum að reka mál eins vel og
við getum. Okkar starf kemst næst
því hér á landi að heita ókeypis
lögfræðiaðstoð því sért þú í Neyt-
endasamtökunum þá greiðir þú
ckkert nema þitt félagsgjald íyrir
þjónustuna."
- Hver eru helstu umkvörtunar-
efnin sem ykkur herast?
„Mest er kvartað undan tölvum
í dag og tölvubúnaði. Þar er oft
erfitt að skera úr um hvort varan
sé gölluð og þess vegna eru þessi
mál oft erfíð. Svo berast okkur
margar kvartanir vegna bifreiða,
fasteigna, efnalauga og ferða-
mála.“
- I lvað gerið þið þegar kvartan-
irnar koma?
„Við reynum að vinna eins hlut-
laust og hægt er. Biðjum neytand-
ann um skriflega kvörtun þar sem
hann lýsir viðskiptunum. Sfðan
skrifum við fyrirtækinu sem
kvörtunin beinist að „Til okkar
hefurleitað Jón Jónsson..“ Und-
ir lok bréfsins getum við þess að
Neytendasamtökin taki ekki af-
stöðu í málinu fyrr en báðir aðilar
ídagerminnst
sögulegrar yfirlýs-
ingarsem JohnF.
Kennedy gaf 1962
um grundvallarrétt-
indi neytenda. Hún
myndar grunninn
að vinnu neytenda-
samtaka um allan
heim. Telma Hall-
dórsdóttir, lögfræð-
ingur íslensku sam-
takanna varinnt
frétta afstarfinu
hér.
SPJALL
hafi kynnt sína hlið og óskum eftir
svari innan tíu daga. Stundum för-
um við og skoðum mcinta galla og
leitum til sérfræðinga er þörf kref-
ur.“
- Hvemig taka fyrirtæki svona
ihlutun?
„I lang flestum tilfellum virða
þau þessa milligöngu og sum hafa
samband að fyrra bragði ef upp
koma álitamál milli þeirra og neyt-
anda. Svo eru einstaka fyrirtæki
sem svara engu og vilja ekkert fyrir
neytandann gera en ef við teljum að
ótvírætt sé brotiö á rétti hans skrif-
um við um það í Neytendablaðið,
öðrum til varnaðar."
- Eru margir félagar í samtökun-
um?
„Ég held þeir séu um 15.000
talsins. Þetta er fólk sem áttar sig á
gildi þess að hafa svona aðhalds-
batterí og er tilbúið að greiða fýrir
það, enda eru samtökin rekin að
lang mestu Ieyti á félagsgjöldum. Á
Norðurlöndunum er hinsvegar litið
á svona starf sem samfélagsþjón-
ustu og það er að fullu greitt af op-
inberum aðilum."
- Eru Neytendasamtökin vaxandi
afl?
„Við höfum fundið fyrir miklum
stuðningi undanfarið enda gengur
svona starfsemi ekki upp nema
með þátttöku almcnnings." GUN.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
MIÐVIKUDAGURINN 15. MARS
75. dagur ársins, 291 dagur eftir.
Sólris kl. 7.45, sólarlag kl. 19.30.
Þau fæddust 1S. maxs
• 1920 fæddist Jóhannes Arason útvarps-
þulur.
• 1933 fæddist bandaríski djasstónlistar-
maðurinn Cecil Taylor.
• 1935 fæddist Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur.
• 1936 fæddist Inga Huld Hákonardóttir
sagnfræðingur
• 1938 fæddist Þorsteinn frá Hamri rit-
höfundur.
• 1947 fæddist bandaríski tónlistarmað-
urinn Ry Cooder.
• 1959 fæddist nígeríski rithöfundurinn
Ben Okri.
• 1962 fæddist bandaríski söngvarinn
Terence Trent D’Arby.
Þetta gerðist 15. mars
• 1493 kom Kristófer Kólumbus aftur til
Spánar eftir fyrstu för sína til Nýja
heimsins.
• 1744 lýsti Lúðvík XV. Frakkakóngur yfir
stríð á hendur Englandi.
• 1905 var leikið á fiðlu í símann í Reykja-
vík, og taldist sú athöfn formleg opnun
bæjarsímans, en þá höfðu 1 5 símar ver-
ið tengdir.
• 1907 fengu konur kosningarétt í Finn-
landi.
• 1917 fór Suður-Afríka úr breska sam-
veldinu.
• 1953 var Þjóðvarnarflokkur Islands
stofnaður, sem starfaði í áratug og barð-
ist fyrir brottför herliðsins í Keflavfk.
• 1986 fór fram jarðarför Olofs Palme í
Stokkhólmi.
• 1991 voru fjórir hvítir lögreglumenn í
Los Angeles kærðir fyrir barsmíðar á
Rodney King.
Vísa dagsiiis
Þér sem hefur þunga borið,
þráða gleðifregn ég her:
bráðum kemur blessað vorið,
hráðum glaðnar yfir þér.
Stefán frá Hvítada!
Afmælisbam dagsins
Bandaríski blúsarinn og gítarleikarinn
Ryiand Peter Cooder fæddist þann 15.
mars árið 1947 í Los Angels. Hann var
þriggja ára þegar hann tók sér gítar
fyrst í hönd og sem táningur var hann
farinn á spila opinberlega. Hann hefur
spilað á hljómplötum með tónlistar-
mönnum eins og Rolling Stones,
Randy Nevvman og Captain Beefheart.
Ry Cooder hefur samið tónlist fyrir
kvikmyndir. Árið 1997 tók hann saman
við kúbanska útlaga og stofnaði hljóm-
sveitina Buena Vista Social Club.
Ég get tekið saman í þremur orðum allt
sem ég hef lært um lífið: Það heldur áfram.
Robert Frost
Heilabrot
Flestir mánuðir ársins eru með 31 dag,
fjórir eru 30 daga langir, en einn hefur oft-
ast ekki nema 28 daga. En hvað eru marg-
ir mánuðir með 27 daga?
Lausn á síðustu gátu: Ég var einn á leið
til Þingvalla.
Veffang dagsins
Heimasíða Reykjavíkurakademfunnar vex
hægt og rólega og er þegar komin með
marga forvitnilega króka og kima:
unmv.akademia.is