Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 1
* Ibúðabyggð í stað slippsins Áhugi hjá Islenskum aðalverktökum. Slippuriuu ekki í næsta aðalskipulagi. Hugað að iiýjuin stað. Geldiugames, Eiðsvík og Kjalames. Stjórn Stáltaks sem rekur slipp- inn í Reykjavík er farin að huga að nýrri staðsetningu fyrir fyrir- tækið, en það hefur verið á nú- verandi stað við Reykjavíkurhöfn í hartnær eina öld, eða frá árinu 1902. Meðal þeirra hugmynda sem fram hafa komið er að færa slippinn yfir f Geldinganes og Eiðsvík og jafnvel inná Kjalarnes sem er hluti af borginni eftir sameininguna. Islenskar aðal- verktakar hafa rætt það við borg- ina að reisa á athafnasvæði slippsins íbúðabyggð sem næði jafnvel yfir svæði Hraðfrysti- stöðvarinnar við Mýrargötu. I þeim hugmyndum er jafnvel rætt um að stækka svæðið með upp- fyllingu fram í sjó. Þrengir að slippnum Valgeir Hall- varðsson framkvæmda- stjóri Stáltaks segir að þetta mál sé enn á hugmynda- stigi og því hafa engar ákvarðanir verið teknar. Hinsvegar sé ekki gert ráð fyrir slippnum í aðalskipulagi borgarinnar sem tekur við af núverandi skipulagi sem gildir til ársins 2016. Þá sé því ekki leyna að það sé farið að þrengja að athafnasvæði slipps- ins og m.a. sé aðkoman erfið. 1 Ijósi þess að þessi starfsemi verði ekki þarna um aldur og ævi sé ekki ráð nema í tfma sé tekið til að horfa til framtíðar. Aftur á móti sé ekki endanlega ljóst hvort aðstaða verður fyrir slipp- inn í Geldinganesinu. Hann áréttar að þessi mál séu varla komin í um- ræðuna inn- an borgar- kerfisins og séu því að- eins hugleið- ingar, enn sem komið sé. Engu að síður hafa menn vissu- lega tæpt á þeim í við- ræðum við Arna Þór Sigurðsson formann hafnar- stjórnar sem jafnframt er for- maður skipulags- og umferðar- nefndar. Forstjóri Stáltaks bend- ir á að ef slippurinn eigi að geta verið til langframa á núverandi stað sé Ijóst að það þarf að reisa 40 metra háa skemmu yfir drátt- arbrautina til að auðvelda alla skipavinnu að vetrarlagi. Viðbúið sé að hún yrði töluverður lýti á umhverfinu og einsýnt að það verði ekki leyft. Þá sé stundum hætta á að málningarúði gangi yfir næsta nágrenni þegar verið sé að sprauta skip sem standa uppi í slippnum. Þannig að það sé ýmislegt í umhverfinu sem er farið að ýta á eftir mönnum til að hugleiða framtíðarskipan slipps- ins á einhverjum öðrum stað. Til skoðimar Arni Þór Sigurðsson formaður hafnarstjórnar og skipulags- nefndar segir að athafnasvæði slippsins komi til skoðunar við endurskoðun á gildandi aðal- skipulagi. Hinsvegar sé of snemmt að segja nokkuð til um það hvort þarna muni rísa íbúða- byggð eða einhver önnur at- vinnustarfsemi. Hann segir að þessi mál verði til skoðunar í þeirri vinnu sem framundan sé við endurskoðun á aðalsldpulagi borgarinnar. - grh. Slippurinn í Reykjavík hefur verið á nú- verandi stað frá 1902. Viðbúið er að margir muni sakna hans úr athafnaiifi hafnarinnar. mynd hilmar þór Kaupfélags- hretið Vetur konungur lætur ekki að sér hæða og þótt fyrstu lóurnar séu komnar til landsins er vetri ekki alveg lokið. I Eyjafirði tala menn um „kaupfélagshretið" en það mun nokkuð algengt að óveður geri í Icringum aðalfund KEA. Veður setti enda strik í reikning margra í gær, meðal annars þeirra sem skipuleggja og keppa á Andrésar Andar leik- unum á skíðum í Hlíðarfjalli. Slæmt veður var víða um land í gær og fóru samgöngur nokkuð úr skorðum. Skafrenningur var á Vestfjörðum og Steingríms- fjarðarheiði ófær. Einnig var skafrenningur og hálka á Holta- vörðuheiði og víða um norðan- vert landið. Ekkert ferðaveður var í Skagafirði og á Vatnsskarði siðdegis í gær. Þæfingsfærð var á Breiðdalsheiði. Þá var óveður og sandbylur á Mýrdalssandi og víðar á Suðurlandi. - hi Keppni fór úr skorðum á Andrésar Andar leikunum á skíðum I Hlíðarfjalli við Akureyri í gær vegna veðurs. Hvöss vestan- og norðanátt setti strik í reikninginn en búist er við hægari vindi í dag og éljum og vonandi geta hinir ungu og áhugasömu skíðamenn af öllu landinu þá sýnt hvað í þeim býr. mynd: brink Listameiui eiga að taka afstöðu „Það er mín skoðun að lista- menn eigi að taka þjóðfélagslega afstöðu því þeir geta komið sjón- armiðum sínum betur á framfæri en fólk sem er óvant að skrifa. Þeir sem geta tjáð sig eiga að gera það. Reyndar finnst mér skylda hvers einasta manns í þjóðfélaginu að taka afstöðu til umhverfisins." Þetta segir Sig- urður A. Magnússon, rithöfund- ur, í helgarviðtali Dags, en þar fjallar hann meðal annars um bókmenntaheiminn og stjórn- málin. Þeir bræður Sverrir og Ar- mann Jakobssynir urðu þjóð- frægir fyrir frammistöðu sína í þáttunum Gettu betur sem þcir tóku þátt í þrjú ár í röð. Eins og títt er um tvíbura eiga þeir margt sameiginlegt, svo Sem áhuga á grúski, ritstörfum og vinstri póli- tík. Frá því segja þeir í viðtali við helgarblaðið. Asta Sig- urðardóttir, sem býr í Danmörku, hefur unnið við gerð teiknimynda í 17 ár. Hún var í lieim- sókn á Islandi nýlega og seg- ir frá lífi sínu og starfi í helgarblaði Dags. Margir eru spá í það þessa dagana hvaða stærð af páskaeggi þeir cigi að kaupa handa börn- unum eða barnabörnunum. Gunnar Baldursson er clikert að velta slíku fyrir sér því hann býr eggin til sjálfur handa sínum barnabörnum. Og svo er það allt hitt: kynlíf og krossgáta, bækur og bíó, veiði, spurningaleikur og margt margt fleira. Góða helgil Ásta Sigurðardóttir. ' 4 1 i } 1 1 j 1 1 I j ] i i j ! j ]

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.