Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 2
2- LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
FRÉTTIR
Hreinsuð af áburði
Kveuréttiudafélagsius
Asdis Olsen vann sig-
ur á Kvenréttindafé-
lagi íslands í máli
vegna kynlífskönnun-
ar og uppsagnar.
Sannleikurinn kom-
inn upp á yfirborðið,
segir Ásdis.
Héraðsdómur Reykjavfkur hefur
dæmt Kvenréttindafelag íslands
(Kfí) til að greiða Ásdísi Olsen
170 þúsund krónur vegna rit-
stjórnar blaðsins 19. júní. Ásdís
krafðist 967 þúsund króna, þar
sem meðtalinn var kostnaður
vegna póstkönnunar á kynlífi
kvenna. Dómurinn telur Ásdísi
ekki handhafa þeirrar kröfu
heldur Markaðssamskipti ehf.
Aðspurð segist Ásdís reikna með
að nú muni sú krafa verða inn-
heimt eftir réttum leiðum.
Ásdís kveðst mjög ánægð með
þessa niðurstöðu í málinu. Dóm-
urinn staðfesti að uppsögn
hennar hafi verið ólögleg og hún
hafi verið í fullum rétti til að
gera þá samninga sem hún
gerði um auglýsingasöfnun
og framkvæmd könnunar-
innar.
„Þetta mál snerist um
það að sannleikurinn fengi
að komast upp á yfirborðið
og mér var í mun að fá að
hreinsa mig af þeim áburði
að ég hafi brotið eitthvað
af mér í sambandi við
þessa könnun. Það skiptir
mig miklu meira máli held-
ur en peningalega hliðin,
enda eru 170 þúsund
krónur dropi í hafið miðað
við það sem þetta hefur
kostað mig,“ segir Ásdís.
Formanninixm brugðið
Ásdís kynnti hugmyndir
sínar um efni blaðsins á
fundi framkvæmdastjórnar
og aðalstjórnar Kfl 18.
mars 1998, meðal annars
að niðurstöður könnunar
um kynlíf og saumaklúbba
yrði hluti af efni blaðsins. Ásdís
kveðst hafa tjáð stjórninni að fyr-
irtæki bróður hennar væri reiðu-
búið að framkvæma símakönnun
með afslætti, ekki að kostnaðar-
Ásdís Olsen: „Þetta mát snerist um það að sannleik-
urinn fengi að komast upp á yfirborðið."
lausu eins og Kfl hélt fram að
hún hefði tjáð félaginu. Á sama
tíma var ákveðið að efna til um-
fangsmikillar auglýsingasöfnun-
ar sem Markaðssamskipti ehf.
kom að gegn fjórðungs þóknun.
Tölvunefnd hafnaði hins
vegar að gefa leyfi fyrir
könnun þar sem spyrja átti
800 konur um kynlíf þeir-
ra, nema önnur og örugg-
ari aðferð yrði viðhöfð.
Ákveðið var að efna til
póstkönnunar og spurn-
ingalistar sendir út í apríl
1998 með bréfi frá ritstjóra
og ritnefnd.
Sigríður Lillý Baldurs-
dóttir þáverandi formaður
Kfl lenti £ úrtakinu og var
formanninum nokkuð
brugðið vegna nærgöng-
ulla spurninga um kynlíf
hennar og skoðanir á kyn-
lífi. Vegna mistaka lá stað-
festing Tölvunefndar á
Ieyfi fyrir könnuninni ekki
fyrir. Ákvað Kfí að aftur-
kalla póstkönnunina og
eyða svarbréfum sem lágu
fyrir og því lýst yfir að
könnunin hafi verið send
út án vitneskju eða sam-
þykkis stjórnar eða fram-
kvæmdastjórnar og þeim ókunn-
ugt um þátt Markaðssamskipta
ehf. í málinu. Formaðurinn sagði
að Ásdís hefði lýst því yfir munn-
lega 5. maí 1998 að hún væri
hætt sem ritstjóri, en því neitar
Ásdís. Kfl sendi Ásdísi uppsagn-
arbréf nokkrum dögum síðar.
Ásdis í liilluin rétti
Ragnheiði Bragadóttur héraðs-
dómara þótti Ijóst að Ásdís hafi
haft umboð Kfl til að semja við
Markaðssamskipti ehf. um söfn-
un auglýsinga fyrir blaðið.
Osannað þótti að Ásdís hafi Iýst
því yfir að lyrirtæki í eigu bróður
hennar myndi framkvæma könn-
unina, Kfl að kostnaðarlausu.
Sannað þótti að forsvarsmönn-
um Kfl hafi verið um það kunn-
ugt að til stóð að gera skoðana-
könnun fyrir blaðið 19. júní, þar
sem spurt yrði út f kynlíf þátttak-
enda, en óhjákvæmilegt var að af
henni hlytist nokkur kostnaður.
Kostnaður vegna samninga þess-
ara er tilgreindur 765.201 króna.
Ósannað þótti að Ásdís hefði
sagt upp störfum sem ritstjóri,
heldur hafi henni einhliða verið
sagt upp. Ósannað þótti að Ásdís
hafi gefið forsvarsmönnum Kfl
rangar upplýsingar um leyfi
tölvunefndar og rofið þannig
trúnað Kfí. — Hi/fþg
Ný stæði þrengja
Hafnarstræti
Búið er að setja upp stöðumæla í
Hafnarstræti í Reykjavík - þeim
megin sem bannað hefur verið
að leggja hingað tiL Verulega
mun þrengja að umferð um
Hafnarstrætið þegar bílum verð-
ur lagt beggja megin, en að sögn
Stefáns Haraldssonar, fram-
kvæmdastjóra Bílastæðasjóðs,
þótti þessi leið gerleg eftir að
strætisvagnar hættu að aka eftir
götunni.
Aðspurður hvort íbúar og fyrir-
tækjarekendur við Hafnarstræti
hefðu fengið tækifæri til að tjá
sig um þessar breytingar sagði
Stefán að hugmyndir um fjölgun
stæða í miðborginni hefðu verið
kynntar rækilega og sérstakur
fundur haldinn fyrir fhúa og aðra
hagsmunaaðila. „Við erum að
reyna að fjölga stæðum í mið-
borginni að áeggjan hagsmuna-
aðila og teljum okkur hafa fund-
ið möguleika á um 100 nýjum
stæðum. Hafnarstræti er því að-
eins hluti af þessu, en það skal
viðurkennt að það
verður þröngt að
aka um strætið.
Það á hins vegar
ekki að vera stórt
vandamál ef fólk
leggur samsíða
kantinum en ekki á
skakk og skjön“.
Aðspurður segir
Stefán að boðaðar
gjaldskrárbreyting-
ar Bílastæðasjóðs
séu ekki komnar til
framkvæmda. „Við
höfum lækkað
íbúakortin, en aðr-
ar breytingar bíða
þess að búið verði
að ganga frá öllum
tæknilegum atrið-
um og er fjölgun
bflastæða þeirra á
meðal,“ segir Stef-
án. — FÞG
Unnið að uppsetningu stöðumæianna í Hafnar-
stræti.
Hótti irá Akureyri
Samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni voru á fyrsta fjórðungi árs-
ins skráðar 11.747 breytingar á
lögheimili einstaklinga í þjóð-
skrá. Þar af fluttu 6.493 innan
sama sveitarfélags, 3.665 milli
sveitarfélaga, 960 til landsins og
629 frá því. Á þessu tímabili
lluttust 331 fleiri einstaklingar
til landsins en frá þvf. Þar af
voru aðfluttir Islendingar 70
fleiri en brottfluttir og aðfluttir
erlendir ríkisborgarar 261 fleiri
en brottfluttír.
Til höfuðborgarsvæðisins flut-
tu 572 umfram brottflutta. Af
þeim fluttu 368 af landsbyggð-
inni og 204 frá útlöndum. I öðr-
um landshlutum nema á Suður-
nesjum voru brottfluttir fleiri en
aðfluttir. Flestir fluttu frá Norð-
urlandi eystra, eða 87. Af ein-
stökum sveitarfélögum fluttust
flestir til Reykjavíkur (212) og
Kópavogs (178) en flestir frá Ak-
ureyri (42) og Vestmannaeyjum
(41). Fyrstu þrjá mánuðina
fluttu 155 sig til Akureyrar en
197 fluttu burt. Fánnig var fækk-
unin töluverð á Þórshöfn og í
Grýtubakkahreppi og Ólafsfirði.
Ibúum Þórshafnar fækkaði um
21 og um 10 í Grýtubakkahreppi
og 11 f Ólafsfirði. Mest varð
fjölgunin á Norðurlandi eystra í
Eyjafjarðarsveit. Þangað fluttu
17 manns á meðan 7 fóru úr
sveitarfélaginu.
Haraldur hitti mairn
Haraldur Örn pólfari náði þeim merka áfanga í fyrradag að fara yfir
86 breiddargráðu er hann gekk 1 5 km f frábæru veðri, eins og það er
orðað á vefsíðu leiðangursins. Svo skemmtilega vildi til að Haraldur
hitti þennan dag fyrstu mannveruna, eftir að hann kvaddi Ingþór. Var
það flugmaður sem var að koma með eldsneytisbirgðir handa vísinda-
mönnum sem eru að rannsaka Norður-Ishafið. Birgðastöðin er ein-
mitt staðsett á 86 breiddargráðu.
Bónus með lægsta verðið
Verð í Bónus hefur lækkað um 3,4% frá því að síðasta verðkönnun var
gerð í febrúar en Bónus er sem fyrr með lægsta vöruverðið eða 83 ef
miðað er við að meðalverð er 100.
Þetta kemur meðal annars fram í nýrri verðkönnun sem gerð var á
vegum Samstarfsverkefnis Neytendasamtakanna og ASI félaga á höf-
uðborgarsvæðinu í 12 matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Nettó er í öðru sæti með 88,1 og lækkar Nettó sig um 1,7% frá sfð-
ustu könnun. Fjarðarkaup heldur þriðja sætinu þriðju könnunina í
röð og lækkar sig um l,l%en mjótt hefur verið á mununum milli
Fjarðarkaups og llagkaups en munurinn eykst í þessari könnun og er
2,6%, Hagkaup er í þriðja sæti með 97,4 og hækkar lítillega frá síð-
ustu könnun. Næstar koma 10-11 með 101,8, Samkaup með 102,1,
Strax með 1 03,6 og 1 I -11 með 103,8. Fjögur efstu sætin skipa Spar-
kaup með 104,9, Nóatún með 105, Þín verslun Seljabraut 105,7 og
Nýkaup 106,7. Nýkaup hækkar mest eða um 5,1%, Sparkaup um
3,7% og Nóatún um 2,2%.
Isaga verðlaimað
í tilefni af fyrsta ársfundi Vinnueftirlits ríkisins, sem haidinn var í gær, af-
henti Páii Pétursson félagsmálaráðherra fyrirtækinu ísaga viðurkenningu
fyrir gott starf að vinnuverndarmálum. Geir Þórarinn Zoega, forstjóri ísaga,
tók við viðurkenningunni. - mynd: e.ól.