Dagur - 15.04.2000, Síða 8

Dagur - 15.04.2000, Síða 8
8- LAUGARDAGUR 1S. APRÍL 2000 ro^tr FRÉTTASKÝRING Dagur greindi á dögunum frá þeim niðurstöðum Helga Gunn- laugssonar félags- og afbrota- fræðings í nýrri bók, að veruleg fylgni sé milli stéttarstöðu og mis- notkunar á fíkniefnum. Tölur frá 1990 benda til þess að um 40% handtekinna vegna fíkniefnamis- ferlis séu atvinnulausir og 40% séu í hópi ófaglærðra. Það eru því fyrst og fremst jaðarhópar samfé- lagsins sem lenda í útistöðum við yfirvöld vegna fíkniefna. Að mati Helga hefur ekki tekist að bæta ástandið með allsherjar lögreglu- stríði og þungum dómum. Helgi bendir á aðra leið. „Ef yf- irvöld vilja í alvöru leitast við að uppræta verstu mein þessa vanda væri í raun eðlilegast að fara beint í rætur hans; sem er félags- og efnahagslegur veruleiki jaðar- hópa samfélagsins, sem í raun skilyrðir og plægir jarðveginn fyr- ir misnotkun harðra fíkniefna. En það er vissulega flókið og vand- meðfarið mál og krefst pólitísks vilja og samfélagslegrar samstöðu sem alls ekki er sjálfgefin á tím- um aukinnar einstaklingsábyrgð- ar og markaðslausna í þjóðfélags- málum,“ segir Helgi. Hann líkir núverandi baráttuleiðum, um- fangsmiklu og dýru lögreglu-, dóms- og fangelsiskerfi við „nátt- tröll aftan úr grárri forneskju miðalda". Um leið gerir hann skýran greinarmun milli „afþrey- ingarneytenda" og hinna, þar sem neyslumynstrið „tekur á sig mynd misnotkunar og ýmsir fylgifiskar eins og óregla og jafnvel ofbeldi og afbrot gera vart við sig“. Helgi vill umfram allt styrkja „hið fé- lagslega öryggisnet", svo sem með úrbótum í húsnæðis- og mennta- málum og á sviði starfsþjálfunar og atvinnutækifæra. Athyglisvert er að horfa til um- ræðunnar í Bretlandi eftir að skýrsla Runciman-nefndarinnar kom út. I henni sátu meðal ann- ars háttsettir lögreglustjórar og óháðir sérfræðingar og komust þeir eftir tveggja og hálfs árs vinnu að þeirri niðurstöðu, að gera eigi skýran greinarmun á af- þreyingarnotkun vægra vímuefna og notkun harðra efna, réttast væri að fara vægar í sakirnar gagnvart kannabisefnum og E- pillunum, en þá harðar í sakirnar gagnvart efnum eins og am- fetamíni, kókaíni og heróíni. Þannig leggur nefndin til að hver sá sem er tekinn með undir 2 grömm af kannabis sæti aðeins áminningu eða lágri sekt og að hver sá sem er tekin með lítilræði af E-piIIum fái sömu meðhöndl- un og nú tíðkast gagnvart kanna- hisnotkun. Þá er vert að minnast á nýlega samþykkt kanadíska þingsins um allsheijar endurskoðun á baráttu- leiðunum, þar sem á að útiloka að baráttan sjálf sé skaðleg og ganga út frá því að fíkniefnamisnotkun sé félagslegt og heilbrigðisvanda- mál frekar en afbrotavandamál. Vilji borgaranna í fram- kvæmd Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn í forvarnardeild Lögreglunnar í Reykjavík segist sammála Helga í grundvallarat- riðum, en deila megi um ákveðin atriði. „Umræðan í bókinni er já- kvæð. En ég staldra við það sem hann talar um aðgerðir og þunga dóma. Hann kallar eftir mögu- leikanum á öðrum leiðum, en mér finnst hann ekki opna þær leiðir. Hann gagnrýnir kerfið en bendir ekki á það sem hugsanlega væri hægt að gera, því þarna kem- ur ekki fram hvað átt er við með félagslegum umbótum og hvað af slíku væri líklegast til árangurs. Eg er á þeirri skoðun að á ákveð- inn hátt séu hörð og skilvirk inn- grip yfirvalda mjög raunhæfur möguleiki í aðgerðamynstrinu. Mér finnst ekkert koma fram sem rennir stoðum undir annað." Karl segir ekkert mæla gegn umræðu um virkari greinarmun á vægari og harðari efnum og af- þreyingarnotkun gagnvart harðri misnotkun. „En hvað leysir það að fara þessar leiðir? Þarna er átt við mismunandi meðferð á mál- um eftir því hvort mönnum finnst efni eða efnismagn hjá einstak- lingi vera honum til einkaneyslu. Ef við teljum á annað borð að efni séu skaðleg og þess eðlis að þau eigi að vera bönnuð þá erum við um leið stundum að horfa framhjá brotum og stundum ekki. Við sendum óskýr skilaboð út í þjóðfélagið. Og við horfum þá framhjá þeirri staðreynd að vel- flestir neytenda byrja á vægari efnunum og þróast yfir í þau hörðu." Karl segir flest ríki hafa slakað á gagnvart neyslunni vegna kostnaðar við löggæsluna og Is- Iand Iíka. „En þá gefum við um leið undir fótinn með neyslu á efnum sem við vitum að hafa áhrif inn í heilbrigðisþáttinn. I mínum augum er fíkniefnamis- notkunin fyrst og fremst heil- brigðisvandamál. Afbrotin og aðr- ar afleiðingar eru fylgifiskar. Það fylgja þessu ýmsir andlegir og Iík- amlegir sjúkdómar og slys - það er aðalatriðið og ástæðan fyrir því að þessi efni eru sett á bannlista til að byrja með. Um leið er hugs- anaskekkja að tala um að lögleiða eitthvað af þessum efnum. Frá öðru sjónarhorni má það kannski heita furðulegt í nútímanum að vísindamenn skuli ekki hafa fundið „gleðigjafa" sem hefur ekki alla þessa fylgifiska í för með sér.“ Loks staldrar hann við þá full- yrðingu að núverandi lögreglu-, dóms- og fangelsiskerfi sé dýrt. „I samanburði við hvað? Kerfið á að vernda hinn almenna borgara og Helgi hefur sjálfur birt greinar, þar sem kemur fram að mesta áhyggjuefni fólks í dag eru afbrot- in og skert öryggi einstaklinga. Erum við því ekki einmitt að gera það sem borgararnir vilja - öruggt umhverfi?" spyr Karl Steinar. Herða refsmgar „atvinnu- mannanna“ Agúst Einarsson fyrrverandi al- þingismaður hefur ásamt Gísla S. Einarssyni flutt frumvarp á Al- þingi um breyttar áherslur á þess- Á að láta afþreyingarneytendur kannabisefna í friði og beina spjótunum alfarið að „söiumönnum dauðans": um sviðum. „Bók Helga er gott innlegg í umræðuna, en það verð- ur að hafa í huga að það er ekki til neitt eitt ráð í baráttunni gegn fíkniefnum. Umfang þessara við- Heigi Gunnlaugsson: Líkir núverandi baráttuleiðum, umfangsmiklu og dýru lögreglu-, dóms- og fangelsiskerfi við „nátt- tröll aftan úr grárri forneskju miðalda“.“ skipta er mikið, einn og hálfur til tveir milljarðar á ári, svipað og hjá stórum fyrirtækjum á borð við Vífilfell eða íslenska útvarpsfé- lagið, þetta er skipulagður at- Karl Steinar Valsson: „í mínum augum er fíkniefnamis- notkunin fyrst og fremst heilbrigðisvandamál. Afbrotin og aðrar afleiðingar eru fylgifiskar." vinnuvegur. Fjölmargir eru því að hagnast á neyð annarra. Eitt af úrræðunum á að vera að auka refsingar „bakmannanna" á þess- um markaði. Við Gísli viljum þyn- Ágúst Einarsson: Bendir á „aukna fræðslu og forvarnir og áherslu á meðferðarúrræði ungmenna, en það breytir því ekki að það verður að taka afmeiri hörku á þessum sölumönnum dauðans"

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.