Dagur - 26.04.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 26.04.2000, Blaðsíða 1
i Ásatmarmenn borgi en þeir kristnu ekía Ásatrúarmeim halda sína árlegu hátíð á Þingvölluui í sumar. Þeim er gert að greiða 7S0 þúsuud krónur fyrir afnot af salemi og auuað eins fyrir tjaldstæði. Borgum ekki, segir allsherjar- goðiun. Ásatrúarmenn halda sína árlegu hátíð á Þingvöllum í sumar og hefst hún átta dögum fyrr en Kristnitökuhátíðin. Stefnt var að því að um 2 þúsund manns kæmu á hátíðina. Nú er óvíst að sv'o geti orðið vegna þess að ása- trúarmönnum hefur verið til- kynnt af Framkvæmdasýslu ríkis- ins að fyrir afnot af salernum sem komið verður upp fyrir Kristni- tökuhátíðina verði söfnuðurinn að greiða 750 þúsund krónur. Sömuleiðis hefur söfnuðinum verið tilkynnt að fyrir tjaldstæði verði hann líka að greiða 750 þúsund krónur. Dagur fékk það staðfest hjá Framkvæmdasýslu ríkisins í gær að ásatrúarmönnum hafi verið tilkynnt um þetta, en litið sé á að málið sé á viðræðustigi. Þvi hafnar Jörmundur Ingi Hansen alls- herjargoði. Hann segir að hér sé um fullkomna kröfu að ræða og hefur skrifað forsætis- ráðuneytinu bréf, fyrir hönd ásatrú- armanna, vegna þessa. Greiðum þetta ekM „Við munum að sjálfsögðu ekki greiða þetta gjald," sagði Jörm- undur Ingi í samtali við Dag í gær. Hann bendir á að ríkið setji „einhverjar hundruðir milljónir í hátíð eins trúfélags, sem er ekki einu sinni lengur ríkiskirkja," eins og hann orðaði það, og ineðal þess sem þarna verði gert sé að koma upp salernisaðstöðu við skipulagt tjaldstæði. „Við megum ekki nota tjald- stæðið né salemin nema greiða eina og hálfa milljón króna fyrir. Við vorum tilbúin til að miða greiðslu við þann fjölda sem til okkar kæmi en okkur er gert að greiða þessa fyrrnefndu upphæð hversu margir sem koma á okkar hátíð. Þeg- ar ég spurðist síð- an fyrir um hvern- ig yrði með gesti Kristnitökuhá- tíðarinnar var mér sagt að ríkið myndi greiða það allt saman. Enda þótt okkar hátíð hefjist 8 dögum fyrr en Kristnitökuhátíðin mun öll aðstaða vegna Kristni- tökuhátíðarinnar verða komin upp 5 dögum fýrr en okkar hátíð hefst, en samt megum við ekki nota hana nema greiða fyrr- nefnda upphæð fyrir,“ segir Jörm- undur Ingi. Brot á jafnréttislögiun llann segir að mjög margir út- lendingar hefðu ætlað að koma á þessa hátíð ásatrúarmanna. Nú verði að blása það allt saman af og greiða því fólki til baka vegna þess að ásatrúarmenn geti ekki greitt eina og hálfa milljón fyrir þessa aðstöðu. Samt sem áður muni ásatrúarmenn halda sína árlcgu hátíð. „Þess vegna hef ég skrifað for- sætisráðherra bréf, því Fram- kvæmdasýsla ríkisins heyrir undir hann, og farið fram á að alla að- stöðu sem verði komið uppi, á eða \áð Þingvelli, fáum við að nýta á sama hátt og þjóðkirkjan með tilvísun til jafnréttislaga. Eg hef sagt þeim hjá Framkvæmda- sýslunni að ef ekki á að rukka fólk þjóðkirkjunnar fyrir aðstöðuna þá getum við ekki rukkað okkar fólk fyrir hana. Það sé alveg útilokað. Þetta er eins og ef R-Iistinn í Reykjavík kæmi upp salernisað- stöðu í borginni bara fyrir sína kjósendur en ckki þá sem kusu Sjálfstæðisflokkinn," segir Jörm- undur lngi Hansen. — S.DÓU Barist við sinubruna í iandi Lækjar- móta við Selfoss. - mynd: filmverk-gunnar. Sman logar „Þetta er áreiðanlega mesti sinu- bruni hér í Rangárvallasýslu síð- ustu áratugina," segir Olafur Hróbjartsson, slökkviliðsmaður á Hellu í samtali við Dag. Mikill sinubruni geysaði í Safamýri, mýrinni ofan Þykkvabæjar, frá því snemma á skírdag sem svo breiddist út þannig að hann varð illviðráðanlegur. Um hádegi á föstudaginn langa komu slökkvi- liðsmenn á vettvang og í félagi við heimamenn börðust þeir við eldinn allt fram undir kvöldmat. Þá var loksins búið að slökkva allar glæður. Dagur umhverfis Alþjóðlegur dagur umhverfisins var víða haldinn hátíðlegur í gær, hér á landi sem um heim allan. Viðurkenningar umhverfisráðu- neytisins í tilefni dagsins runnu til kvikmyndagerðarmannanna Magnúsar Magnússonar og Valdimars Leifssonar og fyrir- tækisins Borgarplasts. Fyrirtæki og sveitarfélög tóku víða til hendinni í gær og m.a. kynnti Borgarbyggð umfangsmikla um- hverfisstefnu sína. Síðdcgis efndu frjáls félaga- samtök á sviði umhverfisverndar til hátíðar í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Ölafur Ragnar Gríms- son, forseti Islands, afhenti við- urkenningu þessarra samtaka til einstaklings fyrir framlag hans til náttúruverndar og umhverfis- mála. Úlafur Ragnar Grímsson afhenti Helga Hallgrímssyni, náttúrufræðingi á Egilsstöðum, viðurkenningu frjálsra fé- lagasamtaka á sviði umhverfisverndar í gær fyrir einstakt framlag hans til umhverfismála og náttúruverndar. At- höfnin fór fram í tilefni dags umhverfisins. Þetta var í annað sinn sem viðurkenningin var afhent en i fyrra rann hún í skaut Guðmundar Páls Ólafssonar. - mynd: þúk Þúsund hektarar Olafur telur að alls hafi brunnið um þúsund hektarar, en Safa- mýrin öll er talin um 1.700 hektarar. Ohægt er enn að segja til um hvort tjón af þessum bruna hafi hlotist, en Þykkbæ- ingar voru orðnir kvekktir af reyknum sem af lagði, því bæði á fimmtudag og föstudag voru hús í byggðinni í Þykkvabæ í reykjar- mekki sem lagði beint á haf út. Ymis sjónarmið eru uppi um ágæti sinubruna. Skógræktar- og slökkviliðsmenn vilja láta banna þá alfarið en bændur eru blendnari í trúnni. Sinubrunar voru einnig al- gengir á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi yfir páskahátíðina. Þannig sinnti lögregla og slökkvilið í Reykjavík 40 útköll- um yfir helgina vegna þessa og í Skorradal börðust menn við mik- inn sinubruna í Bakkakoti. Oftar en ekki var kveikt í sinunni í leyf- isleysi og af prakkaraskap yngra sem eldra fólks. — SBS/BJB — Sjá nánar Spurt og svarað á hls. 6 og dagbólt lögreglunnar á hls. 11. ..... SJÓN ER SÖGU RÍKARI BRÆÐURNIR ORMSSON Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is I I 1 i I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.