Dagur - 26.04.2000, Blaðsíða 5
1
FRÉTTIR
■
MIÐVIKUDAGVR 26. APRIL 2000
Guðni sterkastur en
óvíst með framboð
Varaformannsembætt-
ið í Framsóknar-
ilokkimm er farið að
kitla ýmsa. Guðni
Ágústsson, landbun-
aðarráðherra, er sagð-
ur standa best allra.
Ungliðasveitin og
konur í flokknum eru
að byrja að minna á
sig.
Enda þótt Samfylkingin hafi átt
sviðið að undanförnu hvað for-
mannskjör snertir, eru undir-
straumar orðnir þungir innan
Framsóknarflokksins varðandi
varaformannskjör í flokknum, en
á flokksþingi f haust á að kjósa í
það embætti eftirmann Finns
Ingólfssonar, seðlabankastjóra.
Eins og gengur hafa margir metn-
að til þess að verða varaformaður
flokksins. Konur vilja eflaust að
það verði ein úr þeirra hópi sem
taki við embættinu. Ungir fram-
sóknarmenn ætla án nokkurs vafa
að minna á sig og síðan eru
nokkrir þungavigtarmenn í
Stutt við
jámbraut
Mikill
stuðningur
er við lagn-
ingu járn-
brautar
meðal
þeirra sem
greiddu at-
kvæði um spurningu Dags á
vefnum. Sjötíu prósent þeirra
sem tóku þátt í atkvæðagreiðsl-
unni lýstu sig fylgjandi því að
komið yrði á járnbrautarsam-
bandi á milli Keflavíkur og
Heykjavíkur, en einungis þrjátíu
prósent voru á móti því.
Nú er hægt að greiða atkvæði
um nýja spurning Dags á vefn-
um, svohljóðandi: Eiga íslenskir
reykiiigannenn rétt á skaðabót-
um? Spurt er vegna hugmynda
þar að lútandi sem fram hafa
komið eftir að dómstólar í
Bandaríkjunum hafa skikkað
tókbaksframleiðslur til að greiða
reykingarfólki stórfelldar bætur
f)TÍr heilsutjón. Slóðin er sem
fyrr; visir.is
Hreiiisuii
Dægradvöl, félag um listir og
menningarmál á Alftanesi, hefur
sent hreppsnefnd Bessastaða-
hrepps áskorun um hreinsun
rusls til menningarauka. I tilefni
vors f lofti og menningarborgar-
titli höfuðborgarinnar skorar fé-
lagið ekki bara á hreppinn, held-
ur á öll sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu að taka til hendinni
og láta tafarlaust fjarlægja rusl
og önnur óþrif sem koma undan
vetri í ríkum mæli. Það sé sann-
ur menningarvottur á menning-
arári. Formaður Dægradvalar er
Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Guðni Ágústsson:
Úvíst hvort hann sækist eftir vara-
formannsembætti Framsóknar.
flokknum ncfndir til sögunnar.
Þeir framsóknarmenn sem
Dagur hefur rætt við eru sammála
um að einn maður rísi þarna upp
úr en það er Guðni Agústsson,
landbúnaðarráðherra. Þeir hinir
sömu fullyrða að ef hann gefi kost
á sér í varaformennskuna eigi
enginn í flokknum möguleika
gegn honum. Guðni þykir hafa
komið vel út sem ráðherra og nýt-
ur æ meiri hylli innan flokksins.
Það er hins vegar fullyrt að Guðni
hafi ekkert sérlega mikinn áhuga
á þessu embætti enda þótt hann
hafi ekki ekki tekið ákvörðun um
hvað hann geri í málinu.
Hjálmar Árnason:
Mjög er þrýst á hann að sækja
fram.
Margir hafa áhuga
Dagur hefur heimildir fyrir þva að
nokkuð sé þrýst á Hjálmar Arna-
son að gefa kost á sér til varafor-
mennsku. Hjálmar hefur engu
ákveðnu svarað öðru en því að
hann ætli bara að sjá til hverju
fram vindur á flokksþinginu. Það
er hins vegar alveg ljóst að Hjálm-
ar fer ekki fram gegn Guðna
Agústssyni, gefi hann kost á sér,
þó ekki væri fyrir annað en að í
næstu kosningum verða þeir sam-
an á lista í Suðurkjördæminu
nýja.
Vitað er að Siv Friðleifsdóttir
hefur áhuga á varaformennsk-
unni, enda barðist hún af hörku á
síðasta flokksþingi gegn Finni
lngólfssyni um varaformennsk-
una. Finnur hafði að vísu sigur en
munurinn \'ar minni en margir
áttu von á.
Nafn Kristins H. Gunnarssonar
er títt nefnt í þessu sambandi.
Kristinn H. er nýkominn í flokk-
inn þar sem frami hans hefur ver-
ið hraður. Nú segja ýmsir rétt að
bíða og sjá.
Ráðherrarnir Valgerður Sverris-
dóttir og Ingibjörg Pálmadóttir
hafa báðar verið nefndar í þessu
sambandi. Viðmælendur Dags ef-
ast almennt um að þær muni gefa
kost á sér, en vika er langur tími í
pólitík hvað þá nokkrir mánuðir.
Nafn Jónínu Bjartmarz hefur
skotið upp kollinum í sambandi
við varaformanninn. Hún á fram-
tíðina fyrir sér í flokknum en
menn efast um að hún eigi orðið
nægilega sterkt bakland með
flokksmanna um allt land til að
leggja í svona slag. Það væri þá
helst ef ungliðasveit flokksins
hópaðist að baki henni.
En það er Ijóst af samtali við
fólk að straumarnir í flokknum
eru komnir af stað út um allt land
en þeir eiga auðvitað eftir að
þyngjast þegar nær degur hausti.
- S.DÓn
Risaskósamningur X-18 í Bandaríkjunum var kynntur í gær af Úskari Axel Úskarssyni framkvæmdastjóra og Hall-
dóri Ásgrfmssyni utanríkisráðherra. Um leið var nýtt húsnæði tekið formlega í notkun við Fiskislóð i Reykjavík.
- mynd: hilmar þór
MUljarðaskór
islenska skófyrirtækið
X-18, The fasion
group, hefur gert sölu-
samuing að andvirði
100 milljóua dollara,
eða 7,3 milljarða
króna, við baudaríska
d re i li nga rfyrirtæki ð
New York Trausit.
Samningurinn gildir til 10 ára, er
stighækkandi, og verður hann
formlega staðfestur að viðstödd-
um Forseta Islands í opinberri
heimsókn hans til Los Angeles í
næstu viku. Samningurinn tryggir
sölu á skóm X-18 í þekktum versl-
anakeðjum á borð við Bloom-
ingdales, Macýs og Nordström í
Bandaríkjunum. Reiknað er með
að í Bandaríkjunum verði seld á
aðra milljón skópara merkt X-18
Reykjavík. Viðskiptunum hefur
verið komið á með aðstoð við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins og Utflutningsráðs og
var samningurinn kynntur í gær
með aðstoð Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra.
Rúm tvö ár eru síðan X-18 var
stofnað af skólyrirtækinu Sport-
vörum og Utgerðarfélaginu Sögu
ehf. Aðstandendur eru Pétur
Björnsson, Magnús Guðmunds-
son og bræðurnir Adolf og Oskar
Axel Oskarssynir en Oskar er
einnig framkvæmdastjóri. Þá
bættist Nýsköpunarsjóður nýlega
í hóp eigenda með 75 milljóna
króna hlutaljárframlagi.
Framleiðslan í Asíu
Skór X-I8, alls 40 gerðir, eru
hannaðir hér á landi en fram-
leiddir í Kína, Víetnam og Taívan.
Skórnir eru nú seldir í 34 löndum
í 5 heimsálfum, m.a. í 1.100
verslunum í Englandi, 70 verslun-
um í Hong Kong og 40 í Dan-
mörku. Á sfðasta ári seldi fyrir-
tækið skó fyrir hátt í 200 milljón-
ir króna og áætluð sala á þessu ári
nemur 430 milljónum króna.
Skiptir samningurinn í Bandaríkj-
unum þar miklu máli. Sala á þess-
um skóm erlendis hefur gengið
mjög vel.
Hjá X-18 starfa 14 manns hér á
landi við hönnun, markaðssetn-
ingu og skipulag dreifingar, en
tugir umboðsmanna mynda sölu-
og dreifingarnet X-18 um allan
heim. Gert er ráð fyrir að stöðu-
gildum X-18 í Reykjavík muni
fjölga í 40 á næstu þremur árum.
Stúdentar kæra
Stúdentaráð Háskóla Islands hef-
ur kærl úrskurð háskólaráðs Há-
skóla íslands, frá því í byrjun apr-
íl, til áfrýjunarnefndar í kæru-
málum háskólanema. Málið
snýst um nemanda sem tók þátt í
samkeppnisprófum í hjúkrunar-
fræði á haustönn. Kennarar og
prófdómarar brevttu innra vægi
eins prófsins eftir að það var lagt
fyrir, með því að taka út einstak-
ar spurningar. Fyrir breytingarn-
ar var viðkomandi nemandi með-
al þeirra 69 sem komist hefðu
áfram. Breytingarnar gerðu það
hinsvegar að verkum að hann
komst ekki áfram. Stúdentaráð
krefst þess að viðkomandi nem-
anda verði heimilað að hefja nám
á 2. misseri eins og hinum 69
sem hleypt var í gegn.
Háskólaráð synjaði nemandan-
um um að hefja nám á 2. misseri
og því áfrýjar Stúdentaráð úr-
skurðinum. Þetta er í fyrsta sinn
sem Stúdentaráð kærir til áfrýj-
unarnefndar í kærumálum há-
skólanema.
Fleiri í vinnu og lengur
Samkvæmt vinnumarkaðskönn-
un Hagstofunnar voru ríflega
157 þúsund manns starfandi á ís-
lenskum vinnumarkaði í apríl.
Það eru ríflega 6 þúsund fleiri en
í sama mánuði í fyrra. Þeim fjölg-
aði f aldurshópnum 16-54 ára en
fjöldi starfandi í elsta aldurs-
hópnum stóð í stað. Einnig voru
vinnustundir fleiri í viðmiðunar-
vikunni en árið áður, eða um
44,2 klukkustundir í stað 43,4 í
apríl 1999. Atvinnuþátttaka
mældist 83,9% í apríl 2000, sem
er aukning um 1,3 prósentustig
frá því í fvrra. Samkvæmt könn-
uninni voru 1,9% vinnuaflsins án
atvinnu um miðjan apríl. Þetta
jafngildir því að um 3.100 manns
hafi verið atvinnulausir. 1 svipuð-
um könnunum var atvinnuleysið
1,8% í nóvember sl. og 2,2% í
apríl í fvrra.
Menningarborgarverkefni háskól-
ans kynnt. - mynd: hilmar þúr
Opinn háskóli
I tilefni menningarborgarársins
2000 í Reykjavík kynnti Háskóli
íslands í gær áform sín um
ókeypis námskeið fyrir fólk á öll-
um aldri í sumar. Alls eru þetta
31 námskeiö; 4 þeirra fjalla um
Reykjavík og sögu hennar, 3 fjal-
ia um heimspeki og heilbrigði
sálar og líkama, 6 námskeið eru í
boði um bókmenntir, sögu og
listir og 17 námskeið verða sér-
staklega lyrir börn og unglinga.
Námskeiðin hefjast 1. maí og
verða f boði í maí og júní, auk
þess sem eitt námskeið verður í
ágúst. Þetta eru frá 8-16 tfma
námskeið. Skráning fyrir full-
orðna er hafin hjá Endurmennt-
unarstofnun Háskólans en fyrir
börn og unglinga fer fram skrán-
ing dagana 22. til 26. maí.
i