Dagur - 28.04.2000, Blaðsíða 5
FÖ STUDAGV R 14. MARS 2000 - 5
[ FRÉTTIR
Segir svariö hroð-
vrrknislegt rugl
verið staðnir að jiví að svara bæði
seint og illa á þinginu í vetur.
Það sama sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir og Þórunn Svein-
bjarnardóttur sagðist hafa beðið
um fimm skýrslur sem væru ekki
komnar enn þótt þær ættu að
vera komnar fyrir löngu.
Vissiun þetta
I þessu umdeilda svari ráðherra
kemur eigi að síður fram að laun
lækna hafa á árabilinu 1997 til
2000 hækkað uppundir 150 þús-
und krónur á mánuði og hjúkr-
unarfræðinga um tæpar 100
þúsund krónur.
„Það þurfti ekki að leita til ráð-
herra eftir svörum við hækkun-
um þessara stétta. Við erum bún-
in að segja frá þessum hækkun-
um tvisvar í félagsblaði okkar.
Þessar stéttir komu á eftir okkur
og sömdu um margfallt hærri
laun en almennu samningarnir
gerðu ráð fyrir 1997. Og það er
einmitt vegna þessa sem við sett-
um inn í kjarasamningana nú
ákvæði um að hægt sé að opna
okkar samninga að ári ef svona
vitleysa endurtekur sig,“ sagði
Halldór Björnsson, formaður Efl-
ingar, í samtali við Dag. -S.DÓR
Fj ármálar áðherra
gagnrýndur fyrir röng
svör, útúrsnúninga og
að svara sumu ekki.
Sómi þingsins er í
húfi að stöðva svona
vinnubrögð, segir Ög-
mundur Jónasson.
„Ég mun ekki sætta mig við þessi
vinnubrögð. Ég tel að sómi
þingsins sé í húfi. Þetta svar er
hroðvirknislegt rugl,“ sagði Og-
mundur Jónasson á Alþingi í gær
þegar hann ræddi um svar fjár-
málaráðherra við fyrirspurn hans
um hver væru föst laun og
grunnlaun starfsfólks á sjúkra-
húsum. I svari ráðherra koma
grunnlaun ekki fram heldur
heildarlaun án tillits til vinnu-
framlags. Og í svari ráðherra seg-
ir að það sé ekki ljóst hvað átt er
við með föstum launum.
Ögmundur Jónasson segist þá
spyrja á móti hvernig launadeild
ríkisins fari að við að draga ið-
gjöld af föstum launum fólks og
hvernig farið sé að því að reikna
Ögmundur Jónasson: Svar ráð-
herrans er fullkomid hneyksli.
yfirvinnu fólks ef menn vita ekki
hvað föst laun eru?
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra var ekki mættur á þing-
fund í gær og því var fátt um
svör.
Svarað út í hött
„Þetta svar ráðherrans er full-
komið hneyksli. Hann svarar al-
gerlega út í hött og surnu sem
spurt var um svaraði hann ekki
og snýr út úr öðrum spurning-
um. Þess vegna spyr ég, hvað er
það sem vakir fyrir fjármálaráðu-
Geir Haarde: Mætti ekki á þing-
fund og lét skriflegt svar duga.
neytinu, hvað er verið að fela? Er
það kannski sá mikli launamun-
ur sem er að verða á milli stétta
innan sjúkrahúsanna. Okkur var
sagt, þegar tilkynnt var um nýtt
launakerfi, að allt ætti það að
vera gagnsætt og upp á borði. Nú
er að koma í ljós í þessu svari að
svo er ekki,“ segir Ögmundur
Jónasson.
Hann hefur krafist þess að
þingforseti vandi um við ráð-
herra um að þeir svari því sem
spurt er um. Ögmundur segir að
ráðherrar hafi hvað eftir annað
ÞaJddr
frá forseta
Ólafur Ragnar
Grfmsson hef-
ur ritað bæjar-
stjórn Akur-
eyrar þakl<ar-
bréf fyrir hlýj-
ar móttökur
og góðar sam-
verustundir í
heimsókn
hans norður á
dögunum.
I bréfinu segir forsetinn meðal
annars: „Það er góður vitnisburð-
ur um framsýni og þor sveitarfé-
laga þegar þau lcggja íþróttum og
útivist almennings lið með jafn
glæsilegum hætti og hin nýja
skautahöll á Akureyri og nýi
skíðaskálinn vitna um. íþróttir
hafa lengi verið órjúfanlegur
þáttur í sögu og menningu ís-
lensku þjóðarinnar, en holl hreyf-
ing og útivist gegna ekki síður
mikilvægu hlutverki í heilbrigðis-
málum okkar, hvort sem um er
að ræða vörn gegn fíkniefnavá
sem ógnar æskufólki eða baráttu
gegn þeim sjúkdómum sem eru
skæðastir þegar líður á ævina.“
Ólafur Ragnar óskar Akureyring-
um til hamingju með glæsileg
íþróttamannvirki og segist sann-
færður um að þau muni í fram-
tíðinni verða fljölsóttir sam-
komustaðir fjölskyldna heima-
manna og gesta þeirra. Bréfið
endar forsetinn síðan með þökk-
um fyrir góða samveru og frá-
bæra skíðadaga. - HI
Varar við Micro-
soft ástandi
Hjátmar Amason
varðaði við því í utan-
dagsrkárumræðu á
þiugi í gær að Lands-
síminn verði seldur í
einu lagi. Sturla
Böðvarsson sagðist
telja heppilegast að
selja hauu í einu lagi.
Undir það tóku fleiri
þiugmenn Sjálfstæðis-
flokksins
Ágreiningur stjórnarflokkanna
um söluna á Landssímanum og
hvort taka eigi ljósleiðarakerfið
undan eða ekki, er að harðna.
Þetta kom greinilega fram í utan-
dagskrárumræðu á Alþingi í gær
um vanmatið á Landssímanum
upp á 3,8 milljarða og síðan fyr-
irhugaða sölu á hans. Hjálmar
Árnason, varaformaður sam-
göngunefndar sagði að dæmið
frá Bandaríkjunum, þar sem risa-
tölvufyrirtækinu Microsoft hefði
verið skipað að skipta sér upp
vegna þess að svo stórt fyrirtæki
hefði skaðleg áhrif á markaðinn,
væri víti til varnaðar.
„Verði Landssíminn scldur í
einu lagi er cinfaldlega verið að
koma á Microsssoft ástandi ó Is-
landi. Ég vara við því,“ sagði
Hjálmar Árnason.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði hins vegar að
hann vildi skoða alla hluti cn þaö
væri sín skoðun að best væri að
selja Landssímann í einu lagi.
Undir þetta tóku sjálfstæðisþing-
mennirnir Pétur H. Blöndal og
Arnbjörg Sveinsdóttir og Árni
Steinar Jóhannsson þingmaður
VG.
ELnokunartilburðii
Það var annars Lúðvík Bergvins-
son sem hóf umræðuna og ræddi
um niðurstöður starfshóps sam-
gönguráðherra sem komið var á
legg í kjölfar álits samkeppnis-
ráðs um nauðsyn á upphaflegu
endurmati á Pósti og síma. Hóp-
urinn komst að þeirri niðurstöðu
að Landssíminn hefði verið van-
metinn um 3,8 milljarða króna.
Lúðvík gagnrýndi Landssímann,
sem hann sagði ráða 95-98% af
fjarskiptamarkaðnum á Islandi,
fý'rir að vera að kaupa upp fjöld-
an allan af litlum samkeppnisíý'r-
irtækjum.
Sturla Böðvarsson rifjaði upp
hvað hefði komið út úr störfum
þriggja nefnda sem fengust við
að meta Landssímann. Niður-
staða þriðja hópsins hefði verið
vanmat upp á 3,8 milljarða króna
og benti Sturla á að það hefði
verið annar samgönguráðherra
sem skipaði fyrsta hópinn scm
vanmat Landssímann. Hann
sagðist telja eðlilegt að Lands-
síminn gengi til samstarfs við lít-
il fyrirtæki á fjarskiptamarkaði.
Þingmenn Samfylkingarinnar,
sem til máls tóku, voru sammála
Hjálmari Árnasyni um að skipta
eigi Landssímanum upp verði
hann seldur.
Fíkniefni í Kópavogi
Lögreglan í Kópavogi geroi það gott í fyrradag í baráttu sinni gegn út-
breiðslu fíkniefna í bænum. Lyrst var lagt hald á 40 grömm af mari-
huana sem fundust við leit á ökumanni bils sem stöðvaður var við
reglubundið eftirlit. I bílnum fundust einnig tæki til fíkniefnaneyslu
sem og munir sem taldir eru þýfi. Ökumaðurinn er á þrítugsaldri og
hefur áður komið við sögu lögreglunnar í Kópavogi vegna fíkniefna-
auðgunarbrota.
Skömmu síðar lagði lögreglan í Kópavogi, í samstarfi við önnur
embætti á suðvesturhorninu, hald á um 11 5 grömm af hassi, tæp 2
grömm af amfetamíni og tvær e-pillur. Efnin fundust við leit á heim-
ili manns í bænum. Sá er á fertugsaldri og hefur einnig komið \áð
sögu lögreglunnar vegna fíkniefnabrota.
Kaupstefna í Færeyjum
Um þessar mundir standa 33 íslensk fyrirtæki fyrir kaupstefnu í Lær-
eyjum undir yfirskriftinni TórRek. Kaupstefnunni lýkur um helgina.
Auk fslensku fyrirtækjanna eru þrjú íyrirtæki frá Grænlandi með í
för. Sjö íslensku fyrirtækjanna eru frá Akureyri. Þetta er í annað sinn
sem kaupstefna af þessum toga er haldin í Læreyjum. Áður hafa
samskonar kaupstefnur verið haldnar í Reykjavík og í Nuuk á Græn-
landi. Utflutningsráð Islands og Eimskip hafa séð um undirbúning
og skipulagningu kaupstefnunnar, auk þess sem Aflvaki hefur einnig
komið að undirbúningi. Aðaimarkmiðið er að efla viðskipti og tengsl
grannþjóðanna í norðri, lslendinga, Færeyinga og Grænlendinga.
Einnig er lögð sérstök áhersla á að koma fslensku menningarlífi á
framfæri.
Ók ölvuð að heimili lögreglustjórans
Kona á Þórshöfn hefur verið dæmd til aögreiða 50 þúsund krónur í
sekt vegna ölvunaraksturs. Brot konunnar er nokkuð sérstakt en mál-
ið snýst um akstur konunnar í maí í f)Tra innanbæjar á Þórshöfn að
heimili lögreglustjórans þar í bæ þar sem hún stöðvaði bifreiðina.
Með brotinu rauf konan skilorð, en hún var á árinu 1998 dæmd til
sextíu daga fangelsisvistar fyrir þjófnað og var sú refsing bundin skil-
orði í tvö ár. Konan gekkst undir viðurlagaákvörðun héraðsdóms í
fyrra vegna brota gegn ávana- og fíkniefnalöggjöfinni. Vegna breyt-
inga á högum og viðhorfi konunnar þótti dómara rétt að láta skilorðs-
dóminn haldast. Konan var enn fremur svipt ökuleyfi í tólf mánuði
og dæmd til að greiða allan sakarkostnað, þar með þóknun skipaðs
verjanda, tíu þúsund krónur. - hi
-S.DÓR