Dagur - 28.04.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 28.04.2000, Blaðsíða 6
6 - FÖSTUDAGUR 2 8. AP RÍL 2000 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 4eo sioo og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á MÁnuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (REYkjavíK) Pólitískur trölladans í fyrsta lagi Umheimurinn hefur að undanförnu séð forysturíki lýðræðis- þjóða fá enn eitt pólitísk krampakastið. Saklaust fórnarlamb þessa pólitíska trölladans er kúbverski drengurinn Elian Gonza- lez sem missti móður sína á leiðinni til Bandaríkjanna og var snarlega hertekinn af fjarskyldum ættingjum á Flórída, þar sem fólk af kúbverskum ættum er afar þ'ölmennt og hefur mikil póli- tísk áhrif. Bandarísk stjórnvöld hafa nú komið drengnum í hend- ur föður síns, en hann verður þó að dvelja áfram í Bandaríkjun- um á meðan sérfræðingar í lagakrókum þvæla máli hans fram og aftur gegnum dómskerfið. í öðru lagi Hvorki ættingjar Elians á Flórida né þeir pólitísku lukkuriddar- ar sem hafa einsett sér að græða á hörmungum Iitla drengsins á kosningaári, hafa velferð Elians að leiðarljósi. Hann hefur allan tímann verið algjört aukaatriði í heiftarlegri baráttu um vinsæld- ir og pólitísk áhrif, enda hafa allar eðlilegar kröfur um velferð barna verið virtar að vettugi. Má segja að mál þetta hafi enn á ný sýnt stjórnmálaöfga bandarísks þjóðfélags í sinni verstu mynd. í þriðja lagi Stefna Bandaríkjamanna gagnvart Kúbu hefur áratugum saman einkennst af lítilmennsku og fjandskap sem hófst þegar bylting- in á Kúbu hrakti burt bandaríska mafíósa og auðmenn og póli- tísk handbendi þeirra. Alla tíð síðan hafa bandarískir ráðamenn lagt sig í líma við að einangra og eyðileggja kúbverskt samfélag. Nýju valdhöfunum var ýtt í faðm sovéskra kommúnista með hörmulegum afleiðingum, en Ieiða má sterk rök að því að þróun mála á Kúbu hefði orðið allt önnur ef ekki hefði komið til fjand- skapur bandarískra stjórnvalda. Að Bandaríkjastjórn skuli ekki enn hafa tekið upp eðlileg samskipti við Kúbu Iöngu eftir lok kalda stríðsins á sér þá einu skýringu að bandarískir stjórnmála- menn keppast um atkvæði kúbverskra innflytjenda. Er bágt til þess að vita að pólitísk tækifærismennska skuli ráða svo miklu í öflugasta stórveldi heimsins. Eltas Snæland Jónsson. „Með nýjun hætti“ Þá er Guðni Ágústsson búinn að gefa sig upp í varafor- mannsslagnum, en í fréttavið- tali við Dag í gær sagði hann setninguna sígildu sem í ís- lenskri stjórnmálahefð jafn- gildir yfirlýsingu um framboð. Guðni sagði að margir hefðu haft samband við hann og skorað á hann að gefa kost á sér. Þegar málið er komið á þetta stig - þ.e. það er komið af því stigi að „ýmsir hafi hringt og orðað þetta við mig“ - og yfir á það stig að það hafi margir flokks- menn beinlínis skorað á hann, þá má segja að málið sé ákveð- ið. Það þarf því eitthvað mikið að gerast ef Guðni blandar sér ekld í vara- formannsslaginn hjá framsókn í haust. Nýjar línur Það vekur athygli Garra að Guðni talar mildð um að hugs- anir flokksmanna til þess sem sækist eftir varaformennsku séu nú „með nýjum hætti“ vegna þess að staða flokksins sé kröpp. Þetta merkir vænt- anlega að það verði Guðni sjálfur sem komi með þessar nýju línur eða áherslur inn í flokksforustuna - línur sem aðrir hugsanlegir varafor- mannskandídatar geta ekki boðið upp á. Garri varð nokk- uð hugsi við þessar yfirlýsingar Guðna og fór að hugsa um hvaða línur þetta væru nú sem Guðni var að tala um. Augljós- lega er hann að taia um að tími sé kominn til að stöðva framrás kvennanna í flokkn- V um þannig að leiðin að at- kvæðum kjósenda liggi ekki um þær ávölu kvenlegu línur sem þær Siv Friðleifs, Valgerö- ur Sverris eða Jónína Bjart- marz. myndu færa með sér. En hvaða línur eru það þá? Riddari framsóknar Yfirlýsingar Guðna um hinn nýja hugsunarhátt hljóta bein- línis að kalla á að menn velti fyrir sér hvað það sé nú eink- um sem Guðni standi fyrir um þessar mundir sem er nýtt í ís- lenskri pólitík. Það sem stendur algerlega upp úr er að Guðni Ágústsson hefur auldð mjög veg- semd og virð- ingu íslenska hestsins - ekki síst við opinber- ar mótttökur. Guðni hefur hleypt íslenska hestinum inn á nýtt frægðarskeið og sem virðulegur knapi í þeirri reið hefur ljómi frægðarinnar óhjá- kvæmilega lika fallið á Guðna. Garra þykir því líklegast að þegar hann talar um að fram- sóknarmcnn hugsi til nýs vara- formanns með nýjum hætti sé hann að tala um að þeir sjái fyrir sér varaformann á hest- baki - pólitískan riddara! Mann sem ríður til flokksþings í glæsilegum flokki hesta- manna á hægu yfirferðartölti og jafnvel með atgeir á lofti! Slík mynd gæti auðveldlega hreyft við kjósendum og hver veit nema það sé rétt metið hjá Guðna að úr gæti orðið hópreið nýs fólks inn í Fram- sóknarflokkinn! — GARRI Ættgöfgi er meðal þeirra guðsgjafa sem útvaldir njóta og er ávísun á metorð og oft ríkidæmi. Ættar- rembu fýlgir gróf stéttaskipting og eru þjóðhöfðingja- og aðalsættir Evrópu, sem bornar eru til valda og eigna, öðrum einstaldingum æðri og þykir mikil hneisa ef blóð almúgafólks slæðist í bláæðar þeirra sem guð hefur valið til að hreykja sér yfir aðra menn. Kotkarlar á íslandi hafa löngum yljað sér við að þeir séu af kon- ungakyni og eru ekki brigður horn- ar á það. Alllangt er síðan vel met- inn viðskipajöfur vakti nokkra at- hygli mcð því að gefa út ættartré sitt, sem sannaði að hann er beinn afkomandi Auðuns skökuls, sem einnig er ættfaðir allra kónga í Evr- ópu og Rússakeisara í ofanálag. En ættartréð sannaði að þessi tiltekni einstaklingur er frændi Elísabetar II. og ættgöfgin ekki Iakari en jieirra sem telja til heimilisfestu að Buchinghamhöll. Ættgöfiigir frægöarmeim Svona er ættfræðin skemmtileg og gagnleg þeim sem eru af ætt. Nú er enn verið að opinbera mik- illeik einstaklinga með því að rekja samfarir formæðra- og feðra aftur í tímann og tengja þá við forna frægðarmenn. Heppileg uppgötvun Moggi skýrir svo frá, að Oddur Helgason ætt- fræðingur, hafi af al- kunnum íróðleik og lip- urð sannað að ástsæll forseti vor Olafur líagnar og stýrimaður langskipsins íslendings Gunnar Marel Eggerts- son séu komnir af Leifi heppna og þá væntanlega líka föð- ur hans, sakamanninum Eiríki rauða. Það er einstaklega heppilegt að þessi merka uppgötkvun skuli hera upp á sama tíma og forsetinn spók- ar sig í landinu sem Leifur fann og Gunnar Marel mun snúa stafi skips síns til innan tíðar. Það sannar ættsmáum Ameríkönum, að þar séu engir veifi- skatar á ferð, menn sem komnir eru al Leifi og því fólki. Það eru löngu kunn ættvísindi, að allir núlifandi Islendingar séu komnir af fólki sem lifði um 1500 og eignaðist afkomendur. Samkvæmt því eru allir Islendingar skyldir hver öðrum og er á oft mið- að við að öll jijóðin sé komin af Jóni biskupi Arasyni, sem höggvin var til að rýma fyrir jijóðkirkjunni. Dulkóóuó vísindi Sé sú ættfræði kórrétt að allir Frónbúar séu af Jóni biskupi, seni hlýtur að hafa verið númer í ættar- tölu frá Leifi Eiríkssyni, þá er öll jijóðskráin Irá þeini komin. Það þýðir að Lalli á Laugavegi og Gudda á Grettisgötunni eru ekki síður ættgöfug en forsetinn og stýrimaðurinn á Islendingi og skyld þeim báðum eins og Oddi ættfræðingi Helgasyni. Og ég sjálf- ur kominn af Auöunni skökli , eins og hórkarlinn sem titlaður er prins af Wales. Flott skal það vera. En þar sem ættgöfgi er ætluð mönnum til framdráttar, leyfist þeim sem bara eru í familíum ekki að sletta sér inn í fínar ættartölur og því hest að láta viðurkennda ættfræðinga um að velja ættleggi hinna útvöldu og útiloka aðra frá frændsemi höfðingsfólk. Það væri þokkalegt eða hitt þó heidur ef ís- lensk erfðagreining kæmist að jiví að blátt hlóð renni í æðum allra ls- lendinga. Svoleiðis þekldngu er náttúrulega skylt að dulkóða lil að varðveita ættremhu hinna útvöldu. Leifur heppni. Sumir telja til meiri skyldleika við hann en aðrir. A>Mýtr spuríiv svayrad Er sameining sveitarfé- laganna á höfuðborgar- svæðinu tímabær? Einar Sveinbjömsson bæjarfnlltníi í Gatúabæ. „Umræða um þetta er tímabær og frumkvæði Bessastaðahrepps fagna ég. Við í Garðbæ gætum kosið um samein- ingu þessara tveggja sveitarfé- laga á næstu mánuðum, ef hug- ur fylgir máli. En annars er ég skotinn f þeirri hugmynd að sveitarfélögin sunnan Reykjavík- ur og allt suður á Vatnsleysu- strönd Iáti skoða kosti og galla sameiningar í eitt sveitarfélag með um 50 þúsund íbúa, sem gæti þá orðið gott mótvægi við höfuðborgina." Bima Bjamadóttir bæjarfulltnii í Kópavogi. „Sameining sveit- arfélaga sunnan Fossvogs við Reykjavík tel ég að komi tæpast til greina, m.a. vegna tillagna um að skipta borginni í tvö kjördæmi. En það er að mínu mati inni í myndinni að sameina Kópvog, Garðabæ, Hafnarfjörð og Bessa- staðahrepp í ljósi reynslu af sam- eiginlegum verkefnum, svo sem í vatnsveitumálum, rekstri al- menningsvagna og nú síðast fyr- irhugaðri sameiningu slökkvi- liða. Hins vegar tel ég að samein- ing sé ekki á næsta leyti, en vel má vera að Garðabær og Álfta- nes nái samkomulagi á næstunni - enda hafa þau sveitarfélög lengi haft góða samvinnu." Þorgils Óttar Matthiesen bæjarfulltníi í HafnarfiríH. „Ég tel að Hafnar- fjörður, Garðbær og Bessastaða- hreppur liggi það vel hvort að öðru að sameining sé umhugsunarverð og tfmabær. Fyrir liggur að þessi sveitarfélög þurfa að helja nána samvinnu vegna skipulagsmála og þegar er samvinna sveitarfé- laganna mikil. I mfnum huga er Ijóst að fjárhagslegur ávinningur er að þessu. Á síðustu árum hafa æ fleiri verkefni færst frá ríki yfir til sveitarfélaga og undir þeim verða jiau að geta staðið - sem og kröfum íhúa um góða jrjónustu." Júlís Vífill Ingvarsson borgaifulltníi í Rcykjavík. „Svarið er jákvætt. Við það tel ég að náist fram mikil hagkvæmni og sameinuðum sveitarfélögum mun gefast kostur á því að takast á ný við spenn- andi verkcfni í krafti stærðar sinnar. Ég óska nágrönnum okk- ar velfarnaðar og vona að jiau nái saman. Mér finnst og tímabært að Reykjavíkhorg og náganna- sveitarfélög hennar hugi að frek- ari möguleikum til sameiningar - og ég útiloka ekkert í jiví sam- handi.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.