Dagur - 03.06.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 03.06.2000, Blaðsíða 9
8- LAUGARDAGUR 3. JÚNt 2000 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 - 9 FRÉ TTASKÝRING L V éfengi a lögniæti uppsagnar Allt er á suðupunkti innan VMSI eftir brottrekstur Björns Grétars Sveinssonar sem jafnframt var framkvæmdastjóri þess. Þá hefur hart verið deilt á þá félaga t.h. þá Björn Snæbjörnsson og Hervar Gunnarsson fyrir að taka höndum saman með Flóabandalaginu til að koma Birni Grétari frá. Því hafa þeir báðir vísað á bug. Þorsteinn Arnórsson varaformaður Landssambands iðnverkafólks t.v. er þó bjartsýnn á stofnun nýs risasambands „ófaglærðra“ í haust. GUÐMUNDUR J\ RÚNAR / HEIÐARSSON SKRIFAR MiMl reiði og ólga í VMSÍ. „Valdarán“ Stuðningsyfirlýsiiig við Björu Grétar. Við- ræðuhópur í uppnámi. Mikil ólga er innan Verkamanna- sambands Islands eftir að Björn Grétar Sveinsson var rekinn úr formannssstól og gerður við hann starfslokasamningur. Þetta hefur kallað fram mjög hörð viðbrögð og m.a. er búist við að hátt í 30 formenn aðildarfélaga muni for- dæma þessi vinnubrögð með sér- stakri stuðningsyfirlýsingu við Björn Grétar. Þá véfenga margir lögmæti þessarar ákvörðunar. Bent er á að hann hafi verið kos- inn formaður af þingi sambands- ins og því geta ekki nokkrir menn tekið ákvörðun um að reka hann og gera við hann starfslokasamn- ing. Þá hafa formenn aðildarfé- laga á landsbyggðinni rætt það að funda um málið. Það hefur þó ekki enn verið rætt hvort kalla eigi saman þing sambandsins til að fjalla um þetta „valdarán" eins og sumir vilja meina að framið hafi verið í VMSÍ að undirlagi andstæðinga Björns Grétars í sambandinu. I því sambandi er bent á þarna eigi hlut að máli for- menn 5 aðildarfélaga VMSÍ af um 37 stéttarfélögum. Undarleg vinnubrögð Fylgismenn fráfarandi formanns benda einnig á að það sé mjög undarlegt að framtíð hans skuli ekki hafa verið rædd á framhalds- þingi VMSI sem haldið var fyrir skömmu. Sérstaklega þegar haft sé í huga að þá þegar lá fyrir að húið var að bjóða honum starfs- Iokasamning, eða morguninn áður en þingið hófst. Þá hefðu fulltrúar getað tekið afstöðu til þess í atkvæðagreiðslu hvort það ætti að setja Björn Grétar af eða ekki. I því sambandi benda stuðn- ingsmenn hans á að þótt and- stæðingar hans hafi ekki treyst honum til að Ieiða viðræður um stofnun nýs sambands með sam- einingu VMSÍ, Landsssambands iðnverkafólks og Þjónustusam- bands Islands, þá hefði hann ein- faldlega ekki verið í þeirri nefnd ef meirihluti hefði verið fyrir því. Hann hefði engu að síður getað starfað áfram sem formaður VMSI. Þá svíður mörgum stuðn- ingsmönnum hans hvernig and- stæðingar hans hafa gjörsamlega rúið hann æru með þessari fram- komu í hans garð. Auk þess eiga menn varla orð yfir það að mað- urinn skuli hafa verið rekinn á sínum fyrsta starfsdegi eftir að hann kemur á ný til vinnu eftir erfið veikindi í vetur. Valdabarátta Þótt talsmenn Flóabandalagsins og aðrir fulltrúar í framkvæmda- stjórn VMSI beri af sér alla ábyrgð af því að hafa staðið fyrir brottrekstri Björns Grétars full- yrða stuðningsmenn hans á landsbyggðinni að það sé algjör þvæla. Þarna hafi átt sér stað harðvítug valdabarátta um völd innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem verið sé að búa í haginn til leiða nýtt sameinað samband sem ætlunin sé að stofna haust. Enda sé til mikils að vinna því sambandið verður það íjölmenn- asta innan ASÍ með hátt í 40 þús- und félagsmenn. Jafnframt er bent á að innan Flóabandalagsins sé að finna hörðustu pólitísku andstæðinga Björns Grétars eins og t.d. Kristján Gunnarsson for- mann Verkalýðs- og sjómannafé- lags Keflavíkur og nágrennis. I þeim efnum skiptir engu þótt margir forystumenn verkalýös- hreyfingarinnar séu f Samfylking- unni. Gamlar væringar á milli krata og alþýðubandalagsmanna eru sagðar fyrnast ekki svo glatt þótt allir séu vinir á ytra borði á hátíðarstundum við sameiningu flokka. Þá séu Flóamenn ekki enn búnir að fyrirgefa Birni Grét- ar fyrir andstöðu hans gegn hug- myndafræði þcirra og kröfum við gerð sfðustu kjarasamninga. Sem kunnugt er þá voru Flóamenn mun hógværari í sínu kröfum en VMSI. Fyrir vikið tóku atvinnu- rekendur Flóann upp á arma sfna og settu VMSÍ út í kuldann. Af- leiðingin varð sú að samningur Flóans og atvinnulífsins varð sá rammi sem allir aðrir hafa orðið að semja eftir hvort sem þeim lík- aði það eða ekki. Flóinn í meiribluta Þessi mikla andstaða innan VMSÍ við brottrekstri Björns Grétars og þær ásakanir sem gengið hafa á milli manna kann að leiða til þess að einhverjir úr þeim hópi VMSI sem eiga að Ieiða sameiningarviðræðurnar hætti hreinlega við og segi sig úr hópnum. Einn af þeim sem hug- leitt hefur það er m.a. Siguröur Ingvarsson formaður Alþýðusam- bands Austurlands. Þá er ekki útilokað að það verði hreinlega auglýst eftir einstaldingi til að leiða hin nýju samtök ef meint forystukreppa innan verkalýðs- hreyfingarinnar sé jafn mikil og sumir vilja vera láta. Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn sem á leiða þessar samningaviðræður taki til starfa eftir miðjan þennan mánuð og verði meira og minna að í sumar og fram á haustið. Enda er stefnt að því að halda stofnfund hins nýja sambands um miðjan október n.k. Þeir sem eru í þessum hóp VMSI sem á að vinna að sameiningu þess og Landssambands iðnverkafólks og Þjónustusambandsins eru Hervar Gunnarsson varaformaður VMSI og formaður Verkalýðsfélags Akraness, Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, Sigurður T. Sigurðsson formaður Verka- lýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði, Björn Snæbjörnsson formaður Einingar- Iðju á Akureyri og Sig- urður Ingvarsson formaður Al- þýðusambands Austurlands. Frá Landssambandi iðnverkafólks cru í hópnum þeir Guðmundur Þ. Jónsson formaður þess og Þor- steinn Arnórsson varaformaður. Frá Þjónustusambandi Islands eru þeir Halldór Björnsson íýrr- verandi formaður Eflingar - stétt- arfélags og eftirmaður hans í for- mannsstólnum, Sigurður Bessa- son. Af þessum níu eru fimm úr svokölluðu Flóabandalagi, þeir Kristján, SigurðurT. Guðmundur Þ., Halldór og Sigurður Bessa- son. Starfslok í sima Sigurður Ingvarsson formaður AI- þýðusambands Austurlands segir að Björn Grétar og Hervar hafi staðið að gerð starfslokasamnings að stórum hluta í gegnum síma. Hins vegar hefði framkvæmda- stjórnin ekld hoðið Birni Grétari neinn starfslokasamning, þótt sá samningur hefði engu að síður verið borinn undir framkvæmda- stjórnina. Astæðan fyrir þessum samningi var sú að talið var að það mundi væntanlega greiða fyr- ir vinnu að sameiningu samband- anna. Sigurður segir það vera al- veg ljóst að ósk um þennan starfslokasamning hefði ekki komið frá fulltrúum landsbyggð- arfélaga heldur þeim arminum sem kenndur hefur verið við Flóabandalagið. Hann telur að menn hafi í sjálfu sér ekki þurft að losa sig við Björn Grétar vegna komandi vinnu við hugsanlega sameiningu sambandanna. Þá sé það ekki heldur rétt að menn hafi verið að losa sig við hann. Hið rétta í málinu að sögn Sigurðar sé það að Björn Grétar vildi fá starfs- lokasamning og hafði óskaði eftir því. Hann hefði hins vegar verið ósáttur við tímaselninguna. íhugar að hætta Formaður Alþýðusambands Aust- urlands segist vera sannfærður um það að þessir síðustu atburðir innan VMSI muni hafa áhrif á þá vinnu sem framundan sé við sam- einingu sambandanna þriggja. Hann segir að svona „upphlaup og árásir á einstaklinga“ muni skemma fyrir framhaldinu. Það sé alveg ljóst. 1 það minnsta muni þetta tefja þá vinnu og gera hana erfiðara á allan hátt. Enda sé komin upp tortryggni á báða bóga og það skemmir alltaf fyrir. Hann minnir jafnframt á fyrri ummæli þess efnis að þessi sameiningar- vinna verði erfið og muni kosta, blóð, svita og tár svo ekki sé minnst á hugsanleg áhrif sem síð- ustu atburðir geta haft. Hann tel- ur ekki útilokað að þeir sem vald- ir hafa verið til að vinna að þess- ari sameiningu fyrir VMSI muni draga sig út úr þessari vinnu og aðrir taki hreinlega við því. Sjálf- ur telur það vel koma til greina af hans hálfu. Sérstaklega þegar haft sé í huga að félagar hans séu að reyna að hafa af honum æruna með því að núa honum því um nasir að hafa stuðlað að því að reka Björn Grétar úr formannstól VMSÍ. Það sé hreinlega ekki satt og því séu ásakanir um annað ekkert nema aðför að mannorði hans. Það sé afskaplega ómaklegt vegna þess að hann og aðrir landsbyggðarmenn í fram- kvæmdastjórninni séu traustustu stuðningsmcnn Björns Grétars. Hann vill þó ekki trúa því að þetta mál muni þróast á þann veg að landsbyggðarfélög innan VMSI muni ekki vilja vera með í þessari væntanlegu sameiningu. Það yrði mikil ógæfa ef menn næðu þess- ari sameiningu ekki saman. Hann bendir á að menn hafi það svart á hvítu eftir veturinn og gerð síð- ustu kjarasamninga að verkalýðs- hreyfingin verður að vera samein- uð en ekki sundruð. Þvf sé mjög brýnt að reyna að stuðla að sam- einingu og sáttum en ekki ófriði. Horft til framtíðax Pétur Sigurðsson forseti Alþýðu- sambands Islands telur þrátt íý'rir það sem á undan sé gengið, þá muni verða að sameiningu þess- ara þriggja sambanda. Hann seg- ist hafa trú á því og það sé raunar engin ástæða til þess að ætla ann- að. Enda verður það raunar að gerast sé horft til framtíðar. Hann segir að persónuleg illindi eða ólund einhverra manna út í ein- hvern eða einhverja megi ekki eyðileggja það. Pétur bendir ein- nig á að það sé til nóg af hæfu fólki innan verkalýðshreyfingar- innar til að axla þá ábyrgð að Ieiða nýtt og öflugt samband. Hann vísar því á bug öllum vanga- veltum um að það sé einhver for- ystukreppa í hreyfingunni. MiMl reiði Aðalsteinn A. Baldursson formað- ur Alþýðusambands Norðurlands vildi sem minnst tjá sig um brott- rekstur Björn Grétars Sveinns- sonar frá VMSI. Hann staðfestir þó að það sé mikil reiði meðal margra félagsmanna og formanna aðildarfélaga sambandsins á landsbyggðinni út í þessi vinnu- brögð sem viðhöfð voru. I lann segir að það sé mat flestra að af þessari sameiningu sambandanna þriggja gcti orðið. Til að svo geti orðið þurfa allir að vinna að því saman og heilshugar. „Meðalmaður“ Sigurður T. Sigurðsson formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafn- arfirði sem er hluti af svonefndu Flóabandalagi vísar því alfarið á bug að ákvörðun um að reka Björn Grétar hafi verið gerð af frumkvæði eða samþykktum inn- an bandalagsins og þaðan af sfður frá Hlíf. Hann vill þó ekki sverja fyrir að slíkt hafi verið ákveðið af einhverjum mönnum innan Flóa- handalagsins. Hann áréttar þó að hann viti ekkert um það, enda sé hann sjaldnast hafður með í ráð- um um slíkt vegna einarðlegrar og heiðarlegrar afstöðu til nianna og málefna. Hann segist hins vegar virða afstöðu Björns Grétars sem hefði ekki viljað taka slaginn. Aft- ur á móti segist hann ekki geta scð þegar „meðalmaður" hverfur af sviðinu að þá þurfi allt að verða vitlaust. Hann vonast þó til þess að framhaldið og það sem muni koma út úr væntanlegra samein- ingu sambandanna þriggja verði farsælt. Ferskir vinilar Þorsteinn Arnórsson varaformður Landssambands iðnverkafólks segir að þessi þróun mála innan VMSI hafi komið sér á óvart. Hann býst jafnframt ekki við þvf að brottrekstur Björns Grétars muni hafa áhrif á þá sameining- arvinnu sem framundan sé. I þeim efnum eiga menn ekki að horfa til persóna né til gamalla eða nýrra væringa. Það sé einnig ekkert nýtt að það gusti um hreyf- inguna auk þess sem ferskir vind- ar séu oft mjög góðir. Þá sé það bara rugl þegar einstakir menn séu að tala um að það sé einhver forystukreppa innan verkalýðs- hreyfingar, enda sé til nóg af mannskap. - Gntl Stjórmarmenn og makar þeirra virða fyrir sér fyrsta lax sumarsins sem kom úr Norðurá i Borgarfirði. Níu laxar höfðu veiðst í ánni í gærkvöld. mynd G. Bender Sæmileg sátt á Þmgvöllum Jörmundur Ingi Hansen allsherj- argoði segir að þrátt fyrir að ása- trúarmenn þurfi ekki að borga lcigu fyrir salerni eins og samið hefur verið við kristnihátíðar- nefnd þá þurfi þeir nú samt sem áður að borga fyrir hrcinsun og viðhald. Fram kom í máli Júlíus- ar Hafstein í vísi.is í gær að mál- ið væri leyst og að allir væru ánægðir. „Samkomulagið sem hann fjúlíus] kallar svo fjallar raun- verulega um það að kristnihátíð- arnefnd og framkvæmdasýslan leggi ekki stein í götu okkar á Þingvöllum eins og leit út fyrir með þessum ofurrukkunum. Við verðum að sætta okkur við þetta, lengra verður ekki komist,“ segir Jörmundur og bætir við að til greina kæmi að fara fram á það við aþingi að það veiti ásatrúar- mönnum aukafjárveitingu í haust. „Flestir þeir gestir sem ætluðu að koma hættu við að gista á Þingvöllum. Það var fólkið sem átti að borga kostnaðinn við há- tíðina þannig að við höfum misst allar tekjur út af þessum drætti," segir Jörmundur og útilokar ekki að taka þurfi lán týrir hátíðinni. - ELJ Verðbólguspár hækka með bensíni og alkóhóli Verðhækkanir á bensfni (3,5%) og áfengi (0,6% - 1,6%) og tóbaki (tæp 2%) núna um mánaðamótin munu valda hátt í 0,2% hækkun á vísitölu neysluverðs - sem aftur hækkar skuldir landsmanna um hátt upp í milljarð. Og Seðla- bankinn hefur hækkað verð- hólguspá sína í 5% frá upphafi til loka ársins. Þótt evran hafi lækkað skýrist hækkun á vínum af verðhækkun- um ytra en ekki á Ieiðinni frá hafnarbakka að búðarkassa, eins og margt annað. Samkvæmt töl- um Þjóðhagsstofnunar var inn- flutningsverð á mat- og drykkjar- vörum að jafnaði 6,1% lægra í janúar-mars í ár en á sama tíma í fyrra. En samt mælist 5,5% með- alhækkun á smásöluverði þessara sömu vara í verslunum landsins. Það er í von um það að finna út hvar þessi óskýrða 12% verð- hækkun varð á leið frá skipshlið í hendur neytenda sem varð til þess að stjórnvöld óskuðu eftir sérstakri rannsókn á þessari mjög svo mismunandi þróun innflutn- ingsverðs og verði til neytenda. Bensínið í 94,50 krónur Verð á 95 okt bensíni hækkaði um 3,20 krónur í 94,50 kr. þann 1. júní, sem valda mun kringum 0,13% vísitöluhækkun. Bjórverð hækkaði um 1,6% og annað áfen- gi 0,59% að meðaltali. Vindlingar hækka um 2,51% en vindlar læl<ka um 6,58% að meðaltali, vegna gengislækkunar evrunnar. t mars spáði Þjóöhagsstolnun 4% verðhólgu á árinu og var þá raunar á svipuðu róli og fjármála- markaðurinn. „Við höfum enn ekki breytt okkar spá, en munum fara yfir þetta f heild síðar í mán- uðinum," sagði Þórður Friðjóns- son forstjóri. En miðað við þró- unina undanfarna mánuði verði ný spá líklega nær 5% en 4%. Evran tafið verðbólguna? Gengi evrunnar sem fyrir skömmu fór niður fyrir 0,90 á móti dollar er nú aftur komið upp í 0.94 dollara. Þórður segir erfitt að segja hvort eða hvaða áhrif það hafi haldi evran áfram að hress- ast. Gengisstefnan miðist við körfu gjaldmiðla, eftir viðskipta- vægi, svo í reynd ætti hækkun evrunnar ekki að hafa mikil áhrif á verðlag hér. Nema þegar krónan styrkist gagnvart þessari körfu, eins og hún hafi nú gert f hálft annað ár, sem væntanlega hafi dregið úr verðbólgunni m.v. það sem annars hefði orðið. Eins og ljóst er af umræðunni undanfarna daga virðist þó nokk- uð umdeilt hvort lækkun á gengi evrunnar hefur skilað sér inn í verðlag á íslandi. Ur tölum má lesa, segir Þórður, að innflutn- ingsverð á mat- og drykkjarvörur núna í janúar-mars hafi breyst 6,1% til lækkunar m.v. sama tíma í fyrra. En hins vcgar breyst 5,5% til hækkunar í vísitölu neyslu- verðs. Hvar ástæða þessa mikla munar liggur þekki mcnn ekki í einstökum atriðum og hafi því tekið ákvörðun um að skoða það nánar. Verðhækkun á vínum eigi sér hins vegar aðrar ástæður. Þótt mikið af vínum komi frá evrulöndunum hafi innllutnings- verð víns, af einhverjum óskýrð- um ástæðum, hækkað verulega í janúar-mars m.v. sama tímabil árið á undan. Verðlag á víni sé þannig að þróast öðruvísi en ann- að verðlag í Evrópu. - HEI Sl toil v* v. v> f A ' l VlýjiKi .tn n fyu 10(1 V. i ’ ) >■ 1; t ■ íik;nn»u» f)v»

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.