Dagur - 01.08.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 01.08.2000, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 1. ágúst 2000 Verð í lausasölu 150 kr. Er siðanefnd presta með ölliun mj alla? Sr. Hjálmar Jónsson al- þingismaður harðorð- ur um dóm siðanefnd- ar presta í máli Hr. Sigurbjöms Einars- sonar vegna ummæla hans um gagnrýnend- ur Kristnihátíðar. „Ég veit ekki hvort siðanefndin er með öllum mjalla," segir sr. Hjálmar Jónsson, alþingismaður. Hann er ósáttur við þann dóm sem siðanefnd Prestafélags Is- lands kvað upp fyrir helgina vegna ummæla Sigurbjarnar Ein- arssonar biskups um gagn- rýnendur kristnihátíðar. í viðtali við DV skömmu eftir kristnihá- tíðina í júiíbyrjun kvaðst Sigur- björn efast um heilbrigði þeirra manna og sagði sitthvað í mál- flutningi þeirra minna.á það allra versta sem verstu nasistar og kommúnistar höfðu fram að færa á sínum tíma.“ Siðanefndin taldi að Sigurbjörn hefði ekki brotið siðareglur prestafélagsins en betur hefði farið að hófsamari samlíkingar hefðu verið notaðar og óþarfi hefði verið að blanda geðsjúkum inn í umræðuna. Likmgamál er rauð- ur þráður „Það þarf engin siða- nefnd að kenna Sigur- bimi biskupi að tala. Myndir og líkingamál eru rauður þráður í öllum boð- skap kirkjunnar um aldirnar til þess að betur skiljist hvað átt er við. Þetta er ríkur þáttur í boðun orðsins. Tökum til dæmis Jón biskup Vídalín, sem kvað fast að orði. Að ekki sé minnst á Martein Lúther. Siðanefnd Prestafélags íslands árið 2000 myndi veita þeim alvarlegar áminningar væru þeir uppi í dag.“ Hann segir það sína skoðun að viljandi hafi verið snúið út úr ummælum Sigurbjarnar biskups, þau hafi vissulega verið hörð en sett fram sem líkingamál sem hver maður hefði átt að geta skilið. Því séu það mistök af hálfu siðanefndarinnar að hafa ekki vísað frá kæru Sigurðar Þórs Guðjónssonar vegna þessara ummæla Sig- urbjarnar. Það sé út- úrsnúningur og í besta falli misskiln- ingur að Sigurbjörn sé að fara niðrandi orð- um um geðsjúkt fólk. Hjálmar er félagi í Prestafélagi íslands með fagaðild þótt hann sé nú hættur prestskap - í bili að minnsta kosti. „Sá sem er prestur verður alltaf prestur," segir Hjálmur og veltir upp þeim möguleika að ef einhverjum pólítískum andstæðingi sínum mislíki orð sín í skylmingum á Al- þingi, þá geti sá hinn sami snúið sér til siðanefndarinnar með kæru. í hæsta máta óeðlilegt „Sjálfsagt gæti einhverjum ein- staklingi í þjóðfélaginu dottið í hug að kæra til siðanefndarinn- ar,“ segir sr. Hjálmar Jónsson. „Miðað við þcssar trakteringar á Sigurbirni biskupi ætti ég varla von á góðu.“ Það er hins vegar afdráttarlaus skoðun hans að kæru Sigurðar Þórs Guðjónsson- ar á hendur Sigurbirni hefði siðanefndin átt að vísa frá. „Hún hefði átt að rökstyðja það með aðildarskorti að þessu máli. Meiðyrðalög gilda aftur á móti í landinu og allir geta jafnt leitað til dómstóla telji þeir að sér veg- ið. A hátíðarári kristninnar í landinu bíður málstaður hennar hnekki við svona fráleita máls- meðferð. En fyrst og síðast finnst mér þessi aðför að Sigurbirni Einarssyni í hæsta máta ómak- leg. Hann hefur ávallt á langri ævi sinni tekið svari lítilmagnans í þjóðfélaginu og verið trúr þjóð sinni bæði sem þjónn hennar og leiðtogi." - SBS. Konan áirain í varöhaldi Gæsluvarðhald yfir manni, sem úrskurðað var þann 24. júlí s.l. vegna rannsóknar á Iáti Hall- gríms Elíssonar að Leifsgötu 10, rann út s.l. föstudag. Ekki var talin ástæða til að gera kröfu um framlengingu á gæsluvarðhaldi hans. Gæsluvarðhald yfir konu, sem úrskurðað var þann 24. júlí s.l. rann út í dag. Að kröfu lögreglu hefur gæsluvarðhald yfir henni verið framlengt til 5. sept. n.k. í þágu rannsóknar málsins. Kon- an er grunuð um að hafa valdið dauða Hallgríms. Hallgrímur er talinn hafa Iát- ist eftir hádegi sunnudaginn 23. júlí s.l. af völdum áverka, sem hann hlaut á hálsi. Rannsókn málsins miðar að sögn Iögregl- unnar vel. Eftir er þó að yfir- heyra fólk um einstaka efnis- þætti rannsóknarinnar og er því ekki á þessari stundu hægt að upplýsa nánar um málsatvik. - FÞG mmmmmmmmmmatmmmmm Ólafur Ragnar Grímsson verður settur í embætti forseta íslands öðru sinni síðdegis i dag. Athöfnin hefst með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur á Austurvelli kl. 15, en hálftíma síðar gengur forsetinn, fjölskylda hans og hópur ráða- manna úr Alþingishúsinu í Dómkirkjuna þar sem biskup íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, stýrir helgistund. Kl. 16 veröur gengið úr kirkju í þinghúsið og þar fer embættistakan fram. Miklar breytingar hafa verið gerðar í sal Al- þingis vegna athafnarinnar, og Dókirkjudyrnar voru þvegnar í gær. myndir: ej Útreikningar Dags sýna vel hversu skattgreiðslur landsmanna hafa vaxið gríðarlega sl. áratug. Skattmann fitnar emi Hið opinbera fékk samtals 88,5 milljarða króna í tekju- og eigna- sköttum og útsvari samkvæmt skattauppgjöri ársins 2000. Þetta gera 317.773 krónur á hvert mannsbarn eða 1.271.100 krónur, rúma milljón, á hverja fjögurra manna fjölskyldu. I Reykjavík er hver fjölskylda að greiða eina og hálfa milljón í skatta. Útreikningar Dags sýna vel hversu skattgreiðslur lands- manna hafa vaxið gríðarlega sl. áratug. 1991 fékk hið opinbera að núvirði 51,4 milljarða króna í tekju- og eignasköttum og út- svari eða 201.010 krónur á hvert mannsbarn - 804.000 á hverja fjögurra manna fjöl- skyldu. Skattur á hvern lands- manna hefur því vaxið um 117 þúsund krónur á áratugnum og hver fjögurra manna fjölskylda er nú að greiða 467 þúsund krónum meira að raunviröi í ár- legan skatt en hún gerði fyrir áratug. Raunhækkun skattanna er uppá 58%. Erfingjar og bíókóngar Bæði hafa tekjur manna hækkað á tímabilinu, en hitt vegur ein- nig þungt að skattleysismörk hafa lækkað og gjaldendum stórfjölgað. 1 Reykjavík einni hefur gjaldendum fjölgað um 40% á sama tíma og borgarbú- um hefur Ijölgað um 13%. I miðopnu blaðsins í dag er fjallað um skattheimtuna og list- ar birtir yfir skattakónga lands- ins. Guðni Helgason rafvirkja- meistari er skattakóngur ársins, en fast á hæla honum kemur ör- yrki, sem jafnframt kemur af Ijöllum, þvf hann kannast ekki við meiri umsvif en sem nemur bótunum hans. Meðal annarra skattakónga eru erfingjar Pálma í Hagkaup, bíó-kóngarnir Árni Sam. og Jón Ólafsson, Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og Kári f DeCode. - FÞG DFH-P3100-B • 4x45 magnari • RDS • Stafrænt útvarp FM MW LW • 24 stöðva minni • BSM • Laus framhlið • RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn • Loudness þriskiptur Setjum tækið í bílinn þér að kostnaðarlausu Gerir góðan bíl betri RóDI QMkIísT Qeislagötu 14 • Slml 462 1300 r) BRÆOURNIR fcösr ©ORMSSQN •Slml 462 1300 Lágmúla 8 • Sími 530 2800 I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.