Dagur - 01.08.2000, Qupperneq 2
s } * v ' 't
2 - ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
FRÉTTIR
Framsóknarflokkur
sýnl ihaldi klaemar
Jónína haldið nógu vel Jón
Bjartmarz. á lofti? Kristjánsson.
ísólfur Gylfi Hjálmar Ingibjörg
Pálmason. Árnason. Pálmadóttlr.
Framsóknarmenn
uggandi vegna fylgis
lægðar fLokksins.
Ungliðar heimta
„meiri grimmd gegn
íhaldinu.“ Við þetta
litla fylgi verður ekki
unað, segir Jónína
Bjartmarz. Rætt á
landsstjómarfundi í
águst.
Greinilegt er að framsóknar-
menn hafa hrokkið illa við þegar
niðurstaðan úr skoðanakönnun
Gallups var kynnt á dögunum.
Þar mældist flokkurinn með 12%
fylgi sem er mikil fylgislækkun
frá síðustu kosningum. Ávefsíðu
ungra framsóknarmanna í gær er
þess krafist að flokkurinn sýni
„meiri grimmd gegn íhaldinu" og
fullyrt að „ef flokkurinn sýnir
ekki klærnar munu æ fleiri kjós-
endur álíta Framsóknarflokkinn
því miður vera eins konar fjórða
hjól undir vagni hins allsráðandi
Sjálfstæðisflokks."
Óviðunandi
„Mér finnast þessar
vangaveltur ungra fram-
sóknarmanna mjög eðli-
legar. Eg er viss um að
margir hinna eldri hugsa
á svipuðum nótum þegar
þeir velta fyrir sér skýr-
ingunum og hvað sé til
ráða. Mér finnst auðvit-
að flokkurinn ekki eiga
þetta fylgisleysi skilið
miðað við mörg góð verk
og það er alveg ljóst að
við þetta litla fylgi verður
ekki unað,“ sagði Jónína
Bjartmarz, þingmaður
flokksins í Reykjavík.
Jón Kristjánsson, þing-
maður flokksins á Aust-
urlandi, sagðist telja
þessa fylgislægð vera til-
komna vegna þess að
flokkurinn hafi staðið í
afar erfiðum málum og
það megi alltaf búast við að
menn uppskeri ekki að kvöldi.
„Eins er það að okkur tekst
ekki að brúa þessa gjá sem er að
verða á milli dreifbýlis og þétt-
býlis. Og það sem við höfum ver-
ið að gera í þessum málum
mælist kannski ekkert vel fyrir á
höfuðbogarsvæðinu," segir Jón.
Hann sagði stefnu flokksins vera
skýra en hún færi ekki alltaf
saman við það sem semja þarf
um við samstarfsflokkinn og það
pirri sjálfsagt marga.
Samstarfsflokkiirinji græðir
Isólfur Gylfi Pálmason, þing-
maður Sunnlendinga,
sagði að menn væru að
sjálfsögðu að velta þess-
um hlutum fýrir sér og
ástæðum fylgislægðar-
innar. Hann sagði að á
landsstjórnarfundi
flokksins síðar í ágúst
yrðu þessi mál að sjálf-
sögðu rædd.
„Það er algerlega óþol-
andi að vera endalaust
að tapa og við verðum að
skoða það rækilega
hvernig við ætlum að
snúa vörn í sókn. Okkur
hefur gengið ágætlega
með þau ráðuneyti sem
flokkurinn hefur. En
þegar upp er staðið er
það samstarfsflokkurinn
sem græðir en ekki við.
Við getum ekki unað
því,“ segir Isólfur Gylfi.
„Það eru margar skýr-
ingar á þessari fylgis-
lægð. Ymsar ldaufalegar uppá-
komur og svo hitt að kynningar-
þátturinn í starfi flokksins á
þeim mörgu góðu verkum sem
við höfum verið að vinna, er ekki
nógu góður. Okkur hefur ekki
tekist að koma þeim á framfæri.
Á því sviði eru ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins snillingar," segir
Hjálmar Árnason, þingmaður
Reyknesinga.
Hann segir lfka að oftast sé
það þannig að minni flokkur
gjaldi fyrir það að vera í sam-
starfi við stærri flokk. Stjórn-
málasagan sýni það. Hann segir
ennfremur að ágreiningur milli
stjórnarflokkanna hafi alltaf ver-
ið leystur í lokuðum herbergjum.
Kannski sé það ekki rétt taktík.
„Enda þótt skoðanakönnun sé
ekki það sama og kosningar er
virðing mín fyrir kjósendum
meiri en svo að ég taki ekki mark
á þeim skilaboðum sem felast í
skoðanakönnuninni. Ég tek fullt
mark á þessum varnaðarorðum
frá kjósendum. I pólitík er hver
sinnar gæfu smiður og það hefur
ekkert upp á sig að kenna sam-
starfsflokknum um slakt gengi
okkar framsóknarmanna. Við
framsóknarmenn verðum bara
að taka höndum saman og koma
flokknum yfir 20% í vinsælda-
könnunum,“ segir Ingibjörg
Pálmadóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, um
þessa erfiðleika Framsóknar-
flokksins. — S.dór
— Sjú einnig bls. 7.
Hrossaræktin
fær ekki styrki
Ræktuarstarf með íslenska hestinn er nú í miklum vanda vegna lokunar
þýska markaðarins, en landbúnaðarráðherra telur ekki líkur á opinberri
aðstoð.
Landbúnaðarráðherra
segist ekki eiga von á
opinberri aðstoð við
þá hrossaræktendur
sem eru komnir á
hnén vegna Þýska-
landsmálsins.
Það kom fram í viðtali við Sigur-
björn Bárðarson í Degi sl. Iaug-
ardag að hrossaræktendur væru
mjög illa settir vegna þess að
Þýskalandsmarkaðurinn hefur
verið nær alveg lokaður síðan
rannsókn á skatta- og tollsvikum
varðandi innflutning á íslensk-
um hestum í Þýskalandi hófst.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra var spurður um þetta
mál.
„Því miður er það hárrétt hjá
Sigurbirni Bárðarsyni að at-
vinnumenn í hrossarækt, sem
gert hafa út á að selja íjölskyldu-
hesta til Þýskalands, eru nú
mjög illa settir. Þeir sem vilja
kaupa hesta frá íslandi eru hálf
lamaðir vegna rannsóknarinnar
og þeir sem eru keppinautar okk-
ar í hrossasölu á þýska markaðn-
um notfæra sér nú ástandið.
Hins vegar er uppgangur hér
innanlands og við blasa nýir
möguleikar í Ameríku eins og
Sigurbjörn bendir á en það tekur
sinn tíma að vinna þá markaði,"
sagði Guðni.
Ekki frekari styrkir
Sigurbjörn Bárðarson sagði að
opinber aðstoð yrði að koma til ef
Þýskalandsmálið leysist ekki inn-
an tíðar. Guðni var spurður hvort
hann ætli að beita sér fyrir að-
stoð við þessa hrossaræktendur.
„Eg vil ekkert segja um það á
þessu stigi. Rfkisstjórnin hefur
lagt mikla peninga í hesta-
mennskuna, til að styrkja hana
sem atvinnugrein og ég efast því
um að samstaða fáist til frekari
styrkveitinga eins og málin stan-
da nú,“ sagði Guðni Ágústsson.
- s.DÓR
Bensínverð lækkar
Öll olíufélögin lækkuðu bensínverð í gær. Olís reið á vaðið í morgunsár-
ið og Olíufélagið og Skeljungur komu svo í kjölfarið. Þannig kostar Iítr-
inn af 98 oktana bensíni nú 99,70 kr., 95 oktana bensín 95 kr. lítrinn og
dísilolíulítrinn verður á 41,50 krónur. Ekki er talið ólíklegt að bensínverð
lækki meira á næstunni. - sbs.
VörusMptahalliim eykst enn
Hallinn á vöruskiptum Islendinga við útlönd var miklu óhagstæðari á
fyrstu sex mánuðum þessa árs en í fyrra. Núna nam hallinn 18,5 millj-
örðum króna, en vöruskiptin voru óhagstæð um 10,3 milljarða árið 1999.
Munurinn er því 8,2 milljarðar.
Þrátt fyrir þetta jókst útflutningur fyrstu sex mánuði ársins um 2% í
samanburði við árið á undan. Innflutningurinn jókst hins vegar miklu
meira eða um 12%. Um þriðjungur aukins innflutnings er vegna verð-
hækkunar á eldsneyti, en tveir þriðju vegna annarra vöruflokka.
Þorbirni gengur vel
Góð framlegð hefur verið af rekstri Þorbjarnar, að því er fram kemur í
frétt á vef Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA). Þorbjörn hf sendi frá
sér hálfsárs uppgjör í gær og segir í fféttatilkynningu frá félaginu að af-
koman af rekstrinum fyrri hluta ársins hafi verið í samræmi við áætlun
félagsins.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 344,5 milljónir króna, en
það samsvarar 28% af heildartekjum. Hagnaður af reglulegri starfssemi
fyrir skatta var 122 milljónir kr., eða 10% af tékjum, og hagnaður ársins
nam 83,6 milljónum, eða 6,8% af tekjum. FBA hafði spáð því að hagnað-
ur fyrir afskriftir og fjármagnsliði yrði 325 milljónir, en hagnaður ársins
yrði 168 milljónir.
Munurinn, segir í frétt frá FBA, skýrist m.a. af óhagstæðari fjár-
magnsliðum og hærri afskriftum. Veltufé frá rekstri var kr. 280,3 milljón-
ir, eða 22,8% af tekjum, og hefur ekki áður verið hærra.
Afborganir teMiar af vaxtabótum
Fjármáfaráðuneytið dregur gjaldfallnar afborganir á Iánum íbúðalána-
sjóðs frá vaxtabótum. í tilkynningu frá sjóðnum segir að ráðuneytið miði
við gjalddagann 15. júnf 2000 og eldri gjalddaga ef afborganimar vom
ógreiddar 5. júlí síðastliðinn. íbúðalánasjóður mun endurgreiða þeim
sem greiddu gjaldfallnar afborganir íbúðalána sinna vegna fyrrgreindra
gjalddaga eftir 5. júlí en fyrir 30. júlí. Það verður gert í fyrstu viku ágúst-
mánaðar.