Dagur - 01.08.2000, Page 5
1} &&§&f‘yb''fcóo 5'---
FRÉTTIR
Engin ákvördun
11 orskar kýr
sem hann var að
skoða norskar
kýr með for-
manni norsku
bændasamtak-
anna.
„Við vorum
boðin í heim-
sókn til hans og
þar skoðaði ég
með honum
norskar kýr, sem
mér leist afskap-
lega vel á.
Greinilegt er að
Norðmenn hafa
áhuga á þessari
hugmynd um
flutning fóstur-
Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra.
hvort hann væri
búinn að taka
ákvörðun um að
leyfa innflutning
á norsku kúa-
fósturvísunum.
Hann sagðist
enga ákvörðun
hafa tekið enn,
málið væri í
vinnslu. Meðal
annars væri að
störfum nefnd
sem á að kanna
hvort rétt sé að
mjólk úr íslensk-
um kúm vinni
gegn sykursýki.
Talið er heldur
iun
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra
er nýkomin heim frá
Noregi. Leist vel á
norsku kýmar en eng-
in ákvörðun liggur
fyrir um innflutning
á fósturvísum úr
þeim.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra var í heimsókn í Noregi
í síðustu viku í boði norska land-
búnaðarráðherrans Bjarna
Hakon Hansen. Þar bar að sjálf-
sögðu á góma hugmyndin um að
flytja til Islands fósturvísa úr
norskum kúm. Norskir Ijölmiðl-
ar höfðu áhuga á því máli og birti
eitt norsku blaðanna forsíðu-
mynd af Guðna Ágústssyni þar
vísa úr norskum
kúm til Islands og ég gerði þeim
grein fyrir því hvernig það mál
stendur hér á Iandi,“ sagði
Guðni.
Hann var spurður að því í gær
ólíklegt að kom-
ið verði upp norskum kúastofni á
Islandi og þá ekki síst vegna þess
að forsætisráðherra hefur lagst
gegn hugmyndinni í frægri ræðu
sem hann flutti 17. júní f fyrra.
Sterkui landbúnaður
Norski landbúnaðarráðherrann
bauð Guðna Ágústssyni til
Þrándheims en þaðan er hinn
nýi ráðherra Bjarni Hakon Han-
sen.
„Hann ferðaðist með okkur
um norskar sveitir og sýndi okk-
ur norskan landbúnað. Þá vorum
við viðstödd hina árlegu hátíð að
Stiklastöðum þar sem leikrit um
Stiklastaðaorrustu hefur verið
sýnt í fimmtíu ár. Það er greini-
legt að Norðmenn vilja verða
okkur að liði í landbúnaðinum
og þá ekki síst í skógræktinni.
Það sem vakti athygli mína er
hvað norskur landbúnaður er vel
skipulagður og sterkur. Sveita-
býlin glæsileg og vel hirt og um-
gengni Norðmanna um land sitt
er til fyrirmyndar, segir Guðni
Ágústsson. — S.DÓR
Eimskip tekur í notkun ný skip.
Etmskíp fær
tvö ný skip
Eimskip tekur tvö ný skip í notkun
í október og eiga þau að leysa fjög-
ur minni skip af hólmi, þrjú leigu-
skip og Brúarfoss sem verður seld-
ur. Siglingakerfi félagsins breytist
þannig að í stað sex skipa á sigl-
ingaleiðum til Evrópu munu fjög-
ur skip annast alla gámaflutninga
félagsins til og frá höfnum á meg-
inlandi Evrópu og í Skandinavíu.
Engar breytingar verða á ferðum
tveggja skipa til Bretlands og
Hollands né heldur á Ameríkusigl-
ingum félagsins, og eitt skip verð-
ur áfram í vikulegum strandflutn-
ingum við Island. I greinargerð frá
félaginu segir að nýju skipin verði
með íslenskar áhafnir og að þeim
verði gefin fossanöfn. Eimskip
hefur tryggt sér kauprétt á þeim,
en kaupverð beggja er um 3,5
milljarðar króna. Kaupin verða
væntanlega Ijármögnuð með
leigukaupasamningi.
Jón Benónýsson, vinnur að múrverki í nýju kirkjunni. Jón mun leika Þorgeir Ljósvetningagoða við athöfn við
Ljósavatn nk. sunnudag, og þá væntanlega henda goðum í fossinn. - mynd: gg
Þorgeirsldrkja vígð
Þorgeirskirkja í Ljósavatns-
skarði, sem byggð er í tilefni
1000 ára afmælis kristnitöku á
íslandi, verður vígð 6. ágúst nk.
af biskupi Islands, herra Karli
Sigurbjörnssyni. Byggingakostn-
aður nemur um 90 milljónum
króna. Kirkjan verður safnaðar-
kirkja Ljósavatnssóknar en
gamla kirkjan að Ljósavatni verð-
ur aflögð. Sóknarprestur er sr.
Arnaldur Bárðarson að Hálsi.
Ekki verður þó allt tilbúið.
Sæti verður að fá lánuð í kirkj-
una við vígsluna og ekki verður
lokið við safnaðarheimilið fyrr en
síðar í haust. Orgel það sem not-
að verður við vígsluna verður
einnig fengið að láni. Sæti verða
fyrir 204, þar af um 20 á kirkju-
lofti. — GG
Ögmimdur og R-listiim
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
athugasemd frá Ogmundi
Jónassyni vegna klausu í Heita
pottinum um helgina:
„I Degi sl. laugardag greinir frá
„miklum herráðsfundi“ innan
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs þar sem fjallað hafi
verið um R-listann í Reykjavík og
gagnrýni sem fram hafi komið á
hann, meðal annars frá hendi
undirritaðs. Á umræddum fundi
hafi hins vegar verið „komist að
þeirri niðurstöðu að best væri að
láta gagnrýnina niður falla."
Ekki veit ég hvaðan þetta hug-
arfóstur er komið því enginn
slíkur fundur hefur verið hald-
inn og engin slík umræða farið
fram, hvorki til þess að ákveða að
gagnrýna R-listann í Reykjavík
né til þess að aflétta slíkri gagn-
rýni. Vel má vera að vinnubrögð
af þessu tagi, þar sem ákvörðun
er tekin um hvað megi gagnrýna
og hverju eigi að hlífa, tíðkist í
einhverjum stjórnmálaflokkum.
Það á hins vegar ekki við um VG.
Undirritaður hefur í áranna
rás margoft gagnrýnt stefnu
Reykjavíkurborgar í ýmsum efn-
um bæði í stjórnartíð Sjálfstæð-
ismanna og R-listans. Sú gagn-
rýni hefur verið reist á málefna-
legum forsendum og verður ekk-
ert lát á henni ef efni og ástæður
eru fyrir hendi.
Eg kem þessari ábendingu á
framfæri því lesendur blaðsins
eiga rétt á því að fram komi leið-
rétting þegar hallað er réttu máli
í blaðinu.“
Inguim verður lengd í Chile
Samkomulag hefur náðst á milli Haraldar Böðvarssonar hf. og skipa-
smíðastöðvarinnar ASMAR í Chile um að nýtt nótaskip fyrirtækisins,
Ingunn AK 150, verði Iengt um 7,20 metra. Með lengingunni næst sá
ganghraði og sú djúprista sem gert var ráð fyrir í smíðasamningnum.
Einnig verður burðargeta skipsins meiri eftir lenginguna og mun það
geta borið allt að 2000 tonn af afla.
Gengið hefur verið frá samkomulagi um að ASMAR greiði veruleg-
ar dagsektir til Haraldar Böðvarssonar hf. vegna þeirra tafa sem orð-
ið hafa á afhendingu skipsins. Einnig tekur ASMÁR á sig meginhluta
kostnaðar við lengingu skipsins. Gert er ráð fyrir að skipið verði af-
hent 1 5. nóvember nk. og að það komi til heimahafnar á Akranesi í
desember.
Davíð á hókmenntahátíð
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, fer ásamt konu
sinni, Ástríði Thorarensen, í opinbera heimsókn til
Noregs 7.-8. ágúst í boði Jens Stoltenbergs, forsætis-
ráðherra. Áður tekur Davíð þátt í árlegri bókmennta-
hátíð í Molde sem kennd er við Björnstjerne Björns-
son.
Skilagjald hækkar uui krónu
Skilagjald Endurvinnslunnar hf. og umboðsaðila fyrirtækisins fyrir
umbúðir mun hækka um krónu frá og með deginum í dag, úr sjö
krónum í átta. Skilagjaldið er greitt iýrir einnota umbúðir fyrir gos-
drykki, vatn, ávaxtasafa og áfenga drykki. Á síðasta ári var alls skilað
65,3 milljónum eininga eða tæplega 4.300 tonnum af umbúðum.
Ólöglegt skattfrelsi?
„Full ástæða er til að ætla að skattfrelsi handhafa forsetavalds hafi
gegnum tíðina verið ólöglegt,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður Samfylkingarinnar.
Hún fullyrðir á vefsíðu sinni að það sé engin stoð í skattlögum fyr-
ir skattfrelsi handhafa forsetavalds, en í 4. gr. laga um tekju- og eigna-
skatt hafi einungis verið kveðið á um að forseti Islands og maki hans
séu undanþegnir skattskyldu. „Samkvæmt upplýsingum frá embætti
ríkisskattstjóra hefur skattleysið verið byggt á grundvelli ákvæða í
reglugerð sem sett var árið 1963. Reglugerðin hefur greinilega ekki
lagastoð og er einnig brot á stjórnarskránni. 1 77. gr. stjórnarskrárinn-
ar segir að skattamálum skuli skipað með lögum og ekki megi fela
stjórnvöldum ákvörðun um hvort Ieggja skuli á skatt, breyta honum
eða afnema hann. Jafnframt segir í 9. gr. stjórnarskrárinnar að ákveða
skuli með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta og þeirra sem fara með
forsetavald," segir Jóhanna.
Davíð
Oddsson.