Dagur - 01.08.2000, Blaðsíða 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
ÍÞRÓTTIR
SMATT OG STORT
UMSJÓN:
BJÖRN JÓHANN
BJÖRNSSON
bjb@ff.is
Úlafur G. Einarsson.
Skýr skilaboð
[yr
hefui
Það nefur mikið gengið á í kringum þann skemmtilega
og sérlundaða alþingismann Pétur H. Blöndal. Hann
sagði sig úr efnahags- og viðskiptanefnd og skammaði
Alþingi og gagnrýndi störf þess harðlega. Fyrir þetta
hefur hann hlotið hrós sumra en gagnrýni annarra.
Einn þeirra sem hafa gagnrýnt Pétur fyrir ummæli
hans um Alþingi og störf þess er Olafur G. Einarsson,
fyrrum forseti Alþingis. Þegar þetta bar á góma þar sem
Olafur var staddur á dögunum sagði hann að Pétur H.
Blöndal væri með þessu brölti sínu að senda kjósend-
um í Reykjavík skýr skilaboð um að það þýddi ekkert að
kjósa hann til þings. Hann kæmi þar engu fram.
Pétur H. Blöndal.
„Það hlýtur því að
vera ólíkt
þægilegra að reka
olíufélag á Islandi
en í Svíðþjóð þar
sem stöðugt þarf
að breyta verði,
allt eftir því
hvernig vindar
blása á heims-
markaði".
ÓIi Björn Kárason í
DV
/*
Sér á báti
Og meira um Pétur H. Blöndal. Flokksbróðir hans og
kollega Kristján Pálsson sagði að sér líkaði vel við Pét-
ur. Hann væri hins vegar alveg sér á báti í flestum mál-
um og ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar
gætu slíkir menn ekki ætlast til þess að samflokksmenn
þeirra fylgdu þeim að málum í sérviskunni. Nefndi
Kristján sem dæmi tvær hugmyndir sem Pétur hefur
komið fram með. Annað er 15% flatur tekjuskattur á
alla, hvort sem þeir hafa 100 þúsund eða milljón á
mánuði. Hitt væri hugmyndin um að aflakvótanum
yrði skipt niður á hvert mannsbarn í landinum sem síð-
an réði hvað það gerði við sinn hlut. „Menn með svona
skoðanir geta ekki ætlast til þess að koma þeim fram á
Alþingi," sagði Kristján Pálsson.
Kristján Pálsson al-
þingismaður.
Hafði rétt íyrir
Skömmu eftir að fyrstu vasareiknitölvurnar komu á markað hér var gamall
maður að hjálpa syni sínum sem rak matvöruverslun. Hann var á lagernum
og fyrir jólin afgreiddi hann þar viðskiptavini sem keyptu malt og appelsín til
jólaölsgerðar sem og aðra gosdrykki. Einn daginn var karlinn kominn með
nýjan vasareikni en bar fullt vantraust til hans. Eitt sinn þegar hann var bú-
inn að afgreiða einn viðskiptavininn og hafði lagt upphæðina saman á stóru
pappaspjaldi tók hann upp tölvuna og sagði: „Það er best að sjá hvað hún ger-
ir.“ Síðan sló hann tölurnar inn og fékk útkomu. „Sko til,“ sagði karlinn.
„Hún gerði þetta rétt.“
■ fína og fræga fúlkið
Móðir Meg Ryan yfirgaf hana þegar
Meg var barn og afar stirt hefur
verið með mæðgunum. Nú kemur
móðirin dóttur sinni tii hjálpar í fjöi-
miðlum.
Stuðniiigiir
frá mömmu
I uppsiglingu er hörð forræðisdeila milli leikar-
anna Meg Ryan og Dennis Quaid nú þegar Meg
hefur tekið saman við Russell Crowe. Meg og
Dennis voru gift í níu ár og eiga átta ára gamlan
son, Jack. Meg er sögð hafa miklar áhyggjur af
því að skilnaður muni taka mjög á Jack. Sjálf
varð Meg fyrir því í æsku að móðir hennar yfir-
gaf hana, systkini hennar og föður. Meg hefur
oft talað um einmanalega æsku sína og sam-
band hennar og móðurinnar hefur verið mjög
stirt. Móðir Meg, Susan, sagði í nýlegu viðtali
að Meg hefði alltof lengi hangið í hjónabandi
með manni sem átt hefur við fíkniefnavanda að
stríða. Móðirin segir: „Eg vona að Meg finni þá
hamingju sem hún Ieitar að en ég óttast að svo
verði ekki. Eg veit að hún dýrkar son sinn, ég
vona bara að hann verði ekki fórnarlamb í þessu
máli.“
Dagslistinn
0
0
Rakel Ögmundsd., Breiðab.
Guðrún Gunnarsdóttir, KR
Iris Sæmundsdóttir, IBV
Justine Lorton, Stjörnunni
Sigrún Óttarsd., Breiðabl.
O
o----------------------------
Auður Skúlad., Stjörnunni
Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörn
Olga Færseth, KR
Ásthildur Helgadóttir, KR
Guðlaug Jónsdóttir, KR
Margrét Ólafsd., Breiðabl.
María B. Ágústsd., Stjörn.
Rakel Logadóttir, Val
0
Karen Burke, ÍBV
Erna B. Sigurðard., Breiðab.
O
Bryndís Jóhannesd., ÍBV
Eva Sóley Guðbjörnsd. Brbl.
Guðrún H. Finnsd., Stjörn.
Hanna Stefánsdóttir, FH
Hjördís Þorsteinsd., Breiðab,
Jennifer L. Warric, Þór/KA
Rósa J. Steinþórsdóttir, Val
Sammy Britton, ÍBV
Sigríður Ása Friðriksd., ÍBV
Tammy Scrivens, FH
Þóra B. Helgadóttir, Breiðab.
Arna Steinsen, FH
Ásgerður Ingibergsd., Val
Ásta Árnadóttir, Þór/KA
Bergþóra Laxdal, Val
Bryndís Sighvatsdóttir, FH
Edda Garðarsdóttir, KR
Elín A. Steinarsdóttir, ÍA
Elsa Hlín Einarsd., Þór/KA
Eyrún Oddsdóttir, Breiðabl.
Guðrún J. Kristjánsd. KR
Heiða Sigurbergsd., Stjörn.
Helga Ósk Hannesd., Br.bl.
Hrefna Jóhannesd., Brbl.
Iris Steinsdóttir, IA
Laufey Ólafsdóttir, Breiðab.
Leanne Hall, FH
Lovísa Sigurjónsdóttir, Stj.
Petra F. Bragadóttir, ÍBV
Ragnheiður Jónsdóttir, Val
Silja Þórðardóttir, FH
Steinunn Jónsdóttir, Stjörn.
Svetlana Balinskaya, IBV
Valdís Rögnvaldsd., FH
Þóra Pétursdóttir Þór/KA
N orðurlaiidainót U16
karla í Færeyjum
U16 landslið karla tekur þátt í
Norðurlandamóti í Færeyjum
sem hófst í gær, 31. júlí, og lýk-
ur 4. ágúst nk. Islenska liðið er
í riðli með Svíþjóð, Skotlandi
og Noregi, en í hinum riðlinum
eru Færeyjar, Danmörk, Eng-
land og Finnland. Þjálfari er
Magnús Gylfason. Markmenn
eru Jóhannes Kristjánsson, KR
og Snorri Birgisson, Keflavík en
aðrir leikmenn Jökull I. Elísa-
betarson, KR; Óskar Hauksson,
Njarðvík; Þorsteinn Gíslason,
IA; Bjarni Hólm Aðalsteinsson,
Huginn; Rannver Sigurjónsson,
Breiðablik; Davíð Þór Viðars-
son, FH; Emil Hallfreðsson,
FH; Magnús Már Þorvarðar-
son, Fram; Sverrir Garðarsson,
FH; Kristján Valdimarsson,
Fylki; Vigfús Arnar Jósepsson,
KR; Stefán Þór Eyjólfsson,
Hetti; Gunnar H. Kristinsson,
IR og Kristján Hagalín Guð-
jónsson, ÍA. I gær var leikið við
Svía og fór sá leikur 3-1. I hálf-
leik var staðan 3-0. Mark Is-
lands gerði Kristján Hagalín,
IA. 1 dag er leikið við Skota og
á fimmtudag við Norðmenn.
- GG