Dagur - 01.08.2000, Side 20
2QZ þmdjkUvag uXi í. ■Á'GÆsru2'0(HH 'i
AKUREYRI NORÐURLAND
Lánleysi gegn Þrótti
KA-liðið í 1. deild
karla í knattspymu
var dtrúlega lánlaust
gegn Þrótti úr
Reykjavik sl. föstu-
dag.
KA-menn óðu í ærum lengst af
leiks en alltaf skorti endahnykk-
inn og það scm allt snýst um, að
koma boltanum í netið, m.a. í
þrígang í sömu sókninni undir
lok fyrri hálfleiks, en Axel
Gomes, markvörður Þróttar og
besti maður leiksins, varði í öll
skiptin. Strax á 7. mínútu komst
Þróttur í 1-0, verulega gegn
gangi leiksins, er Vignir Sverris-
son fékk boltann inn fyrir vörn
KA sem ekki vissi hvaðan á sig
stóð veðrið. Vignir lék á mark-
vörð KA, og renndi boltanum
svo í autt markið. KA jafnaði
þegar um 15 mínútur voru til
leiksloka. Brotið var á Pétri
Birni Jónssyni í teignum hjá
Þrótturum, og skoraði hann
sjálfur úr vítinu.
KA er í 6. sæti deildarinnar
með 1 5 stig, 7 stigum á eftir FH
í 2. sætinu en Valsmenn Ieiða
með 24 stig eftir stórsigur á
Tindastóli, 5-0. Tindastólsliðið
var slakt í þeim leik á sama tíma
og Valsmenn voru að leika
fantavel og ætla sér greinilega
ekkert annað en sigur í 1. deild
og setu í úrvalsdeildinni að nýju
að ári. Tindastóll féll niður í 9.
sætið, fallsæti, eftir umferðina
þar scm Sindri vann sinn fyrsta
sigur í deildinni í sumar og
komst upp fyrir þá á stigatöfl-
unni. Sindri vann Víking 1-0.
Tindastóll mætir KA á Sauðár-
króksvelli á miðvikudag og ætla
sér örugglega sigur í þeim leik
og komast þar með úr mestu
fallhættunni, a.m.k. í bili.
Dalvíkinjjar iniiiii sigur nm-
ferðarinnar
Það voru hins vegar Dalvíkingar
sem áttu lið umferðarinnar.
Þeir unnu FH-inga, sem ekki
höfðu tapað leik til þessa, 3-1 á
Kaplakrikavelli, og var sigur
þeirra mjög sanngjarn. Atli Við-
ar Björnsson skoraði strax á 4.
mínútu eftir skyndisókn, en
skyndisóknir Dalvíkinga eru
einkennismerki liðsins, og alveg
baneitraðar, en sóknarmenn
liðsins taka þess á milli virkan
þátt í varnarleiknum. Þessi leik-
aðferð krefst þess að allir leik-
menn séu 100% á tánum allan
leikinn, og það hafa þeir verið
að gera oftast. Dalvíkingar eru í
5. sæti deildarinnar með 17 stig
og munu minna verulega á sig á
toppi deildarinnar ef þeir leika
áfram eins og þeir gerðu gegn
FH-ingum. Það mun koma í Ijós
hvort þeir halda áfram á sömu
braut er þeir leika gegn IR-ing-
um á Dalvíkurvelli í kvöld. ÍR-
ingar unnu öruggan sigur á
Skallagrími, 3-1, á föstudag, en
Skallagrímur situr á botni deild-
arinnar með aðeins 3 stig.
Tindastóll hættulegur
Þorvaldur Orlygsson, þjálfari
KA, segist ekki taka undir það
að eitthvað sé stóriega að hjá
KA-liðinu. Liðið hafi verið í fall-
baráttu sumarið 1999 en í dag
sé KA með yfirburðalið f hverj-
um einasta Ieik. Það sé ekkert
veikleikamerki.
„Liðin sem við Ieikum á móti
lig&ía ri'jög djúpt og þegar ellefu
menn eru í eigin vítateig fyrir
utan okkar sentera þá er tölu-
vert erfitt að skora. Það mátti
t.d. sjá í leiknum gegn Þróttur-
um. Við erum líka að skjóta
okkur í fótinn með því að fá á
okkur mark snemma í leikjum,
en höfum haldið dampi og hald-
ið áfram að spila góðan fótbolta
og skemmtilegan fyrir áhorfend-
ur, sóknarbolta og reynum að
skora mörk. Það mun alltaf
verða erfiðasti hlutinn af fót-
boltanum að koma boltanum
yfir marklínuna, skora mörkin.
Við munum eftir sem áður
reyna að vinna leiki, og vonandi
tekst það. Við leikum við Tinda-
stól á miðvikudag, en fyrri leik-
ur liðanna endaði með jafntefli.
Aðstæður á KA-velIinum voru
ekki sem bestar í fyrri Ieiknum,
völlurinn rétt að komast í gang.
Tindastóll hefur verið að tapa
leikjum sem þeir áttu skilið að
vinna, s.s. á móti Dalvíkingum,
svo þeir eru jafn hættulegir og
aðrir andstæðingar í deildinni.
Þeir eru með Ieikmenn sem Ieg-
gja sig 100% fram,“ segir Þor-
valdur Örlygsson, þjálfari KA.
GG
íslandsmeistarar Þórs, aftari röð f.v: Sigurjón Magnússon þjálfari, ValþórAtli Garðarsson, Gunnar Þór Halldórs-
son, Helgi Haraldsson, Atli Sigurjónsson, Jón Atli Jónsson og Bergvin Gíslason. Fremri röð f.v.: Jónatan Vignisson,
Andri Már Mikaelsson, Oddur Grétarsson, Jóei Jónasson og Ottó Hólm Reynisson.
Þór íslandsmeistari
16. flokki b-liða
Þórsarar urðu íslandsmeistarar í
6. flokki b-liða um helgina á Laug-
arvatni, en þar fór fram úrslita-
keppni Pollamóts KSI. Þór vann
Breiðablik 2-0 í úrslitaleik mótsins
og var þar um hörkuleik að ræða.
Bæði mörk Þórsara í úrslitaleikn-
um gerði Bergvin Gíslason.
Leikið var í tveimur riðlum og
varð Þór sigurvegari í sínum riðli
með 6 stig en KR og Keflavík
voru bæði með 4 stig í 2. og 3.
sætinu. Þór vann IA 6-2 og skor-
uðu Atli Sigurjónsson og Oddur
Grétarsson tvö mörk hvor en
Ottó Hólm Reynisson ogjónatan
Reynisson sitt markið hvor. Þór
tapaði fyrir KR 2-1, en mark Þórs
gerði Bergvin Gíslason. Sigur
vannst svo á Keflavík, 1-0, og
eina mark Ieiksins gerði Bergvin
Gíslason.
GG
Hjólaði fyrir Leiftur
Fyrsti íslandsmeistari Ólafsfirð-
inga í karlaflokki á skíðum,
Björn Þór Ólafsson, hjólaði í
samfellt 10 klukkutima í síð-
ustu viku til styrktar skíðadeild
Leifturs í Ólafsfirði sem er 25
ára um þessar mundir. Alls
hjólaði Björn Þór 163 km eða
liðlega 16 km á klukkustund en
hann var kominn til baka til
Ólafsfjarðar klukkan 18:45
þrátt fyrir að hafgolan væri
honum erfið í bakaleiðinni.
Hann sneri við er hann náði til
kirkjunnar að Grund í Eyjafirði,
þar sem hann nærðist, 3,5 tím-
um eftir að hann lagði upp frá
Ólafsfirði. 35 ár eru liðin síðan
Björn Þór vann sinn fyrsta Is-
landsmeistaratitil og var ekki að
sjá að aldurinn væri honum
nokkur fjötur um fót en hann
verður sextugur á næsta ári.
Alls söfnuðust 250 þúsund
krónur í áheitum vegna þessar-
ar söfnunar. GG
Björn Þór kemur til Akureyrar á
leið sinni inn í Eyjafjörð. Hann
sneri við á hlaðinu við Grund og
stormaði til baka til Ólafsfjarðar.
mynd: gg
Þórvaim 11. sigur
sinn í 2. deild
Þór vann sinn 1 1. sigur í röð
í 2. deildinni í knattspyrnu á
laugardag er Iiðið lagði
Leikni sannfærandi 5-2.
Orri Hjaltalín gerði þrennu
og er langmarkahæstur í
deildinni með 17 mörk, en
önnur mörk Þórs gerðu
Andri Albertsson og Vilberg
Jónasson. Þórsarar eru
langefstir í deildinni með 33
stig og hafa sett met í deild-
unum með óslitinni sigur-
göngu. Þcir mæta næst Víði
næsta miðvikudag á
Garðsvelli. Næst Þór að
stigum kemur Afturelding
með 21 stig og Víðir með 20
stig, en Siglfirðingar hröp-
uðu úr 2. sætinu niður í það
4. með því að tapa fyrir Sel-
fyssingum 2-0. Siglfirðingar
eru með 19 stig, tveim stig-
um á eftur Aftureldingu, og
eru því fjarri því að hafa
misst af möguleikanum á
því að vinna sæti í 1. deild að
ári.
Önnur úrslit urðu þau að
Víðir vann Létti 2-1, Aftureld-
ing vann KVA 3-2 og botnliðið
Orri Hjaltalín er langmarkahæstur í 2.
deildinni með 17 mörk.
HK vann KÍB óvænt 4-1 og
komst við það upp í 9. sæti á
betra markahiutfalli en KVA
sem vermir botnsætið.
GG