Dagur


Dagur - 09.08.2000, Qupperneq 8

Dagur - 09.08.2000, Qupperneq 8
8- MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 ■ SMÁTT OG STÓRT Snorri í Betel. Súperstar á útihátíð Allir nelstu skemmtikraftar Islands tróðu upp á útihátíðum um helgina, eink- um þó popparar, grínistar og brekkusöngvarar og var um fjallað í fjölmiðlum. En það virðist hins vegar hafa farið framhjá flestum hvar langstærsta stjarn- an hélt sig um helgina. Þetta Súperstar var sem sé mætt á hátíð kristinna í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, a.m.k. ef marka má viðtal við Snorra í Betel í DV fyrir helgi. Þar segir Snorri: „Eg ætla að vera þar sem heilagur andi verð- ur“. Og hann kvaðst vera að flýja Vestmannaeyjar þar sem eiturlyf og áfengi væru í boði. Auk heilags anda sagði Snorri að Páll Rósinkranz myndi stíga á svið og einnig kvaðst hann sjálfur ætla að troða upp með einsöng. Þarna var sem sé góður efniviður í Heilaga Tríóið, en hins vegar með öllu óvíst að pláss hafi verið fyrir Pál og Snorra í því ágæta bandi, því eins og flestir vita, þar sem heilagur andi fer, þar eru jafnan með í ferðum faðirinn og sonurinn. „Einn vinur minn segir að ef öfund- sýki væri ban- vænn sjúkdómur þá væru sennilega ekki nema um tuttugu Islending- ar á lífi“. - Jónína Bene- diktsdóttir, at- hafnamaður, í við- tali í Degi. Himdaat við Goðafoss Norðlenskir ásatrúarmenn helg- uðu Goðafoss við hátíðlega at- höfn um hádegi á sunnudag. Þetta var látlaus athöfn og frið- samleg, þrátt fyrir nokkrar ýf- ingar ásatrúarmanna og krist- inna í íjölmiðlum að undan- förnu. En þarna átti sér líka stað táknræn og túlkunarrík uppá- koma. Meðal áhorfenda var a.þ.e.v. þokkalega kristinn mað- ur og hafði með sér svartan hund sem var hinn prúðasti. Skömmu seinna kom þarna lík- ast til ásatrúarmaður með hvítan hund, allspakan. Hundaeigendur virtust, a.m.k. á yfirborði, fullir umburðarlyndis en hundar þeirra ekki. Því það skip- ti engum togum að þeir tóku að urra og gjamma og þetta stigmagnaðist upp í hreinræktaða trúarbragðastyijöld sem náði hámarki þegar hvuttar ruku saman og virtust ætla að gera út um deilumál sín í eitt skipti fyrir öll. Lyktaði þessum ófriði með því að fjarlægja þurfti annan hundinn. Og sem betur fer fylgdu menn ekki fordæmi hunda sinna í þetta sinn. ■ fína og fræga fólkið Nvirtíinar hjá Jerry Jerry Hall bjó með Mick Jagger í tutt- ugu og tvö ár og fæddi fjögur börn áður en hún gafst upp á framhjáhaldi hans. „Eg var mjög mikið ein. Eg var þunglynd. Ég upp- lifði erfiða tíma og gat ekki tekist á við vandamálin. Ég dró mig í hlé frá um- heiminum," segir hún í nýlegu viðtali um síðustu ár sín með Jagger. Hún segir að útilokað sé að þau taki saman aftur, hann hafi komið of illa fram við sig til þess. Jag- ger býr í næsta húsi við Jerry og þau sjást oft saman og Jerry segist leggja sig fram að eiga góð samskipti við hann, barna þeirra vegna. Jerry leikur nú Frú Robinson á sviði í London en hefur fengið afleita dóma fyrir leik sinn. Jerry Hall segist ekki hafa nokkurn áhuga á að taka að nýju saman við Mick Jagger. Fjör á 80. mmútmmi I tilefni af 80 ára afmæli sælgætisverksmiðjunnar Nóa Síríus hefur verið ákveðið í samráði við Knattspyrnusambandið að verðlauna þá einstaklinga sem skora mark á 80. mínútu í leikjum ágústmánaðar. Að sögn er þetta gert til þess að auka á stemninguna í Landssíma- deild karla og kvenna. Leikmenn Landssímadeildar karla og kvenna, hafa möguleika á að vinna 80 þúsund króna verðlaun sem renna til góðgerðarmálefn- is sem leikmaðurinn velur. I tilefni afmælisins mun Nói Síríus ein- nig halda upp á tímamótin á veglegan hátt, m.a. með afmælisfagn- aði scm stendur allan mánuðinn og er yfirskrift fagnaðarins talan 80 og vekja upp stemningu í kringum 80. mínútuna í samvinnu við félögin og stuðningsmenn þeirra. I 13. umferð Landssímadeildar karla, sem leikinn var 3. ágúst sl. var Sigurður Jónsson, IA, nærri því að ná í þessi verðlaun er hann skoraði sigurmark IA gegn Grind- víkingum á Akranesvelli á 78. mínútu leiksins í 2-1 sigri þeirra. Hlynur Stefánsson, ÍBV, var einnig nálægt þessu er hann skoraði sigurmark IBV gegn Keflvíkingum á 83. mínútu leiksins í 2-1 sigri ÍBV á Keflavíkurvelli. — GG Draumahögginu hafa 34 náð Það sem af er golfvertíðinni í ár hafa 34 íslenskir kylfingar unnið það afrek að fara „holu í höggi“ á íslenskum eða erlendum golfvöll- um og tilkynnt um afrekið til Golfsambands Islands. Þetta eru jón Kr. Magnússon, GS; Ragnar Guðmundsson, GV; Stefán Svavars- son, GR; Eyjólfur Agnar Gunnarsson, GS; Sævar Haukdal Böðvars- son, GL; Reynir Sigurbjörnsson, GL; Einar Kristinsson, GO; Frið- rik Björnsson, GO; Guðlaugur Magnússon, GR; Hannes Sigurðs- son, GOB; Olafur H. Ólafsson, GK; Óskar Jóhannesson, GK; Björn H. Sveinsson, GL; Jón Viðar Viðarsson, GS; Valdimar Indriðason, GL; Steingrímur Guðjónsson, GO; Þorsteinss Sv. Stefánsson, GR; Birgir Valdimarsson, GI; Heiðar Davíð Bragason, GKJ; Óskar Inga- son, GO; Brynjar Unnarsson, GV; Pálmi Sverrisson, GKV; Einar Kristjónsson, GJÓ, Jón Karl Scheving, GK; Sigurgeir Jónsson, GV; Guðríður Guðmundsdóttir, NK; Jón Þorsteinsson, GS; Pétur Skarphéðinsson, GF; Ingi Björn Albertsson, GR; Stefán Pálsson, GR og Sigurður Þ. Guðmundsson, NK. Óstaðsettir í félög eru Ólaf- ur Gústafsson, Guðrún Sveinsdóttir og Sigurjón Sigmundsson. - GG ViHa og Bradford úr leik í Intertoto Aston Villa og Bradford töpuðu bæði illa í seinni leikjum sínum í Intertoto-keppninni. Bradford steinlá heima gegn Zenet frá Péturs- horg og á Villa Park tapaði Aston Villa seinni leiknum gegn Celta Vigo 2-1 og samtals 3-1. Tveir leikmenn ViIIa voru reknir af velli og eru rauðu spjöldin sem Villa hefur fengið í keppninni með hreinum eindæmum. Dómarinn rak fjóra menn af velli og gaf að auki sjö gul spjöld þrátt fyrir að Icikurinn þætti alls ekki grófur. Benni McCarthy kom Celta yfir eftir aðeins ellefu mínútur en síðan tók of virkur dómarinn frá Sviss til sinna ráða og á fyrsta hálftímanum var hann búinn að bóka fimm leikmenn og reka Velasco af velli fyrir að tefja Ieikinn. Fyrir leikhlé dæmdi hann svo tvö víti á Celta. Merson klúðraði því fyrra en Gareth Barry skoraði úr hinu seinna eftir að sparkað hafði verið í höfuð Steve Stone. Steve fór af velli og þurfti að sauma 16 spor í hann. I seinni hálfleik var Ian Taylor sendur af velli fyrir dýfingar, þ.e. leikaraskap, en það þótti ótrúlegur dómur. McCarthy náði svo að gera sitt annað mark og gera út um leikinn. En frægðarferli dómarans var ekki lokið. Þegar liðlega tvær mfn- útur lifðu af Ieiktímanum flautaði hann Ieikinn af og áttaði sig ekki á mistökum sínum fyrr en aðstoðardómarinn hljóp inná til að láta hann vita. I viðbótartímanum fór hann svo hamförum. Juan Fran fékk sitt annað gula spjald en dómarinn gleymdi að sýna rauða spjaldið eins og lög gera ráð fyrir og því spilaði leikmaðurinn áfram. Síðan fékk Alan Thompson rauða spjaldið fyrir að hrinda leikmanni Celta. Úrslitin í Intertoto keppninni urðn annars þessi: Blsany, Tékklandi - Sigma Olomouc, Tékklandi 0-0 Ölomonc vann samanlagt 3-1 Standard Liege, Belgíu - Stuttgart, Þýskalandi 0-1 Stuttgart vann samanlagt 2-1 Aston Villa, Englandi - Celta Vigo, Spáni 1-2 Celta vann samanlagt 3-1 Bradford City, Englandi - Zenet St. Pétursborg, Rússlandi 0-3 Zenit vann samanlagt 4-0 Wolfsburg, Þýskalandi - Auxerre, Frakklandi 1 -2 (eftir framlengingu). Auxerre vann samanlagl 3-2 Udinese, Italíu - Austria Vín, Austurríki 2-0 Udinese vann samunlagl 3-0 Eftirtalin lið mætast í næstu umferð en sigurvegarar þeirra viður- eigna fara inn í UEFA keppnina. Sigma Olomouc, Tékklandi gegn Udinese, ltalíu. Celta Vigo, Spáni gegn Zenit St. Pétursborg, Rússlandi og Auxerre, Frakklandi gegn Stuttgart, Þýskalandi. — GG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.