Dagur - 09.08.2000, Síða 12

Dagur - 09.08.2000, Síða 12
II 12- MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 FRÉTTASKÝRING T>^«r MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 - 13 Vélm skreid rétt yfir hökin BJÖRN ÞORLAKSSON SKRIFAR Þrír létust og aðrir þrír eru þimgt halduir eftir flugslys í Skerjaflrði. Sex sæta Cessna missti afl eflir að hún varð að hætta við lendingu á Reykjavikurflugvelli. TiMljanir áttuþátt í því hve fljótt tókst að koma meðvitundarlaus- um farþegum upp úr sjónum. Stórslys varð í (yrrakvöld þegar flugvél hrapaði í Skerjafirðinum í Reykjavík með einum flugmanni og fimm farþegum. Þrír létust, 29 ára flugmaður og tveir karlmenn. Hinir þrír farþegarnir eru í lífshættu, ein kona og tveir ungir menn. Fólkið í vélinni var á aldrinum 17-35 ára. Lögreglu barst tilkynning frá Flugturninum á Reykjavíkurflug- velli kl. 20.36 um að vélin hefði hrapað 300-500 metra vestan við Skeljanes. Vélin er af geröinni Cessna 210 Centurion, bar ein- kennisstafina TF-GTT, í eigu LeiguRugs ísleifs Ottesen. Hún hafði farið frá Vestmannaeyjum kl. 20.30 með áætlaða lendingu í Reykjavík, 30 mínútum síðar. Vélín fékk heimild til lendingar á flugvell- inum en í lokaaðflugi bárust flug- manninum fyrirmæli frá flugturn- inum um að hætta við vegna um- ferðar á brautinni. Flugmaðurinn hugðist fara hring en tilkynnti þá um vélarbilun. Þegar vélin var kom- in yfir Skerjafjörðinn tók hún hægri beygju og Ienti skömmu síðar afl- vana í sjónum. Nokkrir sjónarvottar voru að slys- inu, þar á meðal lögreglumenn sem voru á eftirlitsferð á Suðurgötu. Víðtæk og fjölmenn neyðaráætlun var þegar sett af stað og tóku þar þátt björgunarsveitarmenn, lög- regla, slökkvilið og sjálfboðaliðar. Mikið lán var að köfunarprammi frá fyrirtækinu Sjóverk var staddur skammt frá slysstað og var hann kominn á slysstað innan fárra mín- útna. Með aðstoð hans tókst að Kjartan J. Hauksson var lykilmaður í björgunaraðgerðum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kjartan bjargar mannsiífum. koma taug í vélina og var hún síðar flutt í Kópavogshöfn og þaðan í húsnæði á vegum rannsóknar- nefndar flugslysa sem fer með rannsókn málsins. Hörður Jóhannesson yfirlög- regluþjónn segir að aðeins hafi lið- ið um hálftími frá því að búið var að koma öllum farþegum úr flakinu. Flugmaðurinn var hins vegar fastur og ekki hægt að losa hann fyrr en búið var að draga vélina á land, nokkrum klukkustundum síðar. All- ir voru fluttir á sjúkrahúsin við Hringbraut og í Fossvogi eftir lífg- unartilraunir. Oflug miðstöð áfalla- hjálpar hefur verið starfrækt í Foss- voginum og kallaður út aukamann- skapur. Þetta er eitt mannskæðasta flug- slys seinni ára á Islandi og verður unnið ítarlega að rannsókn þess sem úrskeiðis fór, að sögn forsvars- manna Flugmálastjórnar. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri segir að ver- ið sé að taka saman ýmis gögn s.s. ratsjárviðskipti og var búist við því í gærkvöld að Rannsóknarnefnd flugslysa skilaði einhverjum drög- um að álitsgerð. Snörp viðbrögð Kjartan J. Hauksson kafari er eig- andi Sjótaks en eins og fyrr segir átti köfunarprammi lyrirtældsins og snörp viðbrögð Kjartans ríkan þátt í skjótri björgun farþeganna úr flug- vélarflakinu. „Eg var staddur í fyrir- tækinu mínu rétt við Kópavogshöfn og rauk bara á inniskónum beint um borð um leið og ég frétti af þessu. Ég var kominn að vélinni um 5 mínútum eftir slysið og á sama tíma var slökkviliðið komið með gúmmíbát. Ég hófst strax handa að ná fólkinu úr vélinni og upp um borð. Það gerðist hratt og fljótt og vel nema hvað varðaði ílug- manninn," segir Kjartan. Astæða þess að svo illa gekk að ná flugmanninum var sú að hann var klemmdur í tlakinu og segir Kjartan vélina hafa verið mjög illa fama. Hann giskar á að 5-6 mínút- ur hafi liðið frá því að vélin fór í sjó- inn og þangað til fyrsta farþeganum var bjargað. Allir sem komu upp voru meðvitundarlausir. Aðeins vængendinn stóð upp úr þegar Kjartan kom á vettvang og því þurftu menn að fara í kafarabún- inga til að nálgast fólkið. Kjartan fór sjálfur eltki niður heldur tók á móti iyrstu tveimur á prammann. „Við lögðum ofurkapp á að koma fólkinu upp úr og í land, reyndum ekki að tefja við hálfgildings lífgun- artilraunir heldur flýttum okkur sem mátti að koma fólkinu í hend- ur fagmanna í landi. Mitt mat er að Ekkert bendir til samhengis miiii framkvæmdanna á Reykjavíkurflug- velli og flugslyssins, að sögn Þor- geirs Pálssonar ftugmáiastjóra. Mikið lán var að köfunarprammi frá fyrirtækinu Sjóverk var staddur skammt frá slysstað og var hann kominn á slysstað innan fárra mínútna. Pramminn sést hér á milli björgunarmanna. Ekkert óeðlilegt við völliim Austur-vestur llugbraut Reykjavík- urflugvallar hefur verið lokuð urn skeið vegna malbikunarfram- kvæmda. Akveðið hafði verið að færa innanlandsflugið til Keflavík- ur um tíma í sumar en frá því var horfið og hefur því aðeins Norður- suður brautin verið opin undanfar- ið. Dagur spurði flugmálastjóra hvort rannsókn slyssins væri með öðrum hætti vegna þessa. „1 sjálfu sér ekki, nei. Það verður að sjálf- sögðu skoðað hvort eitthvað tengt framkvæmdunum hefur haft áhrif á slysið en við sjáum ekki að svo sé á þessu stigi. Flugbrautir geta verið Iokaðar af ýmsum ástæðum og flug- maður getur alltaf þurft að hætta við lendingu vegna hindrana á brautinni," segir Þorgeir Pálsson llugmálastjóri. Hann segir ekkert benda til þess að óeðlilega mikilli umferð hafi verið hleyjtt á völlinn rétt fyrir slysið. Árið 1988 fórst kanadísk leiguflugvél með 3 mönnum ná- lægt Reykjavíkurflugvelli en síðasta áratug hefur ckki orðið manntjón vegna innanlandsflugs við völlinn. Á Þorgeir von á að slysið muni breyta viðhorfum fólks til staðsetn- ingar hans? „Það hefur alltaf legið fyrir að slys geta orðið, hæði við þennan flugvöll sem aðra velli, það er hluti af staðreynduni. Ég held að það sé ómögulegt að segja til um hvort slysið verði til þess að breyta viðhorfi fólks til staðsetn- ingar. Sem betur fer hefur aldrei í sögu Rugvallarins orðið manntjón hjá fólki á jörðu níðri utan loftfars- ins. Flugmenn gera allt sem þeir geta til að koma í veg fyrir það að þeir lendi á hindrunum og það hef- ur mikið að segja," segir llugmála- stjóri. Hjá leiguflugi Isleifs Ottesen, fengust þær upplýsingar í gær að vélin sem fórst hefði verið áætluð í góðu ásigkomulagi og staðfestir Þorgeir að hún hafi haft öll tilskilin réttindi. Fyrirtækið er alls með 6-8 vélar í flota sínum og hefur starfað frá 1976. Cessna vélar eins og sú sem fórst hafa reynst vel og verið taldar öruggar, að sögn eins starfs- manna fyrirtældsins. „Hér eru allir miður sin og við getum í raun ekk- ert annað en vísað á Rannsóknar- nefnd llugslysa," sagði starfsmað- urinn. Féll aflvana í sjóiiui Ljóst þykir að vélin hafi misst afl skömmu áður en hún féll í sjóinn. Ingebjörg l horp var einn sjónar- votta að slysinu og segist henni þannig frá: „Ég heyrði mjög skrýtið flugvélarhljóð og fór út að glugga til að skoða málið betur. Þá heyrð- ist eins og „púff‘ og vélin kom framhjá hljóðlaust eins og svifflug- vél beint fyrir utan gluggann og Ienti í sjónum. Það var allt svo hljótt að það tók mig smátíma að átta mig á hvað í raun hafði gerst en síðan fór ég beint í símann og hringdi í Neyðarlínuna," segir Ingebjorg. Hún telur að vélin hafi svifið mjög nálægt húsþökunum skömmu áður en hún féll í sjóinn. „Það mátti mjög litlu muna að hún ræk- ist á húsin. Ég veit ekki hve margir metrar skildu á milli en hún fór svo lágt yfir að afleiðingarnar hefðu getað orðið enn skelfilegri," segir Ingebjorg. Flugvellir með aðeins eina flugbraut eru stórhættulegir og menn taka þar meiri áhættu, segir Úrn Sig- urðsson arkitekt. Völluriiui verður að fara Orn Sigurðson arkitekt og einn tals- manna Samtaka um betri byggð seg- ir slysið skelfilegt en það sem slíkt breyti eldd viðhorfi samtakanna til vallarins, enda hafi það verið full- mótað áður. Völlurinn er mikill þyrn- ir í augum meðlima Samtaka um betri byggð en Orn segir: „Slysið á ekki að þurfa að hafa ábrif á þá stað- reynd að flugvöllurinn verður að fara af mörgum ástæðum. Slysahættan er bara einn margra þátta sem styðja það.Við sjáum líka Ijölmargar fleiri þjóðhagslegar ástæður fyrir því að völlurinn verður að fara sem allra fyrst," segir Örn. Samtökin bentu sérstaklega á þá hættu sem myndi skapast í sumar. „Það er stórhættulegt að nota flug- völl sem er bara með eina flugbraut á þessu svæði. Ég veit ekki hvernig aðstæður voru í þessu tilfelli en al- mennt freistast menn til þess að taka meiri áhættu í hliðarvindi þegar þeir hafa bara eina braut. Fara kannski ekki út lyrir öryggismörkin en alveg út undir ystu mörk,“ segir Orn. Hann tekur undir með sjónarvott- inum Ingebjorgu Thorp, að nærri hafi legið að vélin lenti á íbúabyggð- inni við Sldldinganes og það sé ekld í fyrsta skipti sem nærri hafi legið að flugvélar skyllu á byggð. Örn segist sjálfur búa á hættusvæði í grennd vallarins en það sé ekki ástæða þess að hann berjist gegn Reykjavíkur- flugvelli. „Þessi flugvöllur hefurgjör- samlega eyðilagt borgina, það er eins og fallið hafi sprengja. Byggðaþróun- in splundraðist þegar völlurinn kom. Hér keyra 170.000 manns um 250 milljónir ferða á ári og þær ferðir eru allar of langar. Þorri þjóðarinnar eyð- ir og sóar tíma sínum og peningum í allt of marga bíla og of umfangsmik- ið vegakerfi. Þetta tekur líka tíma frá börnunum og fjölskyldunni og þetta eru þjóðhagslegu rökin," segir Örn. Björgunarstarfið gekk mjög hratt fyrir sig og hér má sjá einn farþeganna flutt- an af vettvangi með sjúkrabirfreið. þessar aðgerðir hafi allar gengið ótrúlega hratt og vel,“ segir Kjartan sem segist telja sig lánsaman að hafa verið réttan mann á rcttum stað. „Öðruvísi væri þessi lífsvon sem þó er ekki til staðar," segir Kjartan en getur þess einnig að honum sé ofarlega í huga hve margir eigi nú um sárt að binda. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kjartan kemur að björgun. Hann segist hafa bjargað tveimur manns- lífum á árum áður og hann hefur oft verið kallaður á slysstað vegna björgunarstarfa. Kjartan segir enga aðra hugsun komast að þegar svona háttar til en að reyna að bjarga mannslífum. „Maður er ekkert að velta því fyrir sér hvort tíminn sé orðinn of langur eða ekki. Maður hugsar bara um að koma fólkinu undir læknishendur jafn hratt og hægt er og síðan er það annarra að meta ástand þess.“ Um helgina voru alls 95 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur, flestir annað hvort I eða við Hvalfjarðargöng. Viðbúnaður skilar árangri Iitið vax um innbrot í Reykjavík um verslim- armaimahelgina, en töluvert um hraðakst- ur í Hvalíj arðargöng iniiiiii. Talsverður erill var hjá lögreglunni í Reykja\Tk um verslunarmanna- helgina, þrátt fyrir að margir borg- arbúar hafi haldið sig utan borgar- markanna um helgina. Lögreglan segir að mikið hafi verið um hraðakstur, en flest þau mál komu upp á Vesturlandsvegi í og við Hvalfjarðargöng. Viðbúnaður lög- reglu vegna innbrota virðist hins vegar hafa skilað árangri, því lítið var um innbrot í Reykjavík um helgina. Flugslysið í Skerjafirði á sunnudagskvöld setti loks dapur- legan svip á störf lögreglunnar undir Iok helgarinnar. Á 117 km hraða í göngimum Um helgina voru alls 95 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur, flest- ir annað hvort í eða við Hvalfjarð- argöng. I göngunum sjálfum kom 21 mál upp en á laugardag mæld- ist t.d ökumaður aka bifreið sinni á 117 km hraða um göngin en há- markshraði í göngunum er 70 km. Á Vesturlandsvegi við Kollafjörð var svo ökumaður stöðvaður á sunnudag eftir að hafa verið mældur á 135 km hraða þar sem 90 km er hámark. 18 ökumenn voru handteknir grunaðir um ölv- un við akstur bifreiða sinna. Aðeins eitt innbrot Um helgina barst lögreglu aðeins ein tilkynning um innbrot á heim- ili. Lögreglan segir að það megi þakka töluverðum viðbúnaði á merktum og ómerktum bifreiðum í íbúðahverfum borgarinnar um helgina. Þetta eina innbrot var í heimahús í austurbænum, og það- an var meðal annars stolið ýmsum heimilistækjum og skartgripum. Þá gerðist það, að maður nokk- ur dældaði bifreið í miðbænum á aðfaranótt laugardags. Hafði hann í frammi miklar óspektir þegar lög- reglumenn ræddu við hann og var hann því handtekinn og fluttur á stöð en síðan vistaður í fangaklefa. Annar maður var einnig hand- tekinn í miðborginni á aðfaranótt mánudags eftir að hafa úðað á þrjá veggi með úðalit. Hann var færður á Iögreglustöð en sleppt að lokn- um viðræðum. Nokkrir úðabrúsar voru haldlagðir vegna málsins. Á aðfaranótt mánudags var til- kynnt um mann sem gekk um Álf- heima og skemmdi bfla. Náði hann að vinna einhverjar skemmdir á 10 hifreiðum áður en lögregla hafði hendur f hári hans. Var hann vistaður í fangageymslu í framhaldi af viðræðum lögreglu við hann. Réðust á strætisvagnastjóra Nokkuð var um ofbeldisbrot um helgina. Á aðfaranótt laugardags réðust t.a.m. tveir drengir að strætisvagnabifreiðastjóra eftir að hann hafði vísað þeim út út vagn- inum. Hlaut maðurinn áverka í andliti. Þá var maður handtekinn á veit- ingastað í miðborg Reykjavíkur á aðfaranótt mánudags eftir að hafa slegið konu á staðnum. Konan var flutt með sjúkrabifreið á slysa- deild, hún var talin vera með heilahristing og var aum í andliti. Á aðfaranótt mánudags var maður fluttur illa skorinn á hálsi á slysadeild eftir að hafa verið sleg- inn með bjórflösku á veitingastað í miðborginni. Sömu nótt var einnig tilkynnt um líkamsárás í miðborg Reykja- víkur. Tveir menn voru handteknir og munu þeir hafa ítrekað sparkað í höfuð meidda. Voru þeir færðir í fangamóttöku, en sá meiddi var fluttur á slysadeild með sjúkrabif- reið. Á aðfarnótt þriðjudags voru þrír menn handteknir í Breiðholti eftir að hafa ógnað hússráðendum með járnbút, en mennirnir þrír voru gestkomandi á staðnum. Fikniefiii í þremur bifreiðiun Á föstudagskvöld var bifreið stöðv- uð í Breiðholti og fundust ætluð fíkniefni á ökumanni bifreiðarinn- ar. Okumaður og farþegi voru færðir á stöð til yfirheyrslu. Á aðfaranótt laugardags var önnur bifreið stöðvuð við eftirlit. Við leit í bifreiðinni og á farþegum fannst talsvert magn af ætluðum fíkniefnum og var farþegi í bifreið- inni handtekinn vegna málsins. Á mánudagsmorgun var loks ökumaður stöðvaður grunaður um ölvun við akstur, einnig fékkst heimild til leitar í bifreiðinni og fannst >á ætluð fíkniefni í bifreið- inni. Okumaður og farþegar voru handteknir og vistaðir í fanga- geymslu. Á mánudagsmorgun urðu lög- reglumenn á eftirlitsferð einnig varir við mann sem lét dólgslega og var að reyna að brjótast inn í verslun í austurborginni. Hann var handtekinn og \dð leit á honum fannst lítilsháttar af ætluðum fíkniefnum í poka. Maðurinn var færður á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu. Lenti á milli gáma Á föstudagsmorgun var tilkynnt um vinnuslys á athafnarsvæði Sorpu í Ánanaustum. Þarna hafði maður lent milli tveggja gáma var hann fluttur með sjúkrabíl á Slysa- deild. Á mánudagskvöld var lögregla og slökkvilið kallað að Hólma- sundi þar sem eldur var laus í sorpgeymslu. Sorpgeymslan var alónýt eftir brunann. Á sunnudagskvöld barst lögregl- unni tilkynning frá flugturninum á Reykjavíkurflugvelli um að sex sæta flugvél hefði hrapað í Skerja- Ij'örð um 3-500 metra vestan við Skeljanes, og er nánar ijallað um það annars staðar hér í Degi. Handverk 2000 Handverkssýningin Handverk 2000 hefst að Hrafnagili í Eyja- fjarðarsveit á morgun og stendur í fjóra daga. Sýningin er sú átt- unda í röðinni á jafn rnörgum árum og er orðin að föstum og ómissandi lið í tilveru íslensks handverksfólks. Aðsókn að sýn- ingunum hefur verið einstaklega góð allt frá hyrjun og sækja þær milli sex og átta þúsund gestir ár- lega víðs vegar að af landinu. Samtals er sýningarsvæðið á um 1700 fermetrum í íþróttahúsi Hrafnagilsskóla, sem og í nær öllu kennsluhúsnæði skólans. Einnig er sýnt í útibásum. Á sýningar- svæðinu verða bæði sölu og \innu- básar handverksfólks og gestum gefst tækifæri á að sjá handverks- fólk að störfum. Sýningin Handverk 2000 er til- einkuð kirkjunni á afmælisári og setur sú yfírskrift sitt mark á sýn- inguna. Margir merkir og fallegir kirkjumunir verða á sýningunni, bæði gamlir og nýir. Utimessa verður á sunnudeginum þar sem hringt verður til kirkju með gam- alli klukku úr Þönglabakkakirkju og til þess notað kirkjureipi sem spunnið verður á meðan á sýning- unni stendur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.