Dagur - 09.08.2000, Síða 17
MIBVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2 0 0 0 -17
LÍFIÐ t LANDINU
Stund sköpunarinnar
Við gleymum því auðvitað ekki að Snorri var alinn upp í Odda og sprenglærður jafnt í kristnum fræðum
sem norrænni goðafræði
Að hverju eru menn í raun
og veru að leita í heimi hins
smáa, handan kvarks og raf-
eindar?
Menn eru einmitt þar að
leita að sjálfu grundvallar-
lögmáli alheimsins, lögmáli
allsherjar samræmis allra
hluta. Vísindamenn hafa
fært góð rök fyrir því að efn-
isfræðileg lögmál séu ekki mismunandi eftir
stöðum heldur séu alls staðar eins. Þau eru
ekki heldur mismunandi á mismunandi tím-
um, þau eru alltaf eins. Þeir sem þekkja
heildina nógu vel geta skilið hana út frá litlu
hroti og skilið brotið vegna þess að þeir
þekkja heildina. Við erum að leita í heimi
hins smáa að grundvallarlögmáli samræmis
sem sameinar alla hluti í skiljanlega heild.
Ef þessu væri ekki þannig háttað gæti ekki
verið um neinn skilning að ræða á þessum
stóra heimi. Það verður að segjast eins og er
að ennþá er það aðeins trú að við finnum
þennan grundvöll samræmisins í heimi hins
smáa, þó að til séu vísindamenn sem telja
sig þegar hafa fengið vísbendingar um að
svo sé.
Einn dropi getur nægt vísindamanni til að
þekkja gerð heimshafanna. Við höfum hlið-
stæðan dropa til að þekkja alheiminn. Það
hefur alltaf verið draumur mannsins að
þekkja uppruna heimsins, sögu hans og
endalok og ekki síður endurfæðingu. Engin
önnur spurning hefur haft víðtækari áhrif á
alla menningu okkar frá fyrstu goðsögum til
nýjustu heimsmyndar. Við viljum öll vita
hvers vegna þessi alheimur varð til og hvern-
ig hann er eða virðist vera.
Allir nútímamenn þekkja söguna um
Stórusprengju. Hún er ekki kenning heldur
mælanleg staðreynd. Það er ótrúleg stað-
reynd að við þckkjum sögu alheimsins næst-
um frá upphafi til okkar dags. Þegar ég segi
næstum frá upphafi þá er um að ræða
óþekkt tímabil sem er samt mildu styttra en
einn hundraðasti úr sekúndu. Jafnvel það
skiptir máli. Otrúlega stórir hlutir gerðust í
þessu upphafi á ótrúlega skömmum tíma.
Hér er enn nýtt verkefni fyrir þriðja árþús-
undið. Finnur það svar við því hvað gerðist á
fyrstu stundu sköpunarinnar sem var svona
örstutt? Raunar miklu minna en einn hund-
raðasti úr sekúndu. Menn hafa líka spurt:
Hvað var á undan upphafinu?
Snorri Sturluson svarar þessu í frægustu
bók okkar Islendinga:
Ár var alcla,
það ekki var,
gap var ginnunga
en gras hvergi.
Við gleymum því auðvitað ekki að Snorri
var alinn upp í Odda og sprenglærður jafnt í
kristnum fræðum sem norrænni goðafræði.
Ginnungagap er gamalt hugtak, þýddi í
heiðni tóm guðanna og í kristni tóm guðs.
I sambandi við sögu alheimsins getum við
velt því fyrir okkur hvort til sé forsaga þess-
arar sögu, forsaga sem hefst löngu á undan
því sem við venjulega köllum upphaf tímans.
Hvernig varð heimseggið til? Er ekki hugs-
anlegt að geislun eða efni sem til var fyrir
heimseggið hafi fyllt rúmið í síauknum mæli
og þjappað öllu efni og orku saman í það
sem menn kölluðu heimsegg eða eldhnött-
inn sem oklrar þekkti alheimur er kominn
frá. Við þekkjum ckki hið raunverulega
ástand upphafsins. Það má vel vera að jafn-
vel þó að við þekktum það hefðum við
hvorki orð né hugtök til að lýsa því. Við
verðum að horfast í augu við þá staðreynd
að við þekkjum ekki upphafið. Enn er eng-
inn maður fær um að svara spurningunni
hvernig þetta allt raunverulega byrjaði. Við
höfum engin rétt svör. Það er jafnvel hugs-
anlegt að við höfum ekki spurt hinnar réttu
spurninga. Páfar liðinnar aldar í eðlis-og
efnafræði reyndust ekki óskeikulir þó að þeir
gerðu margir heiðarlegar tilraunir til að
svara þessum spurningum um upphafið. Hér
hefur þriðja árþúsundið verk að vinna. Það
gæti komist að hlutum sem kollvarpa öllu
sem við höfum áður haldið. Maðurinn mun
halda áfram þessari leit sinni. Hvers vegna?
Líklegast vegna þess að hann veit að þegar
hann hefur fundið hinn raunverulega grund-
völl heimsins veit hann meira um sjálfan sig.
Sólin okkar sendir frá sér rafsegulöldur
sem við köllum hita og ljós. Við köllum þetta
öldur. Fyrirmyndin er úr reynsluheimi okkar,
öldur á vatni. En eru þetta öldur eða efnis-
eindir? Við segjum að ljósaldan sé úr
ljóseindum. Þetta er gömul deila sem lauk
með því að svarið var, já, þetta eru raunveru-
legar öldur.
Þetta er gömul þekking. Viðfangsefni okk-
ar liggur dýpra. Bak við ölduna, bak við
atóm og Ijóseindir, bak við rafeind og kvark
eru menn að leita að hinni endanlegu niður-
stöðu.
I heimi hins smáa eru margir hlutir sem
þarf að samræma. Það er verið að leita að
heildarmynd. Skógurinn er gerður úr trjám
en sagt er að maðurinn sem gangi um skóg-
inn sjái ekki skóginn fyrir trjánum. I hinum
fimm strengjakenningum nútímans eru
strengirnir trén og strengirnir eru orkan sem
mynda kvarka og rafeindir. Menn hafa talað
um að þessi grundvöllur hefði ellefu víddir,
tfu í rúmi og eina í tíma. - Hvað eru þessir
strengir? Menn vita það ekki, ekki enn þá -
en þeir senda frá sér orku. Þeir titra eins og
strengir fiðlunnar. Innan þeirra er heill
heimur sem bíður rannsóknar. Þetta eru
ekki heimspekilegar hugleiðingar, þetta eru
niðurstöður mælinga. Þetta er upphaf leitar.
Margpét
IMENNINGAR
LÍFID
Baldur í Höllinni
Tveir stórviðburðir
cru á dagskrá
M enningarborg
Reykjavíkur í ágúst EBsabetúafsd
og er miðsala hafín
á þá báða. Fyrst ber að nefna
stórvirkið Baldur eftir Jón
Leifs, sem lýsir mildum atburð-
um úr norrænni goðafræði og
hefur aldrei verið flutt áður.
Um er ræða einhveija stærstu
dans- og tónlistaruppfærslu
sem ráðist hefur verið í á Is-
landi enda mun sviði ná yfir
hálfa Laugardalshöll. Dansarar
eru úr Islenska dansflokknum
og Finnska þjóðarballettinum,
en dansinn samdi stjórnandinn
Jorma Uotinen. Tónlist Jóns
Leifs verður
hér flutt í
fyrsta sinn af
Sinfóníu-
hljómsveit Is-
lands, sem
stjómað er af
handhafa tón-
listaverðlauna
Norðurlanda-
ráðs, Leifs
Segestram.
Sýningar á
aðeins tvær í
Reykjavík
Frá æfingu a
Baldri.
Baldri verða
Laugardalshöllinni
þann 18. ágúst.
91 riitltl mímis eiii
Hinn stórviðhurðurinn eru tón-
leikar Radda Evrópu undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur í
Hallgrímskirkju 26. og 27.
ágúst. Kórinn er skipaður 90
ungmennum frá evrópsku
menningarborgum ársins og þó
atburðurinn missi eilítið af
sjarmanum við brotthvarf
Bjarkar frá verkefninu, má full-
vissa lesendur um að enginn
verður svikinn
af kórnum ein-
um. Hann var
líka frábær þeg-
ar Björk söng
ekki með í
Perlunni á
gamlárskvöld,
enda varla við
öðru að búast
þar sem Þor-
gerður Ing-
ólfsdóttir er.
Miðasala er
opin alla daga frá 10 til 18 í
Upplýsingamiðstöð ferða-
mála, Bankastræti 2, sími
552 8588, tölvupóstur: mida-
sah@iourinfo.is
Þorgerður Ing-
ó/fsdóttir stjórnar
Röddum Evrópu.
Sumarsögur af landi
I sumar náði ég þeim áfanga að
heimsækja síðasta þéttbýlisstaðinn
á landinu sem ég átti eftir. Aður
hafði ég reyndar verið búinn að
fara um Reykhólasveitina, en átti
þó alltaf eftir að fara leiðina sem
liggur með Berufírði og að Reyk-
hólum. Þetta eru rúmlega tíu kíló-
metrar, en var vel þess virði að fara
leiðina því f viðkynningu þá eru
Reykhólar hinn myndarlegasti stað-
ur. Þegar ég kem í kauptún úti á
landi reyni að hafa tal af einhverj-
um heimanni til þess að fræðast
um mannlíf og menningu - og um
sögu byggðarlagsins. Mér finnst
ágætt, bæði vegna forvitni minnar um
menn og málefni en líka í og með vegna
blaðamennskunnar. Þó ég sé í sumarfríi
þá er myndavélin alltaf með - þó hún
stjórni ekki ferðalaginu eins og í annan
tíma vill verða.
Þrjú stórskáld
A Reykhólum sagði sr. Bragi Benediktsson
MENAIINGAR
VAKTIN
Sigurður Bogi
Sævarsson
sóknarprestur staðarins mér frá
sóknarkirkjunni á staðnum og
stórskáldunum Jóni Thoroddsen,
Gesti Pálssyni og Matthíasi
Jocumssyni sem allir eru ættaðir
frá þessum slóðum. Fornar sögur
eru einnig margar til um Reyk-
hóla, en einnig sitthvað frá seinni
tímanum. Það var til dæmis um
miðja öldina sem Sigfús Halldórs-
son dvaldist þar um nokkrurra
skrifar
þetta
mánaða skeið og samdi þar lagið
Litlu fluguna, sem fyrir margt
löngu er ódauðlegt orðið. Við
guðsmaðurinn skoðuðum einnig í
mýflugumynd þörungavcrksmiðjuna, scm
er athyglisvert fyrirtæki.
I sumar hcfur mér einnig gefist tækifæri
til þess að skoða hina bráðmerkilegu Lax-
árvirkjun III, þar sem hún er byggð inn í
mikilli hvelfingu sem sprengd var inn i
bergið. I þeirri sömu ferð austur í Þingeyj-
arsýslur komst ég einnig á samkomu í fé-
lagsheimilinu Skjólbrekku þar sem Mý-
vetningar kornu saman á gúmmískónum
Á Reykhólum sagði sr. Bragi Benedikts-
son sóknarprestur staðarins mér frá
sóknarkirkjunni á staðnum og stórskáld-
unum sem allir eru ættaðir frá þessum
slóðum, segirm.a. hér í greininni.
og sungu ættjarðarlög. Það var þjóðleg og
skemmtileg samkoma. Nú um verslunar-
mannahelgina fékk ég mér síðan aðra ferð
austur í Þingeyjarsýslur og skoðaði Safna-
húsið á Húsavík, þar er hið myndarlega
byggðasafn sem er eitt hið fremsta í sinni
röð á landinu.
FlökkuMnd og ferðalög
Flökkukindum eins og mér verður landið
og ferðalög um það sífellt ný uppspretta.
Ferðalög á öllum árstímum eru heillandi,
þó ég hafi kannski mesta reynslu af sum-
arferðum. Og margl á ég cftir að ferðast
um í sumar. Þannig er á dagskrá að skoða
Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll og Oskju
um næstu helgi - og um aðra helgi er
stefnan síðan sett á að ferðast frá Mýri í
Báðardal og suður í Árnessýslu. Leiðin sú
er mörgum kunn - Sprengisandur - og er
það um það bil sex klukkutíma akstur yfir
svarta auðn, en að fara um slíka náttúru er
það sem marga heillar mjög. Ég er ekki frá
því að það sama eigi við um sjálfan mig.
sigurdur@dagur.is