Dagur


Dagur - 09.08.2000, Qupperneq 18

Dagur - 09.08.2000, Qupperneq 18
18- MIÐVIKUDAGU R 9. ÁGÚST 2000 .DagjMr \d& (tU& ^ VÍKUR y BIAÐIÐ Þorgeirskirkja í Ljósa- vatnshreppi var vígð sl. simnudag að við- stöddu miklu fjöl meuui o g fjölda presta. Fyrir altari voru vígslubiskup Hólabiskupsdæmis, sr. Bolli Gústavsson, sóknarpresturinn sr. Arnaldur Bárðarson, prófastur Þingeyjarprófastdæmis sr. Pétur Þórarinsson, sr. Jón A. Baldvins- son prestur í London, sem þjón- aði um skeið Ljósavatnspresta- kalli sem nú hefur verið samein- að Hálsprestakalli, sr. Sigurður Guðmundsson, fyrrv. vígslubisk- up og prestur að Grenjaðarstað og biskup Islands, herra Karl Sig- urbjörnsson. Við vígsluna sagði biskup Islands, að staðurinn sem kirkjan stæði á væri heilög jörð og hann bað þessu musteri drott- ins blessunar sem og öllum þeim athöfnum sem þar færu fram í nánustu framtíð. „Blessa þú drottinn alla þá sem hingað koma.“ Mikil viska Biskup íslands sagði að viska Þorgeirs Ljósvetningagoða hefði verið mikil og rökin sterk enda hefði haldist áfram sátt og friður á Islandi eftir siðabreytinguna og allir hlýtt einum lögum og einum sið. Tíu öldum síðar njóti þjóðin enn ávaxta þessarar visku. „Það hefur ábyggilega ekki verið án innri átaka að Þorgeir gekk til þess verks að varpa goðunum í fossinn. Hann var vitur maður, þykjumst við vita, því vitur mað- ur lætur sér ekki standa á sama um trú og sið, það er honum al- vörumál. Eg er sannfærður um að heill hugur stóð að baki ákvörðun hans og vissa um guð- legan vilja,“ sagði biskup. Hann sagði að leiða mætti rök að því að hofið hafi síðan verið nýtt sem kirkja þar sem krossins merki var reist og klukknahljómurinn ómaði. „Hvaða starfa hafði Ljósvetn- ingagoðinn?“, spurði síðan bisk- up. Og hann svaraði sjálfur: „Hann var seiðmaður, goðarnir voru menn sem færðu fórnir goð- unum og náttúruöflunum til að blíðka þau og til að tryggja við- gang lífsins og goðamyndirnar trédrumbar eða styttur sem stað- ið hafa í hofinu, frjósemistákn umfram allt, og notaðar hafa ver- ið við fórnarathafnir roðnar blóði fórnardýra. Náttúran er læst kerfi umbunar og refsingar, or- saka og afleiðinga, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn en Kristur sá að mundi um síðir gera alla blinda og tannlausa og því gefur hann okkur mildu ágætari leið, leið kærleikans, fyrirgefningar- innar, miskunnseminnar." Syndarar og dýrlingar „Þorgeir Ljósvetningagoði er ekki tekinn í dýrlingatölu, en það er sjálfsagt að minna á hann og halda minningu hans á lofti, minningu um skynsemi og visku, minningu heiðins manns sem varð kristinn. Sérhver dýrlingur á sér fortíð og sérhver syndari á sér framtíð. Kannski er sagan um goðin og Goðafoss bara flökku- sögn, munnmælasaga úr Bárðar- daínum, en hún er ekkert verri fyrir það, hún varpar Ijósi á kjar- na málsins og túlkar þá atburði sem áttu sér stað er Kristur var leiddur til öndvegis á íslandi og krossinn hans signir lífið og land- ið. Höldum til móts við ókomna tíð og nýtt árþúsund í trú, von og kærleika," sagði biskup Islands m.a. við vígslu Þorgeirskirkju. Við vígsluna voru kirkjunni færðar ýmsar gjafir, m.a. frá kvenfélagi Ljósvetninga, Oddfell- owstúkunni Þorgeiri í Reykjavík og tíu fyrrverandi þingmönnum Norðurlandskjördæmis eystra. Auk þess hökull frá prests- hjónunum á Dalvík, Magnúsi Gunnarssyni og Þóru Ólafs- dóttur. - GG MeðfuUrireisn niður fljótið Allmargir erlendir ferðamenn voru viðstaddir kristnihátíðina við Goðafoss um helgina. Meðal annars nokkrir ítalir sem sátu á bjargbrún og fylgdust með af áhuga þegar fluttur var leikþátt- urinn Þorgeir við Goðafoss. I hópnum voru tvær stúlkur og greinilega siðprúðar, því þegar einn leikenda kastaði klæðum og stökk kviknakinn ofan í tunnu til að láta þar skírast, jesúsuðu stúlkur sig og roðnuðu svo langt niður sem auga blaðamanns eygði. Þegar svo frjósemisgoðinu Frey hafði verð kastað í fossinn og flaut niður fljótið með mann- dómstákn sitt skagandi eins og eldrautt mastur til himsins, gripu þær stöllur einfaldlega fyr- ir augun, á meðan félagar þeirra karkyns hentu gaman að. - JS Goðá faraldsfæti Goðin Oðinn, Þór, Frevr og Frevja voru mjög á ferðinni um helgina. Fyrst var þeim fleygt í Goðafoss á sunnudaginn og velktust þar um við bakka Skjálf- andafljóts um stund. Ásatrúar- menn, sem töldu sér málið skylt, náðu þremur goðum upp úr fljótinu og höfðu á brott með sér, en goðagerðarmaðurinn, sem smíðaði gripina og á þá bjargaði hins vegar sjálfum Oðni úr fljót- inu með fulltingi sigmanns. Dvalarstaður Þórs, Freys og Freyju var á huldu um skeið en síðan bárust njósnir af þeim í geymslu á Húsavík þar sem lög- regla tók þau í sína vörslu. Að sögn Bjarna Höskuldssonar lög- reglumanns barst engin kæra í þessu máli og það leystist farsæl- lega. Ekki hafi staðið til hjá þeim sem tóku þau að halda goðunum og þeir buðust strax til að skila þeim til lögreglu. Hin víðförlu goð eru nú komin til síns heima á ný. - JS Einarsstaðamót umhelgma Hið árlega Einarsstaðamót hestamannafélaganna Þjálfa og Grana fer fram um helgina á vellinum við Einarsstaði í Reykjadal. Mótið hefst með for- keppni kl. 10 á laugardag og úr- slit fara síðan fram á sunnudag. Á laugardagkvöldið verður að venju grillað og haldin kvöldvaka við skeiðvöllinn, eftir að sjálf- sögðu útreiðartúr um nágrennið. -JS Prófasturinn, sr. Pétur Þórarinsson og sóknarpresturinn, sr. Arnaldur Bárðarson fyrir altari Þorgeirskirkju.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.