Dagur - 09.08.2000, Side 19

Dagur - 09.08.2000, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 - 19 VÍKURBLAÐIÐ Kristnihátíö Um 1000 manns sóttu kristnihátíd í Þingeyj arprófasts- dæmi. Þorgeirskirkja vigð að Ljósavatni. Glæsileg hátíðardag- skrá við Goðafoss þar sem himun fomu goð- um var á ný kastað í fossinn. Aðstandendur kristnihátíðar í Þingeyjarprófastsdæmi voru himinsælir, í orðsins fyllstu merkingu, með hvernig til tókst. Um 1000 manns voru viðstaddir vígslu hinnar nýju Þorgeirskirkju við Ljósavatn og enn fleiri fylgd- ust með hátíðardagskrá á útihá- tíð við Goðafoss. Að sögn séra Péturs Þórarins- sonar stóð undirbúningur hátíð- arinnar í Þingeyjarprófastsdæmi yfir í tvö ár og miðaðist við yfir- skriftina: „Lifandi kirkja í ljósi sögunnar". Þessi yfirskrift átti að gefa undirbúningsnefndinni |rá leiðsögn að um leið og minnst væri þeirra merku athurða sem gerðust á Lögbergi árið 1000, þá skyldi eklvi síður nota þetta góða tilefni til að efla og styrkja það kristilega starf sem fram fer í prófastsdæminu. Ljósberinn Á útihátíðinni (luttu ræður og ávörp þeir séra Pétur Þórarins- son prófastur, Halldór Kristins- son svslumaður. séra Bolli Gúst- afsson, vígslubiskup og Karl Sig- urbjörnsson biskup. En tónlistin var þarna í öndvcgi. Blásarasveit lék undir stjórn Sigurðar Hall- marssonar og Barnakór Þingeyj- arprófastsdæmis söng fjögur lög undir stjórn Valmar Valjaots, m.a. „Frá guði er líf mitt“ , en lag og Ijóð voru eftir prófastinn Pét- ur. 1 50 manna kór skipaður söng- fólki úr öllum kirkjukórum pró- fastsdæmisins leiddi fjöldasöng en frumflutti einnig tvö ný lög sem sérstaklega voru samin við hátíðaljóð sem urðu hlut- skörpust í ljóðasamkeppni sem efnt var til í fýrra í tilefni kristni- hátíðar Þingeyinga. Sigurljóðið „I þúsund ár“, gerði Ásgeir J. |ó- hannsson og það var séra Orn Friðriksson sem gerði lag við ljóðið. Ljóðið í öðru sæti var „Ljósberinn" eftir Pjetur Haf- Skim og goðakast Að flestra dómi var hápunktur hátíðarinnar Butningur leikþátt- arins „Þorgeir við Goðafoss" eft- ir Jónas Kristjánsson. Leikstjóri var Arnór Benónýsson og leikar- ar úr Ieikdeild Eflingar og það var Jón Friðrik Benónýsson sem lék Þorgeir Ljósvetningagoða. Þorgeir konta ríðandi frá Ljósavatni ásamt fríðu föruneyti og á undan fór maður í hvítum kufli og bar kross. I lestinni voru einnig hestar sem báru líkneskj- ur Oðins, Þórs, Freys og Freyju. Hópurinn reið austur með fljót- inu og að fossinum þar sem leik- þátturinn var fluttur og áhorf- endur handan fljótsins námu orðin úr hátalara, enda vonlaust að mannsröddin bærist yfir ána og vfirgnæfði þrumugný fossins. Og þarna kastaði Þorgeir goðun- um, einu af öðru í fossinn og kvaddi þau með söknuði og aug- ljósum trega. Einn leikaranna svipti sig kufli og fór nakinn ofan í tunnu sem var full ai atni úr Skjálfandafljóti og þar var hann skírður með viðhöfn. Þetta var tilkomumikil sýning og texti leikskáldsíns áhrifaríkur. Og hið besta var verkið fiutt. Og dagurinn allur verður eftirminni- legur þeim er þarna voru. — js Þorgeir og fylgdarlið ríða að Goðafossi. Séra Pétur Þórarinsson var himinsæll með hátíðina. stein Lárusson og Einar Melax samdi lag við það. Ljóð Pjeturs er stutt og kjarnyrt og fer hér á eftir: LJÓSBERINN Vandlifað er í veröld flúrri tveggja siða. Berst úr goðheimum gnýr dauðaþrmnu en af himni Ijós lambsins milda. Þungir gerast þankar undirfeldi uns rís upp goðinn varpar afherðum sér feðraohi Ljósvetningur Ljósheri nýrra tíma. Sýslukirkjukórinn söng fyrir viðstadda.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.