Dagur - 09.08.2000, Side 20
20 - MIDVIKUDAGUR 9. ÁGV ST 2000
'Dagpvr
VÍKU R BLAÐIÐ
Nokkrir ásatrúarmenn á Norð-
urlandi komu saman við Goða-
foss að morgni kristnihátíðar
Þingeyinga og helguðu fossinn
við virðulega athöfn. A hamra-
hrúninni andspænis fossinum
var hlaðinn lítill bálköstur og
stillt upp skildi með merki
Norðurlands eystra. Eldur var
kveiktur í kestinum (með aðstoð
grillolíu) og síðan ávarpaði Val-
geir Sigurðsson goðin Frey,
Njörð og Óðin og helgaði Goða-
foss og allt fljótið frá upptökum
til óss. Valgeir sagði m.a.: „I
virðingarskyni við ginnheilög
goð, helgar vættir, Þorgeir Ljós-
vetningagoða og aðra áa vora,
sem fórnuðu til landsins, svo
lengi sem þeir máttu, fórna ég
Freyslíkneski til fossins til að
innsigla órofa tengsl manns og
náttúru".
Að svo mæltu kastaði Valgeir
litlum Frey í fossinn. Og tók
fram síðar að goðið hefði verið
úr gipsi og uppleysanlegt í vatn-
inu og því harla náttúruvænt.
Valgeir hét síðan griðum og sátt-
um landvættum öllum, álfum,
dísum og máttkum vörðum. Og
sagði svo: „Skulu menn ekki
níða trú forfeðra vorra, sem fólst
í umburðarlyndi, drenglyndi og
síðast en ekki síst því að un-
gangast landið af virðingu og
spilla eigi landkostum né valda
skaða..“ Að lokum lýsti hann
ævarandi staðarhelgi og sagði:
„Veri goðin holl þeim er halda
en gröm þeim er ijúfa“.
Að þessari athöfn lokinni var
borinn fram mjöðurinn Egils-
pilsner í dósum og hellt á
drykkjarhorn og viðstaddir
drukku full Freys. - JS
Mærudagar fyiir alla
Um næstkomaiidi
helgi, þ.e. 10-13
ágúst verða haldnir á
Húsavík hinir árlegu
Mærudagar, fjöl-
skylduhátíð með
heimatilbúuum,
frumlegum skemmti-
atriðum og uppákom-
um fyrir muini og
maga, sál og likama.
Óveujumikið er lagt í
Mærudaga að þessu
sinni í tilefni af 50
ára kaupstaðarafmæli
Húsavikur.
MÆRUDAGAR voru fyrst
haldnir á Húsavík fyrir 6 árum
og voru þá hugsaðir sem nokk-
urs konar uppskeruhátið á fé-
lagsstarfi vetrarins á Húsavík og
í nágrenni. Þá stóð dagskráin frá
kvöldi sfðasta vetrardags og fram
á sunnudaginn þar á eftir og
samanstóð af myndlistarsýning-
um, tónleikum, leiksýningum,
safnarasýningum, ljósmyndasýn-
ingum og fleiru.
Arið 1996 var ákveðið að
breyta MÆRUDÖGUM í sum-
arhátíð og gefa fleirum kost á að
taka þátt í þeim. Nú eru
MÆRUDAGAR orðnir fjöl-
skylduhátíð með „karnival“ svip
og eru haldnir á bryggjusvæðinu
á Húsavfk, þar sem bjarta bæjar-
ins slær.
Mærudagar hefjast annað
kvöld, fimmtudaginn 10. ágúst,
ld. 20.00 þegar bæjarstjóri setur
hátíðina. Afmælisrauðvín Húsa-
víkur verður kynnt í samkomu-
tjaldinu og síðan hefst þar spila-
kvöld þar sem bridge, skák og
fleira verður iðkað og að sjálf-
sögðu spilaskipti spilasafnara.
Hagyrðingar í Kveðanda standa
fyrir vísnakvöldi frá 21-22 í
Hvalasafninu og í Uggahúsi
verður spákona, veitingar og
sölubás.
Á föstudagskvöld verður margt
til skemmtunar. Sameiginlegt
hlaðborð verður í tjaldinu þar
sem gestir koma sjálfir með mat
og snæða saman. Kleinumeistari
Húsavfkur verður krýndur og
fram fer smurbrauðstertukeppni
og uppboð á þeim. Hattakeppni
verður háð í umsjón Hattafélags
Húsavíkur og Túlípanarnir Siggi
Illuga og Oddur Bjarni kynna
nýja diskinn. Kl.23.00 er svo
fj'öruganga og varðeldur og
fjöldasöngur með undirspili
harmónikku og gítars.
Laugardagurinn er svo fjöl-
skyldu- og markaðsdagur. Þá fer
m.a. fram dorgveiðikeppni á
bryggjunni, Botnsvatnshlaup í
umsjón Skokka og sandkastala-
keppni í suðurfjöru. Ennfremur
hrútasýning og gæludýrasýning
Allir sem eiga flugdreka koma
og fljúga þeim og setja þannig
svip á daginn. Kajakar verða til
leigu í Húsavíkurhöfn. Gúmmí-
bátaferðir verða á vegum Björg-
unarsveitarinnar Garðars og
fram fer slökkviliðssprell, þ.e.
vatnsfótboltaslagur á Suður-
garði.
Jeppasýning, 4x4 klúbburinn
sýnir gersemar og tröll. Hott
hott á hesti á gæðingum frá
Saltvík. Afmælisskotmót Skotfé-
lags Húsavíkur fer fram í Fjalls-
hólum.
Bryggjuball hefst kl. 20.30 þar
sem Færibandið heldur uppi
stanslausu fjöri og á miðnætti
verður flugeldasýning Kiwanis-
klúbbsins Skjálfanda.
A sunnudag verður hin árlega
Söguganga á vegum Safnahúss-
ins og að þessu sinni verður
gengið um Stangarbakka undir
leiðsögn Sigurjóns Jóhannesson,
en gangan hefst kl. 10.30. Um
kvöldið verður svo jassað á
Bauknum og þar kemur fram
Robin Nolan jazz band. Vonast er
til þess að sem flestir bæjarbúar
og ekki síður gestir Húsavíkur líti
inn á Mærudögum, þar verður
eitthvað við allra hæfi. - JS
Með ölliun
mjalla
Siðanefnd presta taldi að
Sigurbjörn erkibiskup hefði
talað full ógætilega um þá er
gagnrýndu kristnitökuhátíð
á Þingvöllum í sumar.
Hjálmar Jónsson óttast hins
vegar að siðanefndin „sé
ekki með öllum mjalla'1.
Þetta er kannski ekki alveg
svona slæmt, að mati hk.
sem kveður:
Einhverjir verða um yondu
málin aðfjalla,
og vonandi finna þeir hvað
er satt og rétt.
Siðanefitd presta er eflaust
með öllum mjalla,
eftir því sem tíðkast í hennar
stétt.
Veðurguðir og
g°ö
Eindæma veðurblíða var í
Þingeyjarsýslu á kristnihá-
tíðinni um síðustu helgi, en
veðurspámenn höfðu gert
ráð fyrir hugsanlegum skúr-
um á svæðinu þennan dag.
Pétur Þórarinsson prófastur
vék að veðrinu í ræðu sinni
á hátíðinni og sagði ljóst að
veðrið sýndi það augljóslega
að þessi hátíð væri guði
þóknanleg. Og kom svo sem
ekki á óvart þar sem hátíðin
var haldin guði til dýrðar.
En það voru fleiri sem
töldu sig eiga heiðurinn af
þessu veðri. Ásatrúarmenn
komu saman við Goðafoss
fyrr um daginn og höfðu þá
á orði að þeir hefðu haft
goðin með í ráðum og beðið
þau um blíðviðri og þau
brugðist vel við þeirri frómu
ósk.
Sjálfsagt er að benda bæði
kristnum og heiðnum á að
áratugum saman hafa allar
stórhátíðir í Þingeyjarþingi
verið haldnar í eindæma
blíðviðri, hvurjum svo sem
þakka ber.
Gregorísk
spellvirki!
Þegar ásatrúarmenn voru í
miðri athöfn sinni og Valgeir
Sigurðsson var að ávarpa
Óðinn, Frey og Njörð, upp-
hófu skyndilega skammt frá
munkar messusöng mikinn
sem glumdi um svæðið og
nánast yfirgnæfði fossniðinn
og ákallið Valgeirs. Viðstadd-
ir sperrtu eyrun og ályktuðu
sumir sem svo að þarna
væru kaþólikkar að reyna að
spilla hinni heiðnu athöfn
með gregoríönsku háreisti.
Svo reyndist þó ekki vera,
heldur voru þarna kristnir
magnaraverðir að prufa
græjur sínar þannig að allt
yrði nú í Iagi með hljóðkerf-
ið á kristnihátíðinni síðar
um daginn.
Valgeir Sigurðsson ákallar goðin við Goðafoss.
Griðum heitið
ogsáttum