Dagur - 17.08.2000, Side 14

Dagur - 17.08.2000, Side 14
14- FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 Dwptr Konumar sem keyptu hús „Það er tímabært að btása í lúðra og fagna því hve vel hefur til tekist, þar sem húsin blasa við, falleg og endurupp- gerð, “ segir Helga Thorberg leikkona og blómasali og á þar við Hlaðvarpahúsin þrjú. mynd: teitur Hlaðvarpinn er 15 ára um þessar mund- ir. Helga Thorberg leikkona varformaður hans árum saman og kann frá mörgu að segja úrsögu þessarar menningarmiðstöðvar kvenna, svo sem fyndnumfjáröflunar- leiðum og sérstæðum hlutabréfaviðskipt- um. „Það þótti ekki sérlega skyn- samlegur fjárfestingarkostur fyrir 15 árum að kaupa þessa Ijótu hjalla hér í Grjótaþorpinu, sem stóð til að fara að rífa en þó voru konur sem slógust í hóp- inn bara vegna friðunar-og vern^unarsjónarmiða," segir Helga. Þarna á hún við húsin þrjú sem tæplega 3000 konur sameinuðust um að kaupa und- ir merkjum Hlaðvarpans, á níu og hálfa milljón árið 1985 en eru metin nú á um 90 milljónir. Þetta eru Vesturgata 3, bakhús- ið sem Kaffileikhúsið er í og endinn á Geysishúsinu sem hef- ur nú verið gerður að veitinga- húsi, alls um 1100 fermetrar. Helgu finnst hafa verið hljótt um þessa miklu eign íslenskra kvenna en segir að nú eigi að halda upp á afmælið á laugar- daginn. „Það er tímabært að blása í lúðra og fagna því hve vel hefur til tekist, þar sem hús- in blasa við, falleg og endurupp- gerð,“ segir hún. „Eg held að allir sjái það í dag að þetta var ekki slæm fjárfesting." Attu ekki fyrir stimpilgj öldiun Til að fjármagna kaupin á sínum tíma var stofnað hlutafélag í eigu kvenna og enn eru nokkur bréf föl. „Við valhoppuðum inní þetta hlutafélagaform án þess að vita mikið hvað það þýddi þá,“ segir Helga og bætir við að enn séu ósótt bréf sem konur skráðu sig fyrir i byrjun. „Við áttum nefni- lega ekki fyrir öllum stimpilgjöld- unum strax og þurftum að senda þessi 9.500 bréf í þinglýsingu í smá skömmtum!" En hvers vegna skyldu konur hafa ráðist í þessi kaup? „Við vorum nokkuð stór hópur sem fannst vanta félags- og menningarmiðstöð í eigu kvenna. Við hugsuðum okkur „framhúsið" við Vesturgötuna sem mjólkurkú, til útleigu og þar hefur Anna Ringsted lengst af rekið fornverslunina Fríðu frænku. Helga upplýsir að þótt einung- is konur hafi mátt eiga bréf í Hlaðvarpanum ehf. hafi einn úr- ræðagóður herramaður komist yfir heila seríu. „Við vorum með listmarkað í nokkur ár, tókum muni í umboðssölu og seldum þar Iíka bæði kaffi og áfengi. A Þorláksmessu kom inn herra ásamt tveimur konum. Þær fengu sér hressingu, dauðþreytt- ar eftir búðarrápið en karlmaður- inn hafði mikinn áhuga á bréfun- um og reyndi að smita konu sína af honum, án árangurs. Svo hann ákvað að kaupa seríuna handa móður sinni úr því að eig- inkonan hafði engan áhuga á eiga bréfin. Hlutabréfasalan fór fram eftir settum reglum en milli jóla og nýárs hringdi starfsmaður Hlaðvarpans í mig og sagði: „Helga, ég er að skrá bréf á konu sem er látin fyrir mörgum árum.“ Þá hafði karl snúið svona á okk- ur en mér fannst þetta nú ansi gott hjá honum." Fjukandi fiskflök og franskt vin Hlaðvarpinn reyndi að afla fjár til starfsemi sinnar með ýmsu móti. Hélt m.a. fiskmarkað í portinu þar sem harmónikuspilari átti að auka söluna en lítið græddist því illviðri skall á og allt lauslegt fauk. „Við vorum að tína upp fiskinn um allt port,“ rifjar Helga upp. „Svo má næstum segja að við höfum fengist við sprúttsölu," segir hún, „því við fluttum inn sérmerkt Hlaðvarpavín fyrir hlut- hafa.“ Aðpurð um hvort eigin- maður hennar Sigmar B. Hauks- son hafi veitt sérlega ráðgjöf við val á vínum svarar hún hlæjandi: „Við vissum að minnsta kosti hvert skyldi leita til að fá ráðlegg- ingar.“ Fjölmargir menningarviðburðir hafa átt sér stað í Hlaðvarpahús- unum. Fyrsti formaður félagsins, Helga Backman byrjaði þar með Kjallaraleikhúsið og setti upp Reykjavíkursögur Astu og Hlað- varpinn hefur Iengi rekið Kaffi- Ieikhúsið. Auk þess hafa ýmis kvennasamtök nýtt sér aðstöð- una, til dæmis eru Stígamót og Vera með aðstöðu í húsunum núna og Kvennaathvarfið og- Kvennaráðgjöfin höfðu þar skrif- stofu um tíma. Helga aftekur að Albert Guð- mundsson hafi veitt Hlaðvarpan- um styrk á þeirri forsendu að þar yrði kvennaathvarf. „Albert vissi alveg hvað hann var að gera þeg- ar hann sem fjármálaráðherra veitti okkur aukafjárveitingu. Þótt margar fjárveitingar hafi far- ið hljóðlega gegn um þingið þá var staldrað við þessa og Albert hélt einhverja kvennapólitískustu ræðu sem haldin hefur verið á al- þingi íslendinga þegar hann varði þessa gjörð sína. Við höfum rætt um að búa til sérstakt AT bertshol, honum til heiðurs, því konur áttu ekki marga málsvara á þingi á þessum tfma og það mun- aði mikið um mann eins og Al- bert.“ Helga ætlar að rifja upp sögu Hlaðvarpans í afmælisteitinu á Iaugardag og hvctur konur ein- dregið til að mæta, sækja bréfin sín í Ieiðinni og kannski kaupa ný. GUN. PUNTO ÖRYGGISVIÐURKENNING ÁRIÐ 2000 Fiat Punto hlaut fjórar stjörnur af fjórum mögulegum í árekstraprófun "Euro NCAP" árið 2000. Fjórir öryggispúðar, ABS hemlakerfi, fimm hnakkapúðar, fimm þriggja punkta belti, rafstýrðir bílbeltastrekkjarar, krumpusvæði framan og aftan, bjálkar í hurðum, eldvarnarkerfi á bensínlögn, fjölspegla aðlljós. Istraktor MbIlar fyrir öldurehf. 461-3000 smidsbOs ! - garðabæ - 20 ára A L L A SlMI 5 400 800 é 3 mm I wf V

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.