Dagur - 08.09.2000, Blaðsíða 2
2 - FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000
D*Xf*r
FRÉTTIR
Ofbeldi að aukast
miMð um allt land
íslenska þjóðin lætur hnefarétt ráða í æ fleiri tilvikum.
- [myndin er sviðsettJ
Fjölgun líkamsárása
bæði á höfuðborgar-
svæðinu og á Akur-
eyri. Vímugjafar oft-
ast með í för. Tengsl
milli aðila í meiri-
hluta verknaða.
Ovenjumörg alvarleg ofbeldis-
mál hafa orðið á höfuðborgar-
svæðinu undanfarið. I fyrrinótt
réðust þrír ungiingspiltar á
mann á miðjum aldri, þar sem
hann var á gangi á Rauðarárstíg í
Reykjavík. Maðurinn rotaðist við
fall í götuna og rændu ungling-
arnir af honum 7.000 krónum
en maðurinn slapp við alvarleg
meiðsli. Nokkrum dögum áður
réðust drengir á hjólabrettum á
mann í Kópavogi sem var af
asísku bergi brotinn og börðu
hann með brettunum. Um síð-
ustu helgi komu upp a.m.k. tvö
alvarleg ofbeldismál sem hefðu
getað haft enn meiri afleiðingar.
I öðru tilvikinu var manni sem
hélt á ungabarni hrint í Reykja-
víkurtjörn en í hinu notaði karl-
maður kúbein sem vopn á konu.
„Það virðist því miður sem of-
beldisbrotum sé að fjölga,“ segir
Sigurbjörn Víðir Eggertsson,
deildarstjóri hjá Iögreglunni í
Reykjavík. Hann segir að lang-
tíðast sé að ölvun eða annarlegt
ástand vegna annarra vímugjafa
tengist ofbeldinu. Nýir gerendur
bætist í hópinn en í mörgum til-
vikum sé um sama fólkið að
ræða aftur og aftur.
Uggvænleg þróun
Sigurbjörn Víðir segir að flest of-
beldisverk eigi sér stað í mið-
borginni og nágrenni og yfirleitt
á kvöldin eða að næturlagi. „Það
er að sjálfsögðu ástæða til að
staldra við og hafa áhyggjur af
þessu ástandi."
Karl Steinar Valsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, vill
ekki ganga svo Iangt að segja að
hættulegra sé að spígspora um
götur Reykjavíkur nú en áður.
„Eg held að ekki sé mikil fjölgun
á þeim málum sem almennir
borgarar verða fyrir árásum. I
langflestum tilvikum eru tengsl
milli aðila.“ Hann segir erfitt að
fullyrða um hvort eiturlyf komi
nú oftar við sögu en tíðkast hefur.
56 mál á Akureyri
A Akureyri hefur einnig orðið
fjölgun í ofbeldismálum sam-
kvæmt upplýsingum frá Daníel
Snorrasyni IögreglufuIItrúa. Nú
þegar tæpur þriðjungur ársins er
eftir hafa komið upp 56 líkams-
árásir en allt árið í fyrra urðu
sambærileg mál 66 talsins. 1
grófum dráttum má skipta slík-
um málum upp í tvo flokka,
þ.e.a.s. meirháttar mál og minni-
háttar. Meiriháttar teljast bein-
brot eða alvarlegra og telur Dan-
íel að slík mál séu um 10% af
heildarfjölda þessa árs, eða 5-6
talsins. — BÞ
Bryndís Hlöðversdóttir.
Rasismi
í vexti
Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað-
ur Samlylkingarinnar, segir á vef-
slóð flokksins að augljóslega hafí
kynþáttafordómar færst í vöxt hér
á landi á síðustu árum.
,Á Islandi hefur Félag íslenskra
þjóðernissinna að mestu haldið
uppi merld þess málstaðar að ís-
land sé fyrir Islendinga, en að auki
hefur svipaðra sjónarmiða orðið
vart hjá ungliðum Sjálfstæðis-
flokksins og er þar skemmst að
minnast ályktunar frá Sjálfstæðis-
félaginu Verði á Akureyri sem olli
miklu fjaðrafoki á sínum tíma,“
segir Bryndís.
Bryndís rnælir með því að
banna starfsemi „öfgasinnaðra
flokka sem ala á kynþáttafordóm-
um. Röksemdin fyrir þeirri þreng-
ingu á félagafrelsinu sem slíkt
bann hefði í för með sér er sú að
starfsemi slíkra hópa ógnar öryggi,
friði og mannréttindum annarra
hópa í samfélaginu, auk þess sem
sagan sýnir að þeir ógna lýðræð-
inu sjálfu. — FÞG
Vilja nýtt launa-
kem hjá bænum
Brýnt er að leiðrétta launamun kynjanna hjá Akureyrarbæ sem annars
staðar.
LykiUtnn að réttlátri
lausn er að sama
starfsmatskerfi verði
notað til að ákvarða
laun allra starfs-
manna Akureyrarbæj-
ar að mati starfshóps.
Bæjarráð Akureyrar tekur undir
tillögur starfshóps um að þörf sé
á úrbótum í Iaunakerfí bæjarins.
I gær var lögð fram greinargerð
starfshóps sem fjailað hefur um
launamismun kynjanna hjá Ak-
ureyrarbæ. Bæjarráð felur for-
manni ráðsins, Ásgeir Magnús-
syni, að koma sjónarmiðum bæj-
arins á framfæri við Launanefnd
sveitarfélaga.
I febrúar tilnefndi bæjarstjórn
Akureyrar tvo bæjarfulltrúa, Sig-
urð J. Sigurðsson og Úlfhildi
Rögnvaldsdóttur til að starfa
með Sigrúnu Stefánsdóttur, for-
manni jafnréttisnefndar. Verk-
efni hópsins var að fara yfir
skýrslu Félagsvísindastofunar
um launamun kynjanna hjá Ak-
ureyrarbæ og Ieita skýringa á þvf
hvers vegna konur hjá bænum
hafa mun lægri laun en karlar.
Vinna starfshópsins hefur leitt
í ljós að mjög fáar konur fylla
þann flokk embættismanna sem
hæst sitja í Iaunapýramídanum.
Starfshópurinn telur samkeppni
um vinnuafl við frjálsan vinnu-
markað vera tilviljunarkennda og
þannig hafa stéttir innan um-
önnunargeirans sem að megin-
hluta séu skipaðar konum, Iitla
eða enga samkeppni á vinnu-
markaðnum. Þessar stéttir men-
nti sig nær eingöngu til starfa
fýrir ríki og sveitarfélög.
Persónubiuidið?
Akureyrarbær fól Launanefnd
sveitarfélaga fullnaðarumboð til
kjarasamningagerðar fyrir sína
hönd í júlí sl. og hefur bærinn
skuldbundið sig til að hlíta sam-
þykktum Launanefndar í öllum
atriðum. Vegna þessa segir
starfshópurinn: „Þrátt fyrir þessa
ákvörðun bæjarstjórnar vill
starfshópurinn mælast til þess
að fyrir næstu kjarasamninga
beili bæjarstjórn Akureyrar sér
fyrir því við Launanefnd sveitar-
félaga að við gerð nýs launa-
myndunarkerfis/starfsmatskerfis
verði sérstaklega tekið tillit til
starfsmanna sem skipa mikil-
vægar stöður í kerfinu s.s. skrif-
stofu- og umönnunarstörf en
konur sinna nær eingöngu þess-
um störfum. Lykillinn að rétt-
látri lausn er að sama starfsmats-
kerfi verði notað til að ákvarða
laun allra starfsmanna bæjarins.
...Náist þau markmið ekki í nýju
launamyndunarkerfi að jafna
Iaun karla og kvenna og breyta
þeiri stöðu sem nú er, verður
ekki annað séð en taka verði upp
persónubundna ráðningarsamn-
inga til að ná fram markmiðum
bæjarstjórnar."
Ennfremur leggur starfshóp-
urinn til að ákvörðuð verði heild-
arlaun í hverjum launaflokki en
ekki greidd föst yfirvinna. Tíma-
mæling segi til um yfirvinnu og
mæling gildi einnig um öku-
tækjastyrk í stað staðlaðrar upp-
hæðar. — bþ
Viðskiptavökuin fjölgar
Viðskiptavökum með húsbréf og húsnæðisbréf íbúðalánasjóðs á eftir-
markaði hefur nú fjölgað úr tveimur í fimm. Viðsldptavakar eru nú
Búnaðarbanki íslands hf., Landsbanki íslands hf., íslandsbanki FBA
hf, Kaupþing hf. og Sparisjóðabanki íslands hf.
Með fjölguninni er tryggður eftirmarkaður með húsbréf og hús-
naeðisbréf fyrir allt að 9 milljarða á dag í stað 3,6 milljarða.
Ibúðalánasjóður ásamt fyrrgreindum aðiljum undirrituðu viðauka
við gildandi samning um viðskiptavakt með húsbréf og húsnæðisbréf
6. september 2000 og staðfesti stjórn íbúðalánasjóðs samkomulagið
á fundi sínum í gær, 7. september 2000. Viðaukasamningurinn tek-
ur gildi mánudaginn 11. september 2000.
Ibúðalánasjóður gerði samning við Búnaðarbanka Islands hf. og
Landsbanka íslands hf. um viðskiptavakt þann 4. júlí 2000 í kjölfar
útboðs. íslandsbanki FBA hf, Kaupþing hf. og Sparisjóðabanki ís-
lands hf. ganga nú inn í fyrri samning.
Ríkið eigi ljósleiðaraim
Mikill meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði í kosningu á Stjórnmála-
vef Vísis.is er fýlgjandi því að dreifikerfi Landssímans verði áfram í
eigu ríkisins. Niðurstaðan varð sú að já sögðu 69,8 af hundraði en nei
30,2 prósent.
Eins og komið hefur fram í Degi er þetta mál það sem allt strand-
ar á milli stjórnarflokkanna hvað varðar sölu Landssímans. Fram-
sóknarmenn vilja ekki selja Ijósleiðarann með Landssímanum en það
vilja sjálfstæðismenn gera. - s.dór
lngibjörg S. skólameistari
Björn Bjarnason menntamálaráðherra hefur skipað Ingibjörgu S.
Guðmundsdóttur í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík
til fimm ára frá 1. nóvember 2000 að telja. Þrjár umsóknir bárust um
embættið sem sendar voru skólanefnd Kvennaskólans í Reykjavík til
umsagnar og tillögugerðar skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla
nr. 80/1996. Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráð-
herra einróma með því að Ingibjörgu yrði veitt embættið.
Ástin á Ráðhústorgi
Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað Þórhalli Arnórssyni að starfrækja
nýtt veitingahús við Ráðhústorg 9 á Akureyri. Staðurinn hefur hlotið
nafnið Café Amour en eins og margir vita þýðir amour ást á frönsku
eftir guðinum með örvarnar.