Dagur - 08.09.2000, Síða 11

Dagur - 08.09.2000, Síða 11
Ttyfu- FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR L. J Starfsmenn S.Þ. flýja frá A -Tímor Hjálparstarfsmenn koma til landamæra A- og V-Tímor. Vígasveitir á Austur- Tímor varpa skugga á leiðtogafuud S.Þ. í New York. Tugir erlendra og indónesískra hjálparstarfsmanna á vegum Sameinuðu þjóðanna flúðu frá Vestur-Tímor í gær, degi eftir að vígsveitir andsnúnar sjálfstæði eyjarhelmingsins myrtu sex manns í bænum Atambua á Austur-Tímor. Indónesíustjórn sendi jafnframt í gær 500 her- menn og 100 lögreglumenn yfir landamærin til Vestur-Tímors, þar sem Sameinuðu þjóðirnar fara nú með umsjón friðargæslu. Hjálparstarfsmennirnir, sem flúðu frá Austur-Tímor í gær, héldu ýmist til Bali eða til landamæranna milli Austur- og Vestur-Tímors. Þeir sem fóru til landamæranna héldu síðar í gær til Dili, höfuðborgar Austur- Tímors. Atburðirnir vörpuðu skugga á þúsaldarfund leiðtoga Samein- uðu þjóðanna í New York. Abd- urrah Wahid, forseti Indónesíu, sem staddur er í NewYork, sagði í gær að morðin hefðu verið framin meðan hann væri fjarver- andi til þess að koma honum í vanda. Drápin á miðvikudag eru þau alvarlegustu frá því Sameinuðu þjóðirnar tóku við eftirliti á Aust- ur-Tímor. Því hefur oft verið haldið fram að vígasveitirnar njóti stuðnings afla innan Indónesfuhers, sem eru and- snúnar sjálfstæði Austur-Tímors og lýðræðisumbótum Wahids. Svo virðist sem æðið sem rann á vígasveitirnar í Atambua á mið- vikudag megi rekja til þess að einn af leiðtogum þeirra var myrtur Líta enn á Nato sem ógnirn Rússar gætu því að- eins sætt sig við inn- göugu Eystrasalts- ríkjanna í Atlants- hafsbandalagið, að bandalagið breytist fyrst, segir Aleksei G. Arbatov, varaformað- ur vamarmálanefnd- ar Dumunnar. Athyglisverð orðaskipti urðu á miðvikudag á ráðstefnu Atlants- hafsbandalagsins í Reykjavík um afstöðu Rússlands til Eystra- saltsríkjanna þriggja og inn- göngu þeirra í Nató. Að loknum fróðlegum fyrir- lestri, sem Aleksei G. Arbatov, varaformaður varnarmálanefnd- ar rússneska þjóðþingsins hélt urn utanríkismálastefnu Rúss- lands kvaddi sér hljóðs sendi- herra Litáens hjá Nató og spurði um afstöðu rússneskra stjórn- valda til Eystrasaltsríkjanna og inngöngu þeirra í Nató. Arbatov ftrekaði í svari sínu þá afstöðu Rússa að þeir litu ekki á Eystrasaltsríkin sem neina ógn- un við Rússland. Hins vegar myndu þeir líta á það sem alvar- lega ógnun við sig ef Eystrasalts- ríkin gangi í Nató. Jafnframt tók hann fram að Vladimír Pútín forseti Rússlands myndi væntan- lega ekki bregðast við inngöngu Eystrasaltsríkjanna í Nató með sama hætti og Boris Jeltsín gerði iðulega eftir að hafa verið stór- yrtur í garð Vesturlanda, nefni- Iega að láta sem ekkert sé eftir að atburðirnir væru orðnir að veruleika. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Nató kvaddi sér þá hljóðs og sagði þetta svar Arbatovs sýna skýrt að Rússar líti þróun heims- málanna oft ekki sömu augum og Vesturlönd. Rússar séu greinilega að berja höfðinu við steininn hvað varðar Eystrasalts- ríkin, því sú þróun sé óhjá- kvæmileg að þau gangi í Nató þegar fram Iíða stundir. Arbatov svaraði þessu á þann veg, að á meðan Rússar hafi minnsta tilefni til þess að líta á Nató sem ógnun geti þeir engan veginn sætt sig við að Eystra- saltsríkin verði hluti af Nató. Fyrst þurfi Nató að breytast með þeim hætti að Rússar geti litið á Natóríkin sem raunverulega og ótvíræða bandamenn sína og samstarfsaðila, en fari svo megi vænta þess að Rússar sjái enga ástæðu til þess að gera athuga- semdir við það þótt Eystrasalts- ríkin gangi í Nató. -GB Úvíst er að framleiðsla á olíu aukist á næstunni. Óvissa um lækkun olíuverðs Verð á olíu hefur ekki verið hærra í tíu ár. Hráolíuverðið fór í ríflega 35 Banda- ríkjadali tunnan á mörkuðum í gær og hefur ekki verið hærra síðan írak réðst inn í Kúveit árið 1990. Ráðherrar sam- taka olíuútflutningsríkja, OPEC, koma saman til fundar um helgina til að ræða aðgerðir til að lækka verðið. Fyrir liggur óformlegt samkomulag þeirra um að auka oh'uframleiðslu um 500 þúsund tunnur á dag ef verðið haldist hærra en 28 Bandaríkjadalir í samfleytt 20 virka daga. Sum ríkjanna, svo sem íran, eru engu að sfður treg til að stíga það skref. Hins vegar bárust þær fréttir í gær að sendimenn Sádi-Arabíu hafa ítrekað við banda- rísk stjórnvöld þann ásetning sinn að knýja fram aukna framleiðslu þar til verðið farið niður í 25 Bandaríkjadali fyrir tunnuna. Evrópu- sambandið hefur hvatt OPEC til að koma verðinu niður í 20 dali, enda sé núverandi olfuverð ógnun við hagvöxt í heiminum. Karadzic á bar í Sarajevo Radovan Karadzic, sem er eftirlýstur fyrir stríðs- glæpi sem hann framdi á meðan hann var leiðtogi Bosníu-Serba, sást um helgina á bar í hverfi Serba í borginni Sarajevo. Frá þessu var skýrt í dagblaði þar í borg. Hann fer huldu höfði í þeim tilgangi að sleppa við að svara til saka fyrir stríðsglæpadóm- stólnum í Haag, en hann hefur í tvígang verið ákærður fyrir að bera ábyrgð á morðum þúsunda Karadzic: fer enn múslima í borginni Srebrenica árið 1995. huldu höfði. Ber enginn ábyrgð á Þúsald- arhvelBngunni? Fram hafa komið í enskum Ijölmiðlum háværar kröfur um að breskir stjórnmálamenn axli ábyrgð vegna Þúsaldarhvelfingarinnar svokölluðu í London, en hún hefur kostað skattborgaranna gífurlegar Ijárhæöir og fengið mun minni aðsókn almennings en reiknað var með. Sérstaklega eru nefnd nöfn þeirra núverandi og fyrrverandi ráðherra sem mest hafa komið við sögu þessa mannvirkis, en þeir eru Michael Heseltine, sem tilheyrir Ihaldsflokknum, Peter Mandelson, núverandi Irlandsmálaráð- herra, og svo auðvitað Tony Blair forsætisráðherra. Skítugir peningar Bankar í Bretlandi, Bandaríkjunum og Sviss höfðu Iítið sem ekkert eftirlit með þvf hvort þeir miklu fjármunir sem streymdu til þeirra frá Nígeríu á síðasta áratug væru „skítugir“ peningar glæpalýðs. Frá þessu er skýrt í breska blaðinu Guardian, en þar kemur fram að Sani Abacha, fyrrum forsætisráðherra, og kumpánar hans hafi stolið jafn- virði um 500 milljarða íslenskra króna í valdatíð sinni og komið pen- ingunum úr landi. Rannsókn svissneska bankaeftirlitsins Ieiðir í Ijós að umtalsverður hluti þessara illa fengnu peninga fóru gegnum banka í Bretlandi. Ofnæmi gegn tölvnkubbum Joan Stock, sem er 79 og býr með manni sínum í Bretlandi, hefur greinst með óvenjulegt ofnæmi; hún þolir ekki að nálgast tölvukub- ba. Joan fær ofsafenginn höfuðverk í hvert sinn sem hún kemur ná- lægt tölvu eða tölvustýrðum raftækjum. Þau hjónin verða því að not- ast við gamalt svarthvítt sjónvarpstæki á heimilinu, laka um í göml- um bíl og kaupa einungis inn í verslunum sem hafa gamaldags pen- ingakassa þar sem tölvur koma hvergi nærri. ■ FRÁ DEGI TIL DAGS FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 252. dagur eftir, 114 dagar eftir. Sólris kl. 6.31, sólarlag kl. 20.18. Þau fæddust 8. september • 1767 August Wilhelm von Schlegel, þýskur fræðimaður og gangrýnandi. • 1783 N.F.S. Grundtvig, danskur biskup og sálmaskáld. •1841 Antonin Dvorák, tónskáld frá Bæ- heimi. • 1897 Jimmie Rodgers, bandarískur sveitasöngvari. • 1932 Patsy Cline, bandarísk sveitasöng- kona. • 1944 Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi. • 1947 Halldór Ásgrímsson ráðherra. • 1958 Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræð- ingur. • 1960 David Steele, popptónlistarmaður (í Fine Young Cannibals). Þetta geróist 8. september • 1664 náðu Bretar borginni Nýju Amster- dam í Norður-Ameríku á vald sitt af Hol- lendingum, en Bretar breyttu nafni borg- arinnar í Nýju Jórvík (New York). • 1898 var Ölfusárbrú vígð. • 1930 birtist teiknimyndapersónan Ljóska (Blondie) fyrst á prenti. • 1931 var hámarkshraði í þéttbýli á Islandi hækkaður úr 18 km í 25 km, en annars staðar var hann hækkaður úr 40 í 45 km. •1951 undirrituðu 48 ríki friðarsamning við Japani í Bandaríkjunum. • 1974 veitti Gerald Ford Bandaríkjafor- seti forvera sínum í embætti, Richard Nixon, skilyrðislausa náðun vegna Wa- tergatemálsins. • 1975 kom Dagblaðið út í fyrsta sinn. Vísa dagsins Sat ég á súð og elti ég húð oft í votu veðri, rahaði rú af rauðri luí með rauðu, loðnu leðri. Gömul vísa eftir óþekktan höfund. Afmælisbam dagsins Karl Jóhann Sighvatsson hljómlistar- maður hefði orðið fimmtugur í dag, en hann lést af slysförum 2. júní árið 1991. Karl var þekktur sem hljóm- borðsleikari og lagahöfundur í fjöl- mörguni hljómsveitum, þar á meðal Flowers, Trúbroti og Þursaflokknum. Hann vann einnig sem meðleikari og útsetjari á ýmsum hljómplötum og \ið sviðsuppfærslur í leikhúsum. Karl stundaði jafnframt reglulega nám í tónlist og tónsmíðum, m.a. í Vín, Salzburg og Boston. Ást er tilraun til að komast inn í aðra veru, en hún getur aðeins borið árangur ef uppgjöfin er gagnkvæm. Otavio Paz Heilabrot Stundum er ég í hvfld, en stundum cr ég á ferð. Ég hef tvo fætur, en þeir snerta jörð- ina aðeins þegar ég er í hvíld. Hvað er ég? Lausn á síðustu gátu: Utkoman er ;iúll. Einn liðurinn í jöfnunni hlýtur að vera (X- X), sem er jafnt og núll sama hvaða tölu er um að ræða, og þegar allir hinir liðirnir m-n margfaldaðir með núlli þá er útkoman eng- in önnur en núll. Veffang dagsins Um kaþólska dýrlinga og engla má fá marg- víslegan fróðleik á saints.cat- holic.org/index.shtml

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.