Dagur - 07.10.2000, Side 2

Dagur - 07.10.2000, Side 2
26 -LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 FRÉTTIR „Valtað“ yflr núpnabændur Veiðistjóri segist skilja reiði eyfirskra bænda þar sem til- kynning um friðun á rjúpu hafi borist allt of seint að hans mati. Eins og Dagur hefur greint frá hefur umhverfisráðhcrra ákveð- ið að tillögu Náttúrufræðistofn- unar að banna rjúpnaveiði við utanverðan Eyjafjörð á næstu tveimur haustum. Þetta bann vekur hörð viðbrögð heima- manna. í ár verður lokað við austanverðan fjörðinn í Grýtu- bakkahreppi frá Víkurskarði og norður í Fjörður, en næsta haust verður lokað að vestan- verðu um TröIIaskaga til Skaga- fjarðar. Rannsaka á áhrif skot- svæða á vetrarafföll rjúpa- stofnsins, en þau ráða stofn- breytingum. Töluvert tekjutap Margir bænda hafa leigt jarðir sínar rjúpnaskyttum og verða því af töluverðum tekjum. Sveinn Jónsson, ferðaþjónustu- bóndi í Kálfsskinni, sem er við vestanverðan Eyjafjörð, er einn þeirra. Hann segist vera á miðju bann- svæðinu í ár og til sín sé að koma hópur Norðmanna sem meðal annars hafi ætlað á rjúpna- skytterí. Norð- mennirnir hafi ætlað sér að koma aftur næsta ár en það gangi ekki og því muni falla út gistinætur. „Ég er fylgj- andi því að rjúpan sé rann- sökuð frekar en þetta er dýrt. Senditæki á einn fugl kostar tugi þúsunda króna. Ég er ekki viss um að rétt sé að banna skotveiðarnar heldur hefði átt að fylgjast með báðum megin fjarðar samtímis. Þeir ætla hins vegar að fylgjast með þvf hvort rjúpan leiti á þá staði sem eru friðaðir," segir Sveinn Jónsson. Kemur aftan að möunum Stefán Kristjánsson, bóndi á Grýtubakka II, sem er hinum megin fjarðarins, leigir land undir rjúpnaveiði. Hann segir ákvörðunina koma aftan að sér og líklega verði hann að sam- þykkja það að láta stjórnvöld valta yfir sig og vera hlýðinn, en þungt sé í bændum. „Það var búið að leigja nokkrum veiðimönnum í orði en ekki skriflega, svo ég sé ekki að ég eigi neinn rétt á skaða- bótum. Við höfum auk þess stundum selt veiðileyfi án þess að gefa kvittun og einnig hafa skytturnar verið að selja fugla í búðir án þess að gefa kvittanir. Sumar skytturnar hafa komið hingað árum saman, en ég verð að treysta því að vísindamenn- irnir viti hvað þeir eru að gera, þeir hafa menntunina en ekki við bændur. Það hefur verið minni veiði undanfarin ár vegna þess að sóknin hefur ver- ið minni en ekki vegna þess að rjúpnastofninn hefur farið minnkandi. Fuglinn hefur því fengið óbeina friðun,“ segir Stefán Kristjánsson. Aki Armann Jónsson veiði- stjóri segist hafa fullan skilning á urg bænda þar sem tilkynn- ingin hafi komið allt of seint, og ekki til veiðimanna og bænda eins og eðlilegt hefði talist, heldur til sveitarfélaga. - GG Skorað er á Pál Pétursson félags- málaráðherra að breyta reglum um fastelgnavlðskipti vegna hækk- andi fasteignaverðs. HeimUd óháð bruna- bótamati Skorað hefur verið á félags- málaráðherra að breyta ákvæð- um reglugerðar um húsbréf og húsbréfviðskiþti þannig að íbúðalánasjóði sé heimilt að láta til húsnæðiskaupa allt að 65-70% af kaupverði fasteign- ar, óháð brunabótamati fast- eignar. Það er stjórn Félags fasteignasala sem beinir þessu til ráðherra. Félagið segir að benda verði á að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað verulega undanfarin misseri og verðið sé í mörgum tilfellum mun hærra en bruna- bótamat eigna. Ingvar Björnsson, ökukennari á Akureyri, hefur verið ráðinn prófdómari í ökuprófum og um- ferðaröryggisfulltrúi á Norður- landi. Hlutverk hans er að hvetja til umfjöllunar um umferðarör- yggismál á svæðinu, auka sam- starf þeirra sem að þeim málum koma og auk veg umferðarmála og umferðaröryggis með sem fjölbreyttustum hætti. Sá þáttur starfs Ingvars er samstarfsverk- efni Umferðarráðs og Slysavarn- arfélagsins Landsbjargar. Sigurður Indriðason, sem hef- ur starfað að umferðaröryggis- málum í 45 ár, var kvaddur með formlegum hætti í gær á Lög- reglustöðinni á Akureyri að við- stöddum lögreglumönnum, öku- kennurum, bæjarstjóra, sýslu- manni, starfsmönnum Umferð- arráðs og fram- kvæmdastjóra Lands- bjargar. Hann var fastráðinn hjá Bif- reiðaeftirliti ríkisins I. maí 1955 og starf- aði þar þangað til Bifreiðapróf ríkisins tók við verkefnum ökuprófa af Bifreiða- eftirlitinu og síðast hjá Umferðarráði frá árinu 1992. Hann hefur leitt þúsundir ökunema í gegnum ökupróf. Umferðar- ráð færði Sigurði að gjöf Sögu Akureyrar II og III auk 10 geisladiska með harmonikkutónlist. - GG Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs, ásamt þeim Sigurði Indriðasyni og Ingvari Björnssyni, nýráðnum prófdómara í ökuprófum og umferðaröryggisfulltrúa á Norðurlandi. mynd: brink „Lansiim“ kostar sitt Landspítalanum er ætlað 17,4 milljarða króna framlag í nýju fjár- Iagafrumvarpi, þannig að rekstur þessarar einu stofriunar kostar rík- issjóð sem svarar 250 þúsund krón- um á hverja fjögurra manna fjöl- skyldu á Islandi. Þar við bætast um 1,8 milljarðar sem „Lansanum“er ætiað að afla í sértekjur. Svo alls er rekstrarkostnaður þessarar miklu heilhrigðisstofnunar því áætlaður 19,2 milljarðar að minnsta kosti á næsta ári. 150.000 kr. á mann Oðrum sjúkrahúsum á Suðvestur- Iandi og öðrum deildaskiptum spít- ölum, m.a. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, eru ætlaðir samtals 4,7 milljarðar króna og 1 5 öðrum heil- brigðisstofriunum á landsbyggðinni samtals um 3,8 milljarðar króna. Kostnaður við rekstur hjúkrunar- heimila aldraðra, SAA, Sjálfsbjarg- ar og daggjaldastofnana er áætlað- ur ríflega 8,3 milljarðar. Þar við bætast um 3,1 milljarður til um 30 heilsugæslustöðva, heilsugæslu í Reykjavík, Læknavaktar og sjúkra- flutninga. Enn eru ótaldir 2,3 millj- arðar til tækjakaupa á þessar stofn- anir og fleira. Samanlagður kostn- aður við þennan þátt heilbrigðis- kerfisins er áætlaður um 41 rnillj- arður króna, eða næstum 600 þús- und krónur, 50 þúsund kr. á mán- uði, á hverja íslenska Ijölskyldu. Hér hefur aðcins vcrið talinn um helmingur af útgjöldum hjá heil- brigðisráðherra. - hei Læknamistök 150 til 270 miHiónir kr. Gert er ráð lýrir að árlegar bótgreiðslur vegna læknamistaka geti numið 1 50 til 270 milljónum kr. eftir að nýtt hótagreiðslukerfi kemst í jafnvægi. En útgjöld ríkisins á undanförnum árum má áætla um 30 milljónir króna á ári, segir í nýju Qárlagafrumvarpi. Þar er lagt til 72 milljóna kr. framlag til þessa nýja bótaflokks sem stofnaður var með lögum um sjúklingatryggingu fyrr á þessu ári. Lögin kveða á um bótarétt þeirra sjúklinga sem „ ... verða fyrir Iíkamlegu eða geðrænu tjóni í tengslum við rannsókn og sjúkdómsmeðferð löggiltra heil- brigðisstarfsmanna á heilbrigðisstofnunum eða í sjúkraflutningi." -HEI Styrkir Smárakvartett Bæjarráð Akureyrar samþykkti í gær að kaupa geisladiska af útgef- endum Smárakvartettsins fyrir 249.000. kr. Alls kaupir bærinn 100 geisladiska. Egill Örn Arnarson falaðist eftir bæjarstyrk með bréfi til bæjar- stjóra um síðustu mánaðamót. 1 bréfinu segir að hægt sé að endur- vinna eldri hljóðritanir Smárakvartettsins, sem tók til starfa árið 1936, með betri hætti en áður. Heildarljöldi laga á diskinum verður 26 og margar „fágætar perlur" að finna svo vitnað sé í bréfið. Einnig verður gefið út sérstakt kver og stofnaður minningarsjóður í samvinnu við Tónlistarskólann á Akureyri. Hlutverk sjóðsins verður að styrkja söngnemendur. - bþ UVS ræður framkvæmdastjóra Dr. Snorri Ingimarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækn- ingasviðs líftæknifyrirtækisins Urðar, Verðandi, Skuldar ehf. Hann varði doktorsritgerö sína Studies on human leukocyte interferon in clinical use við Karolinska institutet í Stokkhólmi árið 1980 og varð dósent við sömu stofnun árið 1984. Snorri starfaði sem sérfræðing- ur í krahhameinslækningum við Landspítalann 1982-1984. Hann var forstjóri Krabbameinsfélags lslands 1984 -1 988 og sérfræðingur og yfirlæknir við Heilsuhæli N.L.F. I. 1988-1991. Snorri hefur starf- að við geðdeild Landspítalans frá 1991 og hlaut sérfræöiviðurkenn- ingu í geðlækningum á íslandi 1994 og í Svíþjóð 1995 og hefur jafn- framt rekið eigin Iækningastofu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.