Dagur - 26.10.2000, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
FRÉTTIR
SkijJiilagsleysi
gerði konu ðnjóa
Héraðsdómur telur að ófullkomið skipulag á fæðinga- og kvensjúkdómadeild
hafi valdið stórskaða og sett konu úr barneign.
Fj órðimgssjukraliúsið
á Akureyri dæmt í
héraðsdómi til greiðs-
lu skaðabóta. Örlaga-
saga konu sem fékk
ranga meðhöndlun og
er ófrjó af þeim sök-
um.
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri til að
greiða konu á fertugsaldri tæpar
3 milljónir króna í skaðabætur
auk dráttarvaxta og málskostnað-
ar. Sérfræðingur á kvensjúk-
dómadeild sem einnig var stefnt,
fékk hins vegar sýknu hjá dómin-
um.
Konan fann til kviðverkja árið
1994 og var lögð inn á fæðinga-
og kvensjúkdómadeild FSA
vegna gruns um fósturlát. Sér-
fræðingur í kvensjúkdómalækn-
ingum gerði útskrap og var kon-
an útskrifuð að tveimur dögum
liðnum samkvæmt læknisráði.
Skömmu síðar leitaði konan aft-
ur til sama sérfræðings og taldi
hann þá að konan hefði vöðva-
hnúta í legi sem væru eðlilegir.
Þrátt fyrir þetta segist konan
hafa kvartað um vanlíðan og
upplýst um viðvarandi kviðverki
og smáblæðingar en ekkert hafi
orðið af frekari rannsókn.
Utanlegsfóstur
Mánuði síðar kom í ljós að kon-
an var þunguð. Þá var fram-
kvæmd ný skröpun og konan
send heim samdægurs.
Nokkrum dögum síðar hafði
konan enn samband við lækninn
og tjáði honum að hún væri illa
haldin af vanlíðan, svimatilfinn-
ingu, kviðverkjum og blæðing-
um. Læknirinn boðaði konuna
til sín en ætlaði að sögn hennar
að senda hana aftur heim að Iok-
inni skoðun. Þá féll konan í yfir-
lið og var í kjölfarið framkvæmd
bráðaaðgerð, þar sem í ljós kom
utanlegsfóstur í hægri eggjaleið-
ara, alveg upp við leg. Eggjaleið-
arinn var fjarlægður.
Stórkostlegt gáleysi
Nokkru síðar fór að bera á verkj-
um og ýmsum vandamálum.
Konan fékk taugaáfall og ekki
batnaði líðan hennar þegar ann-
ar kvensjúkdómasérfræðingur
greindi bráða eggjaleiðarabólgu
auk þess sem samvöxtur fannst
milli ristils og afturhluta Iegsins.
Konan taldi að vegna þess hve
seint utanlegsfóstrið hefði upp-
götvast hefðu orðið mun meiri
skemmdir á æxlunarfærum
hennar en ella. Hún getur ekki
átt börn og taldi að læknirinn og
FSA hefðu sýnt af sér „stórkost-
legt gáleysi" og gerst sek um af-
drifarík mistök við sjúkdóms-
greiningu og meðhöndlun.
Full bótaábyrgd
Þessu mótmælti sjúkrahúsið og
krafðist sýknu en dómurinn
reyndist á bandi konunnar og
segir: „Er það álit dómsins, að
ófullkomið skipulag á fæðinga-
og kvensjúkdómadeild stefnda
FSA, m.a. skortur á upplýsinga-
flæði innan stofnunarinnar milli
lækna annars vegar og lækna og
sjúklings hins vegar, hafi valdið
því að ekki var gripið til viðeig-
andi ráðstafana vegna alvarlegra
veikinda stefnanda... Telur dóm-
urinn yfirgnæfandi lýkur standa
til þess, að ef brugðist hefði ver-
ið við á réttan hátt... hefði mátt
koma í veg fyrir tjón stefnanda.
Ber stefnda, FSA, því fulla bóta-
ábyrgð á tjóni stefnanda.
Dóminn kvað upp Freyr
Ófeigsson dómstjóri ásamt með-
dómsmönnunum Asgeiri Pétri
Asgeirssyni héraðsdómara, og
Karli Ólafssyni, sérfræðingi í
kvensjúkdóma- og krabbameins-
lækningum. -BÞ
Símaútboð
hugsanlegt
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir að sér
finnist vel athugandi að skoða
hvort rétt sé fyrir bæinn að leita
útboða í símaviðskipti bæjarins.
Bæjarstjórinn segir þó að engin
vinna sé hafin í þessum efnum
og málið hafi ekki verið kynnt
með neinum hætti útávið. Hins
vegar hafi orðið örar breytingar
á fjarskiptamarkaðnum á
skömmum tíma og eðlilegt sé að
bregðast við breyttum aðstæð-
um.
„Það er tiltölulega skammt
síðan að við fengum virka sam-
keppni á þessu sviði hér fyrir
norðan en mér finnst þetta
koma vel til álita. Eg minni á að
útboðsstefna bæjarins er skýr og
núna síðast höfum við nýtt okk-
ar þessa möguleika í tölvuþjón-
ustunni," segir Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri. bþ
Taliimlátiim
en birtíst óvænt
„Við hittumst öll fyrst í gær
(þriðjudag) og það hefur enn
ekkert komið til tals innan tjöl-
skyldunnar hvað hann var að
gera öll þessi ár,“ segir Isleifur
Halldórsson fyrrverandi læknir í
samtaii við Dag, en 38 ára sonur
hans, Halldór Heimir Isleifsson,
er óvænt kominn í leitirnar og til
landsins í faðm fjölskyldunnar,
eftir að hafa horfið sporlaust í
Bandarfkjunum fyrir rúmum 12
árum. Aðspurður segir Isfeifur að
sonur sinn sé að því er virðist við
góða heilsu og vel útlítandi.
Ekki fékkst í gær samtal við
Halldór Heimi, sem dvelst hjá
systur sinni í Arbæ. Hann hélt í
hagfræðinám í Texas, en eftir því
sem næst verður komist hvarf
hann sporlaust að öðru Ieyti en
því að bíll hans fannst yfirgefinn
á afskekktum stað. Var hann
fljótlcga talinn af og afskráður úr
þjóðskrá. Samkvæmt heimildum
blaðsins hafa fjölskyldumeðlimir
í tvígang haldið vestur til að bera
kennsl á lík sem svöruðu til út-
Jitslýsingar Halldórs, en reyndin
var önnur. Töldu menn líklegast
að Halldór hefði verið myrtur
eða að hann hefði gengið til Iiðs
við sértrúarsöfnuð, en alténd
hafði hann ekkert samband við
fjölskyldu sína í þessi rúmu 12
ár, þótt sprelllifandi væri.
Þegar Dagur reyndi að ná tali
af Halldóri Heimi í gær var
greint frá því að ekkert væri um
málið að segja að svo stöddu en
að von væri á fréttayfirlýsingu í
dag, fimmtudag. - FÞG
2000 íbúðir stríkaðar út
íbúðalánasjóður virðist hafa tek-
ið við aumara búi en ýmsir
mættu ætla, því eignir sjóðanna
sem hann yfir tók voru færðar
niður um 15,5 milljarða - eða
sem nemur verðmæti næstum
2.000 íbúða, væri miðað við tæp-
Iega 8 milljóna króna meðalverð,
sem er t.d. miklu fleiri íbúðir
heldur en byggðar hafa verið ár-
Iega í landinu í áratugi, eða síðan
um Vestmannaeyjagos. í annan
stað má líta á þessi útstrikuðu
2.000 íbúðaverð - sem fyrst og
fremst munu hjá Byggingarsjóði
verkamanna - í Ijósi þess að þær
samsvara hátt í fimmtungi allra
félagslegra íbúða sem sjóðurinn
Eignir færðar niður um 15,5 milljaröa.
iánaði til, sem munu nærri 1 I
þúsund.
I tilefni þess að Ibúðalánasjóð-
ur tók á síðasta ári við eignum og
skuldum og skuldbindingum
Byggingarsjóðs ríkisins, Bygging-
arsjóðs verkamanna og Hús-
bréfadeildar voru eignir þeira og
skuldir metnar af sérstakri mats-
nefnd sem skipuð var til verks-
ins. Að því mati Ioknu, m.a. nú-
virðingu á eignum sjóðanna,
komst nefndin að þeirri niður-
stöðu að lækka bæri eiginfjár-
stöðu sjóðanna í árslok 1998 um
15,5 milljarða króna. Stofnfé
hins nýja Ibúðalánasjóðs var því
ákveðið aðeins 5,5 milljarðar
króna og óráðstafað eigið fé 1,4
milljarðar, segir í endurskoðun-
arskýrslu Ríkisendurskoðunar. í
árslok 1999 er eigið fé íbúða-
lánasjóðs 7,6 milljarðar sam-
kvæmt skýrslunni. -HEl
úr eigin vasa
I úttekt sem SamfylkJngin f
Hafnarfirði lét taka saman
kemur fram að með auðveld-
um hætti megi finna lausn á
húsnæðisvandamálum Lækj-
arskóla, með nýbyggingum
og endurbótum, í stað þess
að leggja allt svæðið við
Hörðuvelli og Sólvang undir
byggingu skólamannvirkja,
eins og meirihlutinn áformar.
„Kjarni málsins er sá að við
höfum sýnt fram á að það er
til annar raunhæfur kostur
til í stöðunni varðandi ein-
setningu Lækjarskóla en sá
að fórna Hörðuvallasvæðinu. Málflutningur meirihlutans í þá veru
stenst einfaldlega ekki. Við óskuðum ítrekað eftir þvf í bæjarráði að
bærinn léti gera úttekt á möguleikunum á stækkun Lækjarskóla, en
því var alltaf hafnað og við í Samfylkingurtni ákváðum því að kosta
slíka úttekt sjálfir. Við teljum að þetta sem þarna kemur fram sé mun
hagkvæmari, ódýrari og skynsamlegri leið, auk þess sem það tryggir
að áfram sé hægt að nýta Hörðuvallasvæðið undir heilsugæslu og
öldrunarþjónustu, eins og háværar kröfur eru um,“ segir Lúðvík
Geirsson bæjarfulltrúi minnihlutans um málið. - FÞG
Samheríi kaupir nótaveiðiskip
Samherji hf. nefur gengið frá kaupum á nótaveiðiskipinu Jóni Sig-
urðssyni af EM Shipping en félagið er dótturfélag Framherja Spf. í
Færeyjum sem Samherji á hlut í. Ilið nýja skip fær einkennisstafina
GK-1 10 og verður gert út frá Grindavík. Jón Sigurðsson sem áður var
í eigu Samherja hf.(FiskimjöIs og Lýsis) var seldur til færeyska félags-
ins á haustdögum 1997. Skipið var smíðað í Noregi 1978, er með
3.300 hestafla vél og ber 860 tonn. Kaupverð skipsins er nálægt 300
milljónum íslenskra króna.
Úttekt