Dagur - 26.10.2000, Qupperneq 4
4 — FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
FRÉTTIR
Skridur er aö komast á má/efni samgöngu- og þjónustumiöstöövar við Reykiavíkurflugvöll en hún veröur trú/ega staðsett í nágrenni
Loftleiðahótelsins.
Ný flug- og bflastöð
nærríN authólsvík
Samgönguráðherra undir
býr byggingu mfldllar
samgöngu- og þjónustu-
miðstöðvar út undir Naut-
hólsvík, einkumfyrir
flug og langferðabfla.
Samgönguráðherra hefur skipað nefnd
til að undirbúa byggingu samgöngu- og
þjónustumiðstöðvar við Reykjavíkur-
flugvöll. Nefndinni er falið að fara
rækilega yfir hugsanlega notkun mið-
stöðvarinnar, þar sem ekki síst verði
kannaðir möguleikar á að þar verði
skapaðar aðstæður fyrir afgreiðslu
Iangferðabíla og þjónustu við flugið.
Nefndinni er einnig falið að gera tillög-
ur um möguleika á samstarfi ríkis og
einkaaðila við byggingu miðstöðvarinn-
ar. 1 flugáætlun er gert ráð fyrir 15
milljónum til undirbúnings þessa verk-
efnis á árunum 2000 og 2001. í
deiliskipulagi að flugvellinum er mið-
stöðinni ætlaður staður í nágrenni við
flugskýli Landhelgisgæslunnar, ekki
langt frá Loftleiðahótelinu, en þó nær
Nauðhólsvík.
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Fjölnota hús
Þetta hlýtur að vekja þá spurningu
hvort ekki sé með þessu verið að festa
endurgerðan Reykjavíkurflugvöll í
sessi til Iangrar framtíðar. „Nei, það er
ekki verið að segja að fyrst þetta hús
verði byggt þá verði flugvöllur þarna
um aldur og ævi. Nefndin fær það sem
skýrt veganesti að þetta á að vera fjöl-
nota hús, sem bæði er verið að hugsa
og hanna þannig að það geti þjónað
nýjum tilgangi ef flugvellinum verður
lokað,“ svaraði Jakob Falur Garðarsson
aðstoðarmaður samgönguráðherra.
Flugmálastjórn myndi aðeins koma til
með að leigja hluta í þessu húsi, en
aðrir eiga það. Um stærð hússins eða
hugsanlegan kostnað sagði hann enn
allt óráðið.
Einhaframkvæmd
Spurður nánar um hugsanlegt eignar-
hald svaraði Jakob Falur: „Það verður
lagt af stað með það, að þetta verði
byggt í einkaframkvæmd. Ríkið ætlar
ekki að eiga þetta hús.“ Hver sem er
geti boðist til að byggja húsið, gegn því
að Flugmálastjórn fái leigða þar að-
stöðu fyrir starfsemi sína. Flugfélögin
myndu síðan væntanlega leigja eða
kaupa sér rými og sömuleiðis BSI, auk
þess sem leigubílar og strætisvagnar
fengju þar væntanlega einnig aðstöðu,
og hver sem vera vill. Það mætti þess
vegna sjá þarna fyrir sér verslanir, veit-
ingahús ásamt ýmissi annarri þjón-
ustu fyrir ferðamenn.
Ný flugstöð forsendan
Leifur Magnússon er formaður nefnd-
arinnar og með honum Páll Olafsson
verkfræðingur, Aslaug Alfreðsdóttir
hótelstjóri, borgarfulltrúarnir Árni Þór
Sigurðsson og Júlíus Vífill Ingvarsson,
Kristján Jónsson framkv.stj. og Guð-
mundur Ólafsson stjórnsýslufræðing-
ur. I minnisblaði til nefndarinnar er
bent á að óformlegur samráðshópur
fulltrúa; ráðuneyta, flugmálastjóra og
Borgarskipulags hafi komist að þeirri
niðurstöðu „að ný flugstöð er forsenda
allrar frekari notkunar á flugvallar-
svæðinu." I dag séu starfræktar 3-4
flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli, sem
flestar ef ekki allar bjóði upp á óviðun-
andi aðstæður bæði (ýrir fyrirtæki og
farþega. - HEI
Sérstaka athygli vakti í
pottinuin að að þrfr ráð-
herrar báru til baka f Dcgi
í gær fréttir um að búið
væri aö ná sainkoniulagi í
símamálinu og að frumvarii væri í
raun tilbúið ]tó ckki væri búiö að
leggja það fram. í pottinum hafa
menn engu að síöur sniar efasemdir
um að sainkomulagið sé ckki til
staðar þrátt iyrir öll ólíkindalætin,
en á því sviði fer Sturla Böðvarsson
fremstur í flokki. í því sambandi er bent á þá áher-
slu sem ráðherrarnn lcggur á aö málið sé enn í
einkavæðingarnefnd, og ekki formlega komiö bm
á borð ráðherra. Benda menn á aö það væri með
ólíkindum ef einkavæðingarnefndarnienn væru
ekki beintengdir við ráðherrana...
Sturla
Böðvarsson.
Pottverjum þótti merkilegt and-
rúinsloftið viö setningu BSRB
þingsins í Bíóborginni í gær en aug-
ljóslega var mikill baráttuandi í for-
ustu samtakanna og raunar fleir-
uin. Hins vegar var gcstur fundarnis
sjálfur Geir Haarde og þóttust sum-
ir sjá að fjánnálaráðherrann yrði bálfráðvilltur á
svip og efins um þessa samkomu þegar lúðrasveit-
in byrjaði að leika Intemationalinn, alþjóðasöng
verkalýðsins. Emn pottverjinn sem fylgdist með
fullyrti að þetta hafi verið blanda sem augljóslega
átti ekki saman, Geir Haarde og Nallinn!..
Geir
Haarde.
í heita pottinum varð nokkur um-
ræða í gær um ummæli Jónasar
Garðarssonar, formanns Sjómamia-
félags Reykjavíkur um að áfengis-
smygl farmanna væri léttvægt. Við-
horf hans til áfengissmygls hjá far-
mönnum þykir endurspegla dálítið
stöðuna eins og hún hefur verið lengi og telja
pottverjar að fáir skipverjar fengjust hvítþvegnir
af þessari umdeildu iðju, háir sem lágir. Þannig
var m.a. staðhæft að þegar upp komst uin um
fangsinikið smygl í einu millilandaskipinu ekki
alls fyrir löngu heföu það ekki síst verið yfirmenn
hjá útgerðinni
V
Jónas
Garðarsson
Magnea
Guómundsdóttir
á Flateyri
Fimm áreru liðin í dagfrá
því að mikið snjóflóðféll úr
Skollahvilft ofan Flateyraren
flóðiðsvipti 20 manns lífinu.
Magnea varþá oddviti Flat-
eyrarhrepps.
Of lítiö stnnt eftir snjóflóðið
„Það tókst ákaflega vel til um uppbygg-
ingu varnargarðanna, og það ber að þakka
það. Einnig ber að nefna byggingu leikskóla
sem Færeyingar áttu stærstan hlut í. Að
öðru leyti hefur ekki verið staðið nógu vel
við bakið á þessari byggð þrátt fýrir Ioforð
sem gefin voru þar að lútandi af hálfu
stjórnvalda almennt. Þessu samfélagi hefur
lítið verið sinnt að mínu mati en fólk hér á
Flateyri hefur verið ákaflega duglegt að hjál-
pa sér sjálft, og verið ákveðið í að standa sig,
en það hefur vissulega verið erfitt."
- Hvað hefðir þú viljað sjá gert strax sem
ekki hefur verið komið enn tframkvæmd?
“Uppbygging innan samfélagsins hefur
verið mjög lftil, s.s. í umhverfismálum. Þar
má nefna að í gatnagerð hefur ekkert verið
gert. Það sér hver maður sem hingað kem-
ur. Það er mikið að gerast kringum höfnina
þar sem var orðið ansi dauft um að litast á
tímabili. Þar eru ungir menn með smábáta
og fiskverkun tengdri þeim. Flateyri er þorp
sem lifir á sjávarútvegi og lífið kringum
hann er á uppleið. Fiskvinnslan Kambur
sem tók sig út úr Básafelli, hefur gengið
mjög vel og var það styrkur fyrir byggðarlag-
ið að sú starfsemi kom aftur „heim“. Mikil
gróska er í útgerð og eru margir duglegir
einstaklingar þar á ferð, ef svo væri ekki veit
ég ekki hvernig ástandið væri.“
- Hver er staðan t húsnæðismálum?
“Það var skortur á húsnæði og enn standa
íbúðir frá íbúðalánasjóði auðar þar sem þær
fengust ekki leigðar, en sú pólitíska ákvörð-
un var tekin að leigja þær ekki. Þegar slíkt
er gert er það ekkert annað en höft á upp-
byggingu. Eg get ímyndað mér að þetta hafi
Ieitt til þess að íbúatalan hér er lægri í dag
en hún annars hefði getað orðið. Alltof seint
gekk að Ijúka málum hjá mörgum einstak-
lingum sem urðu fyrir tjóni og hafði það
slæmar afleiðingar í för með sér sem m.a.
olli þeim miklu Qárhagstjóni, svo ekki sé tal-
að um líðan fólksins.
- Umræðan um Önundarfjörð hefur
sturdum verið neikvæð og umræðan um
jyrrverandi sóknarprest hefur kannski
ekki hætt um betur t þeitn efnum. Skaðaði
sú umræða í ratin?
“Það skaðar alltaf samfélag ef neikvæð
umræða er um það í þjóðfélaginu."
- Hvemig horfir framltðin við þér i dag.
Ertu búin að gefasl upp á þvt að stjómvöld
statidi við gefin loforð, þótt seint sé?
“Eg er alls ekki á því að gefast upp á því
að bíða eftir efndum loforða. Eg trúi því
ekki að það hafi ekki staðið til að standa við
gefin loforð sem voru gefin strax í fyrstu
viku eftir snjóflóðið og einnig loforð sem
gefin voru af bæjaryfirvöldum sem síðan
tóku við okkur hér á Flateyri. Eg vil ekki
trúa því að mönnum hafi gengið það eitt til
að vera á ferðinni með einhver svik. En íýr-
ir mér horfir það þannig, að menn hafa bent
hvor á annan í þessum efnum. En fimm ár
er mjög langur biðtfmi, og tími sem hefur
sært marga og ekki létt þeim róðurinn sem
hafa átt um sárt að binda. Ekki er laust við
að fólki finnist það hafa verið niðurlægt.
Það er erfitt að fá gesti f heimsókn ,og þurfa
að verja hvers vegna umhverfið er eins og
raun ber vitni og hvers vegna hitt og þetta er
ekki framkvæmt. Endurreisnarstarf var haf-
ið með uppbyggingu varnargarða, uppbygg-
ingin innan þeirra er nauðsynleg svo hún
megi skila sér aftur inn í þjóðfélagið."
- GG