Dagur - 26.10.2000, Síða 5
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 - S
FRÉTTIR
Vill fá hagfræði-
stofnim alþýðu
Formaður BSRB for-
dæmdi fagnaðarerindi
peningahyggjunnar.
Vill hagfræðistofnun
launafólks. Fjármála-
ráðherra kallaði á
hófsemi.
I setningaræðu sinni við upphaf
39. þings BSRB í gær gagnrýndi
Ogmundur Jónasson formaður
bandalagsins einkavæðingar-
stefnu ríkisstjórnarinnar harð-
lega, að Geir Haarde fjármála-
ráðherra viðstöddum. Ögmund-
ur kallaði einnig á uppsetningu
hagfræðistofnunar launafólks
gegn „fagnaðarerindi peninga-
hyggjunnar". Fjölmenni var við
setninguna, sem hófst á því að
Internationalinn var leikinn.
„Eg hef talað fyrir því að verka-
lýðshreyfingin - öll samtök
launafólks í landinu - sameinist
um öfluga hagfræðistofnun sem
hafi það verkefni að sjá okkur
fyrir upplýsingum og stuðla þan-
nig að vandaðri, upplýstri og
þarafleiðandi lýðræðislegri þjóð-
félagsumræðu. Þær stofnanir
sem samfélagið hefur komið á
fót, Seðlabanki og Þjóðhags-
stofnun, hafa ekki reynst þessum
vanda vaxnar og talsmenn þeirra
hafa oftar cn ekki tekið undir í
þeim kór frjálshyggjumanna úr
peningastofnunum landsins sem
í vaxandi mæli eru leiddir fram á
viillinn til þess að tala kjarkinn
úr launaþjóðinni og boða fagn-
aðarerindi peningahyggjunnar,"
segir Ögmundur.
Varað við einkavæðingu
Ogmundur varaði sterklega \dð
einkavæðingu innan velferðar-
kerfisins og alþjóðavæðingu fjár-
magnsins og ákallaði þingfull-
trúa um að tryggja samfélag jafn-
aðar og samhjálpar. Ögmundur
tók dæmi af danska fyrirtækinu
ISS, sem væri að reyna að hasla
sér völl hér á landi í samstarfi við
Securitas á sviði ræstinga.
„Við vildum forvitnast um
þennan nýja landnema og slóg-
um upp á fyrirtækinu á upplýs-
inganeti hinnar alþjóðlegu
verkalýðshreyfingar. Þar kom
fram að þetta fyrirtæki sem nú
hugsar gott til glóðarinnar á Is-
landi sver sig mjög í ætt við önn-
ur fjölþjóðleg fyrirtæki sem sér-
hæfa sig í opinberri þjónustu
sem er boðin út, einkavædd eða
sett í einkaframkvæmd," segir
Ögmundur og bætir við að alls-
staðar þar sem þessi fyrirtæki
hafa komið við sögu hafi þau
sætt gagnrýni fyrir að vanrækja
skjólstæðinga sína „hvort sem er
á elliheimilum eða öðrum vel-
ferðarstofnunum", enda mark-
miðið að lágmarka kostnað en
hámarka gróða.
Sígandi lukka best
Geir Haarde flutti stutta tölu við
setningu þingsins. Hann fagnaði
nýgerðu samkomulagi um rétt-
indamál og varaði efnislega \ið
græðgi í komandi kjarasamning-
um. „Sígandi lukka er best og
reynist launamanninum drýgst,“
sagði Geir.
Geir Iagði fram óbeint tilboð
um „félagsmálapakka" í stað
mikilla launahækkana og nefndi
í því sambandi aukinn hlut dag-
vinnu í heildarlaunum, sí- og
starfsmenntun, sveigjanlegri
vinnutíma og tryggari stöðu
trúnaðarmanna. - FÞG
Sturla
fékk síma
Fulltrúar Símans og Martels ehf.
(Globalstar Atlantic) afhentu
Sturlu Böðvarssyni samgöngu-
ráðherra nýverið Ericsson R290-
farsíma. Síminn er þeim eigin-
leikum gæddur að vera bæði
gervihnattasími, sem virkar í
kerfi Globalstar, og GSM-sími.
R290 skilar þannig góðu sam-
bandi bæði sem GSM-sími og
gervihnattasími á þjónustusvæði
Globalstar. Þegar notandinn er
innan þjónustusvæðis Símans
GSM tengist síminn yfir land-
stöðvar en utan þjónustusvæðis,
t.d úti á sjó cða uppi á jöklum,
tekur gervihnattakerfið sjálfvirkt
við. Það sama á við ef notandi er
staddur í landi þar sem engin
GSM-þjónusta er í boði, þá er
skipt yfir á gervihnettina.
Samkvæml reikisamningi
Sfmans GSM og Martels öðlast
viðskiptavinir Símans aðgang að
fjarskiptakerfi Globalstar, sem
veita mun þjónustu í yfir 120
löndum.
Sameiniiig
fvrír ársloK
Höfuðstöðvar land-
vinnslu Samherja fly-
tja til Dalvikur og þar
verður staðsett út-
gerðarstjóm á fersk-
fiskskipuuum.
Kaupfélag Eyfirðinga og og Sam-
herji hafa gert með sér sam-
komulag í tengslum við samning
um skipti á hlutabréfum í BGB-
Snæfelli og Samherja. I sam-
komulaginu felst að stefnt skuli
að sameiningu BGB-Snæfells og
Samherja fyrir árslok. Núverandi
hluthafar BGB-Snæfells munu
eignast 26% í Samherja. Stærsti
einstaki hluthafi í hinu samein-
aða félagi verður KEA með um
17% hlut að verðmæti um 3
milljarða króna, en síðan koma
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja og Kristján Vil-
helmsson framkvæmdastjóri út-
gerðarsviðs. Velta hins samein-
aða félags á ársgrundvelli verður
1 i til 12 milljarðar króna, starfs-
mannafjöldi um 1.040, þar af
um 740 hérlendis.
Skipum fækkar
Boðað verður til hluthafafundar í
Samhcrja innan 14 daga og þar
verður heildarhlutafé aukið úr
1.374 milljónum króna í 1.857
milljónir króna. KEA mun fá
einn mann í stjórn og annan í
varastjórn. Samkomulag er um
að höfuðstöðvar landvinnslu
Samherja flytjist til Dalvíkur-
byggðar og að þar verði staðsett
útgerðarstjórn á ferskfiskiskipum
BGB-Snæfclls og Samherja. Að-
ilar eru sammála um að viðhalda
öflugri landvánnslu f Dalvíkur-
byggð og að nýta ný tækifæri s.s.
í laxeldi og þurrkun á fiski til að
treysta þá starfsemi enn frekar.
Fyrir liggur sú stefnumörkun
stjórnar BGB-Snæfells að fækka
skipum í rekstri með sölu á
frystiskipum þess. Samherji mun
try'ggja að sameining BGB-Snæ-
fells og Samherja sem slík muni
ekki leiða til fækkunar sjómanns-
starfa í Dalvíkurbyggð.
Ekld borgaxamál?
Starfsmönnum hins nýja sam-
einaða fyrirtækis verður til-
kynnt nánar um sameininguna
og þær breytingar sem eru
framundan í byrjun næstu viku.
Félagsmenn KEA í Dalvíkur-
byggð hafa óskað eftir að málið
verði kynnt þar, og verður það
gert. Finnbogi Jónsson, stjórn-
arformaður Samherja, sagði að
það hefði vantað þann lið í
starfsemi Samherja sem væri
öllug Iandvinnsla, og það væri
að koma nú. Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, sagði aðspurður um hvort
boðað yrði til borgarafundar um
málið að þetta snerti fyrst og
fremst starfsfólkið.
- GG
Síld fimdin á Breiðafirði
Fimm bátar eru nú við síldveiðar um 30 mílur
vestur af Öndverðarnesi og á Breiðafirði.
Grindvíkingur GK fékk um 30 tonn á þriðju-
dagskvöld í blíðuveðri og var í gær að Ieita á
Breiðafirði ásamt Júpíter ÞH, Antares VE, Há-
koni ÞH og Oddeyrinni EA. Aðrir hafa verið að
fá allt að 100 tonnum í þremur köstum.
„Síldin hefur verið svolítið blönduð, ágæt síld
en ekki nein gullsíld, og betri síld en hefur ver-
ið að fást út af Hornafirði og Borgarfirði eystra. Ég reikna með að
þessi síld fari í bræðslu en ekki til vinnslu. Það er markaður erlend-
is fyrir síld sem er unnin til manneldis. Við höfum verið á síldveiðum
austur af Borgarfirði og landað á Vopnafirði, og gengið mjög vel, en
síldin var horfin þaðan þar til í nótt að einhverjir bátar voru að fá þar
síld. En veðurspá fyrir helgina lofar ekki góðu en vonandi er að þetta
gjósi upp aftur eftir helgina og hér verði að finna nóg af síld,“ segir
Gunnar Arnbjörnsson, stýrimaður á Grindvíkingi. -GG
Kyrrðarstimd í Flat eyr arkirkj u
Kyrrðarstund vcrður í Flateyrarkirkju í kvöld kl. 20.00 til minningar
uni þann atburð er snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flate)Tar 26.
október 1995 og varð 20 manns að fjörtjóni. Það er stjórn minning-
arsjóðs sem stendur f)TÍr helgistundinni, hún velur þá sálma sem
sungnir eru, haldin er stutt bænastund undir handleiðslu sóknar-
prestsins, sr. Stínu Gísladóttur í Holti sem flytur nokkur hugleiðing-
ar- og ritningarorð og fer með bænirnar. Að lokum verður lagður
blómsveigur að minningarsteini um þá sem fórust, en hann stendur
fyrir utan kirkjuna. -GG
Siníónían í glímu
„Sinfóníuhljómsveit Islands hefur enn ekl<i tekist að innheimta
ógreidd eldri framlög Seltjarnarneskaupstaðar. Menntamálaráðu-
neytið hefur verið beðið að hafa forgöngu um úrlausn þessa máls,"
segir Ríkisendurskoðun eftir endurskoðun ríkisrciknings 1999, þar
scm Sinfónían kemur út með 29 milljóna rekstrartapi.
Það virðist þó hreinir smámunir f samanburði við 764 milljóna
króna áfallnar lífeyrisskuldbindingar hljómsveitarinnar, sem Ríkis-
endurskoðun segir enn ófrágengið hvernig skipta á milli rekstrarað-
ila hljómsveitarinnar. -HEI