Dagur - 04.11.2000, Qupperneq 4

Dagur - 04.11.2000, Qupperneq 4
/jJrjJjJJjJLjAJilJrU } 4 - LAUGARDAGUR 4. NÚVEMBER 2000 V%gur „Einstakt afbrigði!“ „Ég gefst upp! - ég skil ekki rass- gat í konum - og karlmenn skil ég enn síður. Kannski er ég einstakt af- hrigði!“ (bls. 105). Það er auðvit- að rétt sem fram kemur í þessu broti úr dagbók Ragnhildar Osk- arsdóttur, Rósku, að hún var öðruvísi en fólk flest. I hugum margra sem muna eftir rauðu dögunum á seinni hluta sjöunda áratugarins og nokkuð frarn á þann áttunda, var Róska - stúlka sunnan frá Italíu „... með dauft og leyndardóms- fullt hros á vör, dökkt hár og rauða alpahúfu" (bls. 88) - eink- um þekkt fyrir að temja sér óhefðbundin lífsstíl þar sem saman var fléttað pólitík og list. Þeir muna hana frá þessum hápólitísku árum íyrir að fara ótroðnar slóðir, hvort sem var mcð því að breyta gamalli þvotta- vél í eldflaugaskotpall uppi á Skólavörðuholtinu, að standa fyrir mótmælum á huggulegri Laxnesshátíð í Háskólabíói eða taka þátt í skrautlegri innrás í bækistöðvar Kanasjónvarpsins á Keflavíkurflugvelli. Löngu síðar, snemma á níunda áratugnum, vakti hún á ný at- hygli og umtal fyrir kvikmyndina Sóley sem fáir vildu sjá og enn færri gátu fengið sig til að hrósa. Eftir það varð frekar hljótt um Rósku allt þar til hún lcst á sex- BÓKA- HILLAN tugsaldri árið 1996. En núna, fjórum árum eftir andlátið, er hennar minnst bæði með sýn- ingu í Nýlistasafninu og með þessari nýju bók sem safnið gefur út í samvinnu við Mál og menningu og Reykjavík menningarborg. Boðberi skapandi óreiðu I nýju hókinni er ríku- legt mynd-efni sem tengist Rósku sjálfri og verkum hennar með einum eða öðrurn hætt. Og ýmsir sem þekktu hana best lýsa því í greinum og/eða viðtöl- um hvernig hún kom þeim fyrir sjónir. Þá eru birtir kaflar úr hennar eigin ritverkum, svo sem dagbókum. Allt staðfestir þetta með einum eða öðrum hætti að Róska var óvenjuleg kona. Hún varð fyrir miklum áhrif- um af veru sinni á Ital- íu á hastarlegum átaka- tímum sjöunda áratug- arins og fékk þar sína pólitísku eldskírn. „... suður á Italíu var mjög mik- ið af pólitískri list, þannig að Róska fékk það beint í æð, það var mjög eðlilegt fyrir hana að fara út í þessar byltingarhug- myndir, sprengjur og ailt það“ (bls. 44) segir einn vina hennar frá þeim árum í bókinni. Annar bendir á að hún hafi í hjarta sínu Róska í Asmundarsal árið 1967. verið „stjórnleysingi sem lifir fyr- ir uppreisn gegn öllu yfirvaldi og öllu því skipulagi sem gæti hugs- anlega ógnað athafnafrelsi hennar" (bls. 78). Að sögn Guðbergs Bergssonar, sem á snjalla grein í bókinni, var Róska „boðberi óskapnaðarins, þeirrar skapandi óreiðu, þeirra floga, þeirrar hugsanavímu sem listamaðurinn verður að finna í sér, þeirrar nauð- synjar að kunna að laða fram og reyna að hemja og rækta án þess að leyfa einhverju af þessu að ná yfirhöndinni, þótt það yrði auðveldast" (bls. 87). Frásagnirnar í bókinni draga skýrt fram í dags- ljósið að það skiptust á skin og afar dimmar skúrir í lífi Rósku. Birna Þórðardóttir gefur hestu myndina af Rósku sem manneskju og segir hana hafa verið „undarlegt sambland barns og tæli- drósar; töff-ara og tild- urrófu - en þannig var Róska samsetning elds og íss, óþolandi í frekju og yfirgangi; yndisleg í hjálpsemi og trú- mennsku" (bls. 117). Róska kom að lokum aftur heim til lslands „að einhverju leyti og hvarf í þokuna hér“ (hls. 88) eins og Guðbergur Bergsson orðar það á einum stað. Með þessari forvitnilegu bók hefur tekist furðu vel að magna fram úr þoku hins liðna raunsanna mynd af þessari listrænu byltingarkonu. RÓSKA. Ritstjóri: Hjálmar Sveinsson. Útgefandi: Nýlistasafnið, Mál og menning og Reykjavík menningarborg Evrópu 2000. Endurunninn hasar ★ ★ Shaft Leikstjóri: John Singleton Aðalhlutverk: Samuel L. Jaekson, Vanessa L. Williams, Jef- frey Wright, Christian Bale og Toni Collette. Sýnd í Laugar- ásbíói Fyrir aldarf jórðungi eða svo rataði hingað til lands bíómyndin um Shaft, sem gerð var árið 1971 og var á margan hátt söguleg mynd þótt fæstir áhorfenda hér á landi hafi kannski gert sér grein íýrir því. Hún var um leynilögregluna John Shaft, sem var ógurlegur töf- fari og tætti í sig fúlmenni og fanta milli þess sem hann naut lífsins með fögrum fljóðum. Það merki- lega við þá mynd var að Shaft þessi var svartur á hörund, sem sumum þótti efla hag þeldökkra en aðrir sögðu myndina misnotá þá gróflega. Aðallega var þetta þó dæmigerð bandarísk hasarmynd, sem unglingspiitar skemmtu sér hið besta yfir. Nýja myndin um Shaft fetar að flestu leyti í sömu spor. Samuel L. Jackson leikur kappann, og gerir það vel eins og við var að búast. Það er John Singleton sem leikstýrir nýju útgáfunni. Hann gat sér gott orð fyrir áhrifaríka mynd um unga menn sem ólust upp í ofbeldishverfum Los Angel- es og gerðu sér Iitlar vonir um langa ævi, hvað þá farsæla. Drengirnir í hverfinu (Boys in the Hood) hét sú mynd, var gerð árið 1991 og byggði víst að verulegu leyti á reynslu leikstjórans sjálfs. Flest sem John Singleton hef- ur gert síðan hefur þótt standa frumrauninni nokkuð að baki, og sama er víst óhætt að segja um þessa nýju útgáfu af Shaft. Svart og hvítt Þráðurinn er í stuttu máli sá að svartur maður er myrtur. Shaft kemst nánast strax að því hver morðinginn er: Hvítur ríkur pabbadrengur, hinn mesti hrotti, sem lætur pabba borga fyrir sig trygginguna og flýr síðan úr landi. Shaft fyllist djúpstæðri löngun til þess að hafa hendur í hári þessa ógeðfelda skúrks. Aðalplottið snýst um að Shaft þarf bæði að leita uppi eina vitnið að morðinu, sem að sjálfsögðu er ung og glæsileg kona, og um leið koma í veg íyrir að morðinginn láti koma henni íýrir kattarnef. Vitaskuld lætur hann hvorki lagabókstaf né önnur siðferðileg formsatriði hindra sig svo neinu nemur, enda er ekki að sjá að neitt annað en ofbeldi og undir- ferli dugi tii þess að ná fram rétt- lætinu. Að því leyti er Shaft á sömu slóðum og Drengirnir f hverfinu. Allar tilraunir Singletons til þess að koma boð- skap þeirrar myndar á framfæri eru hins vegar á bak og hurt. Vonin felst ekki lengur í því að komast út úr vítahringnum, held- ur að vera mesti töffarinn - eða a.m.k. vera svo heppinn að njóta verndar hans. Geispavekjandi Fyrir utan þessa uppgjöf Singletons er það einkum tvennt sem hefur breyst frá því 1971. Annars vegar er það ekkert ný- mæli lengur að sjá svartan mann í aðalhlutverki. Að því leyti hefur þessi mynd því nákvæmlega ekk- ert nýtt fram að færa, hvorki gott né slæmt. Hins vegar er öll tæknivinnsla orðin bæði fágaðri og uppskrúfaðri. Ahorfendur eru ekki taldir hafa þolinmæði lengur en í fá- einar sekúndur, þá er strax ldippt yfir í eitthvað annað. Og svo er komin þessi líka fína tækni í hljóðkerfið, sem gerir það að verkum að í hvert skipti sem ein- hverjar drunur heyrast í mynd- inni, hvort sem það er bílaum- ferð, byssuhvellir eða bassatakt- ur, þá sker það ekki í eyrun held- ur finnur maður titringinn á eig- in líkama. Ekki á ég annað orð um það en „hailærislegt". Framan af lofar myndin raunar nokkuð góðu, meðan verið er að kynna til sögunnar helstu persón- ur og þráðinn sem þær vefjast um. Þó nær hún því aldrei að verða neitt forvitnilegri en nánast hvaða löggusería úr sjónvarpinu sem er. Þegar Iíða tekur á myndina snýst hún hins vegar upp í eintóman hasar og eltingarleiki, og þegar ljóst verður endanlega að þetta ætlar aldrei að verða neitt meira setur að manni óstjórnlegan geis- pa. KVIK- MYNDIR ■bokalifið Óvæntur vinnings- hafi í París Rithöfundur hef- ur fengið eftir- sóttustu bók- menntaverðlaun Frakklands - en þau eru kennd eru við Goncourt-bræð- ur sem voru áhrifamiklir í frönsku menn- ingarlífi á nítj- ándu öldinni - fyrir fyrstu skáldsöguna sem hann hefur skriíað í tuttugu og fimm ár. Verðlaunaupphæðin sjálf er að vísu lítil, en skáldverk sem hlýt- ur þessa viðurkenningu selst hins vegar alltaf í risa-upplagi og skilar höfundinum þannig bæði fé og frægð. Vinningshalinn að þessu sinni heitir Jean-Jacques Schuhl og hann fékk verðlaunin fyrir fyrstu skáldsögu sfna í ald- arfjórðung. Söguna skrifaði hann um ástkonu sína, Ingrid Caven, en hún er þýsk og hefur starfað um áratuga skeið sem leik- og söngkona. Það er eink- um líf Ingrid á áttunda áratugn- um sem er viðfangsefni Schuhls, en Ingrid var þá gift þýska kvikmyndaleikstjóranum Rainer Werner Fassbinder og lifði hátt í vinahópi hans í nokk- ur ár. Fassbinder, sem var á þeim tíma mjög f tísku, lenti snemma á kafi í eiLurlyljum og það dró hann að lokum til dauða. Það voru víst mikil átök í dómnefnd Goncourt-verðlaun- anna. Svo fór að lokum að ijór- ir nefndarmanna greiddu „Ingrid Caven“ atkvæði sitt en þrír vildu verðlauna skáldsögu eftir Ahmadou Kourouma frá Fílabeinsströndinni, en þar seg- ir hann sögu stríðsátaka í heimalandi sínu og Líberíu frá sjónarhorni barns. Skáldskapur og veruleiki Jean-Jacques Schuhl er 59 ára að aldri og lítt þekktur í I rakk- landi vegna þess að sfðasta saga hans á undan „Ingrid Caven“ kom út árið 1976. í ástkonu sinni íekk hann hins vegar loksins gott viðfangs- efni. Hún lék í mörgum mynd- um Fassbinders áður og eftir að þau gengu í hjónaband. Að hon- um látnum átti hún f ástarsam- bandi við aðra þeklcta menn, svo sem tískukónginn Yves Saint Laurent. Schuhl blandar saman skáldskap og raunveruleika í sögunni og lýsir meðal annars þeim lífsstíl óhóflegrar eitur- lyijaneyslu sem einkenndi Fass- binder og félaga hans. Þetta er því í senn saga Ingrid Caven og átakamikils tímabils í þýskri menningarsögu tuttugustu ald- arinnar. Goncourt-verðlaunin eru eldd aðeins óvænt upphefð fyrir Schuhl, heldur er Ingrid Caven lfka orðin eftirsóttari en nokkru sinni fyrr. Hún hefur þegar fengið ýmis tilboð um að leika í kvikmyndum, heldur tónlcika í Folies Bergéres seinna í þessum mánuði og syngur inn á nýjan geisladisk sem kemur út iyrir jólin. Margir þekktustu rithöfundar Frakklands hafa fengið Goncourt-verðlaunin gegnum tíðina. Nægir þar að nefna Marcel Proust, André Malraux, Simone de Beauvoir og Margu- erite Duras. V________________________-j Ingríd Cnv«n Verðlauna- skáldsagan um Ingrid Caven. Ingrid Caven í Fassbinder- kvikmynd frá árinu 1971. iijV ’.íjsuuJ lliU^tUlvi 1 .ÍU^HU^IV^ Jíi i U /UJl JUiJlLí'/ UJJHfOstU H li il iijJjJJC iííl 'J 1UH/C Jbv ilij

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.