Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 14

Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 14
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 Bætt líkamsstaða Þeir sem vinna við tölvur og finna fyrir líkamlegum óþægind- um í daglegu lífi, gætu mögulega dregið úr þeim með því að end- urskoða líkamsstöðu sína fýrir framan skjá- inn. Vinna við tölvur er mikilvægur þáttur í iífi okkar, en getur jafnframt verið erfið bæði lík- amlega og andlega. Stór hluti þjóðarinnar vinnur við tölvur liluta úr degi og sumir hveijir allan daginn. Margt af því fólki gerir sér álls enga grein fyrir því að ýmis óþægindi sem það finnur gjarnan fyrir> má oftar en ekki rekja til langrar setu fyrir framan tölvur. Þreyta í augum og vöðvum er algeng kvörtun hjá þeim sem vinna við tölvuskjái og má leita or- sakanna í uppröðun búnaðar, slæmri lýsingu, streitu, vöðva- spennu, rangri líkamsbeitingu .eða of einhæfri vinnu. Til eru ýmis ráð til úrbóta til að stem- ma stigu við óþægindunum. Þó svo atvinnurekendur beri ákveðnar skyldur í þeim mál- um, gera starfsmcnn það ekki síður, með því til dæmis að fara eftir þeim ráðum sem gef- in eru. Hléæfingar Vinnueftirlit ríkisins gaf út bæklinginn „Vinna við tölvu - reglur og leiðbeiningar" árið 1995 þar sem meðal annars eru gefin mörg góð ráð og æfingar til að Iétta fólki lífið fyrir framan skjáinn, einnig er þar að finna reglugerð um skjávinnu og skyldur atvinnurekenda, sem gott er að kynna sér. Ef unnið er í slæmri Iikams- stöðu við tölvu verður stöðug spenna í háls- og axlarvöðvum. Röng staðsetning tölvumúsar- innar getur til dæmis leitt til stöðugrar vöðvaspennu í öxl, handlegg og hendi. Þegar unnið er samfellt við tölvuskjá ber starfsmanni að taka stutt hlé til dæmis tvær mínútur á tuttugu mínútna fresti eða tíu mínútur á klukkustund. Þessi hlé má nýta til líkamsæfinga sem minn- ka hættuna á vöðva- eða höfuð- verk. Þetta eru léttar æfingar íyrir axlir, höfuð, hendur og fæt- ur og þurfa ekki að taka nema fimm mfnútur í senn, (sjá mynd á síðunni). Hægt er að fá hljóð- snældur með æf- ingum, en einnig eru til tölvuforrit (t.d. Office At- hlete) með æfing- um sem birta æf- ingar á skjánum með reglulegu millibili. Síðast- nefndar æfingar ættu að henta þeim vel sem eru undir miklu álagi við tölvuskjáinn frá morgni til kvölds og eiga frekar á hættu að gleyma að gera æfingarnar séu þeir ekki minntir á það reglulega. Álag á augun Vinna við tölvuskjá reynir mikið á aug- un og þreyta í aug- um eykst eftir því sem lengur er setið við tölvuna. Það getur vcrið þreytandi og truflandi ef andstæður eru miklar milli skjás og umhverfis, til dæmis þegar unnið er í mik- illi birtu við dökkan skjá. Augað þarf þá í sífellu að aðlagast mis- munandi Ijósmagni frá skjá og umhverfi, sem kcmur af þvf að augnvöðvarnir stækka eða minnka ljósopið eftir því sem við á. Það er því æskilegt að gefa augunum hvíld öðru hvoru og góð hvíld er til dæmis að horfa á eitthvað sem er í fjarska. Sem dæmi má nefna reynslu einstak- lings, sem vann við að prófarka- Iesa af skjá alla daga. Hann var farinn að þjást mikið af höfuð- verk dags daglega, þegar líða tók á daginn. En eftir að hann tók sig til og byrjaði að gera ofan- nefndar æfingar reglulega og hvíla augun með því að fara til dæmis út í dyr eða glugga og horfa upp í Ijöll eða út á haf, hvarf höfuðverkurinn með öllu. -W Gerið hléæfingar með reglulegu millibili, þær þurfa ekki að taka nema fimm minútur I senn. rDwqvr Viðbrögð við áföllum og sorg Áföll og sorgir eru hluti af Iffinu. Flest þurfum við einhvern tíma á ævinni að glíma við sorgina lil að mynda þegar ein- hver okkur nákominn v'eikist eða deyr, ef hjónaband leysist upp, ef ástvinur missir vinnuna eða ef fjölskyldumeðlimur verður f)TÍr árás eða ofbeldi. Það er einstaklings- hundið hvernig fólk bregst við sorg. Oft fer fólk sem syrgir í gegnum tímahil þar sem það er ófært um að beita heilbrigðri skyn- semi. Margir scm glíma við sorg þurfa að- stoðar við. „Tíminn læknar öll sár“ segir máltækið og víst er að flestir ná sér með tímanum. Verstu tilfelli Ieiða til langvar- andi veikinda og erfiðleika við áframhald- andi þátttöku í atvinnulífinu. Mikilvægt er að hafa einhvern sem maður treystir til að deila sorginni með. Fólk sem syrgir þarf að hafa hlýja öxl til að halla sér að og gráta. Grátur er heilnæmur vegna þess að hann léttir á spennu í líkamanum og losar ótt- ann. Örvænting, sektarkennd, reiði, og jafnvel hefndarhugur leitar oftar en ekki á þá sem glfma við sorg. Hvað er til ráða? Fjölmargir glíma við svefntruflanir þegar þeir verða lýrir áfalli. Hæfilegur svefn er afar mikilvægur þegar við erum undir álagi. Eigir þú f erfiðleikum með svefn skalt þú ræða það við lækni. Margir þurfa aðstoð fagaðila til að byggja aftur upp sjálfstraust og til að yíirvinna óttann við hið ókunna og framandi sem býður þeirra. I því samhengi getur verið ráðlegt að setja sér markmið. Flestir sem leita sér hjálpar öðlast styrk til að mynda ný tengsl og sjá fljótt nýjan til- gang í tilverunni. Það er áríðandi að fá þann tíma sem maður þarf til að sleppa takinu og hyija nýtt líf. Sumir jafna sig á stuttum tíma aðra tekur það mörg ár. Hvar er hægt að leita aðstoðar? Ef þú færð ekld nauðsynlega aðstoð getur verið að þú eigir enn erfiðara með að takast á við næstu raunir lífsins. Ef þér finnst þú hafa staðnað sem kemur oft fram í vaxandi eirðarleysi, ótta eða innri ólgu skaltu leita aðstoðar læknis eða annarra fagaðila. Það er eðlilegt að vera raunamæddur Það er gott að minnast þess af og til að það er ekkert óeðlilegt að vera leiður. Ef við lendum í erfiðleikum er í raun hollara að vera sorgmæddur, en að láta sem ekkert sé. Við erum alin upp við viðhorf í þjóðfélagi okkar þar sem best er að „harka af sér, þetta verður allt í lagi, þú þarft bara að koma þér af stað, þá gleymist þetta...“ Því þarf kjark til að þora að sýna tilfinningar, að gráta og ekki síst að biðja um aðstoð. Þegar við glímum við sorgina er það styrk- Ieikamerki að þora að sýna mannlega veik- Ieika! Ást án takmarka Þegar kemur að því að ræða um ástarsambönd, lengri eða skemmri, sem fleiri en tveir ein- staklingar eru að- ilar að er okkar stórprýðilega ís- lenska tunga fremur fátæk. Við eigum til dæmís ekki til neina góða þýðingu fyrir orðið polyamory sem er þessa dagana eins og rauður þráður í öllum út- lenskum skrifum um fyrirbærið. Orðið þýðir „að elska fleiri en einn“. Einnig er gjarnan talað um „ást án takmarka" (e. love without limits). Þessi ást getur verið kynferðisieg, tilfinninga- leg, andleg eða einhver sam- setning af framangreindu allt eftir löngunum og samkomulagi þeirra einstaklinga sem að mál- inu koma. Fólk getur líka verið polyamorous ef það er opiö fyr- ir því að vera í fleiri en einu sambandi í senn, jafnvel þó að staðan sé ekki þannig núna (oh, IIWIIW*Hi'l II 1i láMMlM' IIIIIIMWIWiH'lWÍlW svo eru sum okkar í minna en einu sambandi). Já ég veit það, nú eruð þið farin að hugsa sem svo að þetta sé aldeilis þægileg afsökun fyrir þá sem stunda framhjáhald af kappi; en svo er ekki. Framhjáhald felur f sér svik og pretti. Framhjáhaldar- inn er hvorki heiðarlegur við sjálfan sig né þá sem hann elsk- ar, hann segir eitt en gerir ann- að og endar svo á að særa allt og alla þegar allt kemst upp um síðir - og trúið mér, ALLT kemst upp um síðir (múa- hahhahaþaháTia). Hreinskilni, samningar og samskipti Aftur á móti er sá sem er polyamorous heiðarlegur í sínum samböndum. Ef kona á tvo elsk- huga/kærasta þá vita þeir hvor af öðrum og ganga inn í sambandið á þeim forsendum. Enginn segist vera einnar konu maður ef hann er það ekki. Lykilorðin eru hrein- skilni, samningar og samskipti. Tegundir og afbrigði polyamory eru fjölmargar, pör sem stunda kynlífsleiki með öðrum pörum eða .... einstaklingum (swing), pör sem stunda kynlíf með öðrum sitt í hvoru lagi (opin sambönd), sam- bönd þriggja sem ganga í allar átt- ir (allir með öllum), sambönd þrig- gja sem ganga í tvær áttir (þá er einn aðili í 2 samböndum), sam- bönd fjögurra, fimm, sex? Svo eru þessi samhönd allt frá því að vera ekki kynferðisleg og upp í að snú- ast algjörlega um kynlíf. Algengara er þó að samböndin innihaidi kyn- líf enda hlýtur það að vera miklu skemmtilegra! Hér eru nokkur hugtök sem má eflaust reyna að nota: Þrenna: þrjár manneskjur sem eru í einhvers konar sambandi. Einn karl og tvær konur (hljómar eflaust heiilandi fyrir marga), ein kona og tveir karlar (hmm, kanns- ki ekki svo slæmt!) eða þrír af sama Icyni. Vaff: þijár manneskjur saman en ein er á oddi vaffsins og er eins konar þungamiðja. Til dæmis kona sem á í sambandi við tvo menn en þeir eru ekki í sambandi sín á milli. Þríhyrningur: Þrír saman og all- ir með öllum. Raðhjónabönd Raðhjónaband: þessu fann vís- indaskáldsagnahöfundurinn Ro- hert A. Heiníein upp á, og svei mér ef það er ekki bara dálítið vit í þessu. Þetta virkar þannig að hjónabandið er eins konar keðja af fólki á mismunandi aldri og þegar þeir elstu deyja er nýjum ungum bætt við hinn endann. Þannig helst jafnvægi og fjölskyldunni er haldið gangandi, þó ekki með hefðbundnum hætti, þ.e. barn- eignum. Og já, það er til fólk sem lifir akkúrat svona svo að vísinda- skáldskapurinn á sér einhverja stoð í raunveruleikanum. Samþykkt fjöllyndi: Aðilar í sam- bandi setja sér reglur um að ákveðið fjöllyndi sé Ieyft. Par getur ákveðið að stunda saman kynlíf með öðru/m pari/pörum af og til, til dæmis alltaf á þriðjudags- morgnum eða að fyrsti mánudag- ur í hverjum mánuði er frjáls og þá fara þau út sitt í hvoru lagi og leika lausum kynlífshala. Swing eða ról er orð sem gjaman er notað fyrir það fyrra. Ragnheiður Eirilzsdóitir er hjúkrunarfræðingur kynlijspislill@holmail.com

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.