Dagur - 04.11.2000, Qupperneq 7

Dagur - 04.11.2000, Qupperneq 7
 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 komst stjórnin aðeins einu sinni yfir 50 prósent livað vinsældir varðar. Nú er Framsóknarflokk- urinn í ríkisstjórn sem hefur alltaf mælst með um eða yfir 60 prósent fylgi. Ef Framsóknar- flokkurinn vill vera í vinsælli rík- isstjórn á hann að vera í ríkis- stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Eg held að Evrópuumræðan hafi verið flokknum erfið og í rauninni dáist ég að Flalldóri fyrir að taka svo djarfa afstöðu í ESB málinu. Hann hefur tekið þar frumkvæði, meðal annars af Samfylkingunni og Samfylkingin er orðin það hrædd að hún tek- ur varla orðið ESB sér í munn sér lengur. Halldór vissi að 60 til 70 prósent af hans flokksfélög- um er algjörlega á móti ESB. Hann tekur samt þennan slag og mér finnst það að mörgu leyti aðdáunarvert. Ég held að það eigi líka þátt í fýlgistapi framsóknar að vinstri grænir eru að taka til sín visst framsóknarfylgi, enda standa þeir mjög nálægt ýmsum mál- efnum sem framsókn hefur talið sig fylgja." - Hver er cifstaða þin til ESB? „Ég fékk sem betur fer tæki- færi til að kynna mér Evrópu- sambandið í september þegar mér var boðið á vegum ESB til Brussel og Strassborgar í tæpar 2 vikur. Þar lagði ég áherslu á að kynria mér fiskveiðistjórnunar- mál, samgöngumál, ríkisrekna fjölmiðla og dóms- og lögreglu- mál. Þetta var skemmtilcg og áhugáverð ferð. Ég verð að segja eins og er að ég fór þangað út frékar hliðholl Evrópusamband- inu en get ekki sagt að þessi ferð hafi ýtt undir jákvæðni í garð sambandsins, að minnsta kosti ekki eins og sakir standa. Eftir mörg samtöl við þingmenn hinna ýmsu Fivrópulanda skynjaði ég annars vegar togstreituna sem ríkir milli norður hlutans og Mið- jarðarhafshlutans og hins vegar togstreituna milli hinna ýmsu stofnana sambandsins. Það kom skýrt fram í því þegar rætt var um til dæmis fiskveiðistjórnunarmál þá fengust afar misvísandi skila- boð. Starfsmenn framkvæmda- stjórnarinnar lögðu mikla áherslu á að meginreglan um „hlutfalls- Iegt jafnvægi" væri ríkjandi en sú regla getur orðið okkur Islending- um hagstæð. Sfðan kom að þing- inu en völd þess eru að aukast þar sem gefið var í skyn að þessi sama regla yrði ckki langlíf meðal annars vegna þrýstings frá Spán- verjum. Að mínu mati högnumst við ekki endilega efnahagslega á því að vera í ESB, þetta er miklu frekar pólitísk spurning. Þing- maður frá breska Verkamanna- flokknum og systurflokki Sam- iylkingarinnar sagði við mig að hann færi aldrei í ESB ef hann væri Islendingur vegna vitlausrar stefnu sambandsins í liskveiði- stjórnunarmálum, við ættum að fara okkur hægt enda hefðum við allt til alls. Margir hafa bent á að innfiutningur á landbúnaðaraf- urðum myndi breytast enda kom- inn timi til en það þarf ekkert ESB til slíkra breytinga, við get- um gert þær sjálf og eigum að drífa í því.“ Samfylkingin ekkert sam- einingartákn - Finnsi þér stjórnarandstaðan vera sterk eða veik? „Ég verð að segja að það kemur mér á óvart hvað hún er í raun- inni veik. Auðvitað er staða stjórnarandstöðunnar erfið í því góða ástandi sem ríkir í þjóðfélag- inu. Það er alltaf neikvætt þegar llokkar eru að bcrja bölmóð inn í landann og stjórnarandstaðann ætlar sér að beija svartsýni inn í fólk hvað sem tautar og raular. Ég held bara að þjóðin sé ekki svo heimsk að hún taki mark á þessu tali. Ég tel að tækifærismennska ríði dálftið röftum innan hlutastjórn- arandstöðunnar. Það er ekki óal- gengt að sjá áherslur Samfýlking- arinnar breytast eftir því sem fleiri skoðanakannanir um hin ýmsu málefni birtast. Fyrir vikið virkar flokkurinn eins og vind- hani.“ - Er það rétt tilfinning mín að þér þyki vinstri grænir standa sig betur í stjómarandstöðu en Sam- fylkingin? „Tvímælalaust. Vinstri grænir eiga kannski auðveldara um vik því þeir eru minni flokkur en minni flokkar þurfa þó ekki endi- lega að vera samstilltari. Ég lít bara á minn stóra flokk Sjálfstæð- isflokkinn. Þrátt fýrir 26 þing- menn er helsta einkenni þing- llokksins hvað hann er samstígur. Við deilum stundum innbyrðis en leggjum okkur fram um að útkljá ákveðin málefni áður en við kynnum þau opinberlega. Það sama virðast vinstri grænir vera að gera og ég hef haft gaman af að fýlgjast með því hvernig þeir vinna í þingsalnum Steingrímur og Ogmundur, og svo eru þeir auðvitað miklir málafærslumenn. En það eru líka margir í Samlýlk- ingunni sem eru hæfileikaríkir og alhragðs einstaklingar, en mér finnst þeir einfaldlega ekki fá að njóta sín. Bryndís Hlöðversdóttir er til dæmis hæfileikarík mann- eskja sem mér finnst að gæti gert stærri hluti ef hún fengi meira svigrúm. Össurar bíður mjög erfitt verk- efni við að reyna að samþætta þau ólíku sjónarmið sem ríkja innan Samfýjkingarinnar. Sagan segir okkur að vinstri menn hafi ekki getað sameinast og Samfýlk- ingin er ekkert sameiningartákn vinstri manna. Þetta er flokkur sem á erfitt uppdráttar, maður veit varla fyrir hvað hann stendur og þar af leiðandi á forystumaður hans líka erfitt uppdráttar. Sam- fýlkingin nær engan veginn að vera nútímalegur flokkur og er frekar uppfull af gömlum lumm- um heldur cn nýjum og ferskum hugmyndum og það er meira eftir af Alþýðubandalaginu í Samlylk- ingunni en minna af Alþýðu- flokknum sem var þó fiokkur sem þorði að setja fram ögrandi stefnu í ýmsum málum. Ossur er mörg- „Að mínu mati högn- umst við ekki endilega efnahagslega á því að vera í ESB, þetta er miklu frekar pólitísk spurning. Þingmaður frá breska Verkamanna- flokknum og systur- flokki Samfylkingarinn- ar sagði við mig að hann færi aldrei í ESB ef hann væri íslendingur vegna vitlausrar stefnu sambandsins í fiskveiði- stjórnunarmálum, við ættum að fara okkur hægt enda hefðum við allt til alls.“ um hæfileikum gæddur en það verður engu að síður erfitt fýrir hann að takast á við þetta verk- efni. Hann þarf ekki bara að taka slaginn út á við heldur líka í sín- um eigin flokki.“ - Þií gegndir um tíma yfir- mannaslöðu á RUV. Nií er verið að tala um að breyta RUV í hluta- félag og selja Rás 2, hver er þín skoðun? „Hvað ætla menn að selja? Ætla menn að selja Magga Einars eða bara lógóið. Mér finnst þetta ekki skynsamleg umræða. Mín skoðun á Ríkisútvarpinu er sú að stokka þurfi upp í stjórnkcrfinu þar og breyta rekstarfyrirkomu- laginu. Stjórnun þarf að vera skil- virkari og hagkvæmari en um leið verður að hafa skýr menningarleg og fræðsluleg markmið í huga. Einnig verður Ríkisútvarpið að hafa eitthvert svigrúm til að sinna þörfum hins almenna hlustanda og áhorfanda. Alþingi á að móta víðan ramma og treysta og tryggja Ijárhagslegan grundvöll Bíkisútvarpsins sem á að vera áfram í eigu þjóðarinnar. Faglegir stjórnendur ákveða síðan hvort þeir vilja reka eina eða tvær útvarps og sjónvarpsstöðvar. Það er stjórnenda en ekki alþingis- manna að ákveða hvernig lyrir- komulag Rfkisútvarpsins á að vera.“ Eiginleikar Davíðs - Eg get ekki látið vera að spyrja þig um álit þitt á Davíð Oddssyni sem manni og leiðtoga Sjálfstæðis- flokksins „Það er auðvelt að lýsa Davíð en samt érfitt því hann er stór- brotinn maður og frábær leiðtogi. Fyrir mig sem nýjan þingmann er mikið lán að fá að starfa með honum og njóta leiðsagnar hans. Það er ávallt gott að leita til hans því hann er afar úrræðagóður. Hann hlustar vel sem er oft sjald- gæfur eiginleiki nteðal stjórn- málamanna. Maður í hans stöðu þarf að taka mjögveigamiklar og þýðingarmildar ákvarðanir fyrir land og þjóð og í 90 prósent til- vika hafa hans ákvarðanir leitt til farsældar fýrir þjóðina. Það er stór og mikilvægur kostur og það er eins og hann sjái alltaf aðeins lengra fram í tímann. Hann er stórkostlegur Ieiðtogi og hefúr mikinn persónuleika." - Nií eiga menn almennt von á að hann verði ekki mörg ár lil við- bótar í pólitík. „Er þetta ekki frekar óshyggja andstæðinganna að halda slíku fram? Ég hef trú á því að hann verði að minnsta kosti fjögur ár í viðbót, en ég er kannski líka nokkuð eigingjörn þegar ég segi þaö.“ - Sérðu einhvem í flokknum sem getur tekið við af honum? „Þegar Davíð kemur f framtíð- inni til með að hætta þá eru í Sjálfstæðisflokknum sterkir ein- staklingar sem hafa mjög mikla hæfileika til að taka við fiokkn- um. Þetta er ekki til að hafa áhyggjur af enda starfið í fiokkn- um það mikið og kröftugt." - Hver eru helstu áherslumál þín í pólitík? „Ég hef ávallt litið á málin út frá sjónarhóli fjölskyldunnar enda var slagorðið hjá mér á sínum tíma „öll mál eru fjölskyldumál". Ég nefni fyrst cfnahagsmálin, það skiptir gríðarlega miklu máli að þeim sé vel stjórnað og kaupmátt- ur fjölskyldunnar varðveitist og eflist. Einnig öflugt menntakerfi sem og heilbrigðiskerfi. Ef mark- visst er unnið að framþróun á þessum sviðum líkt og gert hefur verið á undanförnum árum er það til hagsbóta fyTÍr fjölskvlduna sem slíka. En þegar maður kemur inn á þingið mótast starfið nokk- uð af þeim nefndum sem maður starfar í. Ég er í þremur nefnd- um, menntamála- og samgöngu- nefnd og cr formaður allsherjar- nefndar. Samgöngumálin og fjar- skiptamálin þykja mér mjög skemmtileg viðfarigsefni enda spennandi tímar. En allt er þetta fjölbreytt og erfitt að gera upp á milli. Ég vona að ríkisstjórnin einka- væði sem mest á kjörtímabilinu. Ég tel skipta mjög miklu máli fýrr- ir áframhaldandi sterka efnahags- stjórnun að Landssíminn og bankarnir verði einkavæddir og hugað verði að sölu Landsvirkj- unar.“ - Nií finnst manni eðlilegt að þingmaður með metnað stefni hærra, ég á auðvitað við ráðherra- embætti. Stefnir þú þangað? „Það verður enginn ráðherra nema hann standi sig sem þing- maður, nema þá að inn komi sterkir mcnn, eins og til dæmis Davíð á sínum tíma sem var bú- inn að sýna og sanna hversu frá- bær borgarstjóri hann var. Ráð- hcrraembætti er verðugt verkefni og það er rétt að það er eðlilegt að þingmenn hafi þennan metn- að. Ég er þar cngin undantekn- ing. I dag stefni ég hins vegar fyrst og fremst að því að standa mig sem þingmaður í baráttu fyrir þeim málefnum sem ég vil beita mér fyrir. Eftir allar þær umbætur sem ríkisstjórnin hefur staðið fý'r- ir, nú síðast hækkun barnabóta og lækkun jaðarskatta, tel ég rétt að næsta skref sé stigið í þágu aldraðra og önrkja. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ákveðna fram- tíðarsýn og það er ekki hægt að henda sér út í framkvæmdir á öllum sköpuðum hlutunr á fý'rsta degi kjörtímabilsins. Eitt tekur við af öðru. þannig verða framfarirnar." „Ég lít bara á mirtn stóra flokk Sjálfstæðisflokk/nn. Þrátt fyrir 26 þingmenn erhelsta einkenni þlngflokksins hvað hann ersamstiga. Við deilum stundum innbyrðis en leggjum okkur fram um að útkljá ákveðin málefni áður en við kynnum þau opinberlega."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.