Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 12

Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 12
LÍF/Ð í LANOINU 12 - LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 Krydd- og reykelsis- ilmandi óreiða Undanfarna vetur hefur Þóra Guðmundsdóttir arkitekt og gistihússtýra á Seyðisfirði dvalið nokkra mánuði í fylkinu Kerala á Suður- Ind- landi og hrifist mjög af landi og þjóð. „Eg gleymi aldrei þ\a Indlandi sem mætti mér þegar ég kom þar fyrst fyrir tíu árum, né fyrstu ökuferðinni um öngstræti Göntlu Dehli. Aldrei fyrr né síð- ar hafa skilningarvit mín og sansar orðið lyrir svo massívum árásum. Ótrúleg mannmergðin, hitinn, hljóðin, litirnir, lyktin og endalaus sjónarspilin breyttu heimsmynd minni á einu kvöldi," segir Þóra. Hún lagði fyrst leið sína til Indlands á vegum hresku ferða- skrifstofunnar Iligh Places sem hefur sérhæft sig í að fara með litla hópa á framandi og ævin- týralega staði með það fyrir aug- unt að kynnast landi og þjóð á auðmjúkan og nærfærin hátt. Hún heillaðist svo mjög af lnd- landi og þessu ferðalagi, að henni þótti hún þurfa að lofa öðrum að njóta með sér. Það varð því úr að í fyrravetur tók hún að sér lciðsögn og umsjón með alíslenskri ferð á vegum þessarar sömu ferðaskrifstofu. Tólf Islendingar á aldrinum 24- 74 lögðu land undir fót og líkaði svo vel að Þóra ráðgerir aðra ferð í febrúar í vetur. Ilún er beðin að lýsa ferðinni nánar. Fjölbreyttur ferðamáti „Það er farið um stórborgir jafnt og staði úr alfaraleið, um af- skekktar sveitir og fjallahéruð. Það er hjólað, gengið, siglt ferð- ast með lestum, rútum, drossí- um og rickshowum. Það eru klifin Ijöll og flatmagað á strönd- inni, siglt með fagurgræna hrís- grjónaakra á báða bóga eða smogið um þröngar götur f leit að framandi varningi. Það cr hjólað á fáförnum sveitavegum, farið í ayurvediskt nudd á áfangastað, snæddar gómsætar máltíðir og dvalist í menníngar ashrami þar sem hægt er að velja á milli stuttra námskeiða í t.d í matargerð, dansi, bardaga- list, tréskurði og tónlist." Ferðin tekur 1 7 daga heiman og heim en Þóra er þeim innan handar sem vilja dvelja lengur og miðinn heim er opinn. Hún segir indverskan leiðsögumann með í för allan tímann, bílstjóra og tilfallandi hjálparmenn í göngu- og hjólaferðum. Hálfnaktir heilagir menn Þóra fer ekki dult með áhuga íslenski hópurinn sem fór tii Indlands í fyrravetur er hér i Ghattfjöllunum 12000 metra hæð. Ávaxtasölukona á ströndinni. Stór ávöxtur úr körfunni hennar kostar sem svarar 50 krónum. Staldrað við hjá fiskimönnum við Arabíska hafið. og þéttbýlasta svæði lndlands en jafnframt eitt auðugasta og best stadda félagslega og fjár- hagslega, að sögn Þóru. „Þetta er lítið ríki syðst á vesturströnd Indlands með endalausar hvítar sandstrandir í vestur til Arabíu- hafsins og frjósamar hlíðar Ghatthæðanna í austur. Ef til vill er mannlífið hvergi litríkara og fjölbreyttara en einmitt þar. lfelstu trúarbrögð heims, kristni, islam, hindúismi og búddismi una þar saman í sátt og hinir dökku og snaggaralegu Dravídar sem eru frunrbyggjar landsins og hinir ljósu Indó-ar- íar sitja hlið við hlið í yfirfull- um strætisvagninum." Hvergi hefur hið illræmda kastakerfi verið strangara en í Indlandi, þar sem hinir ósnert- anlegu þurftu að ganga mcð bjöllu til að að vara æðri stéttir við nærveru sinni. Þóra segir vissulega enn eima eftir af þessum hryllilegu stéttafor- dómum þó kastakerfið sé nú bannað með lögum. Þóra fullyrðir að enginn vcrði samur maður eftir Indlandsferð og vart sé hægt að hugsa sér meiri andstæður en einmitt okkar strjálbýla, kalda land að vetri til - og Indland. GUN. Þóra í hjóireiðaferð um hrísgrjónaakra i Indlandi. sinn á Indlandi og indverskri menningu. „Indland er ekki bara eitt af löndunum á Ianda- kortinu heldur fjarlægur dular- fullur draumur, flöktandi sýn þar sem bregður fyrir fakírum, fílum, hálfnöktum heilögum mönnum, íðilfögrum sharisveip- uðum konum, dökkeygðum börnum, heilögum kúm, haltr- andi betlurum, allt í einni krydd- og reykelsisilmandi óreiöu. Hún telur það vafalaust taka meira en mannsævi að komast af skynjunarstiginu yfir í að öðl- ast skilning á því flókna púslu- spili Indlandi. Þverstæðurnar og andstæðurnar sem alls staðar hlasi við séu bæði heillandi og óskiljanlegar. Hún nefnir dæmi: „Ævaforn fortíð mætir án sýni- legra árekstra tölvuvæddum nú- tímanum. Ungi maðurinn sem að deginum vafrar um al- að vera heimsálfa með sína 1000 milljón íbúa, 325 mis- munandi tungumál og mállýsk- ur, að minnsta kosti sjö mis- munandi trúarbrögð og 25 ríki, hvert með sínum sérkennum." Kerala, land guða og pálmatrjáa er eitt frjósamasta heimsvefinn og hannar tölvu- kerfi fyrir gatnamálastjórann í Leverkussen, situr að kvöldi á gólfinu í borðstofu móður sinnar og snæðir ljúffenga máltíð af bananablaði með fingrunum, máltíð sem var elduð á hlóðum með kúamykju að eldsneyti. A leiðinni í vinnuna í tölvu- verinu í bítið næsta dag kemur hann við í hofinu baðar sig í musteris- tjörninni og færir Ganesh sem er hvort tveggja guð þrauta og lausna, blóm og hunang að fórn." Ekkert venjulegt land „Indland er ekkcrt venjulegt land", segir Þóra, „ekki heldur í landfræðilegum skiln- ingi. Það er mun nær því

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.