Dagur - 04.11.2000, Síða 1

Dagur - 04.11.2000, Síða 1
LandsbanMnn með 57% í nýjnm banka Grídarleg átök bak viö tjöldin lun eignar- hlut ríkisbankanna í hinuiii nýja samein- aða banka. Búnaðar- bankinn sagður fá 43%. Reynt að koma ákveðinni vinnslu í nýja bankanum út á land. Helgi S. Guðmundsson, formað- ur bankaráðs Landsbankans, staðfesti í samtali við Dag í gær að nefnd sú, sem unnið hefur undanfarið að skýrslu til Sam- keppnisráðs vegna sameiningar ríkisbankanna, stefndi að því að skila skýrslu sinni í gærkveldi. Hann var þó ekki alveg viss um að það tækist. Helgi vildi ekkert segja á þessu stigi hvað í skýrsl- unni væri. Gríðarleg átök hafa verið undan- farið milli stjórn- enda Landshank- ans og Búnaðar- bankans um hvern- ing eignaskiptingin verður þegar nýr banki verður stofn- aður, væntanlega um áramót. Niður- staða þessara átaka er, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Dags, að hlutur Lands- bankans í sameinuðum banka verði metinn 57% en Búnaðar- bankans 43%. Þeir sem best þekkja til segja að þarna sé hlut- ur Landsbankans of lítill. . Fækkim útibúa og uppsagnir Vitað er að í skýrslunni sé að finna tillögur bankanna um hvaða útibúum og afgreiðslum eigi að loka við sameininguna. Sömuleiðis hve mörgu starfsfólki verður sagt upp, en það er talið vera á milli 200 og 300 manns. Þá er líka að finna hugmyndir eða tillögur um hvaða eignir verði seldar ef Samkeppnisráð telur hlut samein- aðs banka of stór- an og ráðandi á íslenskum banka- markaði. Aður hefur komið fram að þar hefur eink- um verið rætt um að Landsbank- inn selji VIS og Landsbréf. Við sameiningu banka er sem fyrr segir talið að á milli 200 og 300 manns missi vinnuna. Það er ekki bara að bankarnir séu báðir með útibú á sjö stöðum á landinu og því ljóst að annað þeirra verður lagt niður, heldur verða nokkur útibú á höfuðborg- arsvæðinu líka lögð niður. Þessar uppsagnir gamalgróins starfs- fólks er að sjálfsögðu það sárs- aukafyllsta við sameininguna. Miðviimsla út á land? Samkvæmt heimildum Dags mun vera að finna í sameining- arskýrslu í Búnaðarbankanum hugmyndir um að koma svokall- aðri miðvinnslu bankana út á land og draga þannig úr upp- sögnum þar. Miðvinnsla er ýmis- konar tölvuvinnsla sem fram fer utan afgreiðslusala bankanna. Bankamenn, sem Dagur hcfur rætt við, segja liins vegar að nær útilokað sé að koma miðvinnsl- unni út á land vegna þess að flutningsgeta netkerfisins sé ekki nógu öflug. Nú hefur Samkeppnisráð 6 vikur til að Ijúka Sinni vinnu við málið. Þá verður lagafrumvarp um sameininguna lagt fyrir AI- þingi og stefnt er að því að nýr banki taki til starfa um áramótin. Gárungar eru þegar farnir að kalla hann Landbúnaðarbank- ann eða LB-bankann. -S.DÓtlt vísir.is Lítiltrúá vægari refsmgiun Netverjar virðast hafa litla trú á gildi vægari refsinga fyrir tíðni glæpa. Dagur spurði á Netinu eftir- farandi spurningar: Telur þú að vægari refsingar skili sér í færri glæpum? Svar mikils meirihluta þeirra sem atkvæði greiddu var neit- andi. 87 prósent töldu að vægari refsingar myndu ekki skila sér í færri glæpum, en 13 prósent sögðu já. Svarendur voru 2.330 talsins. Nú er hægt að svara nýrri spurningu Dags á Netinu: Er rétt að 14 ára stúlka fái pilluna án vitnesku foreldra sinna? Slóðin er sem fyrr: visir.is Kaupmenn Glerártorgs eru sammála um að verslun hafi farið betur af stað en nokkur þorði að vona í hinni nýju norðlensku verslanamiðstöð. Mikill mannfjöldi lagði leið sína á Glerártorg í gaer og lentu sumir í vandræðum með að finna bílastæði. -mynd brink Ingibjörg Sólrún. Herinn: Nei, takk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segist vera mótfallin því að leyfi verði veítt fyrir því að NATO og bandaríski herinn á Miðnes- heiði fái að vera með heræfingar í Bláljöllum í sumar eins og utan- ríkisráðuneytið hefur óskað eftir. Það sé m.a. vegna þess að þarna sé fólkvangur, útivistarsvæði og vatnsverndarsvæði. Af þeim sök- um séu engin rök fyrir því að hafa heræfingar þar auk þess sem ástæðulaust sé að vera með meiri athafnasemi á Bláfjallasvæðinu en nauðsynlegt sé. Búist er við því að framkvæmdastjórar vatns- verndarsvæða sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu muni á næst- unni gefa umsögn sína um þessa beiðni utanríkisráðuneytisins. Síðan kemur málið til kasta heil- brigðis- og umhverfisnefndar borgarinnar. -GRll Kærir ílug- málastjóm Jón Magnússon, tæknistjóri flug- félagsins Jórvíkur, hefur sent samgönguráðuneytinu stjórn- sýslukæru vegna framkomu Flug- málastjórnar og Guðjóns Sigur- geirssonar flugvélstjóra í sinn garð. Flugmálastjórn lýsti því yfir íyr- ir skömmu að Jón hefði brugðist trausti stofnunarinnar með því að heimila sem tæknistjóri flug einn- ar vélar Jórvíkur án þess að hún hefði fengið tilskilið skoðunar- vottorð. Yfirlýsingin kom f kjiilfar kæru Guðjóns Sigurgeirssonar flugvélstjóra og skoðunarmanns vegna flugs vélarinnar án tilskil- innar skoðunar. Jón Magnússon vildi að svo stöddu ekki tjá sig um stjórnsýslu- kæruna, en samkvæmt heimild- um blaðsins teiur Jón að vélin hafi fengið fullgilda skoðun, en að kærandinn sjálfur, skoðunar- maðurinn Guðjón, hafi ekki fært skoðunina í bækur. - FÞG hjjÉ^lErelsi bama wmmmmmmmmmmmammmammm Siffær nýtt húsnæði bls.33 Ófaglærð lögga ógilt vitni? bls. 28

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.