Dagur - 04.11.2000, Side 6

Dagur - 04.11.2000, Side 6
30-laugardagur ig. SEPTEMBER 2000 Th&pr ÞJÓÐMÁL Tk Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 OG soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. A mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-161 5 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir. Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavík) Stjómarráðsreitur í fyrsta lagi Kunngerð hafa verið áform um miklar tilfærslur á stjórnsýslu ríkisins í Reykjavík og boðað að búin verði til miðstöð stjórn- sýslu, viðskipta og menningar á svæðinu ofan við Arnarhól. Hugmyndin mun vera að koma öllum ráðuneytunum, nema utanríkisráðuneytinu á svokallaða „Arnarhvolstorfu" og er í þeim efnum m.a. horft til endurbóta á gömlum húsum á svæð- inu og byggingu nýrra, m.a. þriggja hæða stjórnsýsluhallar með görðum í miðjunni, eitthvað sem hlotið hefur sæmdar- heitið „randbygging'*. í öðru lagi I sjálfu sér hljómar þetta ekki illa sem skipulagstillaga fyrir þetta svæði sérstaklega vegna þess að flutningur ráðuneytanna er einungis lítill hluti af heildarskipulaginu sem rætt er um á þessu svæði. Hins vegar hlýtur að vakna sú spurning til hvers verið sé að flytja öll ráðuneytin á þennan sama blett? Er það til að auka og bæta þjónustu? Varla. Kemur þetta almenningi á einhvern hátt til góða? Nei. Eða er einfaldlea verið að búa til einhveija eftirlíkingu af því sem þekkist í mörgum aldagöml- um borgum í Evrópu þar sem myndast hafa sérstök ráðuneytá- hverfi? Trúlega. 1 þriöja lagi Embættismenn ráðuneyta og stjórnmálamenn hafa til þessa átt í erfiðleikum með að styðja flutning stofnana út á land. Iðulega eru notuð í þeirri umræðu hagkvæmnisrökin. Nú bregður svo við að hagkvæmnin virðist orðin að aukaatriði þegar kemur að flutningi stofnana innan Reykjavíkur, enda má búast við að embættismenn muni ódeigir finna rök íyrir glæsi- legum stjórnarráðsreit. Þó er t.d. nýbúið að leggja hundruð milljóna í að endurbæta félagsmálaráðuneytið og samgöngu- ráðuneytið og aukinn flottræfilsháttur í stjórnkerfinu þjónar engum samfélagslegum tilgangi. Haldi menn þessum áform- um til streitu, ættu þeir ekki að tala oftar um hagkvæmnisrök varðandií flutning stofnana. Birgir Guðmundsson Bóndinn í augunt bamanna vélum, þeir eru luralegir og Þegar Garri var ungur var hann sendur í sveit eins og títt var um kaupstaðabörn á þeim árum. Það kynntist hann harð- duglegu bændafólki sem strit- aði í sveita síns andlitis við framleiðslu meinhollra mat- vara á borð þeirra sem á möl- inni bjuggu. Á þessum áruni var bóndi bústólpi, bú var landsstólpi og bændur þ\n virt- ir vel. Bændur höfðu llestir jiokkalega afkomu og keyptu Tímann í skylduáskrift. Þeir voru hetjur sem riðu uni héruð og höfðu það nokkuð gott. En nú er öldin önn- ur. Bændur lepja flest- ir dauðann úr skel, Tíminn er hættur að koma út og rauðvíns- pressan notar hvert tækifæri til að sproksetja bændur og búalið. Hvað hefur gerst? Hví jiessi öfugþróun? Neftdbakshjassar Svarið er einfalt. Imyndar- smíðin hefur brugðist. Á með- an börn voru send í sveit var sambandið milli sveitar og þéttbýlis lifandi og áþreifan- legt og upplýsingaflæðið stöðugt. Imynd bænda var já- kvæð og traust. En nú er löngu hætt að senda borgarbörn í sveit og og fæst jieirra hafa nokkurn tím- ann séð lifandi bændur, aðeins Ieikna í bíómyndum Hrafns Gunnlaugssonar og skemmtisketsum Halla og Ladda. Og það er sú ímynd sem borgarbörnin byggja á. Því þurfa ekki að koma á óvart niðurstöður könnunar sem geröar voru í einuni grunnskóla Reykjavíkur, þar sem börnin voru beðin að lýsa bændum. Og |iau gerðu það eitthvað á þessa leið: Bændur er illa til fara, í götóttum sloppum, ganga í gúmmístíg- V sterkir og taka í nefið. Og bændakonur eru með skuplur á höfði, með svuntu og gúmmíhanska. Baltasar bóndi Þetta er auðvitað ótækt og kallar á stórátak í ímyndar- smíðinni. Það er ekki nóg að talsmenn bænda á horð Þing- eyingana Ara Teits og Sigur- geir Þorgeirs komi fram í sjón- varpsfréttum snjallir og snyrti- legir í hvívetna, því borg- aræskan horfir ekki á sjónvarpsfréttir. Eina raunhæfa aðgerðin er því að búa til spennandi bíómynd þar sem lögð er áhersla á bóndann sem rómantíska hetju og töf- fara, mynd sem höfðaði til barna og unglinga. Tilvalið væri að Iáta Hilmi Snæ leika kúabónda sem væri rokksöngvari í hjáverkum og Baltasar Kormák sauðfjár- bónda sem hannaði tölvuleiki meðfram smölun. Þeir gætu svo barist um hylli ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu sem nýverið hefði fengið tilboð um að leika í listrænni Hollywood-ræmu. Þegar 40.000 ungmenni hefðu séð jiessa mynd, er næsta víst að ímynd bænda hefði rétt verulega úr kútnum, ríkir dekurunglingar sæktu það fast að fá að verða bænd- ur, sem loksins tryggði nýliðun í stéttinni. Og það kæmist í tísku að borða eingöngu ís- lenskar landbúnaðarafurðir sem Ieiddi af sér kjarabætur fyrir bændur. Hin nýja ímynd myndi bjar- ga íslenskum landbúnaði og bændastéttinni. Og Garri er að sjálfsögðu tilbúin til að ræða sölu á handritshugmynd- inni við Bændasamtökin. ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON skrifar Þá er runnin upp Iokahelgi kosn- ingaslagsins í Bandaríkjunum. Á gamla sovéska byltingardaginn, 7. nóvember, verður kosinn nýr forseti Bandaríkjanna og fjöl- margir þingmenn, ríkisstjórar og valdaminni forystumenn í bandarísku samfélagi. Almennt séð virðist áhugi Bandaríkjamanna sjálfra á kosn- ingunum í lágmarki. Hvorugur aðalframbjóðendanna - A1 Gore eða George W. Bush - hafa náð að kvcikja eldmóð hjá bandarísk- um kjósendum. Þeir þykja satt best að segja frekar litlausir og Ieiðinlegir - Gore þunglamalegur kerfiskall, Busli ábyrgðarlaus og frekar fákænn pabbastrákur. Það er því að margra álíti um tvo slaka kosti að ræða. Nýjustu kannanir gefa til kynna að enn sé ómögulegt að segja til um hvor þeirra Gore eða Bush fari með sigur af hólmi á þriðjudaginn. Endaspretturtnn 15-16% flokkar Áhugaleysi Bandaríkjamanna á lýðræðislegum kosningum er reyndar eitt af undrum þess samfélags sem gjarnan er kallað forysturíki lýðræðisþjóðanna. Það þykir gott ef þriðjungur þeirra bandarísku þegna sem eru á kosninga- aldri nenni að greiða at- kvæði um hver eigi að véra næsti for- seti Bandaríkj- anna. Eins og Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Washington, benti á nýlega, eru stóru flokkarnir þar vestra - demókratar og repúblíkanar - í reynd 15-16% A/ Gore. flokkar þegar miðað er við heildarfjölda þeirra sem aldurs- ins vegna eiga rétt á að kjósa. Þar fara menn ekki sjálfkrafa inn á kjörskrá eins og á Islandi og víðast hvar í öðrum lýðræðis- ríkjum. Og mikill hluti Banda- ríkjamanna hefur ekki einu sinni áhuga á að láta skrá sig á kjör- skrá, hvað þá meira. Það er ekki síst hinn fá- tæki hluti þjóðarinn- ar sem lætur kosningar eiga sig - telur þær leik þeirra sem ríkir eru. Þannig er þetta auðvitað á fleiri sviðum í Bandaríkjunum. Misskiptingin er gífurleg. Afar fjölmenn stétt fátæklinga nýtur ekki góðs af því að húa í þessu auðugasta samfélagi jarðarinnar. Það er til dæmis sláandi að um tíu millj- ónir Bandaríkjamanna eru ekki til í bankakerfi landsins; eiga þar hvorki reikning, greiðslu- kort né nokkur önnur viðskipti. Hver er miuiuriim? Svo er auðvitað spurningin: skiptir nokkru máli hvor vinnur? Já, það yrði betra fyrir Banda- ríkin og umheiminn ef Gore færi með sigur af hólmi. Hann hefur bæði þekkingu og dómgreind til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Engum heilvita manni hefði hins vegar noklíru sinni dottið í hug að gera George W. Bush að forseta nema vegna þess eins að hann er sonur pabha síns. Verði hann kosinn mun gamla valda- stétt repúblíkana því stjórna landinu í sfna þágu á meðan for- setinn skemmtir sér. Eru fordómar gegn landsbyggdinni að auhast? (Páll Pétursson félagsmálaráð- herra segir þetta í grein á Netinu og notar orðið rasismi í þessu sambandi.) Sigurjdn J. Sigurðsson, ritstjórí Bæjarins besta á ísajmYi. „Stundum held ég að svo sé, en frekar vil ég þó trúa því að hér sé uni að ræða van- þekkingu á kost- um landsbyggð- arinnar og því fjölmarga góða sem hún hcfur uppá að bjóða. En fram hjá því verður þó ekki horft að oft á tíðum held ég að okkur landsbyggðarfólki sé sjálfu um að kenna hvernig þessu er komið, því alls ekki er sama hvernig menn kynna sinn mál- stað - móta þannig viðhorfin." Björgvin G. Sigurðsson, varaþingmaðtirSamJylkingaráSnður- landi. „Eg held að ekki sé hægt að tala um beina for- dóma gegn lands- byggðinni. Hins vegar er gjáin á milli landsbyggð- ar og höfuðborgar sífellt að aukast og spennan magnast. Þensla síðustu missera hefur fyrst og síðast orðið vart á höfuð- borgarsvæðinu og fólkið eltir störfin og launin. Flóttinn af landsbyggðinni er þjóðarvandi sem stjórnvöld hafa ekki brugð- ist við. Stjórnarflokkarnir hafa sofið á verðinum utan upphlaup sem enda með ósköpum, Iíkt og flutningurfjarvinnslustarfanna. Þörf er á nýrri hugsun í byggða- málum þar scm rösklega er geng- ið til verka og þar leikur upplýs- ingabyltingin lykilhlutverk." Óskar Bergsson, varaborgaifiintniiFramsóknaiflokksins. „Nei, og þvert á móti held ég að Islendingar Iíti miklu frekar á sig sem einn hluta í samfélagi þjóö- anna. Gamaldags hreppapólftík og þúfnaslagur heyrir fortíðinni til, sem betur fer. Mjög margir höfuðborgarbú- ar myndu kjósa að búa úti á landi ef fjölbreytni væri þar meiri í atvinnulífinu." Sigríður Dóra Sverridóttir, húsmððirá Vopnafiiði. „Það er fráleitt að tala um rasisma. Landsbyggðin á vitaskuld undir högg að sækja, en ég held að okkar eigið hugarfar haldi okkur í hlekkjum og það sé skýringin á ímyndaðri sýn sem við höldum að margir höfuð- borgarbúar hafi á okkur. Við get- um allt ef víljinn er fyrir hendi - en fyrst af öllu til að bæta stöðú landsbyggðarinnar er að ráðherr- ar landsins noti sér völdin seirf- þeir hafa til að breyta hlutum." 1

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.