Dagur - 11.11.2000, Blaðsíða 7

Dagur - 11.11.2000, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 - 31 Vi^ur RITSTJÓRNARSPJALL Simdruð þjóð í vanda ELÍAS SNÆLAND JONSSON SKRIFAR Umheimurinn veit vart hvort réttara sé að hlæja eða gráta vfir fáránlegasta leikriti ársins - bandarísku forsetakosningunum. Sjónvarpsmiðlarnir, sérfræðingar þeirra og blaðurskjóður, hafa far- ið með veigamikil aukahlutverk í þessari pólitísku tragikómedíu. Hins vegar er rétt að hafa í huga að hér er um að ræða býsna alvar- legt mál fyrir þjóðir heims vegna þess að tekist er á um það hvaða öfl eigi að ráða ferðinni í eina risaveldi jarðarinnar næstu fjögur árin. Hér skal engu um það spáð hver muni á endanum taka við völdunt í Hvíta húsinu á næsta ári, enda kann það enn að dragast nokkuð að fá niðurstöðu í það mál. Hins vegar er óhjákvæmilegt að hafa miklar áhyggjur af því í hvaða áttir bandarískt lvðræði er að þróast. Þetta á sérstaklega við um framkvæmd kosninganna í Flór- ída, þar sem bróðir George W. Bush er ríkisstjóri. Lýsingarnar á atburðarrásinni þar minna mildu frekar á kosningar í spilltu ban- analýðveldi en þá festu og ábyrgð sem ástæða er til að vænta frá stórveldi sem telur sig þess um- komið að predika yfir öðrum þjóðum hvcrnig eigi að stunda lýðræðisleg vinnubrögð. Flór- ídamönnum hefði líklega ekki veitt af því að fá til sín kosninga- eftirlitsmcnn til dærnis frá evr- ópskum lýðræðisríkjum. Forsetaembættinu stolið? Það þarf engan að undra þótt demókratar bregðist hart við tíð- indunum frá Flórída. Ef stjórn- völd í Flórída tilkynna opinber- lega að George W. Bush sé sigur- vegari í ríkinu, og þar með rétt- kjörinn forseti Bandaríkjanna, þrátt fyrir allt það sem fram hef- ur komið um misfellur við fram- kvæmd kosningana, munu marg- ir demókratar vítt og breitt um Bandaríkin Iíta svo á að repúblík- anar hafi stolið forsetasembætt- inu. Þessu verður ekki síst haldið fram vegna þess að þúsundir kjósenda í einni sýslu Flórída misskildu kjörseðilinn og merktu við Pat Buchanan, sem var í framboði fyrir svokallaðan um- bótaflokk, þegar þeir héldu sig vera að kjósa A1 Gore, frambjóð- anda demókrata. Jafnvel Buchan- an sjálfur er þessarar skoðunar og segir að langflest þau atkvæði sem hann fékk í umræddri sýslu hafi Gore í reynd átt að fá. Allt bendir til að þessi mistök verði afgerandi fyrir úrslitin í Flórída og þar með niðurstöðu forsetakosninganna. Þess vegna blasir auðvitað við að verði Bush útnefndur sigurvegari í Flórída án þess að kosið verði á nýjan leik í þessari sýslu, munu fjölmargir verða sannfærðir um að hann hafi orðið forseti án þess að vera rétt kjörinn til embættisins. Og þeir hefðu að öllum líkindum rétt fyrir sér. Ekki með í „lýðræðinu“ Annars hefur það lengi þótt furðulegt að þjóðfélag sem hælir Ef George l/l/. Bush, forsetaframbjódandi repúblíkana, verdur forseti Bandaríkjanna án þess að kosið verði á ný í þeirri sýslu Flórída þar sem mestu mistökln voru gerð ... ... munu fjölmargir stuðningsmenn Al Gore, frambjóðanda demókrata, líta svo á að repúblíkanar hafi stolið for- setaembættinu. sér sífellt af því að vera helsta Iýð- ræðisríki heimsins, skuli gera þegnum sínurn jafn erfitt um vik að nýta lýðræðislegan rétt sinn og raun ber vitni. Þeir sem eru á kosningaaldri þurfa sjálfir að hafa fyrir því að skrá sig á kjörskrá og verða þá um leið að skýra frá því hvort þeir fylgi öðrum hvorum stóru flokk- anna eða séu utan þeirra. Þetta er gjörólíkt því sem gengur og gerist í flestum lýðræðisríkjum þar sem kjósendur fara sjálfkrafa á kjörskrá þcgar þeir ná tilskyld- um aldri. Bandaríska kerfið á sér póli- tískar skýringar í fortíðinni. Valdastéttin, sem áður fyrr byggð- ist fyrst og fremst á auðugum landeigendum, höfðu mikla van- trú á alþýðu manna þrátt fyrir há- tíðarlegar yfirlýsingar um rétt fólksins. Reglurnar um skráningu manna á kjörskrá voru þannig áratugum og öldum saman not- aðar til að koma f veg fyrir að „óæskilegir" alþýðumenn gætu kosið. I Suðurríkjunum, þar sem íhaldsöflin hafa ráðið ríkjum, voru svertingjar þannig kerfis- bundið hindraðir í því að komast á kjörskrá og atkvæðisrétturinn þannig f reynd tekinn af þeim. Þetta kerfi hefur enn í dag þau áhrif að tugmilljónir manna á kosningaaldri taka engan þátt í „lýðræðinu." Það þarf auðvitað „Þvert á móti er þess að vænta að næsta kjörtímabil forseta Bandaríkjanna - hvort sem hann heitir Bush eða Gore - verði hlóðugur vígvöllur flokkspólitískra átaka.“ ekki að koma á óvart að þetta er fyrst og fremst fátæk alþýða manna, en fátæklingar eru fjöl- menn „stétt“ í þessu ríkasta landi heims. Þátttaka í forsetakosningum hefur farið ntinnkandi mörg und- anfarin ár. Þegar þeir John F. Kennedv og Richard M. Nixon áttust við árið 1960 greiddu 63 prósent Bandaríkjamanna á kosningaaldri atkvæði, og var það algjör metþátttaka. 1 næstsíðustu forsetakosningun var þátttakan hins vegar aðeins 49 prósent, og hafði ekki verið lægri í 72 ár. Bráðabirgðatölur sýna að núna hafi um 50.7 prósent mætt á kjörstað. Sem þýðir að um helm- ingur bandarísku þjóðarinnar lét ekki sjá sig. Af sjálfu leiðir að það eru tvær þjóðir í bandarísku samfélagi. Helmingur þjóðarinnar tekur þátt í lýðræðinu með því að kjósa. Hinn hclmingurinn lætur sig stjórnmálaákvarðanir engu varða. Rannsóknir á efnahag þeirra kjósenda sem mæta á kjörstað sýna glögglega að sífellt stærri hluti þeirra er hátekjufólk sem hefur auðvitað allt annarra hags- muna að gæta en fátæklingarnir. Og þetta fólk ræður úrslitum kosninga. Ólík viðhorf til ríkisvaldsins En það er ekki aðeins að helm- ingur bandarísku þjóðarinnar haldi sig utan við stjórnmál og kosningaþátttöku. Hinn hclming- urinn, sá sem kýs í kosningum, er einnig klofinn í tvær nokkurn veginn jafn stórar fylkingar. Það sem skilur á ntilli er gjörólíkur skilningur á því hvert eigi að vera hlutverk ríkisvaldsins. Hægriöflin, sem í revnd ráða ferðinni hjá repúbh'könum, vilja að ríkisstjórnin í Washington geri sem allra minnst; skattar séu lág- ir, félagslegur stuðningur við þá sem minna mega sín sem minnst- ur og einstaklingurinn fái sem mest frelsi til að gera það sem þessi hægrisinnaði meirihluti tel- ur rétt, svo sem að fylla hcimili sín af bvssum og öðrum mann- drápstækjum. Það er svo hluti hins pólitíska tvískinnungs hægri manna að þeir vilja samt sem áður að ríkisvaldið banni einstak- lingunum að gera ýmislegt sem íhaldsöflunum finnst siðlaust; til dæmis banna konum að fara í fóstureyðingu. Þá á ríkisvaldið að hafa vald til að takmarka frelsi fólksins - bara af því að það hent- ar fordómum íhaldsaflanna. Vinstriöflin, ef yfirleitt er hægt að nota slíka skilgreiningu í bandarískum stjórnmálum, vilja hins vegar tiltölulega öfluga ríkis- stjórn sem tryggi félagsleg rétt- indi þeirra sem verst eru settir og dragi þannig úr þeirri ótrúlegu misskiptingu sem einkennir bandarískt samfélag. Mitt á milli þessara hópa er svo miðjan í bandarískum stjórnmál- um, þeir sem skilgreina sig sem óháða (sem þýðir aðeins að þcir eru ekki skráðir stuðningsmenn annars stóru flokkanna tveggja). Þessi fjölmenni hópur ræður gjarnan úrslitum kosninga vestra. Fyrir fjórum árum fékk Bill Clint- on forseti meirihluta atkvæði hinna óháðu, en að þessu sinni skiptust atkvæðin nokkurn veg- inn jafnt á milli Gore og Bush. Þess vegna er núna svona mjótt á mununum. Áhyggjuefiii Síðustu árin hefur harkan í bandarískum stjórnmálum verið afar grimmileg. Stjórnmálaátök á lslandi hafa verið og eru barna- leikur í samanburði við þann hat- ramma hanaslag sem einkennir samskipti repúblíkana og demókrata vestra. Þetta kemur meðal annars til af því að forystumenn þessara tveg- gja flokka láta yfirleitt flokkshags- muni ráða meiru en þjóðarhags- muni. Þetta birtist á síðasta kjör- tímabili í ofsafengnum og nær endalausum árásum repúblíkana á Bill Clinton. Eftir margra ára hatursherferð mistókst repúblík- önum naumlega að reka forset- ann úr embætti. Sá slagur skildi eftir sig mörg sár og djúpstætt vantraust á milli flokkanna. Ef næsti forseti Bandaríkjanna tekur við embætti í skugga alvar- lega ásakana um að hann hafi ekki í reynd verið réttilega kjörinn til þess embættis, mun síður en svo draga úr þessari gegndarlausu hörku. Þvert á móti er þess að vænta að næsta kjörtímabil for- seta Bandaríkjanna - hvort sem hann heitir Bush eða Gore - verði blóðugur vígvöllur flokkspóli- tískra átaka. Sú dapurlega staða bandarísks lýðræðis er ekki að- eins áhyggjuefni fyrir Bandaríkja- menn sjálfa, heldur einnig fyrir umheiminn - því áhrif forseta og ríkisstjórnar þessa risaveldis á velferð annarra þjóða hafa vcrið og cru óhjákvæmilega mikil.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.