Dagur


Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 2

Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 2
2 - ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 ly^ur FRÉTTIR Lækkandi lán og vaxandi vanskil I Ijósi ákveðins samdráttar á síðari helmingi ársins munu stjórnendur íbúðalána- sjóðs gera tillögur um nokkurn samdrátt í lánskeimildum sjóðsins fyrir næsta ár Afföll húsbréfa 9- 10%. Gert er ráð fyrir miimi lániun á næsta ári. Vanskil eru að aukast o g þegar orðið vart á nýju viðbótar- lánunum. „Já, við höfum haft áhyggjur af því að lífeyrissjóðirnir hafa verið að fara með fjármagn sitt úr Iandi og fengu rýmkaðar heirn- ildir til þess með lögum í vor. Við töldum þá að það kynni að hluta til að skýra þau miklu afföll hús- hréfa sem þá sköpuðust. Enda varð þá greinilega erfiðara að eiga viðskipti með húsbréfin og afföllin fóru greinilega hæst í apríl/maí,“ svaraði Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Ibúðalánasjóðs, spurður hvort menn telji samhand milli mikilla affalla í húsbréfakerfinu og mik- illa fjárflutninga lífeyrissjóðanna úr landi. Hann sagði viðræður hafa farið fram við stjórnendur lífeyrissjóðanna í vor, m.a. um þetta mál. En þeir hafi talið að þeim bæri að tryggja sína sjóði sem best og sem víðast. AfföUin á líku róli Samkvæmt tölum Seðlabankans virðist húsbréfaeign lífeyrissjóð- anna hafa staðið í stað, í kring- um 80 milljörðum, frá apríl til ágústloka og húsbéfaeign verð- bréfasjóðanna minnkað um nær þriðjung. Guðmundur segir þetta sjálfsagt hafa haft þau áhrif að markaðurinn varð tregari og afföllin rneiri. Magn bréfanna hafi lfka verð mikið. En nú hafi heldur dregið úr eftirspurninni eftir lánum sem sennilega hafi Iíka einhver áhrif. Markaðurinn hafi ofurlítiö jafnast þegar liðið hefur á haustið. Afföllin hafa um nokkurt seið rokkað á bilinu 9-10%. Lægri lán á næsta ári I Ijósi ákveðins samdráttar á síð- ari helmingi ársins segir Guð- mundur að stjórnendur íbúða- lánasjóðs muni gera tillögur um nokkurn samdrátt í lánsheimild- um sjóðsins fyrir næsta ár, svo gera megi ráð fyrir að minna verði um húsbréf á markaðnum á næsta ári en nú í ár og í fyrra. A hinn bóginn sé ekkert Iát á umsóknum um viðbótarlánin. „Það fer alveg út það sem fjárlög gera ráð fyrir á þessu ári og fylli- lega það. Og sveitarfélögin hafa veirð að sækja um viðbótarheim- ildir núna alveg fram á seinustu vikur," sagði Guðmundur. Vanskil farin að aukast En er kannski farið að bera á vaxandi vanskilum. „Já, því mið- ur er aðeins farð að bera á vax- andi vanskilum. Við sjáum líka að vanskil eru að koma þar f ljós á viðbótarlánum, ekki síður en á öðrum lánum.“ Þegar litið sé'til þess að elstu viðbótarlánin eru aðeins rúmlega ársgömul sé þó varla við að búast að vanskil á þeim séu farin að sína sig mjög mikið ennþá. - Hri Minni tekjur hafa verið afskemmt- anahaldi á Akureyri en áður Mimri skemmtim áAkureyii Undanfarin ár hefur 55-60% af tekjum ríkissjóðs af almennu skemmtanaleyfi fyrir veitinga- staði komið frá veitingastöðum í Reykjavík, samkvæmt svari fjár- málaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möller. Áárunum 1997-99 runnu 6,2 til 8,2 milljónir króna í ríkissjóð í innheimtu á skemmtanaleyfi innan borgarmarkanna, á með- an önnur sveitarfélög hafa greitt fáein hundruð þúsunda. Athygli vekur að skemmtanaleyfi til sýslumannsins á Akureyri voru 700 þúsund árið 1997 og 800 þúsund árið 1998, én datt niður í 300 þúsund 1999 og nær að- eins 200 þúsund krónum til miðs nóvembermánaðar í ár. Á sama tíma eru Sauðkrækingar og Keflvíkingar komnir með 600 þúsund krónur, lsfirðingar með 500 þúsund og Skagamenn með 400 þúsund. - fþg Stefnt á að ljúka samningi tyrir jól Ef fram heldur sem horíir verður ekki truflun á skólastarfi í grunnskólum i vetur vegna kjaraátaka. Grunnskólakeimarar og sveitarfélög. Sam- eiginleg stefnuyfirlýs- ing. Kerfisbreytingar. Svigrúm til kjara- breytinga. Töluverð bjartsýni virðist ríkja nteðal samninganelnda grunn- skólakennara og launanefndar svcitarfélaga að hægt verði að Ijúka gerð kjarasamnings fyrir grunnskólann fýrir jól. Sú bjart- sýni er m.a. afleiðing af sameigin- Iegri stefnuyfirlýsingu þeirra vegna kjarasamninga fyrir grunn- skólann. Það á liins vegar eftir að takast á um launakröfur kennara en þeir krefjast m.a. að byrjenda- laun hækki um rúm 38%, eða um 50 þúsund krónur á mánuði. Þá hafa þeir lagst gegn hugmyndum um breytingar á kennsluafslætti og kennsluskyldu. Svigrúm til kjarabreytinga Á sameiginlegum blaðamann- fundi samingsaðila í gær sem haldinn var í höfuðstöðvum kennara kom m.a. fram að þegar er lokið fyrsta áfanga samninga- viðræðna með stefnuyfirlýsingu um langtímamarkmið. Sam- kvæmt því á að nota kjarasamn- inginn sem tæki til að endurskoða skólastarf. Meðal áhersluþátta yf- irlýsingarinnar er að koma á kerf- isbreytingu og m.a. með nýjum áherslum í störfum kennara og skólastjórnenda og skapa svigrúm til kjarabreytinga. Guðrún Ebba Ólafsdóttir for- maður Félags grunnskólakenn- ara, Birgir Björn Sigurjónsson formaður samninganefndar launanefndar sveitarfélaga og Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélags Islands Iýstu öll yfir mikill ánægju með þessa stefnuyfirlýsingu. Þau sögðu hana ýmist vera „sögulega“, „tímamót" og „einsdæmi í vinnu- brögðum." Ekki efni á því besta Birgir Björn sagðist hins vegar ekki vera reiðubúinn á þessari stundu að segja hvað sveitarfélög- in væru tilbúin til að kosta miklu til að ná markmiðum stefnyfirlýs- ingarinnar né heldur hvað það sé raunsætl að koma á miklum breytingum í einni lotu. Hann segir að það kunni vel að vera að menn þurli að sjá fram í Iengra tímaferli. Það sé m.a. vegna þess að sveitarfélögin hafa kannski ekki efni á „besta" grunnskólan- um. Með stcfnuyfirlýsingunni sé hins vegar að finna sameigjnlega sýn á það hvernig Ieiðin sé að góðum grunnskóla. Það sé mjög mikilvægt. Dregið úr miðstýringu í yfirlýsingunni er m.a. stefnt að því að draga úr miðstýringu og auka möguleika sveitarfélags, skólastjórnenda og kennara til að skipuleggja skólastarfið eftir þörf- um nemenda. Ennfremur er gert ráð fyrir að breyta skilgreiningu á vinnutíma kennara. Lagt er til að stofnað verði grunnskólaráð til að stuðla að stöðugri þróun skólans og efla hlutverk bans í samfélagsþróun- inni. Til setu í þessu ráði verður m.a. boðið menntamálaráðherra, fulltrúum atvinnulífs, framhalds- skóla, leikskóla, foreldra og starfsfólki og nemendum grunn- skólans. Þá er gerð krafa um skýr- ar siðareglur um samhand kenn- ara við nemendur og á milli for- eldra og kennara svo nokkuð sé nefnt. -Giill Sumir hættir Á sjötta hundrað manns hlýddu á rektor Menntaskólans í Hamrahlíð í gær, Lárus H. Bjarnason er hann flutti ræðu á fundi í skólanum.. „Eg geng þess ekki dulinn að einhverjir í hópi nemenda bæði í dag- skóla og öldungadeild hafi þegar tekið þá ákvörðun að hætta námi í bili,“ var meðal þess sem rektor sagði. Ekkerl nýtt Hrðist vera að ger- ast í kennaraverkfallinu. Straumlaust vegna bilunar Stór hluti austurhluta borgarinnar varð rafmagnslaus á laugardag vegna bilunar í streng rétt við inntakið við aðveitustöð Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaám. Rafmagn datt út í Breiðholti, Árbæ, Bústaðahverfi og Háaleitis- hverfi, ásamt hluta af Kópavogi og götuljós fóru víðar. Viðgerð er í undirbúningi, en hjá megin þorra þeirra sem misstu rafmagn var straumur kominn á aftur eftir 22 mínútur eða kl. 18.07. Síðast kom rafmagn á spennustöðna í Blesugróf kl. 20:30. I gærmorgun fór rafmagn og af Borgarspítalanum um skeið, en þar var um innanhússvandamál að ræða og þurfti að keyra á varaafli meðan á biluninni stóð. - fþg

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.