Dagur - 05.12.2000, Blaðsíða 4

Dagur - 05.12.2000, Blaðsíða 4
4 - ÞRIDJUDAGU R S. DESEMBER 2000 FRÉTTIR Hér má sjá nokkra erlenda starfsmenn í öldrunarþjónustu sem tóku þátt I námskeiöinu þegar Páll Pétursson afhenti þátttakendum viðurkenningarskjal fyrir helgina. - mynd: e.ól. Nám fyrir erlenda í öldnmarþjónustu Félagsmálaráðherra af- hendir viðurkeimingar þeim sem lokið hafa námi á námskeiði fyrir erlent starfsfólk í öldrunarþjón- ustu. Námskeiðið hefur auMð orðaforða og mál- skilning þátttakenda og þannig hætt samsMpti við sjúklinga og samstarfs- fólk. Oldrunarþjónusta er vaxandi þjónustu- grein eftir því sem hlutfall aldraðra með- al þjóðarinnar eykst. Það kallar eftir fleira fólki til starfa í öldrunarþjónustu, bæði faglærða sem ófaglærða. A sama tíma fjölgar þjónustuúrræðum bæði í heimaþjónustu sem og á stofnunum. Af þeim sökum hefur ráðning erlendra starfsmanna til þessara þjónustustarfa færst mjög í vöxt en því fylgir ákveðinn vandi, þar sem langfæstir þeirra kunna íslensku. Samstarfsverkefni Starfsmenntaráð og menntamálaráðu- neytið ákváðu haustið 2000 að veita Námsflokkum Reykjavíkur tæpra ljög- urra milljón króna styrk til verkefnisins „Starfsnámskeið fyrir erlent starfsfólk í öldrunarþjónustu". Verkefnið er sam- starfsverkefni þessara aðila og öldrunar- stofnana, Landspítala-háskólasjúkrahúss og heilbrigðisráðuneytisins. Unnt verður að nýta námsefnið á öðrum sviðum heil- brígðisþjónustu með Iítilsháttar lagfær- ingum og aðlögun að hverjum vinnustað. 60 keimslustunda nám Verkefnið felur í sér að Námsflokkar Reykjavíkur útbúa námsefni og halda nokkur námskeið fyrir erlent starfsfólk í öldrunarþjónustu. Námskeiðin eru 60 kennslustundir og innihald þeirra skipt- ist í þrjá meginþætti; íslenskukennslu tengdri störfum og verklagi, hugmynda- fræði vinnustaðarins og réttindi og skyld- ur á vinnumarkaði. I íslenskukennslunni eru nemendur þjálfaðir í grunnfærniþátt- um íslensku sem annars tungumáls þ.e. lestri, ritun, tali og hlustun. Annars veg- ar er lögð áhersla á tungumál vinnustað- arins og störf og verklag en hins vegar á almennan orðaforða og samskipti í dag- legu lífi. Hugmyndafræði vinnustaðarins byggir á þeim markmiðum sem vinnu- staðurinn hefur sett í sambandi við starf- semi sína og samskipti á vinnustað. Rétt- indi og skyldur eru kynntar, bæði sem tengjast vinnustaðnum og íslensku sam- félagi almennt. 27 nemendur af 18 þjóðemum Fyrsta námskeiðið var haldið á Landspít- ala-háskólasjúkrahúsi, Landakoti í októ- ber og nóvember, en kennt var þrjá daga í viku þrjár kennslustundir í senn á dag- vinnutíma og voru þátttakendur 27 tals- ins af 18 mismunandi þjóðernum. Að mati yfirmanna deilda á Landakoti hefur námskeiðið reynst gagnlegt, aukið orða- forða og málskiining þátttakenda og þan- nig bætt samskipti við sjúklinga og sam- starfsfólk. Skilningur erlendra starfs- manna á réttindum sínum og skyldum er skýrari að námskeiði loknu og hefur hann öðlast betri innsýn í hugmynda- fræði öldrunarþjónustu. Jafnframt er ábcrandi að þátttakendur hafa stofnað til nýrra kynna við starfsfólk af hinum ýmsu deildum sjúkrahússins í ríkara mæli en áður sem gerir starfsdaginn ánægjulegri. Jónas Krist- jánsson. Oli Björn Kárason. Atliygli liefur vakið í heita pottinum að báðir ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason, liafa brugðist til varnar gegn endurtekinni gagnrýni ýmissa netmióla og sjónvarps- þáttastjórnenda á blaðið. Þar munu ritstjóramir fyTst og fremst vera að vísa til þeirra Hrafns Jök- ulssonar á Pressunni á strik.is og Egils Helgasonar sem líka er á strik.is auk þcss að vera á Skjá ein- um. Bæöi Egill og Hrafn eru þan- nig í beinum tengslum við Morg- unblaósinenn, en Moggimi er líka í nánum tengslum við strik.is. í pottinum segja menn hins vegar að á sama tfma og krónan fellur og fellur jiá bafi gengið í þeim Hraftii og Agli aldrei verið hærra, því það teljist til einsdæma að tveir aðilar scm hvorki tengjast landbúnaði né séu stríðsglæpamenn - fái á sig þrjá leiðara í DV á aðcins nokkmm vikum... Um fátt er mcira rætt í heita pott- inum þessa dagana en Kára Stef- ánsson gengið í deCode og þjóðsög- urnar sem em að myndasl í kring- um þaó fyrirtæki. Stöðugt heyrast fleir sögur af einstaklingum og fýr- irtækjum scm sögð em hafa keypt hlutabréf í fyrirtækinu þegar æðið greip um sig í fyrra og er nú talað um að heilu jiorpin á sumum stöðum á lands- byggóinni standi frammi fyrir hinum mestu vand- ræðum fljótlega upp úr áramótum. Það fylgir meö í sögunni aö ýmsir bankar og sparisjóðir hafi hrif- isí með straumnum og lánað ótæpilega til bréfa- kaupanna. Pottverjar segja því að tvennt geti skýrt þessar mögnuöu sögur: Annað hvort er þetta gott dæmi um það sem kallað er „nútfma þjóðsaga“, þ.e. saga sem flýgur manna á meðal og á sér enga stoð í vemleikanum. Eða þá að hér em stórkostleg vandræði framundan, en því þorir þó enginn alveg að trúa ekki cinu sinni pottverjar - enda segir landsfaöirinn Davíð Oddsson jú að allt sé í besta lagi... Kári Stefáns- son. FRÉT TA VIÐTALIÐ Sturlaugur Tómasson deildarstjóri í félagsmálaráðnneytinu Rúmlega 200fatlaðir eru á biðlista eftirsambýli eða ann- ars konaríbúðum. Félags- málaráðuneyti og Öryrkja- bandalagið stejna að því að þörffyrir sambýli verði mættá rtæstu S árum. Þörf fyrir sambýli mætt á 5 ánun - Er stefnt að nýju dtaki í húsnæðsmálum fatlaðra? „Samkvæmt nýrri skýrslu um biðlista fatl- aðra eftir búsetu eru nú 209 manns á aldrin- um 16-67 ára, sem bíða eftir húsnæði á sam- býlum, eða með liðveislu í sjálfstæðri bú- setu. Langflestir þeirra eru í Reykjavík (118) og á Reykjanesi (57), eins og raunar hefur legið fyrir lengi. Til þess að eyða þess- um biðlista þarf rúmlega milljarð króna í ný- byggingar. En samkvæmt viljayfirlýsingu sem félagsmálaráðuneytið og Hússjóður Or- yrkjabandalagsins hafa gert með sér er hins vegar gengið út fá því að það verði frekar far- in leiguleið. Þ.e. að Hússjóður Öryrkja- bandalagsins (sem er einhver stærsti fbúða- eigandi á landinu með hundruð íbúða um allt land), verði eigandi húsnæðisins, sem að hluta til verði fjármagnað með lánum úr Ibúðalánasjóði, en félagsmálaráðuneytið leigi síðan sambýlin og annist allan rekstur þeirra. Að því er stefnt að þörfinni fyrir sam- býli verði mætt á næstu 5 árum.“ - Þaif þetta ekki að vera sérhæft hús- næði? „Að hluta til er verið að tala um sérhæft húsnæði, en ekki að öllu leyti. Það er verið að tala um að rýmum á sambýlum í Reykja- vík og Reykjanesi verði fjölgað um 80, sem þarf að koma á fót á næstu fimm árum. Á Iandsbyggðinni búa nú þegar á sambýlum 9 af hverjum 10 sem þurfa á slíku búsetuformi að halda, en aðeins um 2/3 þeirra í Reykja- vík og á Reykjanesi." - Hvar biia þeir sem em á biðlistunum núna og hvað eru margir fatlaðir þegar komnir í öruggt húsnæði? „Þeir 209 sem eru á biðlistum búa fyrst og fremst í foreldrahúsum. Af þeim þurfa 134 að komast á sambýli - þ.a. 83 í Reykjavík og 34 á Reykjanesi - en 75 geta búið sjálfstætt með frekari liðveislu. Samkvæmt skýrslunni búa nú nú þegar 877 einstaklingar á sambýl- um vistheimilum eða sjálfstæðri búsetu með fekari liðveislu og hefur fjölgað um rúmlega 70 síðan í ársbyrjun 1998, en á móti hefur fækkað um nær 30 á vistheimilum. Við áætlum að milli 1.050 til 1.100 manns þurfi á einhverjum þessara búsetukosta að halda, eða sem svarar 0,6% landsmanna á aldrinum 16-67 ára.“ - Hlýtur fötluðum sem þurfa búsetu- þjónustu ekki að að fjölga á næstu árum? „Það er áætlað að þeim sem þurfa stuðn- ing til búsetu muni fjölga um 60-70 á næstu fimm árum, eða 12-14 manns á ári. Af þeim hópl er gert ráð fyrir að um 60% þurfi [>jón- ustu á sambýlum og 40% frekari liðveislu." - Hvar hefur verið áætlað að þetta rnuni kosta? Kostnaðurinn við að ná því markmiði að koma á sambærilegu þjónustustigi í Reykja- vík og Reykjanesi eins og á landsbyggðinni er áætlaður 50 milljónir til viðbótar á ári í rekstur sambýla. í fjárlögum þessa árs er tæpir 3,5 milljarðar veittir vegna málefna fatlaðra. Að mati kostnaðarnefndar er talið að árlegur kostnaður vegna húsnæðismála og annarrar þjónustu við fatlaðra gæri orðið um 4,1 milijarður á ári í framtíðinni. Þá er ótalinn um 300 milljóna árlegur kostnaður vegna þjónustu við langveik börn.“ - Hversu mörg böm erufötluð? „Fötluð börn með umönnunarmat voru rúmlega 730 um síðustu áramót, sem flest eiga heima í Reykjavík. Að jafnaði eru þetta um 46 börn í árgangi, eða um 1% allra barna. Þessi börn eru misjafnlega mikið fötluð, en gera má ráð fyrir að um 300 þeir- ra a.m.k. muni þurfa umtalsverðan stuðning til búsetu á fullorðinsárum." — HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.