Dagur - 05.12.2000, Page 5

Dagur - 05.12.2000, Page 5
ÞRIDJUDAGUll S. OESEMBER 2000 - 5 FRÉTTIR Fj árlaganefnd sök- uð um imsmimun Unihverfisveriidarsíun tök Steingríms fá bein an styrk Alþingis en Náttúruvemdarsam- tökin ekki. „Óskiljan- leg mismunun“ segir NVÍ. Formaður íjár laganefndar vísar á sameiningarviðræður og umhverfisráðuneyt- ið. Náttúruverndarsamtök Islands (NVÍ) hafa sent fjárlaganefnd Al- þingis harðort bréf, þar sem nefndin er krafin svara um hvern- ig standi á þeirri mismunun sem fram kemur í því að Umhverfis- verndarsamtök Islands (U\'I) og Landvernd fá beina fjárveitingu en ekki NVI. Jón Kristjánsson for- rnaður fjárlaganefndar segir að NVl megi búast við fjárveitingu af óskiptum safnlið umhverfisráðu- neytisins líkt og við síðustu íjár- lagagerð og gilti þá einnig um UVl. Jón Kristjánsson. Vísar á umhverfisráðuneytið. „Akveðið var að setja Umhverfis- verndarsamtök lslands inn með beinan fjárlagalið í Ijósi yfirlýsinga um að þessi samtök væru að sam- einast. Síðan kom í ljós að þær fyr- irætlanir voru málum blandnar, en ekki var aftur snúið og verður mál- ið endurskoðað næst,“ segir Jón. „Óskiljaiileg niisinuuun“ NVI segir í bréfi sínu til íjárlaga- nefndar að samtökin hafi farið fram á að fá 2 milljón króna styrk af fjárlögum 2001, en brevtingar- tillögur meirihluta nefndarinnar Steingrímur Hermannsson: Of mörg samtök í landinu. beri ekki með sér að orðið verði við þessu, en aftur á móti fái Land- vernd 3 milljónir og UVÍ 2 milljón- ir. „Hér virðist sem meirihluti fjár- laganefndar ætli að marka þá stefnu að velja úr þau samtök á sviði náttúruverndar sem geti talist styrkhæf... Sú mismunun sem fram kemur í breytingatillögu meirihluta fjárlaganefndar er með öllu óskiljanleg," segir í bréfi NVÍ, sem Arni Finnsson framkvæmda- stjóri skrifar undir. Umhverfis- nefnd Alþingis vildi að orðið yrði við styrkbeiðninni. Jón segir að NVÍ hafi á fjárlög- um þessa árs fengið af safnlið um- hverfisráðuneytisins 800 þúsund krónur, að sig minni, og að UVÍ hafi fengið af sama Iið. „Náttúru- verndarsamtökin ættu að geta fengið aftur sams konar afgreiðslu. Umhverfisverndarsamtökin voru sett inn með beinan Ijárlagalið þar sem við höfðum þær upplýsingar að samtök um náttúru- og um- hverfisvernd hygðust sameinast undir einum hatti, en síðan kom í ljós að ekki reyndist grundvöllur fvrir slíkri sameiningu," segir Jón. Steingrímur vill sameina Steingrímur Hermannsson, for- maður UVI, segir það vitleysu ef menn draga þá ályktun að NVI fái ekki beina Ijárveitingu vegna vilja UVI um sameiningu samtaka. „Eg hef viljað beita mér fyrir því að sameina sem flest samtök sem vinna að náttúru- og umhverfis- vernd. Slík samtök eru of mörg að mínu viti. Hins vegar hafa Nátt- úruverndarsamtök Islands ekki verið til viðræðu um þetta,“ segir Steingrímur. — FÞG Mikið annríki hjá laganna vörðum. Lamiðmeð kylfuin Mjög mikill erill var hjá lögregl- unni í Reykjavík um helgina vegna ölvaðs fólks. Meiðsli voru yfirleitt minniháttar en margir fluttir á slysadeild. I nokkrum tilfellum var um að ræða átök milli dyravarða og gesta á veitingahúsum. Sem dæmi um ofbeldið má nefna að skömmu eftir miðnætti aðfaranótt laugardags var óskað eftir lögreglu að Norðurbrún en þar höfðu 5 manns ráðist að ungu fólki sem var í samkvæmi og lamið það með kylfum og hnúum. Þá var beðið um aðstoð lögreglu á Hverf- isgötu vegna slagsmála. Þrír menn sögðust hafa oröið fyrir árás og þegar lögreglumenn hugðust ræða við þá endaði það með átökum. 2 menn voru handteknir, færðir á stöð og vistaðir. Tveir lögreglu- menn meiddust í þessum átökum og voru fluttir á slysadeild. — BÞ Dýrt að lairna kennara illa Verðiun að viðurkeima þá staðreynd að við eig- iiiii allt undir iiieimt uniimi. Þaðverða aldrei til góðir skólar nema hafa góða kenn- ara sem eru ánægðir og vel launaðir, segir Ólaf- ur Öm Haraldsson. Eftir fundi helgarinnar virðist stað- an í kennaradeilunni vera í illleys- anlegum hnút. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur deilt við þá Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Geir H. Haarde um kennaradeil- una en þingmenn Framsóknar- flokksins hafa lítið haft sig í fram- mi. Olafur Örn Haraldsson er full- trúi Framsóknarflokksins í menntamálanefnd Alþingis og er raunar varaformaður nefndarinn- ar. Hann var í gær spurður hvað hann tekli vera til ráða til lausnar kennaradeilu nni? „Eg held að menn verði aö horfa á þetta í stærra samhengi og viður- kenna þá staðreynd að við eigum Ólafur Úrn Haraldsson. allt undir menntuninni. Menn verða að horfa langt enda eru þarna gríðarlega mikil verðmæti í húfi sem er menntastefnan og menntun unga fólksins í landinu og þar með framtíðar grundvöllur þjóðarinnar," sagði Ólafur Örn. Ólga sem þarf að leysa Hann bendir á að þessi kennara- deila sýni að þessi mál séu aldrei í ró. Að svona deilur skuli koma upp hvað eftir annað sýni að þarna er ólga undir, sem verði að taka á fyrr eða síðar og leysa til frambúðar þannig að á komist friður í þessum málum. „Það er alveg greinilegt að það sem gert hefur verið undanfarin ár hefur ekki nægt til að ná fram friði í kjaramálum kennara. Við megum alveg rilja upp þá alkunnu stað- reynd að það verða aldrei til góðir skólar nema hafa góða kennara sem eru ánægðir og vel launaðir. Eg hef orðað það þannig að við höfum ekki efni á að launa kenn- ara illa," sagði ólafur Örn. Hann sagði að sér sýndist nú hlaupin svo mikil stífni í þessa kennaradeilu að rétt væri að fá hjálp nýrra aðila við að ná sam- komulagi og þá væri hann að tala um aðila beggja vegna borðsins. Samkvæmt heimildum Dags eru menn almennt að missa vonina um að samkomulag náist í kenn- aradeilunni eftir þeim lciðum sem farnar hafa verið undanfarnar vik- ur. Leita verði nýrra leiða og nýir menn komi að deilunni úr báðum áttum. Eins er beðið eftir þ\í hvort sanikomulag tekst milli grunn- skólakennara og sveitarfélaganna. Það gæti haft áhrif á deilu fram- haldskólakennaranna. Menn eru bjartsýnir á að samningar takist fyrir áramót en þá eru samningar grunnskólakennara lausir. — S.DÓR MiUjónábætur fyrir læknamistök Héraðsdómur Norðurlands eystra dærndi í gær Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til að greiða liðlega sex- tugri konu á Dalvík 4,8 milljónir króna með vöxtum. Aðdragandi málsins er sá að 2. nóvember 1993, fór konan í skurðaðgerð á vinstri fæti, sem síðar hafi leitt til varan- legs heilsubrests. Konan var rúmliggjandi á FSA í 10 daga vegna aðgerðarinnar, síðan í 40 daga á Kristnesspítala og loks í 50 daga á Reykjalundi. Hún var því samtals rúmliggjandi 100 daga. Af- leiðingar þess að skurðaðgerðin lei- ddi ekki til ætlaðs árangurs má telja vera aukna hættu á slitgigt í báðum hnjám, hugsanlega í báðum mjaðmaliðum og í vinstri ökklalið auk aukins slits í mjóbaki vegna varanlegrar stiiðuskekkjii og álags. Dómurinn telur að með tilliti til aldurs stefnanda, þunga hennar, vaxtarlags og þess hversu slit á lið- utjéiríúll íIJ brjósld í vinstra hné hennar var orðið mikið, hafi sú ákvörðun læknisins að gera umrædda aðgerð á stefnanda í nóvember 1993, ver- ið vafasöm. Ólafur Ólafsson landlæknir hafði eftirfarandi orð um aðgerðina í bréfi til lögmanns stefnanda, dags. 22. maí 1995: „Ljóst er að ár- angur aðgerðar varð el<ki sem skyl- di og fellur að mínu áliti að nokkru leyti undir mistök.“ — GG Ingvar og Björk slógu í gegn lslendingar fengu þrenn verðlaun á Evrópsku kvikmyndahátíðinni sem haldin var í Frakklandi um sl. helgi. Ingvar Sigurðsson leikari fékk áhorf- endaverðlaunin fyrir leik sinn í Englum alheimisins og Björk Guðmunds- dóttir verðlaun sem besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í Myrkradansinum. Sú mynd féklí einnig verðlaun sem besta kvikmyndin. Þetta er mun belri árangur en margar stórar þjóðir náðu eins og t.d. Bretland, Italía, Spánn og Þýskaland sem fengu engin verðlaun. Frammistaða Ingvars Sigurðssonar vekur athygli þar sem kvikmyndin um Engla alheimsins hefur aðallega verið sýnd á kvikmyndahátíðum í álf- unni en ekki á almennum sýningum í evrópskum bíóhúsum. Engu að síð- ur fékk hann flest atkvæði frá áhorfendum sem kusu með aðstoð netsins og m.a. á vefsíðum evrópskra kvikmyndablaða og tímarita. Þorfinnur Omarsson framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs segir að það megi gera ráð fyrir því að þeir sem kusu Ingvar hafi verið í hópi þeirra „upplýstu" meðal lesenda og áhorfenda. Auk þess má gera ráð fyrir að ein- hver íjöldi Islendinga hafi kosið Ingvar á mbl.is. Það hefði þó verið smá hluti af heildarfjöldanum. Þá sé einnig möguleiki að atkvæðin hafi dreifst á marga. Þess utan var Ingvar einnig tilnefndur til verðlauna sem besti karlleikarinn og því fcngið meiri athygli en kannski ella. Þorfinnur segir að þessi verðlaun f\TÍr Björk séu enn ein staðfestingin á hennar stöðu í listaheiminum. — GRH Kaupa lettlenskan banka Íslandsbanki-FBA hyggst kaupa 56,2% hlut í lettlenska bankanum Rietumu Banka. Bankaráð hefur fjallað um málið og samþykkti skilmála kaupanna í gær með lyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Seðlabanka Lettlands. Stefnt er að undirritun kaupsamnings- ins á fyrstu vikum nýs árs. Með kaupunum er stigið nýtt skref í alþjóðavæöingu Islandsbanka- FBA og jafnframt er þetta fyrsta Ijárfesting bankans á Eystrasaltssvæðinu, en bankinn hefur nokkra revnslu af viðskiptum þar. — BÞ ( |.>J li ~ll M

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.