Dagur - 05.12.2000, Síða 6

Dagur - 05.12.2000, Síða 6
6 - ÞRIÐJUDAGUR S. DESEMBER 2000 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HLISAVIK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK H Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netfong auglýsingadeildar: augl@dagur.is-gestur@ff.is-karen@dagur.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-i615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir. Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Slmbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (reykjavíK) Óréttlátt kerfi í fyrsta lagi Margir efnamenn hafa nýtt sér til hins ítrasta heimild í skatta- löggöfinni sem leyfir einstaklingum og fyrirtækjum að koma sér hjá því að greiða skatta af söluhagnaði. Af svari ríkisskattstjóra við fyrirspurn frá Samfylkingunni má ráða að vegna ákvæða skattalaga um að fresta megi að leggja skatt á slíkan hagnað hafi ríkissjóður og sveitarfélögin orðið af mildum fjárhæðum. Aætl- að er að þetta tekjutap samfélagsins nemi allt að átta og hálfum milljarði króna á tveimur síðustu árunum. 1 öðru lagi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur vakið sérstaka athygli á þessari Iöglegu aðferð auðmanna til að skjóta sér undan eðlilegum skattgreiðslum af slíkum tekjum. Hún hefur einnig réttilega bent á að þótt Ijármálaráðherra ætli nú að fella þessa undanþágu niður að hluta muni lögaðilar, það er fyrirtæki, áfram njóta þessara forréttinda. Með breytingartil- Iögum fjármálaráðherra er þannig ekki verið að setja undir þennan leka, heldur einungis að finna honum annan farveg. Það á því áfram að hygla fjármagnseigendum og auðvelda þeim að losna við að greiða til samfélagsins með sama hætti og al- mennir þegnar þessa lands sem borga skatta bæði af launa- og fjármagnstekjum sínum. Hér er um að ræða mikla fjármuni sem líklega munu aldrei skila sér í sjóði þjóðfélagsins. í þriðja lagi Margoft hefur verið á það bent í forystugreinum Dags hversu meingallað íslenskt skattkerfi er og því brýnt að stokka það upp. Það á fyrst og fremst við um þær reglur sem gilda um skattlagn- ingu tekna. Þar viðgengst mikið óréttlæti og að flestra mati stór- felld skattsvik og undanskot, sum lögleg en önnur ekki. Undan- farin ár og áratugi hafa stjórnmálamenn sýnt ótrúlega tregðu til að takast á við þetta kerfi og gera á því þann rækilega uppskurð sem löngu er orðinn tímabær. Þess í stað er gripið til sífelldra smáskammtalækninga sem breyta engu um óréttlæti kerfisins. Elías Snæland Jónsson Barsmíðar og ölvun Garri vaknaði upp snemma á laugardagsmorguninn og opn- aði fyrir útvarpið, eins og hann gerir allajafna á morgnana. Það er jú svo spennandi að heyra hvort eitthvað nýtt sé í fréttum. Og vissulega var eitt og annað tíðinda, en þó það helst að fréttalesarinn var í einar fimm eða tíu mínútur að lesa fréttir af líkamsárásum af öllum stærðum og gerðum. Það var ráðist á mann þarna og sparkað í andlitið á öðrum ein- hver staðar annars staðar. Illindi brutust út á þessu heimilinu þannig að til handa- lögmála kom og kalla þurfti til lögreglu. Sama var uppi á ten- ingnum einhvers staðar annars staðar. Eftir líkams- árásarfréttirnar upp- hófust fréttir af ölvun- arakstri og skemmdar- verkum á hinum og þessum eignum og Garri gekk inn í laugar- daginn vel upplýstur um að nú lægju menn í tuga eða hund- raðatali sárir og slasaðir, eða illa timbraðir og með slæman móral vítt og breitt um höfuð- borgarsvæðið. Þetta var vissu- lega talsvert meira en gerist og gengur, en Garri yppti bara öxlum og fór að þvo bílinn. Fréttir á sunnu- dagsmorgim Garri vaknaði upp á sunnu- dagsmorguninn og enn byrjaði hann á því að opna fyrir út- varpið til að hlusta á fréttirnar. Eitt og annað var tíðinda, en helst það að fréttalesarinn var hátt í tíu mínútur að lesa upp þulu um líkamsárásir og ólæti á höfuðborgarsvæðinu. Það var sparpaö í mann og annan og runan um heimilisofbeldi var síst minni en daginn áður. Ölvunin virðist hafa verið nokkuð almenn og henni lýlgt umtalsverð sparkárátta, ef marka má hvernig menn virt- ust einbeita sér að því að spar- ka í náungann, einkum ef ná- unginn var liggjandi. Ekki hafa færri misst bílprófið vegna ölv- unaraksturs aðfaranótt sunnu- dags en aðfaranótt Iaugardags og augljóst á öllu að þennan sunnudagsmorgun hafa það verið hundruð manna sem lágu ýmist sárir og slasaðir eða með slæma timburmenn og þrúgandi móral. Þetta var aug- ljóslega talsvert meira en geng- ur og gerist og Garri fór að velta því fyrir sér hvað væri eiginlega í gangi. Löggan bittn Og heilabrotin hafa nú heldur verið að magnast, ekki síst þegar í ljós kemur að lögreglan í Reykajvík er farin að kvarta sár- an undan því að menn hiki nú ekki við að veit- ast að henni þegar hún mætir á vettvang til að sinna störfum sínum. Lögreglumenn lenda nú ítrekað í því að þeir eru bitnir og einn mun meira að segja hafa lent í því núna tvær helgar í röð að hafa verið bit- inn. Lögreglan segir að þar á bæ séu menn að verða varir við mikla spennu í loftinu samfara mikilli áfengis- og fíkniefna- neyslu og augljóslega er hér kominn hugsanleg skýring á heilabrotunum í Garra. Málið er auðvitað ekkert flóknara en það að nú er genginn í garð einn stressaðasti og spennu- mesti mánuður ársins með til- heyrandi skemmtanahaldi. Jól- in eru löngu hætt að vera hátíð friðar og kyrrðar. Þau eru hátíð spennu og neysluæðis. Trúlega voru þetta því einfaldlega jóla- fréttir sem Garri var að vakna til um helgina. garhi V JÓHANNES T ÍM IMHl SIGURJÓNS SON : skrifar Offrambod á krabba- meinsraimsóknum? Þorri þjóðarinnar ku um þessar mundir eiga hutabréf í aðskiljan- legum félögum og fýrirtækjum og er af sem áður var fyrir aðeins fáum árum þegar hlutabréf voru nánast óþekkt fyrirbæri. Hins vegar hcfur þekking þjóðarinnar á eðli hlutabréfa ugglaust ekki aukist mikið og kaupendur þurfa því flestir að reiða sig á ráðgjöf sérfræðinga þegar þeir velja sér arðvænleg fyrirtæki til að fjár- festa í. En það er aldrei á vísan að róa á hlutabréfamarkaði eins og dæmin sýna og jafnvel ráðgjöf færustu sérfræðinga er ekki óskeikul. íslensk erfðagreining er auðvitað besta dæmi um fyrir- tæki sem ekki hefur staðið undir væntingum á hlutabréfamarkaöi og þannig hcfur markaðsvirði deCode hrunið á skömmum tíma úr 1 10 milljörðum í 40 milljarða og eru ýmsir Ijóslega að missa vænan spón úr aski ef svo heldur sem horfir. En auðvitað er ekkert öruggt í þessum efnum og hver veit nema gengi bréfa í deCode eigi eftir að rjúka aftur upp úr öllu valdi. Upp og iiidur Talsmenn fyrirtækis- ins virðast a.m.k. ekki hafa miklar áhyggjur af gangi mál og lýsa því yfir að starfið þar innan veggja gangi, ef eitthvað er, jafnvel betur en áætlanir gerðu ráð fyrir, þannig að erfitt sé að átta sig á ástæðum gengishrunsins. Ef þetta er staðreynd, að gcngi hlutahréfa í deCode (og væntan- lega fleiri fyrirtækjum) hrynji þrátt fyrir að starfsemin gangi hetur en ráð var fyrir gert, þá hlýtur að vera hugsanlegur möguleiki að gengið taki stökk uppávið ef árangur fyrirtækisins verður slakari en að var stefnt. Að verðmæti hlutabréfa sé í raun óháð stöðu fyrirtækjanna á hverjum tíma heldur fari „upp og niður af ástæðum sem erfitt er að henda reiöur á“, eins og Páll Magnússon, talsmað- ur 1E segir í viðtali í Degi. Og ef sú er raunin, þá eru sérfræðingar auðvitað orðnir óþarf- ir því þá er menn komnir niður á svið getrauna og lottós þar sem best er að láta kylfu ráða kasti, loka augunum og skrifa 1x2 út í loft- ið og kaupa svo hlutabréf í sólar- laginu. Hundar grafnir Annar talsmaður úr erfðagrein- ingarbransanum, sérfræðingur hjá UVS, velti í Degi upp þeirr' merkilegu spurningu „hvórt of- framboð væri að skapast í krabbameinsrannsóknum". Þarna liggja kannski allmargir hundar grafnir. Fyrirtækjum sem hyggjast vinna að rannsóknum á hugsanlegu arfgengi sjúkdóma hefur Ijölgað verulega á undan- förnum misserum. Og kannski er málið það að sjúkdómar eru ekki ekki lengur til skiptanna þegar samkeppnin í bransanum harðnar og allir eru kannski aö leita að sama geninu. Og þá er komin upp staða þar sem of- framboð ríkir í rannsóknum. Það sem upp úr stendur í þess- ari umræöu er að markaðssetn- ingin og áróöurinn virðist ráða mestu um það hvort fyrirtæki vaxa og dafna eða hrynja til grunna, fremur en raunveruleg- ur árangur. Trúgirnin er, þegar upp er staöið, kannsld allt sem þarf. Erástæða tílaðflýta framkvæmdum við tvöföldun Reykjanes- brautar? Kristján Giumarsson fonn. Verkalýðs- og sjómannaféJ. „Það er löngu tímabært og ég undrast aðgerða- leysi og sofanda- hátt þingmanna okkar Reyknes- inga í þessu máli. Þingmönnum má skipta í tvo flokka, vakandi og sofandi, og í þessu máli finnast mér þingmenn stjórnarliðsins allir vera í síðar- nefnda hópnum. Forgangsröðun- in í samgöngumálum landsins er röng og ekki í samræmi við um- ferðarþunga. Um hættulega Reykjanesbraut hefur fólk hér talað í margra áratugi fyrir dauf- um eyrum, á meðan hvert banaslysið á fætur öðru verður þar.“ Jónína Sanders formaðtirbæjarráðsReykjanesbæjar. „Við sveitarstjórn- armenn á Suður- nesjum höfum lengi talað um að við viljum fá tvö- földun Reykjanes- brautar sem allra fyrst. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru nú að fara í mat á umhverfis- áhrifum og gert er ráð fyrir að þær hefjist strax að því loknu. Suðurnesjamenn fara mikið um brautina, sumir daglega, og jafn- framt er umferð að aukast vegna vaxandi flugumferðar. Hér er mikið rætt um Reykjanesbraut og málið hvílir á fólki, enda þó búið sé að fara í ýmsar framkvæmdir sem draga eiga úr slysahættu." Páll Ketilsson ritstjóri Víkuifrétta. „Sívaxandi um- ferð ætti að leiða okkur enn betur fyrir sjónir hve mikilvægt er að fara í fram- kvæmdir strax og hægt væri að flýta þeim enn frek- ar með sveigjanlegum samning- um við verktaka. Fólk hér á Suð- urnesjum er sárt og reitt yfir stöðu mála og skilur ekki hvers- vegna svo lengi hafi verið heðið með róttækar aðgerðir í að bæta umferðaröryggi á þessum fjöl- farnasta þjóðvegi landsins. Ef ekki verður fljótlega ákveðið að flýta framkvæmdum trúi ég því að munum við Suðurnesjamenn grípa til róttækra aðgerða." Ragnheiður Davíðsdóttir forvarnafnlltrúi VÍS. „Reykjanesbraut- ina átti að vera búið að tvöfalda fyrir löngu síðan. Það er og sorgleg staðreynd að í hvert sinn sem hörmuleg slys verða á brautinni vakni þessi umræða. Nú \ il ég sjá menn bretta upp ermar og að verkin verði látin tala í stað inn- antómra orða. Eg vona að enn ] eitt banaslvsið þurfi ekki til að i menn fari í framkvæmdir." Kijlavíkur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.