Dagur - 05.12.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 05.12.2000, Blaðsíða 8
8- ÞRIDJUDA G U R S . DESEMHER 2 000 SMflTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON sigurdor@ff.is Efnahagsástandið Á ræðustól Alþingis eru græn og rauð pera. Það lifir ljós á þeirri grænu meðan þingmenn tala innan setts ræðutíma. En fari þeir fram úr þeim tíma kviknar ljós á þeirri rauðu. Ljúki ræðumaður ekki máli sínu um leið og rauða ljósið kviknar tekur forseti Alþingis til við að berja í bjöllu og hætta menn þá vanalega strax vegna hávaðans. Tímatakan, grænaperan og sú rauða, allt er þetta tölvustýrt. Svo gerðist það í síðustu viku að tölvustýringin bilaði og varð forseti að handstýra öllu saman. Þegarjón Kristjánsson, formaður fjárlaganefndar, var í miðri ræðu við 2. umræðu um fjárlögin gerðist það að Ijós kviknaði á rauðu perunni. Jón eins og hrökk við enda átti hann nægan tíma eftir. ísólfur Gylfi var í forsetastól. Hann hað Jón og aðra þingmenn þegar f stað afsökunar á því að ólag væri á tölvustýringunni og þess vegna hefði kviknað ljós á rauðu perunni. Þá gall við í Ossuri Skarphéðins- syni: „Nei, það er vegna efnahagsástandsins." Össur Skarp- héðinsson. „Menn hafa fíkn í það að taka lán og valda sjálfum sér blankheitum." Pétur H. Blöndal við 2. umræðu íjárlaga. Hákon er í bænum Hákon Aðalsteinsson skáld og skógarbóndi var í höfuðborginni á dögunum og átti erindi víða. Vinur hans séra Hjálmar Jónsson fór með honum í þessar reisur. Þegar þeir hittust um morguninn og lögðu af stað afhenti Hjálmar skógarbóndanum þessa vísu: Heyra jmrfutn hjartnæm vers helst i hvelli grænum. Allt er sem í höndum hers Hákon er í hænum. Þegar svo Hjálmar sá á eftir Hákoni inn í flugstöðina um kvöldið orti hann: Þetta skeður allt of oft enda karlinn hraustur. Höldum gleði hátt á loft hann erfarinn austur. KoHegar Ólafur Skúlason biskup hefur láið skrá æviminningar sínar og gefið út á bók. I tilefni þess var þessi vísa kveðin: Biskupinn verðskuldar heiður og hól hann er af haki ei dottinn, og kynni að sætta um komandi jól þá kollega mammon og drottinn. Úlafur Skútason biskup. Ifína og fræga fólkið Við dauðans dyr ÍÞRÓTTIR L -Ðnqur Maier á fleygiferð í bnininu Heimsmeistarinn Hermann Maier frá Austurríki, sem aðeins náði 15. sætinu á fyrsta heimsbikarmóti vetrarins í bruni, vann öruggan sigur á öðru móti vetrarins, sem fram fór í Vail í Colarado á laugar- daginn. Maier virðist kunna vel við sig í Vail, því þetta er sjöundi brunsigur hans þar í röð í níu keppnum á þremur árum og 31. heimsbikarsigur hans á ferlinum. Maier fékk harða keppni frá Norðmaður- inn Lasse Kjus, sem varð í öðru sætinu á aðeins 0,49 sekúndum lakari tíma, en í þriðja sætinu varð sigurvegari fyrsta brun- mótsins, Austurríkismaðurinn Stefan Eberharter á 0,81 sek. lakari tíma en Maier. Austurríkismenn áttu fjóra af fimm fyrstu keppendunum í Vail og náðu evrópskir keppendur ellefu fyrstu sætunum, en í því tóllta Ienti Bandaríkjamaðurinn Chad Flescher, 1,48 sekúndum á eftir Maier. Næsta heimsbikarmót i bruni fer fram í Val d’Isére í Frakklandi um næstu helgi. Óvæntur sænskur sigur í risasvigi Á sunnudaginnn fór fram í Vail annað heimsbikarmótið í risasvigi, þar sem Svíinn Fredrick Nyberg sigraði mjög óvænt, 0,03 sekúndum á und- an Christoph Gruber frá Austurríki, sem varð í öðru sæti. Norðmaðurinn Kenneth Sivertsen varð í þriðja sætinu, 0,47 sek. á eftir Nyberg. Her- mann Maier, sem sigraði á lyrsta risasvigsmótinu, varð að sætta sig við sjötta sætið. Nyberg er fyrsti Svíinn sem sigrar á heimsbikarmóti í risa- svigi á síðustu cllefu árum. Óvæntur sigur Haltmayer Petra Haltmayer frá Þýskalandi sigraði óvænt í bruni kvenna á fyrsta heimsbikarmótinu sem fram fór í Lake Louise á fimmtudaginn. Isolde Kostner frá Italíu, sem spáð hafði verið sigri á mótinu eftir góðan árang- ur í tímatökum á æfingum síðustu daga, lenti í öðru sætinu 10/100 úr sekúndu á eftir Haltmayer, en Renate Götschl frá Austurríki varð þriðja, 27/100 úr sek. á eftir sigurvegaranum. Kostner fékk uppreisn Annað heimsbikarmót kvenna í bruni fór svo fram strax á föstudag á sama stað og sigraði Isolde Kostner þá örugglega, 0,48 sek. á undan Carole Montillet frá Frakk- landi, sem varð í öðru sæti. í þrið- ja sæti varð Corinne Ray-Bellet frá Sviss, 0,64 sek. á eftir Kostner, sem þarna vann sinn tíunda heimsbikarsigur á ferlinum og annan brunsigur. Isolde Kostner á fullri ferð. Hermann Maier á flugi. Breski gamanleikarinn Dudley Moore sem þjáist af sjaldgæfri tegund af heila- hrörnunarsjúkdómi segir í óbirtu sjónvarpsviðtali á BBC að hann standi nú frammi fyrir stuttri og mjög óvissri framtíð og að hann væri að hefja sitt dauðastríð. „Það er manni algjörlega hulin ráðgáta hvernig þessi veiki ræðst á mann og étur mann upp og hrækir manni síðan út úr sér,“ sagði Dudley Moore í viðtalinu, en hann fékk scm kunnugt er Oskarsverðlaunin árið 1981 fyrir leik sinn í myndinni um Arthur. „Vissulega varð ég reiður," segir Moore, „En það er hins vegar fremur til- gangslítið að vera reiður. Hvers vegna ég? spurði ég mig og ég á enn mjög erfitt með að sætta mig við þetta vegna þess líka að ég veit að ég mun bíða Iægri hlut og deyja," segir hann. Dudley Moore er 65 ára gamall og sagt er að í viðtalinu komi vel fram hversu tekinn og slapp- Iegur hann er og mæli hans sé orðið frekar óskýrt. Þá kemur einnig fram í viðtal- inu að Moore segir að þessi sjúkdómur - sem er skyldur Parkinsonsveiki - hafi rænt hann hans mesta vndi, sem er að geta spilað á hljóðfærið sitt. Götschl vann risasvigið Keppni í risasvigi kvenna, annað heimsbikarmóti vetrarins, fór fram í Lake Louise á laugardaginn og vann Renata Götschl frá Austurríki, þar sinn sautjánda heimsbikarsigur á ferlinum. Regine Cavagnoud frá Frakk- Iandi varð í öðru sætinu, aðeins 13/100 úr sekúndu á eftir Götschl og Martina Ertl frá Þýskalandi, lenti í þriðja sætinu, rúmri hálfri sekúndu á eftir Götschl, sem nú vann sinn þriðja heimsbikarsigur í Lake Louise. Is- olde Kostner, sem vann brunið á föstudag, náði aðeins níunda sætinu í risasviginu. Austurríkismenn með forystu Austurríkismenn eru með forystu í heildarstigakeppni milli þjóða í heimsbikarnum á skíðum. I kvennaflokki eru Frakkar þó ekki langt und- an, en yfirburðir Austurríkismanna í karlaflokki eru afgerandi. Kvennaflokkur: 1. Austurríki 896 Karlafloltkur: 1. Austurríki 1470 2. Frakkland 787 2. Sviss 632 3. Þýskaland 557 3. Noregur 520 4. Ítalía 514 4. USA 220 5. Sviss 437 5. Frakkland 186 6. Svíþjóð 317 6. Svíþjóð 142 7. USA 312 7. Slóvenía 109 8. Slóvenía 303 8. Ítalía 108 9. Noregur 253 9. Liechtenstein 90 10. Króatía 239 10. Þýskaland 46 Óheppnin eltir Bjjörgviu Björgvin Björgvinsson frá Dalvík tók um helgina þátt í fyrsta Evrópubik- armóti vetrarins, sem fram fór í Levi í Finnlandi og voru flestir sterkustu skíðamennirnir úr heimsbikarnum þar meðal keppenda. Keppt var í stór- svigi og svigi og var Björgvin meðal keppenda í báðum greinum. Keppni í stórsvigi fór fram á fimmtudaginn og þar lenti Björgvin í 40. sæti, eftir að hafa náð 29. besta tímanum í seinni ferðinni og var hann 3,83 sek- úndum á eftir sigurvegaranum, Sami Utoila frá Finnlandi. Keppni í svigi fór síðan fram á föstudag og laugardag, en þar má segja að óheppnin hafi elt Björgvin, því hann féll úr keppni báða dagana í fyrri ferðinni. Seinni daginn kevrði hann út úr brautinni eftir að bafa náð mjög góðum milli- tíma, aðeins 1,5 sek. frá því besta. Björgxln á vafalaust eftir að láta mik- ið að sér kveða í vetur og verður spennandi að lýlgjast með honum og öðrum liðsmönnum í íslenska Evrópubikarliðsins í komandi keppnum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.