Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 11
ÞRIDJUDAGUR S. DESEMBER 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Jardvist maimsins
lengist í 6 milljónir ára
Steingerður lærleggur af þúsaldarmanninum, sem lifði á jörðinni fyrir 6
milljón árum. Hann er hér I höndum mannfræðingsins Brigitte Senut,
sem er í rannsóknarhópi vísindamanna frá Frakklandi og Kenya sem leitar
að forsögu mannsins.
ÞúsaldarmaðiLrinn
sem nýlega fannst í
Kenya er merkilegasti
hlekkurinn í þróunar-
sögu mannsins
Sönnunargögn liggja nú fyrir um
að maðurinn hefur lifað að
minnsta kosti 1,5 milljónum ára
lengur á jörðinni en áður var vit-
að. Er nú jarðvist mannsins orðin
6 milljóna ára löng. Það voru
franskir og kenyaskir vísinda-
menn sem tilkynntu í gær, að þeir
hafi fundið steingerðar Ieifar af
mannabeinum sem staðfestu að
maðurinn var farinn að ganga
uppréttur miklu fyrr en áður var
vitað.
Þessi gamli forfaðir mannkyns-
ins hefur hlotið gælunafnið „þús-
aldarmaðurinn" (Millennium
man). A blaðamannafundi, sem
haldinn var í gær í höfuðborg
Kenya sögðu vísindamennirnir að
þessi fundur kæmi öllu mann-
kyni við því allt bendir til að
þarna séu fundnir þeir forfeður
sem allir menn eru komnir af.
Steingervingarnir fundust á
Tugenhæðum í Baringohéraði í
Kenva 25. október s.l.
Síðan þá hafa vísindamennim-
ir fundið steingerðar leifar af að
minnsta kosti fimm einstakling-
um, karlkyns og kvenkyns, á
sama svæði.
Þessar leifar eru ekki vngri en
6 milljóna ára gamlar og eru mik-
ilvægur liður til að öðlast þekk-
ingu á þróunarsögu mannsins.
Áður voru mannabein sem fund-
ust að Aramis í Eþíópíu taldar
elstar, og er 4,5 milljóna ára
gamlar. Þar áður var „Lucy" elsti
vitnisburður um formóðurina, en
hún fannst í Eþíópíu árið 1974,
en hún gekk á jörðinni fyrir 3,2
milljónum ára.
Steingervingarnir eru vel varð-
veittir og gefa gott yfirlit um lík-
amsbyggingu þúsaldarmannsins.
Sterklegur lærleggur sýnir að
hann átti auðvelt með að ganga
uppréttur og leikur enginn varfi á
að þarna er fundinn mikilvægur
hlekkur í þróunarsögu mannsins.
Svert og sterklegt upphandleggs-
bein bendir til að þúsaldarmað-
urinn hafi átt auðvelt með að
klifra tré, en hann hefur ekki ver-
ið fær um að hanga í trjánum eða
sveifla sér grein af grein, eins og
flestir apar eiga auðvelt með.
Lengd beinanna bendir til að
þúsaldarmaðurinn hafi verið á
stærð við simpansa.
En það eru tennurnar og
kjálkabyggingin sem gerir þenn-
an forföður líkastan nútíma-
manninum, Augntennur hans
eru smáar, öndvert við rándýr og
kjötætur, en jaxlarnir sitja þétt,
s\4pað og í nútímamanni. Það
bendir til að aðalfæðan hafi verið
grænmeti og ávextir, en þúsaldar-
maðurinn hefur einnig getað étið
kjöt þegar tækifæri bauðst til að
ná í slíkar krásir.
Baringosvæðið, þar sem þcssir
fornu steingervingar fundust er í
Afríkugjánni miklu þar sem
steingervingar frá fortíð varðveit-
ast vel og þar hafa fundist bein
manna og dýra sem hafa aukið
mjög þekkingu á forsögulegum
tímum og þróun tegundanna.
Jarðvegurin er ríkur af kalsíum-
fosfati og eru steingervingarnir
varðveittir undir lagi af hrauni og
gjóskulögum.
Vísindamennirnir sem fundu
beinin og eru að rannsaka þau
segja að með vissu sé hægt að
segja, að enn meira eigi eftir að
finnast á þessum slóðum og þau
sönnunargögn sem nú hafa kom-
ið í leitirnar og rannsókn á þeirn
sé aðeins byrjunin á merkilegum
rannsóknum og þess sé jafnvel að
vænta að eftir eigi að finnast enn -
eldri sönnunargögn um forfeð-
urna. Mun rannsóknum haldið
áfram af enn meiri krafti en hing-
að til.
Auk mannabeina hefur leið-
angurinn fundið mikið af stein-
gerðum jurtum og trjám, sem eft-
ir er að rannsaka. Þá hafa fundist
steingerðar leifar af nashyrning-
um, flóðhestum, og antelópum.
Þessi dýr hafa ekki litið eins út og
tegundirnar sem nú eru á lífi, en
eru örugglega þær skepnur sem
síðan hafa þróast til þess útlits og
eðlis sem við þekkjum í dag.
Um leifarnar af einum þessara
forferðra lesa vísindamennirnir
elstu hryllingssögu mannkynsins.
Leiðangursstjórinn Pickford:
„Það lítur út fyrir að hann hafi
verið drepinn og étinn af rándýri,
sennilega af kattarætt. Hann hef-
ur verið dreginn upp í tré, sem
var eðlilegur matstaður kattar-
dýra. Þar hefur verið nagað utan
af beinunum og þau fallið í vatn
við rætur trésins."
Síðar lagðist hraunið yfir og nú
eru Ieifarnar af máltíð rándýrsins
merkilegustu sönnunargögnin
um uppruna og aldur mannsins.
Flugskeytum skotið á Araba
JERUSALEM - Israelskar árásarþyrlur skutu tveimur flugskeytum á
palestínska byssumenn í gærmorgun á meðan á um þriggja klukku-
tíma bardaga stóð í nágrenni við heilagt grafhýsi í Betlehem. Með
þessum bardaga hurfu í raun síðustu vonir manna um að hægt væri
að ná friðsamlegri lausn á átökunum sem þarna hafa geisað í um níu
vikna skeið. ísraelsher segir aö þyrlurnar hafi skotið Rugskeytunum
á skotmark sem var nálægt flóttamannabúðum þarna á svæðinu í til-
raun til að koma í veg fyrir að uppreisnarmenn yfirtækju Grafhýsi
Rakelar, en á þeim stað hafa upp á síðkastið orðið hörð átök og taliö
er að allt að 300 manns hafi látist í átökum þar í kring á síðustu vik-
um. Herforingi ísreaela kallaði aðgerð uppreisnarmanna einhverja
fífldjörfustu árás sem gerð hafi verið á þeim vikum frá því uppreisn-
in hófst, en talsmenn Palestínumanna þvertaka fyrir að hafa ætlað að
yfirtaka grafhýsið.
Arafat segir ísraela
auka óróann
JERUSALEM - Yasser Arafat forseti
Palestínumanna sagði í gær að ísraelskir
landnemar og ísraelskir hermenn hefðu
ráðist að islömskum tilbiðjendum á Vestur-
bakkanum gagngert til þess að auka á
óstöðugleikann á svæðinu og til að hvetja
til meira ofbeldis. Arafat ítrekaði ákall sitt
um að nú þegar yrði sendar inn á svæðið
alþjóðlegar sveitir eftirlitsmanna sem hann
sagði að væru líklegar til þess að vernda
saklausa Palestínumenn frá árásum ísra-
elska setuliðsins.
Vilja handtaka fjöl-
miðlarisa
MOSKVA - Yfirvöld f Rússlandi hafa gefið
út alþjóðlega handtökuskipun á Vladimir
Gusinsky, fjölmiðlakónginn rússneska sem
rekur einu sjálfstæðu fjölmiðlasam-
steypuna þar í landi. Gusinsky hefur verið
ákærður yrir fjársvik, en hann er í útlegð
og hefur ekki mætt til yfirheyrslna hjá sak-
sóknara vegna máls síns. Alþjóðlega hand-
tökuskipunin er einmitt gefin út vegna
þess að Gusinsky hefur ekki mætt til vitn-
isburðar þegar hann hefur verið boðaður.
Vladimir Gusinsky,
fjölmiðlakóngur
Ráðheraim var rekinn
BEIJING - I gær staðfesti embættismaður Kínverska kommúnista-
flokksins í fyrsta sinn að fyrrum dómsmálaráðherra Kína, Gao
Changli hafi verið rekinn úr embætti og gaf embættismaðurinn í
skyn að Gao hafi verið kominn í pólitískar ógöngur. Gao hvarf mjög
snögglega úr embætti í síðasta mánuði en hingað til hefur verið lát-
ið í veðri vaka að það hafi verið vegna heilsubrests. Brottrekstur Gaos
hefur enn ekki verið staðfestur í opinberum fjölmiðlum í Kína en
talsmaður miðstjórnar flokksins hefur látið hafa eftir sér við erlenda
blaðamenn að hann hafi verið „færður úr embætti."
■ FRÁ DEGI
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER
340. dagur ársins, 26 dagar eftir.
Sólris kl. 10.56, sólarlag kl. 15.40.
Þaufæddust 5. desem-
her
• 1724 Björn Halldórsson prestur og skáld í
Sauðlauksdal.
• 1839 George Armstrong Custer, banda-
rískur herforingi sem barðist gegn frum-
byggjum og féll í einum umdeildasta bar-
daga í sögu Bandaríkjanna.
• 1878 Guttormur J. Guttormsson skáld.
• 1890 Fritz Lang, austurrískur kvikmynda-
leikstjóri.
•1901 Walt Disney.
•1901 Werner Heisenberg, þýskur eðlis-
fræðingur sem hlaut Nóbelsverðlaunin
árið 1932.
•1912 Kinoshita Keisuke, japanskur kvik-
myndaleikstjóri.
TIL DAGS
•1921 Eeva Liisa Manner, finnskt ljóðskáld
og leikskáld.
• 1946 José Carreras, óperusöngvari.
Þetta gerðist 5. desem-
her
• 1796 var leikritið Slaður og trúgirni eftir
Sigurð Pétursson frumsýnt í Reykjavíkur-
skóla.
• 1933 lauk bannárunum í Bandaríkjunum
með þvf að bann við áfengissölu var afnu-
mið úr stjórnarskrá Bandaríkjanna, og þá
sáu víst margir ástæðu til þess að skála.
• 1945 hurfu sex flugvélar með samtals 27
mönnum um borð í hinum svonefnda
Bermúda-þríhyrningi, en veður var þá
mjög slæmt. Hvarfið hefur orðið tilefni
margvíslegra sögusagna.
• 1956 byrjuðu Bretar og Frakkar að flytja
herlið sitt frá Súezskurðinum.
• 1968 fannst jarðskjálfti í Reykjavík, sem
mældist 6 á Richterkvarða.
Afmælisham dagsins
Richard Wayne Penniman gengur
jafnan undir nafninu Little Richard og
var feykivinsæll rokkari á fyrstu árum
rokksins. Hann var fæddur f Georgíu í
Bandaríkjunum þann 5. desember árið
1932, og er því 68 ára f dag. Hann átti
ellefu systkini og lærði gospelsöng sem
krakki, en strauk að heima á unglings-
árunum og fór að syngja rytma- og
blús á knæpum, þar sem hann vakti
athygli fýrir skrautlcga og kraftmikla
framkomu. Með laginu „Tutti frutti"
skaust hann upp á stjörnuhimininn
árið 1955, með hinu óviðjafnanlega
upphafi: „A wop bop a loo bop, a Iop
bam boorn!"
Kennimark góðra verka er að eftir á
virðast þau hafa verið óhjákvæmileg.
Robert Louis Stevenson
Vísa dagsins
Veröld gefst mér völt og flú,
vinurfæst ei tryggur,
flestir hverfa þessir þá,
þegar mest á liggur.
Bólu-Hjálmar
Heilahrot
Veiðimaður kemur auga á sjö fugla á
grein. Hann dregur upp byssu sína í
skyndi, miðar og skýtur. Ef honum tekst
að hitta tvo fugla, hve margir eru þá ef -
ir á greininni?
Lausn á sfðustu gátu: Höfði manns.
Vefur dagsins
Ásatrúarfélag Islands er með vefsfður
þar sem finna má margvíslegan fróðleik
um starfsemi félagsins og hina fornu
trú: www.asatru.is