Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 16
16- ÞRIDJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
iÁftgXn
(ANWM
X^wr
Grænir eru mest
í nýrrí könnun á kynferðis-
legrí virkni stuðnings-
manna stjórnmálaflokka í
Þýskalandi kemurí Ijós að
stuðningsmenn græningja
elska greinilegafleira en
umhveifið.
Samkvæmt niðurstöðum þessarar ný-
stárlegu könnunar, sem framkvæmd
var af Emnid könnunarfyrirtækinu, eru
græningjar mest kyntröll í þýskri póli-
tík og hefur þessi niðurstaða kallað
fram bros og glettni á andlit forustu-
manna flokksins. Þannig voru viðbrögð
framkvæmdastjóra flokksins, Reinhard
Buetikofer einfaldlega þessi: „Já, við
erum alltaf tilbúin!"
„Grænir“ 71%
Könnunin sýnir að um 71% af stuðn-
ingsmönnum græningja hefa mök að
minnsta kosti einu sinni í viku. Flokk-
ur græningja er að hluta til systur-
flokkur vinstri grænna á Islandi, (en
hugsanlega má Ii'ka flokka Lýðræðis-
lega sósíalistaflokkinn PDS sem syst-
urflokk VG.)
„Sjálfstæðismenn“ 50%
Aðrir þýskir flokkar hafa mun óvirkari
fylgismenn hvað þetta tiltekna atferli
varðar og á það ekki síst við um stuðn-
ingsmenn hins íhaldssama flokk Kristi-
legra demókrata sem flokka má sem
systurflokk Sjálfstæðisflokksins á Is-
landi. Samkvæmt könnuninni eru þeir
í fjórða og næst neðsta sæti yfir kyn-
ferðislega virkni og einungis um helm-
ingur þeirra hefur mök að minnsta
kosti einu sinni f viku.
„Framsókn“ 61%
í öðru sæti yfir kynferðislega virkni í
þýska flokkakerfinu eru hins vegar
Frjálslyndir demókratar, en þar á bæ
eru það um 61% stuðningsmanna sem
hafa kynmök að minnsta kosti einu
sinni í viku. Frjálslyndir demókratar
hafa lengi verið skilgreindir sem syst-
urflokkur Framsóknarflokksins á Is-
landi.
„Samfylking" 56%
Flokkur Gerhards Schröder kanslara,
Sósíaldemokrataflokkurinn, skorar
heldur lágt í könnuninni, en einungis
um 56% stuðningsmanna flokksins
gera það einu sinni í viku eða oftar.
Flokkur Schröders er sem kunnugt er
einn hinna stóru „nútímalegu jafnaðar-
mannaflokka" sem Samfylkingin vill
gjarnan líkjast.
að fá varamann. I fyrsta lagi var
leitað svara við þvf hvort menn
teldu ekki að svipað mynstur væri í
þessum málum hér og í Þýskalandi og
svo í öðru lagi hvort menn kynnu ein-
hverjar skýringar á muninum, hvort í
þessu ólíka atferli endurspeglaðist á
einhvern hátt mismunandi Iífsýn
og hugmyndafræðileg ein-
kenni viðkomandi
stjórnmálastefnu.
„Vinstri“ 40%
Langneðstur er þó Lýð-
ræðislegi sósíalistaflokk-
urinn, gömlu kommarn-
ir, hin pólitíska arfleifð
Austur - Þýskalands,
með einungis 40% fylg-
ismanna, sem gera það
einu sinni í viku eða oft-
Hvað með ísland?
Það vekur athygli að þýsku flokk-
arnir eiga sér flestir systurflokk á ís-
Iandi með einum eða öðrum hætti, og
gera má ráð fyrir að íslenskir kjósendur
flokkist með svipuðum hætti og þeir
þýsku í þessum efnum. Eða hvað?
Blaðinu lék forvitni á að heyra hvaða
skýringar gætu legið að baki þessu
nokkuð ólíka hegðunarmynstri kjós-
enda og leitaði því til nokkurra tals-
manna íslensku flokkanna, til að reyna
að öðlast innsýn í málið. Því miður for-
fallaðist talsmaður Sjálfstæðisflokks á
elleftu stundu og ekki vannst tími til
Úalgengt er að kanna kynferðis-
lega virkni eftir stjórnmáiafiokk-
um, en það var þó gert í Þýska-
iandi nýlega og voru niðurstöð-
urnar athyglisverðar. Spurningin
er hvort svipað mynstur sé í
þessum málum á íslandi? Hvort
ætli þessir ástleitnu kjósendur
séu íslenskir eða þýskir?
Mistök við vmnslu
Vegna mistaku við prentvinnslu blaðsins um
helgina varð sjö ddlka umfjöllun um kyn-
ferðislega virkni kjósenda óskiljanleg. Röng
stða fór inn í blaðið, með þeim afleiðingum
að einungis birtust viðbrögð þeirra Ama
Steinars Jóhannssonar og Isólfs Gylfa
Pdlmasonar, en ekkert af þvi efni sem þeir
voru að bregðast við. Hér með birtist þessi
umfjöllun eins og hún átti að vera og biðst
blaðið velvirðingar á þessum ruglingi.
Við myndum skora hærra
Guðrún Ogmundsdótt-
ir, þingmaður Sam-
fylkingar:
Það er auðvitað alltaf áhugavert
að skoða örlítið hvernig kynlíf er
hjá hinum ýmsu þjóðum, og
hafa verið gerðar margar og
merkilegar kannanir þar að lút-
andi. En ekki man ég nú eftir að
það væri spurt í leiðinni hvar
fólk staðsetti sig í stjórnriiálum.
En það hafa verið gerðar kann-
anir hér og kom þá í Ijós að við
Islendingar værum frekar þrótt-
mikilir á þessu sviði - sem og
öllu öðru sem við tökum okkur
fyrir hendur. Framhjáhöld eru
t.d. ekkert óalgengari hér en
annars staðar, og spurning hvort
flokkar kæmu svipað út ef það
væri skoðað.
Mér finnst ekkert skrýtið þó
að græningjar í Þýskalandi elski
oftast, því mér segir svo hugur
að þar sé líka yngsta fólkið og
oft eru svona „aktívistar' virkir á
mörgum sviðum. Ég held hins
vegar að sú blanda græningja
sem er hér heima, sé frekar í
eldri kantinum - en það er aldrei
að vita hvað hreina loftið hefur
mikil áhrif hér á landi á þá
blessaða. Nú af því að hinn
gamli sósíalistaflokkur er hengd-
ur á Steingrím J. og félaga, þá
er nú spurning hvort þetta sé
ekki rólegra hjá VG en ætla
mætti af því að þeir gera jú
alltaf 5 ára áætlanir!
Nú íhaldsmenn eru alltaf
íhaldsmenn, allt í réttum skorð-
um og regla á hlutunum, engar
óvæntar uppákomur! - Nei ann-
ars, ég held að þarna spili líka
inn í: aldur, kyn og fyrri störf.
Guðrún Ögmundsdóttir
þannig að þetta er auðvitað ekk-
ert einhlítt. Og enn held ég að
Island myndi skora hærra í öll-
um pólitískum flokkum, enda
varla inarktækur munur á milli
sumra flokka.
Mínir skoðanabræður og syst-
ur cru hara þokkalega stödd í
þessum málum. Nú systurflokk-
ur framsóknar er vel virkur og
ég held að það hljóti að gleðja
framsókn hér heima og gefa
þeim byr undir báða vængi. Við
þurfum að íý'lgjast með því. En
kannski er það svo, að þeir sem
elskast oftast þurfi að losa meiri
spennu, og þá er kynlífið auðvit-
að afar góður kostur undir slík-
um kringumstæðum. Það má því
spyrja hverjir ganga afslappað-
astir um göturnar - og er
kannski kominn tími til að lesa í
það. Það verður kannski næsta
viðfangsefni?