Dagur


Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 20

Dagur - 05.12.2000, Qupperneq 20
20- ÞRIDJUDAGUK S. DESEMBER 2000 flkurevri-Norðurland Nýgjaldtaka veldur irafári Um helgina var kveikt á jólatrénu frá Randers á Rádhústorginu á Akureyrí við hátíðlega athöfn eins og venjulega. Jólasveinar mættu á svæðið og gerðu ýmsar kúnstir uppi á sviði. Yngstu bæjarbúarnir fylgdust að sjálfsögðu hug- fangnir með, enda sjálf hátíð barnanna að nálgast óðfluga. mynd brink Sveitarstjóri setur ofan í við sveitarstjómarmann íþrótta- og tómstunda- ráð vUl að simdlaugiu liíifi tekjur af öllum sundlaugargestum. Niðurgreiðslur fari t.d. á refkning félags- málasviðs Akureyrar bæjar Samþykkt íþrótta- og tómstunda- ráðs Akureyrar um að tekið verði 120 krónu gjald af ellilífeyrisþeg- um að sundlaugum og skíða- mannvirkjum olli miklu írafári á fundi bæjarstjórnar Akureyrar sl. þriðjudag. Ellilífeyrisþegar hafa verið undanþegnir allri gjaldtöku til þessa. Tekjur vegna þessara breytinga voru áætlaðar 3 milljón- ir króna. Bæjarstjórn ákvað að vísa málinu til bæjarráðs til ákvörðun- ar. Brögð hafa verið að því að að- gangskort séu ekki endurnýjuð, og því er farið að krefjast þess að all- ir gestir Sundlaugar Akureyrar sýni það þegar komið er í sund. Hugmyndir eru einnig uppi um að gefa út eitt kort sem gildir t.d. í sund, á skíði og í strætó. Guðmundur Jóhannsson, á sæti í íþrótta- og tómstundaráði. Hann segir að íþrótta- og tómstundaráð þurfi IVrst og fremst að hugsa um rekstur mannvirkjanna og afla Hvað er til vinstri í pólitík? Er það eitthvað betra en það sem er til hægri í pólitík? Reynslan er sú að illa hefir gengið að fá kjarasamninga til að halda þeg- ar vinstrimenn hafa ráðið í rík- isstjórnum og ekki hefir þeim gengið of vel með ríkisfjármál- in. Það kann að vera ástæðan fyrir því að þeir hafa svo oft gert aðför að kjarasamningum verkafólks til ógíldingar eða eins mikilla tekna og framast er unnt. „Sundlaugin verður fyrir út- gjöldum ef ellilífeyrisþegar eru undanþegnir gjaldskyldu, ekki bara héðan heldur alls staðar að af landinu og það kemur niður á rek- stri hennar. Ef ekki á að inn- heimta aðgangseyri hjá þessu fólki þarf sundlaugin að fá þessa pen- inga annars staðar frá, t.d. frá fé- lagsmálasviði Akureyrarbæjar. Stór hluti þessa fólks hefur góð efni á því að greiða fyrir sig í sund, en það eru kannski ungir foreldr- ar sem ættu frekar að njóta ein- hverrar ívilnunar þegar fjölskyld- an kemur saman í sund. Rekstur- inn kostar tugi milljóna, en þjón- ustan er sú sama fyrir alla. Þjón- ustan er einnig að aukast á skíða- svæðinu og í félagsmiðstöðunum hjá unga fólkinu, og þar kostar aukið starfsmannahald sem nem- ur rúmum 2 milljónum króna,“ segir Guðmundur Jóhannsson. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri, segir að málið snúist um fleira en sundlaugina, einnig skíðamannvirkin, og að þessi mannvirki fái þær tekjur sem þeim ber. T.d. fái leikskólarnir þá tekjupósta sem þeim ber og niður- greiðsla til forgangshópa komi annars staðar fram í bæjarreikn- ingunum. Sjónarmið íþrótta- og tómstundaráðs sé því skiljanlegt og það sjónarmið verði m.a. rætt í bæjarráði. GG frestunar. Nú koma nýir póli- tískir ævintýramenn fram á völlinn og hvetja launamenn og þá sem sitja lægst við alls- nægtaborð þjóðfélagsins til að kjósa samkrullaða vinstrimenn til þess að stjórna þjóðfélaginu. En fortíðin hræðir menn frá því að kjósa þannig. Brynjólfur Brynjólfsson. Brynjólfur Gíslason, sveitarstjóri Húna- þings vestra, segir stadhæfingar Þor- steins B. Helgasonar, fuUtrúa Framtíðar- listans um skuldir sveitarfélagsins al- rangar. Þorsteinn B. Helgason bóndi á Fosshóli og fulltrúi Framtíðar- listans í sveitarstjórn Húna- þings vestra, telur að alls ekki sé tímabært að ráðast í bygg- ingu íþróttahúss á Hvamms- tanga þar sem fjármagn vanti til að viðhalda og bæta þau íþróttamannvirki sem fyrir séu í sveitarfélaginu. Skuldir sveitar- félagsins í árslok 1999 á hvern íbúa hafi verið 169 þúsund krónur og ljóst að skuldir aukist töluvert á þessu ári. Við bygg- ingu íþróttahúss yrðu skuldir á hvern fbúa allt að 240 þúsund krónur. Þorsteinn telur að nær væri að þjappa fólki saman í sveitarfélaginu en ekkí að sun- dra því. Bynjólfur Gíslason, sveitar- stjóri, segir staðhæfingar Þor- steins B. Helgasonar alrangar. Skuldir sveitarsjóðs séu 151 þúsund krónur á íbúa og þær séu 119 þúsund krónum lægri en skuldir sambærilegra sveitar- félaga að íbúatölu, s.s. Bessa- staðahrepps, Sandgerðis, Vest- urbyggðar, Siglufjarðar og Olafsfjarðar. Fjárhagsleg staða sveitarsjóðs Húnaþings vestra hefði verið neikvæð í árslok 1999 um 34.654 krónur á íbúa og 172 þúsund krónum skárri en sem nemur fjárhagslegri stöðu samanburðarsveitarfélag- anna. Sveitarstjóri telur það einnig með öllu óskiljanlegt að Þorsteinn haldi því fram að skuldir muni aukast þar sem af- borganir langtímalána muni nema 20 milljónum króna árið 2000 en engin ný lán tekin. I niðurlagi bókunar sveitar- stjóra á fundi sveitarstjórnar ný- verið varar hann við að farið sé með fleipur um stöðu sveitar- sjóðs. Þar segir m.a.: „Sveitar- stjóri gat þess á síðasta fundi sveitarstjórnar að honum fynd- ust furðusögur af stöðu sveitar- sjóðs til hnjóðs þeim sem bæru þær út. Sveitarstjórnarmenn eigi að hafa það greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu sveit- arsjóðs á hverjum tíma að þeir Ieiðrétti slíkar furðusögur, hvar í pólitík sem þeir standa, frem- ur en að ala á vitleysishjali.11 GG SKOÐANIR BRYNJÓLFS Vinstri hvað? Verk sem skeimntir Föstudaginn 1. desember frum- sýndi Leikfélag Olafsfjarðar leik- ritið „Ef ég væri gullfiskur" eftir Arna Ibsen í félagsheimilinu Tjarnarborg. Leikstjóri er Þröst- ur Guðbjartsson. Ljósameistari var Ingvar Björnsson, en Anton Konráðsson er ljósa- og hljóð- maður. „Ef ég væri gullfiskur" er ærslaleikur. Leikritið krefst mikls hraða, lipurrar sviðferðar og skjó- tra viðhragða leikenda og er ánægjulegt að sjá, hve vel Icik- stjóra hefur í miklu flestum til- fellum tekist að ná þessum þátt- um í uppsetningunni í Olafsfírði. Samkvæmt því, sem segir í Ieik- skrá, eru flytjendur flestir lítt sviðsvanir. Með það í huga verð- ur útkoma verka leikstjórans enn eftirtektar- og Iofsverðari. Þá er textakunnátta í hinu besta lagi og einnig framsögn, sem þrátt íyrir hraðan gang var jafnan í góðu lagi svo að hið talaða orð skilaði sér vel, nema þar sem hlátur áhorfenda yfirgnæfði, en það var tíðum. Megi nokkuð hér að finna er það helst, að ekki skuli hafa verið gert ráð fyrir, að leikendur gætu gert hlé í framsögn sína og fyllt hana til dæmis með látæði, þegar hlátrasköll gengu um sal- inn. Sviðsmyndin, sem er \>erk leik- stjórans og mikils fjölda ahnarra, er talsvert viðamikil og fer vel á i.'iíi:i.(ii iqaa< . oi; go int>p sviði Tjarnarborgar. Hún þjónar verkinu vel. Hið sama er um lýs- ingu sem og búninga, en þeir eru verk leikhópsins. Guðni Harðarson fer með „Ef ég væri guUfisk- ur“ er nokkuð mikið blautlegt verk. Það ber ekki mikinn boð- skap, en það svo sann- arlega skemmtir. hlutverk Péturs, föðursins. Hann nær nokkuð góðum tökum á per- sónunni, einkum í fyrsta atriði sínu. Guðbjörgu, viðskiptafélaga Péturs, leikur Hafdís Kristjáns- dóttir. Hún nær góðum sprett- um, en er nokkuð daufleg á stundum. Brynjólf, son Péturs, leikur Helgi Reynir Arnason. Hann fer víða á kostum en líður nokkuð fyrir það, að vera óhóflega og trullandi á iði í túlkun sinni. Kristínu, eiginkonu Brynjólfs, leikur Sigríður lngimundardóttir. Hlutverkið er ekki stórt, en Sig- ríður kemst vel á skrið í því, eink- um þegar á líður seinni hluta verksins. Halldóra, dóttir Péturs, er leik- in af Valgerði Stefánsdóttur. Hún er nokkuð yfirdrifin í túlkun sinni en nær miklu tfðast að skapa kómíska persónu. Eyjólf, sambýlismann Flalldóru, leikur Birkir Guðnason. Hann nær tals- vert miklu út úr litlu hlutverki sínu einkum er á líður verkið. 'V Iloteuoyliq Albert, son Péturs, leikur Kol- beinn Arnbjörnsson. Hann nær góðum tökum á persónunni, er lipur á sviði og skilar samfelldum leik. Halla Jóhannesdóttir er f hlutverki Kolbrúnar, eiginkonu Alberts. Hún er verulega lífleg í túlkun sinni og nær góðum og samfelldum tökum á persónunni. Alda, nokkuð lausgirt kona, er leikin af Fjólu Bláfeld Stefáns- dóttur. Hún er skemmtilega óheft og sannfærandi í túlkun sinni og skilar samfelldri persónu leikinn á enda. Títu, vinnukonu, leikur Auður Osk Rögnvaldsdótt- ir og gerir miklu tíðast vel. „Ef ég væri gullfiskur" er nokk- uð mikið blautlegt verk. Það ber ekki mikinn boðskap, en það svo sannarlega skemmtir. fiie^ .c-t- ool : í n t f m riíLiíííí: iljíjíiíííí h i

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.